Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990. Jarðarfarir Bjarni Sveinsson verslunarmaður lést 26. mars. Hann var fæddur á ísafirði 5. september 1908. Foreldrar hans voru hjónin Sveinn Haildórs- son og Ingibjörg Jónsdóttir. Eftirlif- andi eiginkona Bjarna er Fanney Sigrún Jónsdóttir. Bjarni eignaðist eina dóttur fyrir hjónaband. Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Bergþóra Jónsdóttir lést 29. mars. Hún fæddist í Súðavík við Álftaíjörð 15. ajiríl 1906, dóttir Jóns Jónssonar og Olafar Margrétar Bjamadóttur. Bergþóra giftist Ólafi Guðmunds- syni, en hann lést árið 1961. Þau hjón- in eignuðust tvær dætur. Bergþóra rak lengi sínar eigin prjónastofur. Útför hennar verður gerö frá Bú- staðakirkju í dag ki. 13.30. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Grænibakki 3, Bíldudal, þingl. eign Andrésar Garðarssonar, fer fram eftir kröfú Hallgríms B. Geirssonar hrl., Jóns Eiríkssonar hdl., Byggingasjóðs ríkisins, Innheimtustofunnar sf. og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga þriðjudag- inn 10. apríl 1990 kl. 17.00 á eigninni sjálfri. Aðalstræti 41, Patreksfirði, þingl. eign Gríms Hannessonar, fer fram eftir kröfú Guðmundar Jónssonar hdl., Ásgeirs Thoroddsen hdl., Hallgríms B. Geirssonar hrl., Landsbanka Is- lands og Byggingasjóðs ríkisins þriðjudaginn 10. apríl 1990 kl. 14.00 á eigninni sjálfri. Hafnarbraut 2, Bfldudal, þingl. eign Þb. Kaupfél. V.-Barð., en tal. eig. Ed- inborg hf., fer fram eftir kröfií Þb. Kaupfél. V.-Barð., Gísla Baldurs Garðarssonar hdl. og Innheimtu ríkis- sjóðs þriðjudaginn 10. apríl 1990 kl. 17.30 á eigninni sjálfri. Miðtún 4, lc, Tálknafirði, þingl. eign Kristjáns Karls Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu Tryggva Guðmunds- sonar hdl, Byggingasjóðs ríkisins og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga þriðjudag- inn 10. apríl 1990 kl. 15.00 á eigninni ‘Sjálfri. Túngata 35, Tálknafirði, þingl. eign Viðars Stefánssonar og Svandísar Leósdóttur, fer fram eftir kröfú Sveins Skúlasonar hdl., Ammundar Back- man hrl., Guðmundar Jónssonar hdl., Bmnabótafélags íslands, Landsbanka Islands, Byggðastofnunar, Bygginga- sjóðs ríkisins, Lífeyrissjóðs Vestfirð- inga, Gísla Kjartanssonar hdl. og Tálknafj íirðíirhrepps þriðjudaginn 10. aprfl 1990 kl. 18.30 á eigninni sjálfri. Dalbraut 34, Bfldudal, þingl. eign Magnúsar Inga Björgvinssonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka Islands, Lögheimtunnar hf., Byggingasjóðs ríkisins og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga þriðjudaginn 10. apríl 1990 kl. 16.00 á eigninni sjálfri. Dalbraut 40, Bíldudal, þingl. eign Óskars Bjömssonar, fer fram eftir kröfu Jóhanns H. Níelssonar hrl., Inn- heimtustofúnnar sf. og Byggingasjóðs ríkisins þriðjudaginn 10. apríl 1990 kl. 16.30 á eigninni sjálfri. SÝSLUMAÐUR BARÐASTRANDARSÝSLU Aaglýsendiir, athugíð! Síðasta blað fyrir páska kemur út míð- víkudagínn 11. apríl. Fyrsta blað eftir páska kemur út þriðju- daginn 17. apríl og er DV eina dag- blaðið sem kemur þá út. Siðasti skiladagur í þessi blöð er þríðju- dagurinn 10. apríl. Sumardagurinn fýrstí er fimmtudagur- ínn 19. apríl. DV kemur ekki út þann dag. DV kemur út miðvikudagínn 18. apríl og einníg föstudaginn 20. april og er eina dagblaðið sem kemur út þann dag. Síðastí skiladagur i þessi blöð er þríðju- dagurinn 17. apríl. DV auglýsingar, Þverholti 11, simi 27022 Arndís Baldurs verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 7. aprD kl. 14. Þorgils Benediktsson læknir, Kárs- nesbraut 47, Kópavogi, sem lést á Vífilsstaðaspítala 1. apríl, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 10. apríl kl. 13.30. Sæunn B. Jónsdóttir, ættuð frá Helgadal, Mosfellssveit, Grenimel 25, Reykjavík, er látin. Bálfórin hefur farið fram. Sigriður Kristjánsdóttir frá Sólstöð- um, Súgandafirði, verður jarðsungin frá Suðureyrarkirkju laugardaginn 7. apríl kl. 14. Vigfús Guðmundsson bóndi, Eystri- Skógum, Austur-Eyjaíjöllum, verður jarðsettur frá Eyvindarhólskirkju laugardaginn 7. apríl kl. 14. Andlát Elliði Nordahl Guðjónsson er látinn. Bifhjolamenn ’';ÆVf/fee, hafa enga heimild Ttf til að aka hraðar en aðrir! Nýjar plötur The Very Best of Cat Stevens „Flest það besta“ plötur Á flestu átti ég frekar von en safni bestu laga Cats Stevens. Ástæða: stuðningur fyrrum popp- stjömunnar og núverandi islamsp- rédikarans við dauðadóm Khó- meinís erkiklerks yfir rithöfundin- um Salman Rushdie. Yfirlýsing Stevens, sem nú heitir reyndar Yussef Islam, vakti reiði íjöl- margra. Plötur hans voru brotnar og söngkona 10000 Maniacs krafðist þess að lagið Wild World yrði ekki með á plötu hljómsveitarinnar, In My Pride, í framtíðinni. Maður heíði því búist við því að útgefand- inn héldi nafni Cats Stevens ekki á lofti um sinn. En þrátt fyrir allt verður að við- urkennast að Cat Stevens var góð- ur smellasmiður og þokkalegasti söngvari á árunum kringum 1970. Það hefur líka íjöldi hljómlistar- manna uppgötvað því að lög Ste- vens er víða að finna á annarra plötum. Rod Stewart hefur flutt First Cut Is The Deepest. Maxi Pri- est gerði Wild World feikivinsælt, fjölmargir hafa spreytt sig á Morn- ing Has Broken. Peace Train með 10000 Maniacs var fyrr nefnt. Og þannig mætti lengi nefna. Ferill Cats Stevens reis hæst á áranum 1970 til 1971. Þá sendi hann frá sér plöturnar Tea For The Till- erman og Teaser And The Firecat. Af átján lögum safnplötunnar The Very Best Of Cat Stevens eru tíu af þessum tveimur plötum. Rétt er að minnast þess sem Paul Samwell Smith skrifar með plötunni, að Cat Stevens sendi alls frá sér ellefu stórar plötur áferh sínum frá 1966 til 1978. Gaman er að heyra á þessari plötu nokkur elstu lög Stevens, svo sem I Love My Dog og Matthew And Son. Þá eru á plötunni nokkur lög frá því eftir Teaser. í þann hóp vantar tilfinnaniega Sitting af Catch Bull At Four. Að öðru leyti er ég fyllilega sáttur við vahð. Og sér í lagi við að gamla Sam Cooke lagið Another Saturday Night skyldi vera haft með. Það hefur alla jafna verið skilið út undan á fyrri safnplötum Cats Stevens. Sem sagt að flestöllu leyti eigulegasti gripur fyrir gamla og nýja aðdá- endur gamallar poppstjörnu sem lifði sitt fegursta fyrir tæpum tveimur áratugum tónlistarlega séð. -ÁT John Lee Hooker The Healer Gamall skröggur í stjörnufans Bluesplötumar, sem gefnar hafa verið út með John Lee Hooker, losa nú hundraðið. Sú fyrsfa kom út áriö 1947 fyrir 43 árum. Hooker hefur því svo sannarlega verið ið- inn í hljóðverum um ævina þótt nokkur hluti platna hans sé vita- skuld safn bestu laga svo og hljóm- leikaplötur. Sú nýjasta, The Healer, kom út síðla á síðasta ári. Útgáfan er sér- kennileg fyrir þær sakir að kvadd- ur er til leiks hópur heimsþekktra tónlistarmanna. Allir eða að minnsta kosti flestir í hópnum telja sig til nemenda Hookers í blues- fræðunum. Þarna heyrum við í Carlos Santana og félögum, Bonnie Raitt, Robert Cray, Los Lobos hljómsveitinni, George Thorogood og félögum úr Canned Heat. Þetta er mikill stjörnufans. Sam- safn tónlistarfólks sem hefur náð langt á frægðarbrautinni. Með því að auglýsa þennan hóp á einni og sömu plötunni heföi hún selst, burtséð frá þvi hvort John Lee Hooker hefði verið með eða ekki. Því miður hvarflaði það aö mér er ég hlustaði á plötuna að sumir hefðu einungis fengið að vera meö til þess að vekja meiri athygli á plötunni en hún heföi fengið ella. Carlos Santana heföi til að mynda allt eins getað verið í hlutverki gestgjafans og John Lee Hooker gesturinn. Bonnie Raitt stendur sig hins vegar bráðvel í laginu I’m In The Mood. Það þurfti aðeins einu sinni að renna í gegnum lagið í hljóðveri og það varð ekki betrum- bætt. Dúett Hookers og Georges Thorogoods, Sally Mae, er einnig ágætur. í þremur lögum plötunnar er John Lee Hooker einn á ferð. Þau era eftirtektarverðust. My Dream er einnig áheyrilegt. Þar taka Fito de la Parra trommuleikari og Larry Taylor bassaleikari lagið með gamla skrögg. Og sennilega er My Dream einmitt lagið sem stendur upp úr í látleysi sínu þegar á allt er litið. -ÁT Fjölmiðlar Sláandi sjónvarpsþáttur Þáttur Ríkissjónvarpsins í gær- kvöld frá Rúmeníu var afar sláandi. Þótt s vipaðar myndir hafi áður sést í sjónvarpi breytir það ekki því að svona myndir virka á áhorfendur. Það er hreint ótrúlegt hvemig farið er með fólk. Sjónvarpið á lof skilið fyrir þáttinn. Þá fyrst og fremst kvikmyndatökumennirnír. Okkur, sem búum vel að flestum þeim sem minnst mega sín, bregður illilega við svör forstöðumanna þessara hæla. Vonleysið til að gera betureralgjört. Þaö er sárt að finna hvað við erum vanmáttug til að koma þessu htjáöa fólki til aðstoðar. Þennan þátt má Sjónvarpið endursýna. Þeir sem misstu af honum misstu af góöum þætti. Þáttur Helga Péturssonar, „Það kemur í ljós“ á Stöð 2, var frekar bragðlítill, Hann fékk til sín góða söngvara og þeir skiluðu sínu. Um- ræðurnar voru aftur þreyttar. Kvik- myndageröarmenn hafa til dæmis svo oft verið spurðir hvað þeir myndu gera við peningana sem frú- in i Hamborg gefur þeim. Sérfræðingar Helga, það eru börn- in, eru gott innskot í þættina. Helgi Pétursson er góður sjónvarpsmað- ur. í gærkvöldi var hins vegnar lak- asti þáttur hans sýndur. Sigurjón M. Egilsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.