Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1990, Síða 10
10
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990.
Úflönd
Tvö böm leika sér í rústum husa í Beirut, höfuðborgar Libanons.
Símamynd Reuter
Sprengjum rigndi yflr kirkju í kristna hluta Beirútborgar, höfuðborgar
Líbanons, í gaer. Margt fólk hafði safnast saman í kirkjunni til að biöja
fyrir friði. Að minnsta kosti ein kona lést og sex aðrir kirkjugestir særö-
ust alvarlega þegar sprengjumar féllu. Átök í borginni í gær eru þau
höröustu sem íbúar Beirút hafá orðið vitni að síðan í janúar þegar bardag-
ar hófust milli andstæðra fylkinga kristinna manna. Að minnsta kosti
tólf létust í gær og tuttugu og fimm særöust.
Bardagamir í gær hófust aðeins örfáum klukkustundum eftir að Hrawi,
forseti Libanons, bauöst til að miöla málum. Forsetinn lýsti þvi yfir að
hann myndi bregðast jákvætt við beiðni Samir Geagea, leiðtoga kristinna
þjóövarðliða, um að senda hermenn sína inn í hinn kristna hluta Beirut
en bardagar hafa staðið á milli liðsmanna Geagea og hermanna undir
stjóm Michels Aoun frá því í lok janúar. Forsetinn sagði ekki hvenær
hann myndi senda hermenn sína af staö. Fréttaskýrendur s.egja ólíklegt
að þessi ákvörðun forsetans mund hafa nokkur áhrif á stríð trúbræðr-
anna í Beirút en það hefur þegar kostað rúmlega níu hundruð manns lífið.
Sovéskur trúður flýr sirkuslnit
Sovéskur trúður, sem vann hjá Moskvusirkusnum, hefur faríð fram á
pólitískt hæli í Bandaríkjunum, að því er bandarískur lögfræðingur
skýrði frá í gær. Sergei Uhanov, 28 ára gamall starfandi trúður, stakk af
að lokinni sýningu í borginni Reno í Nevadafylki á sunnudag. Lögfræðing-
ur Uhanov í Bandaríkjunum segir að Uhanov óttist að sér verði refsað
fyrir sumar sinna pólitísku skoöana þurfi hann að snúa heim á ný. Sirkus-
inn var á sýningarferðalagi í Bandaríkjunum.
Stjórnarskrárbreytingar í Belgíu?
Rúmlega níutíu þingmenn stjóraarandstöðunnar í Belgíu tóku ekkiþátt
í atkvæðagreiðslu í gær þegar þingmenn beggja deilda þingsins kusu að
setja Baldvin Belgiukonung aftur í embætti. Konungur vék tímabundið
úr embætti fyrr í vikunni á þeim forsendum að samvisku sinnar vegna
gæti hann ekki samþykkt lög sem heimila fóstureyðingar í landinu. Mng-
ið, sem gegndi skyldum hans á meðan, samþykkti lögin.
Þessar deilur sem og afstaða konungs hafa valdið deilum í Belgíu. For-
sætisráðherra hefur lagt til breytingar sem tryggi að svipuð staða komi
ekki upp aftur. Þetta gæti þýtt uppstokkun á stjórnarskránni og jafnvel
að felld yrði úr gildi sú skipan að konungur veröi að undirrita irumvörp
til laga áður en þau fá lagagildi.
í gær komu báðar deildir þings Belgíu saman og samþykktu að setja
Baldvin á ný í embætti með 245 atkvæðum gegn engu. Níutíu og þrir
þingmenn stjómarandstöðunnar sátu hjá við atkvæðagreiðsluna og sök-
uðu stjórnina um að gera lítið úr lýðræðinu.
Uppljóstranir um nýnasista
Frans Schönhuber, leiótogi repúblikana.
Simamynd Reuter
Vestur-þýskur blaðamaður, Michael Schomers, kom fram i sviðsljósið
i gær eftir að hafa villt á sér heimildir og gerst virkur félagi í flokki repú-
blikana í sjö mánuði. Þetta gerði hann til að afla sér upplýsinga um starf-
semi flokksfélaganna sem em öfgamenn til hægrí.
Blaðamaðurinn hækkaöi svo mikið í tign innan flokksins að hann tók
þátt í fundum helstu mannanna í flokknum. Segir hann allt annan anda
ráða þar heldur en út á við. Ekki er farið leynt með andúö á gyðingum
og kynþáttahatur almennt og ekki heldur að markmið flokksins er Stór-
Þýskaland sem meðal annars austurhluti Póllands og hlutar Sovétrikj-
atma, Tékkóslóvakíu og Austurrikis tilheyröu.
Blaðamaöurinn sagði fjölda nýnasista vinna á bak við tjöldin.
Kcuter og Kitr.au
DV
Tugþúsundir Kínverja i Hong Kong minntust í gær þeirra sem féllu á Torgi hins himneska friðar í Peking í byrjun júní
í fyrra. Simamynd Reuter
Mikill viðbúnaður
lögreglu í Peking
Gífurlegur viðbúnaður í miöborg
Peking í Kína í gær kom í veg fyrir
að almenningur gæti þar minnst
þeirra sem féllu í blóðbaðinu á Torgi
hins himneska friðar þann 4.júní í
fyrra. Dagurinn í gær var sá dagur
sem Kínverjar minnast látinna á
hefðbundinn hátt. í Hong Kong söfn-
uðust hins vegar tugþúsundir saman
til að minnast þeirra námsmanna og
verkamanna sem myrtir voru í Pek-
ing í byrjun júní í fyrra á torginu
risastóra.
í gær var torgið girt af með járn-
hhðum frá því klukkan hálfníu um
morguninn og stóðu vopnaðir lög-
reglumenn vörð við það. Fjöldi lög-
reglumanna var einnig á nærliggj-
andi götum til að leggja áherslu á að
cúlar tilraunir til mótmæla yröu ár-
angurslausar. Yflrvöld höfðu
snemma gert heyrinkunnugt að eng-
in opinber sorgarhátíð yrði leyfð og
hafði það verið tilkynnt bæði í há-
skólum og á vinnustöðum.
Eftir að torgið hafði verið lokað
Vopnaðir kínverskir hermenn á
verði við Torg hins himneska friðar
í Peking í gær.
Símamynd Reuter
almenningi í gær kom íjöldi lang-
ferðabifreiða með skólabörn sem
taka áttu þátt í hátíðahöldum sem
yflrvöld höföu skipulagt. Dreift haföi
verið flugmiðum í háskólum og á
vinnustöðum þar sem Pekingbúar
voru hvattir til að bera svarta borða
og hvít blóm í gær til aö heiöra minn-
ingu hinna fóllnu. En slíkt var hvergi
að sjá.
í Hong Kong minntust tugþúsundir
manna þeirra sem féllu fyrir hendi
kínverskra hermanna í Peking í
fyrra.
Ræðumenn hvöttu mannfjöldann
til aö gleyma aldrei þeim sem höfðti
látið lííið vegna trúar sinnar á lýð-
ræðislegar breytingar í Kína.
Samtök til stuðnings lýðræðis-
baráttunni í Kína hafa ráðgert fjölda
mótmælafunda í Hong Kong í vor.
Búist er við að 15. apríl, þegar ár er
liðið frá andláti Hus Yaobang, fyrr-
um flokksleiðtoga, verði mikill mót-
mæladagur en þaö var einmitt frá-
fall Hus sem varð upphafið að upp-
reisn námsmanna.
TT
Kosningaloforð svikin í Svíþjóð:
Nýjar tillögur um
efnahagsaðgerðir
Minnihlutastjóm sænska Jafnað-
armannaflokksins og Þjóðarflokkur-
inn, sem er í stjórnarandstööu,
kynntu í gær sameiginlega tillögur
um aðgerðir sem rétta eiga við efna-
haginn í Svíþjóð.
Leiðtogar beggja flokkanna, Ingvar
Carlsson og Bengt Westerberg, áttu
fullt í fangi með að sannfæra þing-
menn flokka sinna um ágæti tillagn-
anna. Þjóðarflokksmenn þurftu tvær
og hálfa klukkustund til að kyngja
hækkun á virðisaukaskattinum og á
fundi þingflokks jafnaðarmanna
lýstu margir sem til máls tóku yfir
vonbrigðum sínum með að kosninga-
loforðin um lengingu á bameignafríi
úr tólf mánuðum í fimmtán og sjöttu
sumarfrísvikuna skyldu svikin. Til
að byrja með veröur sumarfríið lengt
um tvo daga.
Carlsson forsætisráðherra sagöi á
fundi með fréttamönnum að áætlanir
um lengra bameignafrí yrðu fram-
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, kynnti í gær nýjar tillögur
um efnahagsaðgerðir. Tillagan nýt-
ur stuðnings Þjóðarflokksins og því
iiklegt að hún verði samþykkt á
þingi.
kvæmdar þótt það yrði ekki eins
fljótt og ráðgert hafði veriö. Reyndar
neitaði forsætisráöherrann að gefið
hefði verið loforð um sjöttu sum-
arfrísvikuna. Ekki hefði veriö lofað
að hrinda áætluninni strax í fram-
kvæmd.
Fyrir ári barðist Kjell-Olof Feldt,
þáverandi fjármálaráðherra, árang-
urslaust fyrir tveggja prósenta
hækkun á virðisaukaskatti. Alhr
stjórnarandstöðuflokkarnir sögðu
nei og í kjölfarið fylgdi uppgjör við
Miðflokkinn um meðal annars
skyldusparnað. En nú verður sem
sagt virðisaukaskatturinn hækkaður
um eitt prósent tímabundið. Hækk-
unin er tahn eiga að taka gildi l.júlí
og hún á að gilda þar til í árslok 1991.
Efnahagsaðgerðirnar, sem kynntar
voru í gær, fela í sér að fallið verður
frá verðstöðvun svo að segja strax.
TT