Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Page 8
8
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990.
Utlönd
Tölvuspár um kosningarnar í Rúmeníu:
Þjóðfrelsishreyfingin
vann yfirburðasigur
Margir Rúmenar fengu i gær að kjósa í frjálsum kosningum í fyrsta sinn.
Það urðu margir æði áttavilltir þegar kom að sjálfum kosningunum, eins
og þessi mynd ber með sér. Simamynd Reuter
Samkvæmt tölvuspám vestur-
þýsku stofnunarinnar Infas vann
Þjóöfrelsishreyflngin í Rúmeníu,
sem nú situr viö völd, yfirburðasigur
í kosningunum sem fram fóru þar í
landi í gær, þeim fyrstu frjálsu sem
haldnar hafa verið í Rúmeníu í fimm-
tíu ár. Stjórnarandstæðingar eru
ekki á eitt sáttir um kosningarnar
og segja þær ekki hafa farið heiðar-
lega fram.
Samkvæmt tölvuspám hinnar
virtu stofnunar Infas fékk Ion Ilies-
cu, forseti bráðabirgðastjórnar Þjóð-
frelsishreyfingarinnar og fyrrum
kommúnisti, 83 prósent atkvæöa en
kosið var bæði til þings og forseta í
gær. Radu Campeanu, leiðtoga
Fijálslynda fiokksins, er spáð 11 pró-
sentum atkvæða og Ion Ratiu, leið-
toga Bændaflokksins, sex prósent-
um, samkvæmt spánni.
Þjóðfrelsishreyfmgin fær 66 pró-
sent atkvæða í þingkosningunum að
því er Infas spáir. Það þýðir aö hreyf-
ingin hefur fengið hreinan meiri-
hluta í báðum deildum hins nýja lög-
gjafarþings þjóðarinnar. Frjálslyndi
flokkurinn fær tíu prósent en
Bændaflokkurinn fjögur prósent.
Lýðræðishreyfing Ungveija, sem er
stærsti flokkur minnihluta Ungveija
í Rúmeníu, fær tíu prósent fulltrúa
á þinginu, gangi þessi spá eftir.
Standist spár Infas um stórsigur
Þjóðfrelsishreyfingarinnar hefur
Rúmenía gengið þvert á það fordæmi
sem Austur-Evrópa setti í kosning-
um fyrr á árinu en bæði Ungverjar
og Austur-þjóðverjar kusu hægri-
flokka á valdastól í stað fyrrum
kommúnista. En hvað sem líður
spám og úrslitum eru bæði frétta-
skýrendur og stjórnmálamenn sam-
mála um að kommúnisminn eigi sér
engrar viðreisnar von í Rúmeníu.
Ásakanir um ofbeldi
Iliescu vísaði í gær á bug ásökun-
um um að kosningabaráttan hefði
einkennst af ofbeldi og hótunum af
hendi stuðningsmanna Þjóðfrelsis-
hreyfíngarinnar. Harðar ásakanir
um spillingu og yfirgang af hendi
stuðningsmanna hreyfingarinnar
urðu æ háværari er líöa tók á kosn-
ingabaráttuna í Rúmeníu og í síðustu
viku kallaði Bandaríkjastjórn sendi-
herra sinn heim um stundarsakir til
að láta í ljósi áhyggjur sínar. Erlend-
ir eftirlitsmenn, sem fylgst hafa með
undirbúningi kosninganna, kosning-
abaráttunni og kosningunum sjálf-
um, munu ræða við fréttamenn í dag
og láta í ljósi sitt álit á þessum kosn-
ingum sem voru haldnar fimm mán-
uðum eftir að Ceausescu, fyrrum
haröstjóra, var steypt af stóli.
Strax og kjörstöðum var lokað í
gærkvöldi lýstu andstæðingar Þjóð-
frelsishreyfíngarinnar því yfir að
þeir myndu fara fram á að úrslit
kosninganna yrðu lýst ómerk og
ógild þar sem þær hefðu ekki farið
fram samkvæmt settum reglum og á
lýðræðislegan hátt. Campeanu, leið-
togi Fijálslynda flokksins, sagði að
kosningarnar hefðu ekki verið frjáls-
ar og hinn keppinautur Iliescus, Ion
Ratiu, sakaði Þjóðfrelsishreyfmguna
um „óheiðarlega folsun“.
Ratiu og Campeanu hafa sagt að í
Tölvuspár benda til að þessi maður,
lon lliescu, hafi fengið allt að 83
prósent atkvæða i kosningunum um
forseta Rúmeníu en þær fóru fram
í gær samhliða kosningum til þings.
Simamynd Reuter
Þjóðfrelsishreyfingunni eigi sæti
gamlir kommúnistar sem hafi ekki
látið af sannfæringu sinni. Þeir segja
að þar sem Iliescu og félagar hans
hafi eitt sinn verið háttsettir í stjóm
fyrrum harðstjóra Rúmeníu, Nicolae
Ceausescu, hafi þeir fyrirgert rétti
sínum til að taka þátt í kosningunum.
Fréttaskýrendur telja að ummæli
stjórnarandstæðinga geri hugsan-
lega myndun samsteypustjórnar
mjög erfiða.
Kjörstaðir voru opnir mun lengur
en áætlaö var í Rúmeníu í gær þegar
milljónir Rúmena gengu í fyrsta sinn
að kjörborðinu. Einn embættismað-
ur sagði að kjörsókn hefði verið allt
að 98 prósent í þessum fyrstu frjálsu
kosningum í landinu í fimmtíu ár en
alls eru rúmlega sextán milljónir á
kjörskrá. Fyrstu opinberu tölurnar í
þessum kosningum munu liggja fyrir
síðarídag.mánudag. Reuter
SUMARUTSALA
RYMUM FYRIR NYJUM VÖRUM
r
28
litsjónvarp
m. þráðl. fjarstýringu, skipanir
birtast á skjá.
Ferkantaður flatur skjár.
Stereo hátalarar.
Tenging f. aukahátalara.
Innstunga f. heyrnartól.
Beintenging f. myndbandstæki.
Svefnrofi.
Verð áður kr. 96.950,-
Örbylgjuofnar
Nú frá kr. 15.590,-
Verð áður kr. 21.950,-
Nú kr.
66.950)•
Ferðatæki frá kr. 11.500
Geislaspilarar kr. 11.950,-
Bíltæki frá kr. 5.995,-
Þegar við lækkum verðið þá förum við aiia leið
Verð áður kr. 71.750
21 tommu m/fjarstýringu............kr. 49.950,-
Verð áður kr. 52.600/
20 tomma m/fjarstýringu kr. 37.950,-
1 HlJfl r| D
| Fákafeni 11, sími 688005