Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Side 10
10 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990. Kópavogsbúar! Kvennalistinn heldur opinn fund í kvöld, mánudaginn 21. mai, kl. 20.30 í Menntaskólanum í Kópavogi. Söngur - rœður - tónlist - upplestur Komið og kynnist okkur. Kvennalistinn í Kópavogi. Gabriel HÖGGDEYFAR Amerísk úrvalsvara SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88 HEILSUNNAR VEGNA - GÓÐIR VALKOSTIR ESTER Q-vitomin fwsd c*»cíum Vlnsæla C-vilaminið sem allir tala um. Kröftugt C- vítamin meö kalcíum. Ester C-vitamin daglega bætir heilsuna. Hár-Pantote'n er sérstaklega heilsu- samlegt tyrir: hárið, húðina og neglurn- ar. Góð vftamín- og steinefnablanda. Allir þekkja þýska llja Rog- off gæðahvítlaukinn. Alveg lyktarlaus. Unninn við frysti- þurrkun, með nýrri tækni, og viðheldur þannig ALLIC- ININU og öðrum sulfur efn- asamböndum. Inniheldur Dreifing: Bio-Selen umboðið sfmi 76610 Fást í heilsubúðum 440 MCG af ALLICINI i og mörgum apótek hverjum 100 g. Inniheldur um og mörkuðum. einnigGERMANÍUM. FjárhagsKORN 3.0 Fullkomið fjárhagsbókhald á aðeins 18.924 krónur með vsk. Full endurgreiðsla ef kerfinu er skilao innan 30 daga. Engin takmörk á fjölda ára. Engin takmörk á fjölda reikninga. Engin takmörk á fjölda fyrirtækja. Hámark 10 milljón fylgiskjöl á einu ári. Taktu enga áhættu í kaupum á fjárhagsbókhaldi. Hjá hugKORNi getur þú skilað kerfinu innan 30 daga og fengið fulla endurgreiðslu ef það hentarþér ekki. Eldri notendur af FjárhagsKORNi eða HeimilisKORNi fá FjárhagsKORN 3,0 með nýjum handbókum og diskum fyrir 2,500 krónur með vsk. Auðlært er á FjárhagsKORN og fylgir því ítarleg handbók. Höfum einnig mörg önnur forrit til sölu á góðu verði. hugKORH sf. Ármúla 38 Sími 91-689826 Útlönd Eistlendingar hafa sett á laggirnar heimavarnarsveit sem ætlað er að starfa með lögreglu lýðveldisins. Símamynd Reuter Sjálfstæðisbaráttan 1 Eistlandi: Rússar hóta verkföllum Andstæðingar sjálfstæðisbaráttu Eistlendinga hafa hótað að efna til verkfalla í sovéska lýðveldinu mál- stað sínum til stuðnings. Andstæð- ingarnir, sem flestir eru af rússnesku bergi brotnir, segjast munu hvetja til verkfalla í helsta iðnaði lýðveldisins. Ekki er ljóst hversu margir muni taka þátt í þessum verkfóllum en á síðasta ári lögðu þúsundir Rússa nið- ur vinnu til að mótmæla nýrri kosn- ingalöggjöf sem þeir sögðu vera óréttláta gagnvart Rússum búsettum í Eistlandi. Síðan þau verkfóll áttu sér stað hefur atburðarásin verið hröð í Eystrasaltsríkjum Sovétríkjanna og hver stórviðburðurinn rekiö annan. Öll þrjú ríkin - Eistland, Lettland og Litháen - hafa lýst því yfir aö þau muni vinna að endurheimt sjálfstæð- is þess sem þau nutu á millistríðsár- unum. Litháen hefur gengið þeirra lengst og lýst lýðveldið fullvalda og frjálst ríki. Gorbatsjov Sovétforseti hefur sagt þessar yfirlýsingar ólög- legar og lýst þær ómerkar. Edgar Savisaar, forsætisráöherra Eistlands, kvaðst í gær fullviss um að verkföll myndu ekki hafa mikil áhrif í stærri borgum lýðveldisins og kvaðst telja að mikil andstaða væri við verkfóll, jafnvel meðal Rússa. Fréttaskýrendur telja að komi til víð- tækra verkfalla í Eistlandi muni Dvigatel-hergagnaverksmiðjan í Tallin, höfuöborg Eistlands,' án efa verða helsta miðstöð verkfallsað- gerða. Þar hefur mátt merkja mikla andstöðu við sjálfstæðisfyrirætlanir ráðamanna lýðveldisins. Eistlendingar settu um helgina á laggirnar heimavarnarsveit og sóru hundruð ungra íbúa lýðveldisins hollustueið við Eistland. Savisaar sagði að verkefni þessarar sveitar væri, í samvinnu við lögreglu, að verja opinberar byggingar til að koma í veg fyrir að atburðir síðustu viku, þegar þúsundir andstæðinga sjálfstæðis reyndu að ráðast inn í þinghúsið, endurtækju sig. Liðs- menn, sem verða 3.500, munu ekki bera vopn. Fullvíst er talið að þessi ákvörðun ráðamanna í Eistlandi muni vekja gremju yfirvalda í Moskvu og verði ekki til að bæta samskipti harðlínuleiðtoga Rússa búsettra í lýðveldinu og þjóðernis- sinnaðraEistlendinga. Reuter Fyrirhugaður leiðtogafundur: Bush bjartsýnn James Baker, utanrikisráöherra Bandaríkjanna, ræddi við Gorbatsjov Sov- étforseta fyrir helgi. Símamynd Reuter Bush Bandaríkjaforseti kvaðst í gær vonast til að samningur um fækkun hefðbundinna vopna í Evr- ópu lægi fyrir áður en árið væri á enda. Forsetinn sagðist og vonast til að fyrirhugaður leiðtogafundur stór- veldanna, sem hefst í lok maí, verði árangursríkur og leiði til bættra samskipta ríkjanna. Vonir hafa stað- ið til að á fundinum geti leiðtogarnir undirritað drög að samningi um stór- fellda fækkun langdrægra kjarn- orkuvopna, drög að svokölluðum Start-samningi. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur verið í Moskvu síðustu daga og rætt við sovéska ráðamenn. Þær viðræður voru síðasta tækifæri stór- veldanna til að leysa þau ágreinings- atriði sem staðið hafa í vegi fyrir framfór í Start-viðræðunum fyrir leiðtogafundinn. Að loknum viöræð- unum skýrðu ráðamenn frá því að samkomulag hefði náðst um flest ágreiningsatriðin og í kjölfarið hafa vonir vaknað um að samningur náist fyrir leiðtogafundinn. Þá sögðu þeir einnig að samkomulag hefði náðst milli stórveldanna um að þau hætti framleiðslu eiturgass og fækki í birgðum sínum af eiturefnavopnum. En þrátt fyrir þessa framfór í af- vopnunarviðræðum hefur lítið mið- að í samkomulagsátt í viðræðum landanna um fækkun hefðbundinna vopna. Þær viðræður, sem fara fram í Vín, hafa verið í sjálfheldu síðustu mánuði, ekki síst í kjölfar þeirra miklu hræringa og breytinga sem átt hafa sér stað í ríkjum Austur-Evr- ópu. Vegna þessa ríkir óvissa um hversu hratt ráðamenn í Mosku vilja draga til baka hermenn sína og hefð- bundin vopn frá austurhluta megin- landsins. En þrátt fyrir litla framför kveðst Bush vongóður um að sam- komulag um fækkun heföbundinna vopna liggi fyrir í árslok. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.