Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Page 13
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990.
13
Lesendur
Um ráðherrasvar
og verðbólgu
Óskar Jóhannsson skrifar:
„Sá er hvorki blæstur né holgóma
sem getur nefnt fuglinn Bííífil og
stendur á miöju ftauelaða fjalhnu."
- Þetta upphaf íslensks orðskviðar
kom mér í hug er ég las svar Utanrík-
isráöherra, Jóns Baldvins Hanni-
balssonar í 15. maí sl. við bréfi mínu
sem birtist í blaðinu hinn 10. þ.m.
Utanríkisráðherra lætur ekki
standa upp á sig með eitt eða neitt,
það hefi ég svo sem séð og heyrt áð-
ur. Og oft er unun á hann að hlýða
er hann þeysir á málfáki sínum
óbeisluðum og grípur í þau fáu hár
sem t.d. falla úr „faxi“ fréttamanna
og annarra stautara, sem ekki vita
hvaðan á sig stendur veðriö.
Þrátt fyrir allt vil ég þakka ráð-
herranum fyrir svar hans í DV og
sem sýnir hvað hann lætur sér annt
um að skulda engum í orðræðum,
síst af öllu þeim sem hann telur sér-
staka tóngjafa um feigð ríkisstjórn-
arinnar eða ráðherra almennt. - En
skoðum þetta nánar.
Já, þaö er rétt, það fór fyrir brjóst-
ið á mér fullyrðing ráðherra um aö
verðbólgan væri komin niður í eins
stafs tölu, vegna þess að á eftir fylgdi
hjá honum - í sömu setningunni -
að Seðlabankinn spáði 7% verðbólgu
„síðar á árinu“. Það er allt annar
handleggur. Verðbólgan í dag er enn
Hvað er með
hann Steingrím?
Katrín Jónsdóttir hringdi:
Ég verð að lýsa furðu minni á fram-
ferði ýmissa ráöamanna okkar og á
ég þá aðallega við ráðherrana sem
eru hvað önnum kafnastir flestir við
að ferðast utan og að því er virðist
einungis til að eyða tímanum og láta
birta um sig fréttir hér heima. Fjöl-
miölar hér eru lika alltof móttækileg-
ir fyrir fréttum af þeim því að þetta
er einskis virði þegar allt kemur til
alls.
Mest er ég undrandi á forsætisráð-
herranum okkar, honum Steingrími
Hermannssyni. Hvað er eiginlega
með Steingrím? Hann fer í fjögurra
landa sýn nú á einu bretti. Byrjar í
Egyptalandi, fer síðan til Túnis til
aö hitta Arafat og bjóða samningaað-
stöðu á íslandi fyrir mestu óeirða-
seggi sögunnar, þá ísraelsmenn og
araba. Síðan fer hann til Noregs, og
þaðan til Tékkóslóvakíu. Hefur þetta
eitthvað upp á sig?
Mér finnst Steingrímur alltaf vera
aö koma sér í einhverjar svona smá-
klípur, er ekki búinn að losna úr
einni fyrr en hann er kominn í aðra.
Og þetta með myndavélina frá Stöð
2, það finnst mér nú bara vera eins
og lygasaga. Stööin lánar, Steingrím-
ur tekur við, Stöðin býður borgun,
Steingrímur þiggur, Stöðin neitar að
hafa boðið borgun, Steingrímur segir
að Stöðin megi fá það af myndum
sem hún geti notað, það sé velkomið.
Mér finnst þetta allt með endemum,
ég verð að segja það, og hef áhyggjur
af þessu öllu. Verulegar áhyggjur.
Góð gisting
á Geysi
Svavar, Egill og Bjössi hringdu:
Við félagarnir viljum vekja athygh
á sérlega góðri þjónustu sem við
fengum á Hótel Geysi í Skipholti í
Reykjavík fyrir skömmu.
Starfsliðið þar er allt til fyrirmynd-
ar og þjónustan eins og best verður
á kosið. - Sérstökum þökkum viljum
við koma áleiðis til Lindu Bjarkar
fyrir frábær liölegheit.
Ef þú lesandi góður þarft á gistingu
að halda á hóteli í Reykjavík þá
mælum við félagarnir með Hótel
Geysi. - Þar er gott og um leið ódýrt
að gista.
á bilinu 11 til 12 prósent. Það er merg-
urinn málsins, þó svo að nýjasta
mæhng sýni milli 8 og 9% miðað við
■" 3ja mánaöa tímabil. - Þetta er allt
sem ég hélt fram og geri enn. - Og
það staðfestir ráðherra einnig í svari
sínu 15. þ.m.
Ég er ekki í hópi þeirra sem skulda
tiltakanlega mikið en ég hef ekki séð
þess stað í vaxtagreiðslum að hér séu
breyttir tímar framundan, hvað
varðar vaxtalækkun. Ég er heldur
ekki í hópi þeirra sem hafa hagnast
á vaxtaokrinu og ég er heldur ekkert
aö kenna þessari ríkisstjórn eða ann-
arri um vaxtahækkun yfirleitt. Vext-
ir hér á landi verða einfaldlega alltaf
háir, svo og verðbólga. Það er því
miður eðli þess efnahagslifs sem hér
verður að vera við lýði til þess að
ekki detti niður umsvif í fram-
kvæmdum og skelli svo á atvinnu-
leysi.
Ég held að sumir ráðherranna ættu
að fara að hugsa sér til hreyfings út
úr ríkisstjórninni, svo að þeir þurfi
ekki að horfa í gaupnir sér þegar spá
„sjösofenda" í útsýnistumi Seðla-
banka um eins stafs töluna 7 fellur
um sjálfa sig. - Læt ég svo lokið skrif-
legu réttarhaldi um verðbólgu, fleip-
ur og óskhyggju og óska ráðherra
utanríkismála góðs gengis.
ALVORU TÆKI
Á ÆVINTÝRALEGU VERÐI
Höfum fengid aftur örfá
ANITECH AE 6000 HQ LONGPLAY VHS
myndbandstæki á sérstöku tilboðsverði
• Þráðlaus fjarstýring. • 14 daga upptökuminni.
• „Long Play“ 6 klst. upptaka • HQ hágæða mynd (High Quality VHS).
á 3 klst. spólu. • Sjálfvirk endurspilun.
TILBOÐSVERÐ AÐEINS kr. 29.950,-
Ath! Tilboðið stendur aðeins meðan takmarkaðar birgðir endast.
stgr.
blAfell
Faxafeni 12, sími 670420
STORSYNING
Á
CHRYSLER OG JEEP
BÍLUM
ALLA ÞESSA VIKU
SARATOGA
CHEROKEE
VOYAGER
WRANGLER
CATALYZERS KEEP>
NATURE CLEAN.
OCHRYSLER
JÖFUR
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL
Nýbýlavegi 2, sími 42600