Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Blaðsíða 14
14 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÚLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SÍMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð I lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Níu líf Arnarflugs í auglýsingum sínum segist Arnarflug hafa níu líf. Það má til sanns vegar færa. Eftir allan þann hama- gang, íjaðrafok og örvæntingu, sem einkennt hefur starfsemi Arnarflugs að undanförnu, hefur flugfélagið loksins nýja vél til umráða og áætlun er orðin eðlileg. Vonandi kemur ekki aftur babb í bátinn, enda má Arn- arflug varla við frekari skakkaföllum á næstunni svo að farþegar missi ekki endanlega þolinmæði sína. í rauninni er aðdáunarvert að farþegar skuli hafa haldið áfram að bóka sig með Arnarflugi þegar flug féll niður eða seinkaði dag frá degi. Lífseigla þessa fyrirtækis er með eindæmum sem á sér fyrst og fremst þá skýringu að stjórnendur Arnarflugs og viðskiptavinir hafa mætt áfóllunum af óvanalegri þrautseigju. Sú þrautseigja á sér rætur í þeirri sannfæringu að það sé samgöngumálum íslendinga fyrir bestu að hér ríki samkeppni í farþegaflutningum til og frá landinu. Eftir að íslendingar hættu að ferðast sjóleiðis til útlanda eiga þeir þann einn kostinn að fljúga milli landa. Flugið er lífæð og tengsl okkar við umheiminn. í svo mikil- vægri atvinnugrein er það grundvallaratriði að um fleiri en einn kost sé að ræða. íslendingar þurfa að hafa val og þeir aðilar, sem annast flugið, þurfa og að hafa að- hald af samkeppni. Einokun í flugmálum íslands er spor aftur á bak, tímaskekkja sem vonandi er að verða almenningi jafnt sem stjórnvöldum ljós. íslendingar vilja auka ferðamannaþjónustu. Þeir vilja skapa sjálfum sér besta fáanlega möguleika til að ferð- ast. Ferðalög til útlanda eru dýr og hvorki þjónusta, verðlag né fjölbreytni í flugsamgöngum geta þróast með eðilegum hætti í skjóli einokunar. Það hefur og verið fram á það sýnt að einmitt þegar aðeins eitt flugfélag annaðist flugsamgöngurnar dróst farþegaQöldi saman og valkostirnir voru færri. í þeim hremmingum, sem Arnarflug hefur átt við að glíma undanfarna daga, hefur utanríkisráðuneytið und- ir forystu Jóns Baldvins Hannibalssonar komið snöfur- mannlega til hjálpar, samkvæmt fréttatilkynningu Arn- arflugs um helgina. Vonandi er það merki um að ríkis- stjórnin hafi áttað sig á því hlutverki sem Arnarflug gegnir. Er það vel, ekki síst vegna þess að stjórnvöld hafa um árabil verið mjög tvístígandi í áfstöðu sinni til stefnunnar í flugmálum og á stundum verið jafnvel þrándur 1 götu fyrirtækisins. Ljóst er að bandaríski sendiherrann og starfsmenn hans hafa og komið við sögu þessa örlagaríku nótt og ber að fagna þeim skilningi sem sendiherrann sýnir málstað frjálsrar samkeppni. Varla er við því að búast að erfiðleikar Arnarflugs séu yfirstaðnir þótt leiguvélin sé komin í notkun. En atburðarásin gefur tilefni til nokkurrar bjartsýni um að stjórnendur Arnarflugs, stjórnvöld og auðvitað al- menningur nái höndum saman um að skapa rekstrar- skilyrði fyrir flugfélagið. Hér er ekki verið að kasta rýrð á Flugleiðir, það ann- ars ágæta þjóðþrifafyrirtæki. En Flugleiðum er að því akkur, þegar til lengri tíma er htið, að annað flugfélag sé rekið við hhð þess. Samkeppnin þarf að þrífast á þessum vettvangi sem annars staðar þar sem um er að ræða þjónustu við almenning. Óvildarmönnum Arnarflugs hefur ekki orðið að ósk sinni að knésetja það að þessu sinni. Flugvélin er kom- in á loft. Níu líf Arnarflugs eiga enn rétt á sér í auglýs- ingunum. Ellert B. Schram j MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990. „Heftun uppblásturs og binding jarövegs er eitt af stærstu verkefnum þeirra sem vilja búa í haginn fyrir komandi kynslóðir," segir m.a. i greininni Hugað að hornsteinum Nú stendur yfir sérstakt átak í landgræðslu og mun ekki veita af. Uppblástur og gróðureyðing eru stærstu umhverfisvandamál okkar íslendinga. Telja sumir að svo illa sé komið fyrir ættjörðinni aö u.þ.b. helmingur gróðurmoldar hafi fokið á haf út frá því að land byggðist. Sumir kenna ofbeit um og skella skuldinni á sauðkindina og bænd- ur. Aðrir vita að veðurfar hefur breyst nokkuð frá landnámstíð og það setur fjölbreytni og vexti gróð- urs takmörk. Líklegt er þó að or- sakir gróðureyðingarinnar séu margþættar og víst er að þverrandi gróður breýtir loftslagi og vaxtar- skilyrðum gróðursamfélaga til hins verra. Þannig rekur gróður- eyðingin sinn eigin vitahring og gerir nýjum gróðri sífellt erfiðara að festa rætur og þrengir kjör þess gróðurs sem fyrir er. . Heftun uppblásturs og binding jarðvegs er eitt af stærstu og mikil- .vægustu verkefnum þeirra sem vilja huga að umhverfmu og búá í haginn fyrir komandi kynslóðir. Erindi og erfiði Alþingismönnum berst fjöldi skriflegra erinda og er það vel. Það er ein af mörgum leiðum til að miðla þeim upplýsingum og tengja þá viö það sem er á seyði í þjóðlíf- inu. Vandinn er hins vegar sá að flnna tíma til að lesa allt það efni sem að okkur berst í bréfum, tíma- ritum, fréttabréfum og margvísleg- um skýrslum. Fæstum tekst að lesa allt og flestir hljóta að velja úr það sem sterkast höfðar til þeirra og þeir telja sig hafa mesta þörf fyrir að vita um. Annar vandi er svo þeim á hönd- um sem bæði hefur valið og lesið en stendur ekki á sama um það hvað um allan þennan pappír verð- ur. Fljótlegast er að láta hann renna í bréfakörfuna þangað sem afurðir margra trjábola hafa ratað á leið sinni út á öskuhauga. Ein leið er að endumýta eftir mætti umslög og auðar baksíður og bíða þolinmóð eftir því að endurvinnsla pappírs verði að veruleika hér á landi. Að vísu er endurunninn pappír skammlífari en annar pappír og þvi þarf að gæta vel að því til hvers slíkur pappír er notaður. Nauðsyn- legt er að taka mið af hagsmunum sagnfræði og skjalavörslu og gæta þess að það sem varðveita skal sé ævinlega á þeim pappír sem hefur mest endingargildi. Um ársskýrslur og börn Einu hef ég veitt athygli í lestri mínum og flettingum á hinum fjöl- breytilegu gögnum sem mér hafa borist. Arsskýrslur stofnana, fyrir- tækja og samtaka eru að verða Kjallarinn Guðrún Agnarsdóttir þingkona Kvennalistans glæsilegri með hverju árinu sem líður og má hiklaust segja að þar eru skýrslur ýmissa peningastofn- ana og sjóða ekki af lakara taginu. Þær eru yfirleitt úr afar vönduöum pappír, öll hönnun og frágangur til mikillar fyrirmyndar. Glæsilegar ljósmyndir eða myndskreytingar prýða þessar skýrslur jafnan og eru sumar þeirra mjög listrænar. Það er greinilega mörgum metnað- armál að gefa út fallega ársskýrslu og hlýtur aö vera mikið til þeirra lagt. Eg verð að segja það eins og er að ég á oft erfitt með að henda þess- um vænu skýrslum þó að þær séu bæði gamlar og lesnar en það þarf oft að gera fleira en gott þykir. Þeg- ar ég svo sleppi hendinni af þeim ofan í bréfakörfuna verður mér hugsaö til blessaðra skólabarn- anna. Þau hafa mátt una því í mörg ár að ekki er til nægilegt námsefni handa þeim. Kennararnir reyna auðvitað að bregðast við bæði með því að útbúa sjálfir námsefni en einnig að fjölfalda það sem fyrir er. Er þá ljósritunarvélin besti vinur- inn hvað sem öllum lögum um höf- undarrétt líður. Eitthvaö verða börnin að fá. Þetta er að vísu ekki á neitt sérstaklega vönduðum pappír, oft er það bara vélritað og því miður ekki myndskreytt. Verst er þó að ekki rata þessi stöku blöð alltaf inn í möppurnar sínar og vilja því þvælast og bögglast í skólatöskunum, jafnvel dreifa sér um barnaherbergið í reiðuleysi. En það er víst erfitt að fá nægilegt fé til námsefnisgerðar, hún þykir dýr. Svona leggjum við nú hornsteinana okkar. Ég hef oft hugsað um það hve gaman væri að gefa bömunum svona fínar ársskýrslur, þótt það væri ekki nema myndanna vegna. Verst hvað þær eru oft óaðgengi- legar fyrir þau. Líka hef ég hugsað um það hvað hægt væri að gera viö þann stafla af nýtanlegum pappír sem fallið hefur mér í skaut á sl. 1-2 árum. Ekki endist mér tími eða andagift til að skrifa á allar þessar baksíð- ur. Hvort myndi ég móðga meira böm eða fésýslumenn ef ég byði þeim hann til að rissa á? í heiðri skulu hornsteinar Þegar við nú leggjum land- græðsluátaki lið á vormánuðum er okkur hollt að hugsa um það fyrir hverja við gróðursetjum trén; hverjir munu njóta þeirra. Það mun væntanlega leiða hugann að því hvernig við búum bömin okkar að öðru leyti undir framtíðina, hvert veganesti við veljum þeim sem eiga að erfa hið skógi vaxna land. Vandað námsefni, lengdur, sam- felldur skóladagur, einsetinn skóli, fækkun í bekkjardeildum, máls- verðir í skólanum. Allt eru þetta sjálfsagðir hlutir sem lengi hafa tíðkast í nágrannalöndum okkar. Það er skrítið þjóðfélag sem telur sig hafa efni á því að vanrækja slík undirstöðuatriði og löngu kominn tími til að foreldrar og aðrir for- ráðamenn barna sameinist um að fylgja eftir þessum brýnu hags- munamálum. Það er auðvitað einn- ig skylda stjórnmálamanna og á þeirra ábyrgð að hrinda þessum málum í framkvæmd. Stjórnmála- menn, sem ekki sinna þörfum barna, vanrækja í raun það sem mestu varðar í samfélaginu og svíkja framtíðina. Þeim þarf að veita eftirminnilega ráðningu en öðrum starfssystkinum þeirra, sem sinna þessum mikilvægu málefn- um, þarf að veita aðhald. í verðskuldaðri umhyggju okkar fyrir framtíð landsins verðum við að hafa það hugfast að rækta ekki síður börnin okkar en gróðurinn. Til hvorugs megum við spara. Guðrún Agnarsdóttir „I verðskuldaðri umhyggju okkar fyrir framtíð landsins verðum við að hafa það hugfast að rækta ekki síður börnin okkar en gróðurinn. Til hvorugs meg- um við spara.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.