Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Page 16
16 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990. Um hvað er kosið? Við á Nýjum vettvangi segjum að kosningarnar í Reykjavík 26. maí nk. snúist um breytta for- gangsröð verkefna. Með öðrum orðum að kosningarnar snúist um það hve miklar tekjur borgarinnar eigi að vera og hvernig eigi að verja þeim. Hagstæð ár Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkur 1990 kostar 5900 millj- ónir króna að reka fyrirtækið Reykjavíkurborg á ári. Heildar- tekjur borgarinnar eru 10600 millj- ónir króna. Þegar kostnaður við rekstur hefur verið greiddur eru eftir 4700 miiljónir króna sem nota má til nýrra verkefna eða til þess að lækka tekjumar. Nú er öll sagan ekki sögð því hér Kjallarirm Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi „Samkvæmt igárhagsáætlun Reykja- víkur 1990 kostar 5900 milljónir króna að reka fyrirtækið Reykjavíkurborg á ári.“ eru ekki meðtalin fyrirtæki borgar- innar sem samanlagt velta yfir 8000 milljónum króna á ári. Hitaveita Reykjavíkur þarf t.d. um 600-800 m.kr. krónum minna á ári til rekst- urs næstu ár eftir að virkjun Nesja- valla og byggingu útsýnishússins lýkur. Ef við gefum okkur að ekkert stórkostlegt gerist sem breyti reksturskostnaðinum næstu ár, að því gefnu að um þann rekstur ríki sú samstaða að ekki skipti máli hver ráði, honum verði í litlu breytt, þá má segia að kosning- arnar 26. maí snúist meðal annars um það hvernig við viljum verja 4700 m.kr. + 600 m.kr. eða 5300 m.kr. I íjögur ár er hér um að ræða 21.000 m.kr. Það gefur auga leið að það er hægt aö gera margt fyrir 21 þúsund milljónir króna. En hefur Reykjavík alltaf haft úr svo miklu að moða? Svarið er nei. Síðustu ár hafa verið borginni hag- stæð og má að hluta skýra tekju- aukninguna með aukinni skatt- heimtu og að hluta með þróun at- vinnu- og byggðarmála. ,Nóg er eftir í þörf og góð mál, m.a. að flýta hreinsun strarndlengjunnar", segir hér m.a. Stórhækkað útsvar Sjálfstæðisflokkurinn hefur á síðasta kjörtímabili stórhækkað útsvar. Þannig hækkuðu launa- tekjur um 75% milli áranna 1986 og 1988 á meðan útsvarstekjurnar hækkuðu um 102%. Sjálfstæðisflokkurinn hefur svik- ið fyrsta kosningaloforð sitt, sem hann gaf 1986, þess efnis að hækka ekki álögur umfram verðlag. Rétt eins og kaupmennirnir forðum not- uðu sér myntbreytinguna til þess að lauma hækkunum framhjá neytandanum notuðu sjálfstæðis- menn sér skattkerfisbreytinguna til þess að hækka álögur á borg- arbúa. Ég hef lofað því í ræðu í borgar- stjórn að verði ég þar viö gerð næstu fjárhagsáætlunar muni ég leggja til að útsvarið verði lækkað. En jafnvel þó að útsvarið verði lækkað er nóg eftir í þörf og góð mál. Það má nota 20.000 m.kr. til þess m.a. að koma á einsetnum skóla, flýta hreinsun strandlengj- unnar, koma á léttum skólamáltíð- um, byggja hjúkrunarheimili, flölga félagslegum íbúðum o.fl. Það er rétt að góðu málin okkar á Nýj- um vettvangi kosta peninga en það er einnig rétt að það eru til pening- ar til þeirra. Bjarni P. Magnússon Oldungadeildin í Arneshreppi Ég vil þakka skrif í dagblaðinu Tímanum fyrir þær greinar sem Öldungadeildin í Árneshreppi hef- ur sent mér með sex daga millibili. Já, ykkur liggur mikið á og sárs- aukinn mikill hjá ykkur, ef dæma má eftir skrifum ykkar. Nú eruö þið þrír sem skrifið mér í Tímann. Þetta minnir mig á Bakkabræð- ur. Þeir ætluðu að gera stórátak og bera blessaða sólina inn í hý- býli sín til þess að þar yrði bjart inni en alltaf mistókst þeim að bera sólina inn í húsið dimma og litla. Einnig ætlið þig auðsjáanlega að kveða mig niður með því að ég svari ykkur ekki. Blindan er mikil Ég álykta eftir skrif ykkar að þið séuð í miklu uppnámi og sorg og segi; tekið hef ég hvolpa þrjá, hvað skal við þá gera? Ég mun segja sannleikann um ykkurþví þið eruð allir ráðandi menn 1 Arneshreppi og hafið verið í áratugi. Bestu menn fyrir utan alla galla og ykkar litla blinda sjóndeildarhring. En þið er- uð svo ánægðir með sjálfa ykkur og blinda ykkar er mikil á ykkur sjálfa. Samt eruð þið að ráðleggja mér að biðjast fyrirgefningar. Eyjólfur Valgeirsson skrifar í lesendadálk Tímans smá grein til mín þann 28. apríl og hann minnist ekki einu orði á svargrein mína í DV til hans. Góð börn segja alltaf sannleikann og þögn hans við svargrein minni í DV 29. mars er sama og samþykki. Eyjólfur segir í áðurnefndri grein sinni 28. apríl að ég hafi dregið bæði hann og aðra ráðandi menn í hreppnum í svaðið. Já, þið eruð reiðir við mig því ég sendi greinar í Morgunblaðið og gerðist síðan fréttaritari þess. Ég bara spyr KjaUarinii Regína Thorarensen fréttaritari, Selfossi Eyjólf; Hverjum er það að þakka nema ykkur Guðmundi pennavini mínum og bróður þínum að ég fór að senda fréttir, bara út af ykkar einræði? Um leið og ég fór að senda fréttir í Morgunblaðið þá fórst þú að panta fleiri vörur og aldrei hefur verið saltlaust hjá kaupfélaginu eftir það. En ég vissi og fann að þið voruð reiðir við mig, því þið vilduð ekki láta neitt fréttast úr Ámeshreppi. Hann var einangraöur að öllu leyti. Ég skil ykkar sjónarmið, þið blessaðir karlarnir eruð afdala- menn og voruð hræddir viö fjöl- miðla, því þar kom sannleikurinn fram. Varð fyrir vonbrigðum Ég varð fyrir vonbrigðum með skrif Gunnsteins Gíslasonar nú- verandi kaupfélagsstjóra í Tíman- um 3. maí sl. en Gunnsteinn er drengur góöur og að mínum dómi hefur hann veriö duglegur forystu- maður í Árneshreppi miðaö við fyrirrennara hans í ýmsum störf- um í áðurgreindum hreppi. T.d. hefur það verið alveg til sóma hvað hann sem oddviti hefur hugsað vel um skólann á Finnbogastöðum. En úr því ég er farin aö minnast á Finnbogabarnaskólann. Ráðandi menn í hreppnum vildu aldrei láta mennta börn fátæka fólksins, bara mennta böm foreldra sem höfðu efni á að borga kennarakaup og hafa þá á heimili sínu. Hin þurftu enga kennslu að þeirra dómi. Svona voru forystumenn í hreppn- um og hafa alltaf verið að undan- skildum tveimur kjörtímabilum þegar Sigurður Pétursson var odd- viti og átti þar heima, enda að- komumaöur sem hafði stóran sjón- deildarhring og veitti mikla at- vinnu. En svo tók sig til ungur maður, Guðmundur Guðmundsson, Finn- bogastööum, Árneshreppi eftir að hann kom heim, útskrifaður úr Kennaraskóla íslands og vildi drífa í því að Árneshreppur og ríkið byggðu þar barnaskóla. Þá vom ráðandi menn í hreppnum sem af- tóku það alveg. Það yrði aldrei byggður barnaskóli þar og kaup- félagsstjóramyndin sem þá var sagði unga kennaranum að það kæmi ekki til mála að það yrði lán- uð ein einasta spýta né nagli í skólabygginguna. En ungi maður- inn kom upp skólanum fyrir því, öll böm komust í skólann hjá hon- um haustið og foreldrar unga kennarans gáfu stóra og góða lóð undir bygginguna. Svona var nú framsýnin, aftur- haldiö og einræðið hjá gömlu mönnunum. Og þaö var í kringum 1930 sem skólinn var byggður og formaður Öldungadeildarinnar er uppalinn við þetta einræði og ein- strengingshátt. Verkintaia Gunnsteinn, ég held að þú hafir ekki verið heill á sálinni þegar þú skrifaðir grein þína, svo ruglings- leg er hún. Þú hefur kannski fengið þér einn sopa til þess aö slappa af! Ég hef alltaf verið montin af þér Gunnsteinn sem forystumanni Ár- neshrepps. Framkvæmdir við Kaupfélagið, byggt hús, tekið á móti fiski og fiskafuröum og búið vel að fólkinu sem þar vinnur, en fyrirrennarar þínir máttu aldrei til þess hugsa að kaupa þorsk að ráði, en lögðu aðaláhersluna á að koma upp nógum Qárstofni. Svo þegar blessuð lömbin fædd- ust þá var farið aö vikta þau og í þetta fór allur tíminn. Svo þegar þið gleymduð að panta brilljantínið í hár ykkar greidduð þið ykkur upp úr vatni. Ég hef alltaf hælt þér í öllum mínum fréttum fyrir þinn dugnað, en forystuhæfileika hefur þú ekki í kirkjumálum; Að geta t.d. ekki sameinað söfnuðinn í Ámeshreppi! Þá sýndir þú ásamt meðhjálpara þínum í ÖldungadeOdinni veldi ykkar og mikilmennskubijálæði að fara að byggja nýja kirkju þegar langt var komið að gera gömlu kirkjuna upp. Ef Öldungadeildin hefði eins mikla samvinnu, lipurð og fyrir- hyggju eins og núverandi forsætis- ráöherra, Steingrímur Hermanns- son, þá væruð þiö ekki eins leiðir á lífinu og þið eruð núna. Þaö er ^erfitt fyrir heiöarlega menn sem aldrei hafa lifað um efni fram að vera á efri árum sníkjandi úr sjóð- um landsins og frá brottíluttum Árnesingum til að byggja þessa kirkju. Eg hélt að þið sem stóðuð aö þessu frumhlaupi ættuð fyrir byggingunni að mestu, en það vita fáir sem byrja að byggja hvað það kostar og margir hafa aldrei getað flutt inn, bara stytt sér aldur. Þið eruð kannski svo miklir guðs- menn og bænheitir aö ykkur berist óvænt fé! Gunnsteinn minntist á flutning hjónanna Ríkeyjar og Guðmundar sem fluttu úr Trékyll- isvík að nóttu til á smákænu. Eitt- hvað hefur verið búið að þjarma að þeim. Verkin tala. Þegar Eyjólf- ur lokaði reikningnum hjá mér í reiði sinni, þá tók ég rétta stefnu að fara í fjölmiðla og tala við kaup- félagsstjórann. Með því náði ég alveg tangarhaldi á einræði ykkar. Nú lýk ég þessari grein, ég bið guðsblessun að fylgja ykkur frænd- unum þremur, mökum ykkar og niðjum. Regína Thorarensen „Eg álykta eftir skrif ykkar, að þið séuð í miklu uppnámi og sorg og segi; tekið hef ég hvolpa þrjá, hvað skal við þá gera?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.