Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 1990. -t- 35 I>V LífsstHI Skoðanakönnun Gallups: Ferskleikinn fyrir öllu Um 70% neytenda, sem spurðir voru í skoðanakönnun Gallups ný- lega um kjötvörur, töldu fyrir öllu að varan væri fersk og bragðgóð. Einnig kom í ljós að neytendur töldu Neytendur mun mikilvægara að góöar upplýs- ingar væru á umbúðum heldur en að varan hefði langt geymsluþol. í könnuninni var einnig spurt hvort neytandinn teldi að litarefni væru notuð í áleggspylsur. Það er athyglisvert að tæplega 60% að- spurðra töldu svo vera því að litar- efni hafa ekki verið notuð hér á landi síðan notkun þeirra var bönnuð fyrir tíu árum. Það kom einnig fram í könnuninni aö 81% þeirra sem spurðir voru sagð- ist treysta þeim upplýsingum sem fram koma á umbúðum. Þessi niður- staða er mikilvæg þar sem upplýs- ingar á umbúðum hafa stóraukist á síðustu tveimur árum vegna reglu- gerðar um umbúöamerkingar sem gefin var út 1988. íslensk kjötiðnaöarfyrirtæki innan Félags íslenskra iðnrekenda munu hafa niðurstöður könnunarinnar að leiðarljósi til að efla traust neytenda á greininni og koma enn frekar til móts við óskir og þarfir þeirra. Þau starfa nú með Hollustuvernd ríkisins við að setja reglur um gæði og sam- setningu unninna kjötvara. -GHK Hversu miklu máli skipta nokkrir áhrifa- þættir á val unninna kjötvara? Engueða ekki fremur mjög litlu miklu miklu miklu Um 80% neytenda telja að gott bragð vörunnar skipti mjög miklu máli og tæplega 70% þeirra telja að ferskleikinn sé fyrir öllu. Reiöhjól Miklagarðs: Ábyrgðarskírteini í fullu gildi - Borgarhjól annast viðgerðir og varahluti Þorsteinn Sæmundsson, deildar- stjóri heimilisvörudeildar SÍS, vildi koma eftirfarandi á framfæri: í Miklagarði og víðar eru nú til sölu fiallahjól frá Shine Wheel. Á þessum hjólum er árs ábyrgð. Borg- arhjól, Hverfisgötu 50, annast ábyrgðarviðgerðir á nefndum hjól- um og liggur með „original" vara- hluti í þau. Það er ekki rétt sem fram kemur í DV að kaupendur þurfi sjálfir að greiða ábyrgðarviðgerðir. Þvert á móti eru þær framkvæmdar kaup- anda að kostnaðarlausu gegn fram- vísun ábyrgðarskírteinis. Hringrot finnst í kartöfluútsæði - meginhluti útsæðis laust við sjúkdóminn Kartöflusjúkdómurinn hringrot hefur fundist í útsæði hjá lykilrækt- anda innan stofnræktar í Grýtu- bakkahreppi, öðrum útsæðisleyfis- hafa í sama hreppi og hjá útsæðis- leyfishafa í Öngulsstaðahreppi. Þó svo að vart hafi orðið við sjúkdóminn er talið að meginhluti þess útsæðis, sem til sölu er nú í vor, sé laust við hringrotssmit. Hringrot fannst fyrst hér á landi veturinn 1984-85 og er talið aö út- breiðsla þess tengist hollenska af- brigöinu Premiere sem fyrst var flutt inn árið 1981. Hefur sjúkdómurinn fundist aöallega á Suðurlandi og enn sem komið er hafa fá tilfelli komið upp á Norðurlandi. Flestir leyfishafar eru í Eyjafirði eða 43 af 60 og mynda 10 ræktendur í Eyjafirði svokallaða stofnrækt, en það er útsæðisrækt undir sérstöku eftirliti. Sala á útsæði til almennrar dreifingar er takmörkuð við þá rækt- endur sem hafa útsæðisleyfi. Fyrirhugað er að hefia þegar upp- byggingu á nýrri stofnrækt og byggja hana á heilbrigðum stofnum sem til eru hjá Rannsóknastofnun land- búnaöarins. Ekki verður mælt með nýjum og endurnýjuðum útsæðis- leyfum nema eftir ítarlega leit að hringrotssmiti hjá umsækjanda. Hringrot er ekki erfitt viðureignar við ræktun matarkartaflna svo fremi sem hægt er að endurnýja reglulega með heilbrigðu útsæði. Um 60% neytenda telja litarefni vera í áleggi en svo hefur ekki verið i tíu ár. DV-mynd BG Athugasemd við reiðhjólakönnun: Reiðhjól í Hvelli Hvellur í Kópavogi hafði samband við neytendasíðuna vegna reiðhjóla- könnunar sem birtist 16. maí og vildi minna á að þeir væru einnig meö reiöhjól og hefði sala þar verið mjög góð að undanfornu. Sé litið á ódýrustu 26" fiallahjólin með 15 girum eða fleirum, sem Hvell- ur hefur upp á að bjóða, ber fyrst að nefna 15 gíra bandarískt Murray hjól og er verð þess 19.500 krónur en stað- greitt kostar hjóliö 18.450 krónur þar sem boðið er upp á 5% staögreiðslu- afslátt. í næsta veröflokki fyrir ofan er 15 gíra Murray hjól með svoköll- uðu sprengdu lakki og vatnsbrúsa, og er verð þess 19.190 krónur stað- greitt en annars krónur 20.200. Einn- ig er hægt að fá í Hvelli 18 gira Murray hjól með vatnsbrúsa, poka undir stönginni og álgjörðum á 21.536 krónur staögreitt en með afborgun- um er það á 22.670 krónur. Reiðhjólum sem keypt eru í Hvelli fylgir ársábyrgð og verslunin er sjálf með sína eigin viðgerðar- og vara- hlutaþjónustu. En jafnframt gerir Hvellur viö öll önnur hjól. Rúmlega 30 tegundir í Mark- inu í greininni um reiöhjóiakönnunina var sagt að á boðstólum væru fimm til tíu tegundir í Markinu. Þetta reyndist ekki vera alls kostar rétt því Markið er yfirleitt með rúmlega þrjá- tíu tegundir af 26" fiallahjólum í vali fyrir viðskiptavini sína. Það er því úr nógu að velja á þeim staðnum. Markið vildi einnig láta koma fram að auk þess að bjóða upp á ársábyrgð og eigin viðgerðar- og varahlutaþjón- ustu, er boðið upp á uppherslu innan mánaðar frá því að hjóliö er keypt og er þá hjólið hert upp. Það gæti hafa valdið misskilningi að aðeins var litið á fiallahjól með 15 gírum eða fleirum fyrir utan 24" 12 gírahjólið í Miklagarði, en að sjálf- sögðu er hægt að fá Qallahjólin með 10 girum og eru þau þá ódýrari. Slík hjól er hægt að fá fyrir um 20.000 krónur í Markinu. Hagkaupshjólin gulltryggð Þegar DV vann að reiðhjólakönn- og Hagkaup sér um sína 68-06-99--- Hvellur Murray. Kópavogi er með úrval af bandarískum fjallahjólum af tegundinni DV-mynd BG uninni fengust þær upplýsingar í Fálkanum að þeir gætu ekki ábyrgst aö allir varahlutir væru til í hjól frá Hagkaupum, en Hagkaup hefur bent viðskiptavinum sínum á Gamla verkstæðið á Suðurlandsbrautinni varðandi viðgerðir og varahluti. Er DV hafði samband við Gamla verkstæðið var sagt aö verkstæðið myndi gera við Hagkaupshjólin eins og önnur hjól og margir varahlutir sem þeir væru með ættu að passa í hjólin, en þó væri ekki hægt að ábyrgjast að Gamla verkstæðið ætti alla varahlutina. Innkaupadeild Hagkaupa vildi þá koma þeim upplýsingum áleiðis að það væri gulltryggt að varahlutir fengjust í hjólin sem keypt væru í verslunum Hagkaupa. Hagkaup rek- ur sitt eigið verkstæði, þannig að ef einhver vandræði koma upp þá mun Hagkaup sjá um sína viðskiptavini og útvega það sem vantar. -GHK (

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.