Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1990, Qupperneq 32
r FR ÉTT/VSKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Aug^lýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 MÁNUDAGUR 21. MAi 1990. Jarðskjálfti á Reykjanesi J. ^.Jaröskjálfta að styrkleika 4,2 varö v vart á Reykjanesi klukkan rúmlega níu í gærmorgun. Skjálfti þessi var sá sterkasti i hrinu skjálfta sem hófst um fimmleytið síðdegis á laugardag. Á einum klukkutíma milli níu og tíu á sunnudagsmorgni gengu fjórir skjálftar yflr og allir vægir utan þessi eini. Skjálftarnir eiga upptök sín út af Reykjanesi, við Geirfugladrang. Að sögn Gunnars Guðmundssonar hjá jarðeðlisfræðideild Veðurstof- unnar eru svona skjálftahrinur fremur algengar á þessu svæði. Standa hrinurnar frá nokkrum klukkutímum upp í nokkra daga í senn. Skýringin er skjálftavirknin á þessu svæði. Skjálftinn í gærmorgun -*fennst í Garðinum en hvorki í Grindavík né Reykjanesvita. Fylgst verður áfram með skjálftahrinunni en ekki er talið að nokkur þeirra veröi mjög sterkur. -JJ Handtekinn eftir innbrot ~*í sumarbústaði Lögreglan í Borgarnesi handtók nýlega mann sem grunaður var um aö hafa brotist inn í nokkra sumar- bústaði á svæðinu frá Gufuá að Hrauná og stolið þar mat og ein- hverju lauslegu. Tilkynnt var um innbrot í sumarbústaði og barst lög- reglunni lýsing sem passaði við þennan mann. Hann fannst síðan á gangi á þjóðveginum í Norðurárdal. Var hann eina nótt í vörslu lögregl- unnar í Borgarnesi en síðan fluttur til Reykjavíkur þar sem hann átti óuppgerö mál hjá lögreglunni. Maö- ur þessi er einn af „kunningium“ lögreglunnar og hefur oftsinnis kom- áð við sögu vegna svipaðra brota í sumarbústaðalöndum, sérstaklega i fyrir austan íjall. -hlh Seyöisfjöröur: Eldur í verbúð Eldur kom upp í gamalli verbúð á Seyðisfirði snemma í gærmorgun. Brann allt sem brunnið gat en grun- ur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Verbúðin hefur ekki verið notuð í nokkur ár og var mannlaus þegar eldurinn kom upp. -hlh Staðsetning álvers við EyjaQörð: Arskógssandur virðist vera inni í myndinni - fari svo að álverinu verði valinn staður við EyjaQörð Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri' „Það er rétt að ég neftidi aldrei Dysnes í minni ræðu, ég talaði um vesturströnd Eyjafjarðar. Það er ekki alveg hægt að segja að Dysnes sé staðurinn ef álverinu verður valinn staður í Eyjaíirði og starfs- menn á vegum iðnaðarráðuneytis- ins og reyndar einn fulltrúi erlendu fyrirtækjanna hafa kynnt sér Ár- skógsströnd," sagði Jón Sigurðs- son iðnaðarráðherra á almennum fundi um álversmál á Akureyri um helgina. Ráðherra var aö svara fyrirspurn úr sal um það hvort Dysnes væri eini staðurinn í Eyjafirði sem kæmi til greina undir álver ef því verður valinn staður þar. í máli Sigfúsar Jónssonar, bæjarstjóra á Akureyri, á þessum fundi kom fram að við- ræðunefnd sveitarfélaganna í Eyjafirði varðandi staðsetningu ál- vers í firöinum hefur látiö athuga Árskógssand skoðaður sem kost númer tvö í firðinum. Nokkur eftirvænting rikti á þess- um fundi varðandi það hvort iðn- aðarráðherra myndi koma fram með einhverjar nýjar upplýsingar um staðarval fyrir álver, en svo var ekki. Jón Sigurðsson sagði þó að þrennt myndi ráða útslitum í þvi eftii, í fyrsta lagi að framkvæmdir velti ekki þeim stöðugleika i efna- hagsmálum sem sé í sjónmáli, i öðru lagi að staðsetningin stuðli að eðlilegri þróun í byggðarmálum, og í þriðja lagi mengunarmál. Ráðherra sagði aö tvö fyrri atriö- in mæltu með stöðum utan höfuö- borgarsvæðisins en um þriðja at- riðið væri spurning. Það mun vitað að menn óttast mengunarmálin nokkuð ef álver- inu verði valínn staöur við Dysnes þótt margir fullyrði að sáralítil megnunarhætta sé af nýjum álver- um, og þess vegna hafa augu manna nú einnig beinst að Ár- skógssandi þar sem veðurlag er nokkuð annað. Enn er beðið niður- staða rannsókna erlendra aðila á hugsanlegri mengunarhættu af ál- veri, en hún mun væntanleg á næstu vikum og þá munu þessi mál skýrast. Kim Larsen mætti hress að vanda til landsins á laugardaginn. Ekki var um mikla hvíld hjá honum og hljómsveit hljómsveit hans Bellami að ræða því tónleikar voru um kvöldið á Gauk á Stöng. Var troðfullt á tónleikunum sem hófust á miðnætti. Áður var honum afhent gullplata. Kom það til vegna þess að Yummi, Yummi, næstnýjasta plata Kim Larsen og Bellami hafði selst í meira en 3000 eintökum hér á landi. Á myndinni sést Kim Larsen virða fyrir sér gullplötuna ásamt einum hljómsveitarmeðiima hans. í bakgrunni er Jónatan Garðarsson sem afhenti honum gullplötuna. DV-mynd GVA Viögerö hjá Pósti og síma: Tvö númer víxluðust Starfsmenn Pósts og síma hafa unnið að miklum breytingum á þús- undum símanúmera í vesturhluta Reykjavíkur. Á laugardagsmorgun varð vart við að tvö númer höfðu víxlast þannig að annað númerið, sem er í húsi í versturbæ, datt út en yfirtók númer í austurbæ. Austurbæjarnúmerið varð sambandslaust. Af þessu urðu mikil óþægingi. Þeir sem ætluðu að hringja í austurbæjar- númerið fengu samband við vestur- bæjarnúmerið og þeir sem ætluðu að hringja í vesturbæjarnúmerið fengu ekkert samband. Kona sem hefur númerið í austurbænum gat ekkert hringt alla helgina. „Við erum að gera miklar breyting- ar á dreifikerfi. Það hefur eitthvað komið upp á sem víxlaði þessum númerum. Það var reynt að kalla út menn en það tókst ekki, því miður. Þetta er eina tilfellið þar sem eitthvað fór úrskeiðis. Við verðum að átta okkur á því að við vorum að vinna með um sex þús- und númer og það geta alltaf komið upp óþægindi," sagði Skúli Jónsson, verkstjóri hjá Pósti og síma. -sme J LOKI Hvert ætli símanúmerið mitt verði í dag? Veðrið á morgun: Skúrir og þokusúld Á morgun verður austan- og norðaustanátt, viðast gola. Skúr- ir verða suðaustanlands, þoku- súld við norður- og austurströnd- ina, en léttir smám saman til á Vestur- og Suðvesturlandi. Svalt á annesjum norðanlands og aust- an en annars 6-12 stig, hlýjast suðvestanlands. SAFARÍKAR GRILLSTEIKUR \M) Jarlinn TRYGGVAGÖTU SPRENGISANDI BÍLALEIGA v/FlugvalIarveg 91-61-44-00 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.