Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Page 2
2
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990.
Fréttir
Skúli H. Magnússon t.v. og Anton Freyr Jónsson t.h. hafa á undanförnum
dögum orðið fyrir biti starraflóar - á skrokknum, undir höndum, aftan á
hálsi, á lærum og fótleggjum. Þeir eru ibúar i Frostafold en þar hafa all-
margir orðið fyrir einhvers konar biti á siðustu dögum. DV hefur upplýsing-
ar um að víða í borginni hafi fólk verið bitið. DV-mynd JAK
Fjóröungssjúkrahúsið á Akureyri:
Meirihluti stjórnar
vill segja Gauta upp
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Meirihluti stjómar Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri er fylgjandi því
að Gauta Amþórssyni, yfirlækni
handlæknisdeildar, verði sagt upp
störfum en ágreiningur varðandi það
hvort Gauti hefur æviráðningu við
sjúkrahúsið hefur komið í veg fyrir
að ákvörðun um það hafi verið tekin.
Mál þetta kemur í kjölfar alvar-
legra ásakana starfsfólks á sjúkra-
húsinu á hendur Gauta á síðasta ári
sem leiddu til rannsóknar á störfum
hans. í áliti nefndar, sem skipuð var
í því skyni og var skipuð 2 fulltrúum
Læknafélags íslands og 2 frá Hjúkr-
unarfélagi íslands, kemur fram aö
fjalla þurfi sérstaklega um samstarf
innan sjúkrahússins en vitað er að
samstarfsörðugleikar hafa verið á
milli Gauta og starfsfólks þar. Nefnd-
in mun hafa rætt viö 70-80 manns,
samkvæmt heimildum DV, og lang-
ílestir þeirra vom þeirrar skoðunar
að samstarfið við Gauta væri óviðun-
andi.
í dagblaðinu Degi á Akureyri hefur
komið fram að Gauta hafi veriö veitt
leyfi frá störfum í eitt ár til að sinna
vísindastörfum. Áreiðanlegar heim-
ildir DV segja að hér sé ekki um stöðu
við sjúkrahúsið að ræða, frekar sé
um að ræða tilflutning og Gauti sé á
óbreyttum launum við vísindastörf
sín.
Enginn þeirra sem DV ræddi við
vegna þessa máls hefur viljað ræða
það við fjölmiðla undir nafni og mál-
ið virðist vera mjög viðkvæmt. Máhð
hefur ekki verið bókað á þremur
fundum stjómar FSA heldur rætt
þar undir nafnlausum lið.
Leitin í Ölfusá:
Bfllinn talinn
vera í djúpri gjá
Kristján Einaisson, DV, Selfossi:
Félagar úr slysavamadeildinni
Tryggvi Gunnarsson á Selfossi hafa
imnið þrotlaust að því að finna bílinn
sem lenti í Ölfusá fyrir hálfum mán-
uði. Þar fómst tveir ungir menn.
Leitin hefur veriö erfið, mikiö vatn
í ánni og þungur straumur. Ýmsum
aðferðum hefur verið beitt, m.a. bíl
ýtt út í ána á sama stað og slysið
varð og fylgst með ferðum hans, 40
metra band fest í hann og lóðabelgur
á endanum. Aöeins tveimur mínút-
um síðar hafnaði bíllinn í 20 metra
djúpri gjá, 150 metra fyrir neðan brú.
Menn frá vamarhðinu hafa komið
og mælt með málmleitartæki hvar
bíh björgunarsveitarinnar lá í
gjánni. Þeir fengu líka svipaða svör-
un ekki langt frá bílnum. Kunnugir
segja að mikið járn sé í gjánni, því
að áður var öhu úrgangsjámi frá
smiðjum Kaupfélags Ámesinga ýtt
út í ána. Síðustu daga hefur einn
stærsti bílkrani landsins verið björg-
unarsveitarmönnum til aðstoðar.
Aö sögn Gunnars Einarssonar, sem
stjómar leitinni, eru miklar líkur á
að bfilinn sé í gjánni en þaö muni
reynast erfitt að krækja í hann vegna
straumþungans og dýptar gjáarinn-
ar. Mjög gott samstarf hefur verið
núlh allra sem að leitinni hafa stað-
ið, slysavamadeildarinnar, land-
helgisgæslunnar, vamarhðsins og
fleiri.
Starrafló algeng 1 Reykjavlk, segir borgarlæknir:
Bitin bólgna og
þeim fylgir ofsakláði
- segir íbúi 1 Grafarvogi - litiö hægt aö gera til aö forðast bitin
„Það virðist vera mikið um þetta
núna. Fyrstu bitin varð ég vör við í
síðustu viku. Við höfum fjögur verið
bitin á mínu heimili en tvö hafa
sloppið. Stelpa uppi á lofti hefur
einnig verið bitin og fleiri í ná-
grannahúsunum. Elsti strákurinn
minn hefur örugglega verið bitinn
40 sinnum, sagði Jóhanna VUhjálms-
dóttir, íbúi í Frostafold, í samtali við
DV en á heimUi hennar og í nágrenni
við hana hefur á síðustu dögum orð-
iö vart við hálfgeröan bitfaraldur.
' Borgarlæknirstaðfestiísamtaliviö
DV í morgun að hér væri Um að
ræða starrafló sem fer á kreik á vor-
in. Borgarbúar í ýmsum hverfum
hafa orðið fyrir bitum á síðustu dög-
um. Borgarlæknir sagði að helsta
vömin væri að loka fyrir inngöngu-
leiðir í hús og að fá meindýraeyði til
að útiloka starrahreiðrin. Kláða-
stillandi lyf er hægt að fá við þessu,
að sögn borgarlæknis.
„HeimUislæknir, sem ég talaði viö,
vUdi meina að það væri töluvert um
þetta núna. Hvort það em svona góð
skilyrði með vorinu veit ég ekki en
við höfum aldrei séð svona áður,“
sagði Jóhanna.
„Bitin bólgna aðeins og þeim fylgir
ofsakláði. Þetta kemur víða - undir
höndum, aftan á hálsi, á lærum, baki
og fótleggjum. Ég hef fengið þetta
sjálf og tveir synir mínir, 4ra og 11
ára. Pabbi þeirra hefur líka verið
bitinn. Sá yngsti, sem er aðeins 2ja
mánaða, hefur einn sloppið.
„Ég tók herbergi strákanna alveg
í gegn, ryksugaði, skúraði og skrúb-
baði og lét annan strákinn skipta um
rúm eina nóttina - þá svaf hann hjá
pabba sínum. Það þýddi ekkert.
Strákurinn var bitinn áfram en pabbi
hans slapp. Síðan hefur pabbi hans
verið bitinn líka.
- Finnið þið fyrir því þegar þið eruð
bitin eða stungin?
„Nei, en svilkona mín hefur gert það.
Hún vaknaði upp eina nóttina þegar
hún var bitin. Kláðinn kemur meira
fram á kvöldin og á nóttinni. Þegar
fólk er komið undir sæng finnur það
meira fyrir óþægindum."
Er þetta ekkert í rénun?
„Nei, það virðast koma fleiri útbrot
á elsta strákinn minn. Ég er líka að
fá fleiri bit,“ sagði Jóhanna.
-ÓTT
TriHukarl á Austflörðum:
Þetta er satansmál
erfltt aö koma boðum til Tilkynningaskyldunnar
„Þetta er eitt satansmál. Eftir að
byijað var að fiarstýra Nesradíói frá
Reykjavík er nánast ómögulegt að
koma skilaboðum til Tilkynninga-
skyldunnar. Ég gæti nefnt nokkur
dæmi þar um. Það hefur komið fyrir
að þeir hafa haldið okkur vera langt
frá þeim stað sem viö höfum verið
á. Ég vil ekki hugsa til þess, ef við
þyrftum að senda frá okkur neyðar-
kall, aö þá verði byijað að leita okkar
langt frá þeim stað sem við erum á,“
sagði Halldór Þorsteinsson triUukarl
á Neskaupstað.
Nesradíó var fært undir Gufunes-
radíó 1. desember síðastliðinn.
Trillukarlar segja að eftir það sé
ástandið óþolandi. Halldór Þor-
steinsson segist vera búinn að gefast
upp á að tilkynna sig og hann ætlar
ekki að gera það fyrr en lausn finnst
á þessu vandamáh.
Hjá Tilkynningaskyldunni fengust
þær upplýsingar að meldingum frá
bátum á Austfiörðum hetði fækkað
mjög mikiö eftir breytingarnar.
Starfsmaður Tilkynningaskyldunn-
ar sagði að þetta skerti öryggi sjó-
farenda á Austfiörðum mikið. Hann
sagði slæmt, ef eitthvað kemur upp
á, að hafa ekki menn á fiarskiptum
sem eru kunnir staðháttum.
„Öruggt samband við land er einn
veigamesti þátturinn í öryggiskerf-
inu. Það má segja að við náum ekki
sambandi nema þegar við erum í
beinni sjónlínu við þessi þijú loftnet
sem eru hér. Eins dettur samband
út þegar við erum undir björgum.
Ég er einna mest hissa á Slysvamafé-
laginu, sem rekur Tilkynningaskyld-
una, að líða þetta ástand. Ég er búinn
að tala við umdæmisstjóra Pósts og
síma á Austurlandi og eins viö stöðv-
arstjórann hér á Neskaupstað. Þeir
segjast hafa skilning á þessu en þeir
virðast vera gjörsamlega áhrifalaus-
ir,“ sagði Halldór Þorsteinsson.
Halldór sagði einnig að eftir breyt-
ingar tæki mun lengri tíma að gera
við aUar bUanir eftir að loftskeyta-
mönnunum á Nesradíói var sagt upp
störfum í desember.
-sme
Myndlist:
Til styrktar alnæmissjúkum
Boðin verða upp 50 verk eftir ís-
lenska listamenn í Súlnasal Hótel
Sögu sunnudaginn 27. maí kl. 20.
Uppboðið er til styrktar alnæmis-
sjúkum.
Meðal þeirra sem gefið hafa verk á
uppboðiö eru Eiríkur Smith, Krisfián
Davíðsson, Jóhannes Geir, Hringur
Jóhannesson, Balthasar, Sigrún Eld-
jám, TolU og Gunnar Örn Gunnars-
son. Ágóöinn rennur óskiptur tíl fé-
lagshjálpar við alnæmissjúka. Verk-
in veröa til sýnis samdægurs milli
kl. 12 og 18.
-PÍ
Leitað með einum staersta krana landsins í Ölfusá en hann er eign Bjöms Alfreðssonar. DV-mynd Kristján