Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990.
Skák
Fyrrverandi heimsmeistari, Mika-
hil Tal, hefur fimm sinnum teflt í
Reykjavík og ævinlega yljað ská-
kunnendum um hjartarætur -
bæði með geislandi persónuleika
og fjörugri taflmennsku. Er hann
kom hingað síöast, á heimsbikar-
mótið í október 1988, duldist þó
engum að hann gekk ekki heill til
skógar. Hann hefur alla tíð verið
heilsuveill en nú virtist komið í
algjört óefni, þótt þess sæjust
reyndar ekki merki við skákborðið.
Fram á mitt síðasta ár gengu sög-
ur um að Tal ætti skammt eftir ólif-
að. Hann var vægast sagt illa á sig
kominn, ekkert nema skinn og
bein, og hafði mátt þola langa
sjúkrahúsvist. En um síðir rofaði
til og Tal „reis upp frá dauöum“.
Nú hefur hann aftur náð að safna
kröftum og enn fá skákunnendur
að njóta töfrabragðanna - og von-
andi sem lengst.
Það ber vel í veiði nú fyrir ísra-
elska skákmenn, sem fyrr á árinu
barst liðsauki er Lev Psakhis, tvö-
faldur Sovétmeistari, flutti þangað
með fjölskyldu sína. Nýverið skrif-
aði Tal undir samning um að þjálfa
og leiðbeina í ísrael næstu þrjú
árin. Því má búast við að þátttaka
hans á skákmótum verði stopulli
en verið hefur.
Tal, sem varð heimsmeistari 1960,
var frægur fyrir fórnir og fléttur
við skákborðið og svo magnaðir
þóttu tilburðir hans að hann var
gjarnan nefndur „töframðurinn frá
Riga“. í seinni tíð hefur hann róast
mjög en aldrei er þó langt í töfra-
manninn. Nú velur hann örugg-
ustu leiðina en fórnirnar og flækj-
urnar koma fram í skýringum hans
við skákina. Nema stundum að Tal
stenst ekki mátið.
Hann tefldi með sveit Zehlendorf
í þýsku Bundesligunni á keppnis-
tímabilinu, sem nú var að ljúka.
Mikhail Tal - töframaðurinn frá Riga - hefur skrifað undir þriggja ára þjálfunarsamning í ísrael.
Töframaðurinn frá Riga
er ekki af baki dottinn
Þar tefldi hann bráðskemmtilega
skák í „gamla Tal-stílnum". Sjálfur
segir hann í skýringum við skákina
í „Shakmaty Riga“ að í u.þ.b. ár
hafi hann ekki teflt betri skák.
Hann fær fljótt mun betri stöðu en
það er eftirtektarvert að sjá hvern-
ig hann vinnur úr henni. Deila má
um það, hvort hann fer bestu og
stystu leiðina að settu marki en
aðferð hans er áreiðanlega sú fall-
egasta.
Hvítt: Mikhail Tal
Svart: E. Meduna
Caro-Kann vörn
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Rg5
í skýringum sínum við skákina
segist Tal hafa litið á þenann leik
sem „létt grín“ er hann sá hann
fyrst, en það mun hafa verið í hrað-
skák gegn undirrituðum. Tafl-
mennska hvíts í þeirri skák var
ekki beysin og Tal náði yfirburöa
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
UNGLINGADEILD
Aðili með sálfræði-, félagsfræði- eða félagsráðgjafa-
menntun óskast til starfa. Ráðningartími 1 ár.
Starfssvið:
Unnið er með unglingum á aldrinum 12-18 ára og
fjölskyldum þeirra. Einstaklingsmeðferð, fjölskyldu-
meðferð, hópmeðferð, greiningarvinna, ráðgjöf og
samvinna vió aðra meðferðaraðila er innan okkar
verksviðs. Viðkomandi myndi hafa sem meginverk-
efni að sinna afbrotamálum barna og unglinga.
Við erum
lítill samhentur starfshópur með aðsetur í björtum
rúmgóðum vinnustað í gamla miðbænum.
Er þetta ekki eitthvað fyrir þig?
Nánari upplýsingar veitir Snjólaug Stefánsdóttir,
deildarstjóri unglingadeildar, í síma 622760.
Umsóknir skilist til Starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 2. hæð, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 6. júní
1990.
Skák
Jón L. Árnason
stöðu. En nú er hann sjálfur farinn
að tefla svona með hvítu. Leikur-
inn gefur svörtum ýmislegt um að
hugsa, sem „teóríubækurnar" hafa
enn ekki gefiö svör við. Og ýmsir
pyttir eru á leiöinni. Ein hugmynd-
in er auðvitaö aö svara 5. - h6? með
6. Reð! fxe6?? 7. Dh5 + og mát blas-
ir viö, eða í næsta leik 6. - h6? 7.
Re6! fxe6?? 8. Bg6 mát!
5. - Rgf6 6. Bd3 c5
Hér er oftar leikið 6. - e6 og Tal
hefur sjálfur í tvígang leikið 6. -
Dc7 með svörtu. Meduna haföi
textaleikinn hins vegar á hraðbergi
en þetta er leiktap - varasamt þeg-
ar svartur hefur enn ekki komið
mönnum sínum á framfæri.
7. Rlf3 cxd4
Eftir 7. - e6 kemur 8. De2 sterk-
lega til álita með vissum óþægind-
um á svart. Hins vegar hafði Tal
einnig annan möguleika í huga, 8.
Re5!? Rxe5 9. dxe5 Rd5 (ekki 9. -
Rd7? 10. Rxe6!) og nú 10. DfB, eða
10. Dh5 með góðum færum. Og
svari svartur 9. dxe5 með 9. - c4?!
er Tal ekki lengi að finna vinnings-
leið: 10. Bxc4 Da5+ 11. Kfl Dxe512.
Dd8+! Kxd8 13. Rxf7+ og næst 14.
Rxe5 o.s.frv.
8. 0-0
. Svartur á nú þegar við ramman
reip að draga. Enn gengur ekki 8.
- h6? vegna 9. Re6! og eftir 8. - e6
9. Hel vofa ýmsar hótanir yfir.
8. - Db6 9. Bc4 e6 10. Hel Be7
Nú á svartur aðeins eftir að hróka
og þá eru erflðleikarnir að baki.
Tal lætur hann ekki sleppa svo
auðveldlega!
11. Rxf7!
Þiggi svartur þessa fórn með 11.
- Kxf7 gæti framhaldið orðið 12.
Rg5+ Ke8 12. Rxe6 Rf8 13. Rxg7 +
Kd8 en Tal segist þó ekki hafa fund-
ið þvingaða vinningsleið úr þessari
stööu. Þá kom honum annar mögu-
leiki til hugar: 12. Hxe6 Db4 13.
Hxf6+! Ke8 14. Bf7+ og næst 15.
Hf4 og hvíta sóknin heldur áfram.
Hvítur á nú vinningsstöðu en það
er skemmtilegt að sjá hvernig Tal
spinnur sóknina áfram.
11. - Dc7 12. Bxe6 Rc5 13. Bc4
Líklega hefðu 99% stórmeistara
kosið 13. Bxc8 Kxf7 14. Rg5+ og
leika biskupnum síðan úr borðinu
en þá á hvítur peði meira og yfir-
burðastöðu. Tal tekst að flækja tafl-
ið að vanda og ekki verður því
mótmælt að aðferð hans er mun
glæsilegri.
13. - b5 14. Dxd4! bxc4 15. Bf4 Db6
„Eini reitur drottningarinnar!
Nú flaug sem snöggvast í hug mér
leikjaröðin 16. Rd6+ Kf8 17. Dxf6 +
gxf6 18. Bh6+ Kg8 19. Hxe7, en þá
sá ég óttasleginn að riddari minn á
d6 er óvaldaður," segir Tal. Þetta
var hins vegar mögulegt.því að eft-
ir 19. - Dxd6 20. Hg7 + Kf8 21. Hd7 +
ætti hvítur að vinna. En Tal hefur
önnur áform.
16. Rxh8 Be6 17. Rg5 Hd8
E # ^
i A AA
w
%
Á W Á,
A A A A A A 2
abcdefgh
18. Dxc5!
Einnig leiðir 18. De3, eöa 18. De5
til vinnings, en Tal stenst ekki
freistingúna og fórnar drottning-
unni.
18. - Dxc5 19. Rxe6 Db6
Eftir aðra skynsamlega drottn-
ingarleiki drepur hvítur á d8 og
vinnur auðveldlega.
20. Bc7!
Og svartur gafst upp.
-JLÁ