Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Side 20
20 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990. Kvikmyndir David Lynch ásamt leikurum sínum í Wild at Heart, talið frá vinstri: Isabella Rossellini, David Lynch, Laura Dern, Diana Ladd, Wiliem Dafoe og Nicholas Cage. Myndin er tekin í Cannes. Kvikmyndahátíðin í Cannes: Umdeilt val dómnefndar Þaö var langt frá því að allir væru ánægöir með val dómnefndar á bestu kvikmyndinni á nýafstaö- inni kvikmyndahátíð í Cannes. Þegar hinn þekkti leikstjóri Bern- ardo Bertolucci, sem var formaöur dómnefndar, tilkynnti aö banda- ríska kvikmyndin Wild at Heart heföi unniö gullna pálmann skipt- ust viðbrögð áhorfenda nokkuö jafnt, helmingurinn rak upp gleði- óp en hinn helmingurinn púaöi af óánægju. Wild at Heart, sem David Lynch leikstýrir, haföi vakið mikla at- hygli þegar hún var sýnd en ekki voru allir jafnhrifnir, enda nærist kvikmyndin á ofbeldi og kynlífi. Myndin fjallar um tvo unga elsk- endur, Sailor og Peanuts, sem eru á flótta undan laganna vörðum. Það sem Wild at Heart á sameig- inlegt meö síðustu mynd Lynch, Blue Velvet, er að hún gerist í fjar- stæðukenndum heimi þar sem of- beldið er alltaf í nálægð áhorfan- dans. Á flótta sínum hitta skötu- hjúin fyrir fólk sem almenningur hefur aðeins lesið um, klámkvik- myndastjörnur og sadista, svo að eitthvað sé nefnt. Og ekki tekur betra við í faðmi fjölskyldunnar þar sem liðist hefur nauðgun og morð. Eitt er víst að Wild at Heart á eftir að verða jafnumtöluð og Blue Velvet. Það sem helst aðgreinir þessar tvær kvikmyndir hvora frá annarri er að ólíkt og var í Blue Velvet, þar sem aldrei var losað um spennuna, er Wild at Heart að hluta tn svört kómedía sem þrátt fyrir allt hefur „góðan endi“. Lynch sagði blaðamönnum í Cannes að upprunalega hefði verið mun meira ofbeldi í Wild at Heart en eftir fyrstu prufusýninguna, þar sem margir áhorfendur löbbuðu út, hefði hann klippt nokkrar senur úr myndinni. „Ofbeldið var að gera út af við kvikmyndina," sagði Lynch. „Galdurinn var að draga þessa hárflnu línu þar sem mörkin eru. Ef þú ferð yfir þessa línu ertu í miklum vandræðum." Val dómnefndarinnar ætti samt ekki að koma neinum á óvart. í gegnum tíðina hefur dómnefndin í Cannes, sem er aldrei sú sama, verið vilhöll myndum sem eru öðruvísi. Má nefna þegar dóm- nefndin valdi í fyrra aðra banda- ríska kvikmynd, Sex, Lies and Videotape, sem nánast var gerð fyrir engan pening, og veitti henni gullna pálmann. Sú verðlaunaveit- ing varð til þess aö áhorfendur flykktust á myndina og flestir hrif- ust. Ameríska kvikmyndakademí- an, sem velur til óskarsverðlauna, leit aftur á móti ekki við Sex, Lies Kvikmyndir Hilmar Karlsson and Viedeotape og hafði hana alveg útundan þegar tilnefningar voru birtar. Hjá dómnefndinni 'í Cannes í ár urðu svo aftur á móti útundan allar þær myndir sem talið var að höfð- uðu mest til fjöldans, myndir á borð við White Hunter, Black He- art sem Clint Eastwood leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í og marg- ir töldu fyrirfram líklega til sigurs. Flestir voru sammála um að sú mynd hefði mest skemmtanagildi og fékk hún mjög góða dóma. Dóm- nefndin lét hana alveg fram hjá sér fara og fékk hún ekki einu sinni tilnefningu. Eins var um nýjustu kvikmynd Giuseppe Tornadore, sem leikstýrði Cinema Paradiso, Stanno Tutti Bene, sem einnig fékk mjög góðar viðtökur. Dómnefndin leit ekki við henni. Það voru sérstaklega Frakkar sem uröu alveg brjálaðir út af vali dómnefndar. Höfðu þeir gert sér vonir um að Cyrano de Bergerec, sem Jean-Paul Rappenau leikstýr- ir, fengi gullna pálmann. Frakkar urðu að sætta sig við að Gerard Depardieu fengi verðlaun sem besti leikari og þótti mörgum frönskum kyikmyndagagnrýnandanum það si^t þótt Depardieu væri vel að verðlaununum kominn. Einn franski gagnrýnandinn sagði um Wild at Heart. „Þessi kvikmynd er eingöngu kynlíf, of- beldi og Rock’n Roll og hún á ör- ugglega eftir að valda miklum von- brigðum i Bandaríkjunum." Hvort sem þessi orð franska gagnrýnandans eiga eftir að rætast eða ekki þá er víst að Wild at He- art á eftir að valda miklu fjaðrafoki vestan hafs og David Lynch sjálfur segist ekki útiloka þann möguleika að hann verði að klippa einhver atriði úr myndinni áður en hún verði sýnd fyrir bandarískan al- menning. -HK Clint Eastwood fór fýluferð til Cannes þetta árið. Þrátt fyrir að White Hunter, Black Heart hefði fengið mjög jákvæða dóma hjá gagnrýnendum leit dómnefndin ekki við henni. Eastwood, sem sést hér i hlutverki „John Hust- ons“, bæði leikstýrir og leikur að- alhlutverkið í myndinni. David Lynch - maður ársins David Lynch ásamt sambýliskonu sinni, leíkkonunni Isabella Rossellini. Það er öruggt að áriö í ár verður ár David Lynch. Það er ekki bara að nýjasta kvikmynd hans, Wild at Heart, hefur fengið gullna pálm- ann í Cannes og á eftir að verða á milli tannanna á almenningi það sem eftir er af árinu heldur er hann leikstjóri og aðalhugmyndasmiður sjónvarpsmyndaflokksins Twin Peaks, en fyrirrennari mynda- flokksins, mynd í fúllri lengd, sló heldur betur í gegn þegar hún var sýnd í sjónvarpinu vestan hafs 8. apríl. Kvikmynd þessi hefur verið gefln út á myndbandi hér á landi. Öll meiri háttar blöð í Bandaríkjunum fjöliuðu um kvikmyndina og marg- ir áttu varla orð til að lýsa hrifn- ingu sinni á verki David Lynch. Þegar hafa verið gerðir sjö þættir sem sýndir verða næsta haust. David Lynch hefur vart gert nokkuð annaö en að búa til kvik- myndir og mála málverk. Hann var mjög ungur þegar hann gerði stutt- myndina Grandmother sem fjaliar um dreng sem plantar fræi í ömmu sína, fræi sem síðan vex. Hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd var Eraserhead sem segir frá undarlegum hjónum og barni þeirra sem er varla nema aö hálfu leyti mannlegt. Gerist myndin í iðnaðarborg og er uppfull af súr- realískum atriðum. Eraserhed var sett á markaöinn 1977 en það tók Lynch fimm ár aö fullgera hana, aðallega vegna fjárskorts. Næsta kvikmynd David Lynch var Fílamaðurinn (The Elephant Man) sem hann gerði 1980. Myndin er byggð á trakískri æfi hins af- skræmda John Merrick. Fékk Lynch mikið hrós fyrir myndina og varð Fílamaðurinn til þess að farið var að veita David Lynch at- hygli. Sú athygli breyttist í martröð fyr- ir hann- þegar hin misheppnaða Dune kom fyrir sjónir almennings 1984. Þar var með sanni hægt að segja að 40 miUjónum dollarar hefði verið eytt í vitleysu. Endur- reisn David Lynch kom svo með Blue Velvet, umdeildri en sterkri kvikmynd sem kom á markaðinn 1986. David Lynch fæddist í Montana fyrir 43 árum. Hann ólst upp i smá- borgínni Missoula og er þar sjálf- sagt komin skýringin á ást/hatur á smáborgum sem einkennir öll hans síðustu verk, Blue Velvet, Twin Peaks og Wild at Heart. Faðir hans er vísindamaður sem vinnur á veg- um landbúnaðarráðuneytisins. David Lynch vildi verða mynd- listarmaður í fyrstu, ekki kvik- myndaleikstjóri, og hann þykir ágætur málari í dag. Hann er einn- ig menntaöur tónlistarmaður og hefur samiö dægurlög og eitt stórt verk, Industrial Symphony No 1 sem hann samdi í samvinnu við tónskáldið Angelo Badalamenti. David Lynch er tvígiftur og tví- skilínn og á tvö böm, annað með núverandi sambýliskonu sinni, leikkonunni lsabella Rossellini. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.