Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990.
21
Meiming
Andans minni
Málverk Sveins Björnssonar virðast
fremur lúta náttúrulögmálum en listræn-
um. Það er varla hægt að segja að þau „þró-
ist“ stílrænt, heldur er engu hkara en þau
taki breytingum eftir því hvernig viðrar,
eftir árstíðum, jafnvel eftir þvi hvernig
skjálftavirknin er í Krísuvík þar sem Sveinn
hefur haft vinnustofu. Málverk hans eru því
eins óútreiknanleg og tíðarfariö á íslandi,
oft rysjótt og hráslagaleg, stundum uppfull
með leysingaveðri, en svo koma fyrir dýrð-
ardagar, þegar verkin fyllast tærri birtu og
grómagni. Sveinn hefur því gert æði margar
vondar myndir um dagana, en inn á milli
hefur hann dottið ofan á mögnuð mynd-
verk, sönn í lit og mergjuð í byggingu,
kannski fleiri en margan grunar. Nú sýnir
hann úrval gamalla mynda og nýrra í Hafn-
arborg í Hafnarfirði (til 27. maí), sem veitir
ágæta innsýn í rúmlega þijátíu ára feril
hans.
Náttúrubarn
Sveinn er mikið náttúrubarn í efnismeð-
ferð sinni. í höndum hans verður málningin
eins og jarðleir, annaðhvort mjúk og þjál
eða hörð og stökk. Sjaldnast liggur hún slétt
og sleikt, heldur hrannast upp eins og mold-
arbörð eða myndar misjafnlega þykkan
hræring, sem er að sumu leyti eins og end-
urspeglun af nánasta umhverfi hans.
Burðarásinn í myndhst Sveins er einmitt
linnulaus togstreitan milh hinna áferða-
miklu flata, efnisheimsins, og hins yfirskil-
vitlega inntaks flestra mynda hans, það er,
hinnar andlegu víddar. Eins og listrænn
ættbróðir hans, Carl-Henning Pedersen, er'
Sveinn fabúlisti sem ekki gerir skýran
greinarmun á ytri og innri veruleika. Innri
Sveinn Björnsson - Örlög, 1979-80.
veruleiki Sveins fær á sig form nokkurra
vera eða fyrirbæra með goðsagnakenndu
yfirbragði. Þar ber mest á fuglum í öllum
regnbogans litum, nökkvum og stílfærðum
andlitum, sem í senn minna á frumstæðar
grímur, gamlar helgimyndir - og nökkva.
Góðarvættir
Sveinn áréttar raunar „helgi“ þessara
andlita öðrum þræði með höfuðbúnaði sem
líkist geislabaug og gegna þau þá vísast hlut-
verki góðra vætta.
Hvort sem málverk Sveins eru byggð á
hlutlægum grunni eða einskæru hugar-
hvarfli, rennur upphafleg hugmynd á end-
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
anum saman við þessi andans minni, til
góðs eða ills. í besta falli verða þau til þess
að hnykkja á og fylla upp í þaö sem gerist
á fletinum, formrænt og inntakslega, en eiga
þaö einnig til að taka völdin af málaranum.
Best tekst Sveini upp í myndum eins og
„Látið þið tunghð vera“ (tvær útgáfur, 1965
& 1968). „Steinarnir tala“, (nr. 19) og „Ævin-
týri“ (1970).
Dulvitundin gerir mjög snemma vart við
sig í verkum Sveins. Verk hans frá 1958-60
eru drungaleg verk með raunsæju sniði.
Litrófið minnir í senn á Júlíönu Sveins-
dóttur, frænku málarans, Jóhannes Geir og
Ágúst Petersen - en samt er eins og fólkið í
þeim sé ekki af þessum heimi. Myndin
„Vetrarlandslag" (1963) er síðan á mörkum
hins náttúrulega og yfirnáttúrulega. Eftir
það varð ekki aftur snúið.
í Hafnarborg sýnir Sveinn nokkrar klippi-
myndir frá 1984, sem verða að teljast útúr-
dúr á ferli hans, svo mjög sem þær eru á
skjön við alla hans list- og lífsfilósóflu.
Kvikmyndir
John Larroquette og Kirstie Alley leika aðalhlutverkin i Allt á hvolfi.
Háskólabíó: Allt á hvolfi
★ V2
Helstríð í heimahúsi
í þessari mistæku gamanmynd þurfa hjónakorn að horfa máttvana upp
á friðsælt heimili sitt yfirfyllast af alls kyns ruslaralýð sem leggur það í
rúst. Vinahjón frá New Jersey, konan ófrísk, maðurinn ræfill. Odrepandi
köttur þeirra. Puntudrósarsystir húsfreyjunnar og kókaínsalinn sonur
hennar. Óður smiður og-félagslega brengluð börn hans. Öllu er þessu
dembt inn á aumingja uppana Kirstie Alley og John Larroquette.
Á pappírnum hefur þessi afkárakímni litið vel út en fáránlegt þýðir
ekki alltaf fyndið og fljótlega verða ósennilegheitin óspennandi. Undir
lokin fara aðalpersónurnar yfir um ög myndin með og verður þá loksins
fyndin að einhverju marki.
Kirstie Alley. sýnir óvænta hæfileika í nokkru sem mætti útleggja sem
taugaveiklaðan gamanleik. En annars er allt tíðindalaust frá vesturvíg-
stöðvunum.
Madhouse. Bandarísk. 1989.
Saga og leikstjórn: Tom Ropelewski.
Leikarar: John Larroquette (Night Court), Kirstie Alley (Look Who's Talking), David
Ginty (The Exterminator).
Gísli Einarsson
BASTSETT 2ja sæta sófi, 2 stólar, borð. Verð fró 29.825.
Glæsilegt
úrval
nýkomið
af plast-
og furu-
húsgögnum
Um helgina
laugardag kl. 11-16
sunnudag kl. 1 2-1 6
SEGLAGERÐIN
Stóll kr. 1.050,- staðgr.
ÆGIR
EYJASLÓD 7, SÍMI 621780