Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Page 29
LAUGARDAGUR 26. MAl 1990. 41 ensku og flest upplýsingaspjöld og bæklingar eru á japönsku, t.d. lest- arkort. Viö björguðum okkur oft meö handahreyfmgum. Annars vorum við yfirleitt með leiðsögu- mann með okkur frá umboðsskrif- stofunni, öðruvísi hefðum við aldr- '*ð' ei fundið þau fyrirtæki sem óskuðu eftir okkur í viðtöl. Húsin í Tokýo eru merkt eftir hverfum, ekki göt- um.“ Öruggur staöur Hendrikka fór til Japans með stuttum fyrirvara í haust og svo var einnig um Berglindi. í Japan hittu þær tvær íslenskar stúlkur, Unni Kristjánsdóttur, sem var þar á vegum Elite, og íslenska stúlku sem búsett er í Kanada. Þær Hend- rikka og Berglind höfðu einnig mikið samband við Helga Þórhalls- son sem starfar fyrir Sölumiðstöð J. hraðfrystihúsanna í Japan. „Hann 1 var mjög almennilegur við okkur,“ segir Hendrikka. Hún stefnir á háskólanám í Flórída næsta haust en segist vel geta hugsað sér að fara aftur til Japan. Hendrikka segir að hættur séu ekki miklar í Tokýo og ekkert að óttast. „Mér fannst ég alltaf vera örugg. í kynningu um Japan, sem var í flugvélinni á leiðinni til Tokýo, kom fram að jafnmargir glæpir eru framdir í New York á einni viku og í Tokýo á einu ári.“ ? Hendrikka starfar enn fyrir Icel- andic Models en fyrirtækið leitar nú eftir stúlkum sem áhuga hafa á að reyna fyrir sér sem fyrirsætur í Japan. „Við leitum að stúlkum sem myndast vel og eru um 170 sm á hæð. Það er ákaflega skemmtilegt að dvelja í Japan og kynnast lífinu þar í einhvern tíma. Maður gerir sér þó auðvitað enga grein fyrir hvernig starfið er fyrr en á hólminn er komið. Áhuginn skiptir öllu máli í þessu starfi," segir Hend- rikka. „Þetta var mikil og góð reynsla þó mér hafi kannski ekki þótt starfiö mjög spennandi. Það var engu að síður mjög skemmtilegt að kynnast Japan og japanskri menningu sem er svo gjörólík því sem við þekkj- um,“ segir Hendrikka Waage en hún starfaði við fyrirsætustörf í Tokýo í rúma fjóra mánuði frá okt- óber til febrúarloka. Helgarblaðið sagði frá því þegar Hendrikka fór í haust til Japan eft- ir að hafa fengið boð frá japanskri umboðsskrifstofu í gegnum Icel- andic Models. Önnur íslensk stúlka, Berglind Jónsdóttir, var þá nýfarin út. Berglind er enn starf- andi í Japan en Hendrikka sneri heim. „Þegar ég kom til Tokýo í haust tók Berglind á móti mér. Við bjugg- um í sömu íbúð ásamt fleiri módel- um. Maður verður aö hafa gríðar- legan áhuga til að standa í þessu,“ sagði Hendrikka. „Það var gaman að reyna fyrir sér á þessum slóðum en fyrirsætustarfið í Japan er allt öðruvísi en annars staðar. Strax þegar ég kom til Japan byrjuðu viötöl hjá hinum og þess- um aðilum. í Tokýo eru bæði starf- andi japanskar umboösskrifstofur og evrópskar. Umboðsskrifstofan sendir mann í nokkur viðtöl á dag í hin ýmsu fyrirtæki um alla borg- ina. Það er mjög mismunandi hvað maður fær að gera en yfirleitt eru þetta myndatökur fyrir verðlista og blöð. Lægri fyrir- sætur í Japan Það er afar þreytandi að þvælast milli fyrirtækja í lest. í Tokýo er svo margt fólk og erfitt að vera mikið á þeytingi. Reyndar kom mér á óvart hve borgin er vestræn. Tískusýningar eru oft haldnar þar en sýningarfólkið kemur m.a. frá París. Reyndar komst Berglind að Hendrikka Waage starfaði sem fyrirsæta í Tokýo í fjóra mánuði og lætur mjög vel að dvöíinni þar. fslenskar fyrirsætur í Japan: Dýrmæt og góð lífsreynsla - segir Hendrikka Waage sem starfaði í Tokýo í fjóra mánuði sem sýningarstúlka í tveimur tiskusýningum, þar á meðal Tokýo Collection sem er mjög stór sýning. Fyrirsætur sem starfa í Japan mega vera allt frá 167 sm upp í 174 sm og hærri. í Evrópu og í Banda- ríkjunum þurfa þær yfirleitt að vera hávaxnari.“ Hendrikka segir það hafa verið mikla lífsreynslu að hafa búið í Japan þennan tíma og kynnast líf- inu þar. „Japanir eru allt öðruvísi en við. Þeir eru mjög kurteisir og kærleikurinn er einhvern veginn sterkari í þeim. Hins vegar er dýrt í Japan. Húsaleiga er mun dýrari en hér heima en maturinn aftur ódýrari. Við leigðum þriggja her- bergja íbúð og þurftum að greiða fjörtíu og fimm þúsund hver á mánuði, hvort sem við vorum tvær eða t.d. fimm í íbúðinni. Fyrirsætur þurfa að passa sig á umboösskrifstofunum, þær eru misgóðar. Mikill hluti launa okkar fer í skatta og til að greiða umboðs- skrifstofunni hennar hlut.“ Hendrikka notaði tímann til að Hendrikka og Berglind á japönskum veifingastað. Um þessar mundir leitar lcelandic Models að stúlkum sem áhuga hafa á að fara til Japans. kynna sér japönskuna. Hún fór ásamt Berglindi á námskeið og seg- ir að það hafi verið mjög skemmti- legt. „Það er auðvelt að bera jap- í félagsskap Mick Jagger Tíminn í Japan fór ekki eingöngu í vinnu því að þær Hendrikka og ^ Berglind áttu oftast frí öll kvöld og helgar. Þá reyndu þær að kynnast borginni og fóru á tónleika. Meðal þeirra sem þær hittu var Mick Jag- ger, sem settist til borðs með þeim á diskóteki þar sem stúlkurnar sátu í lokuðum bás. „Hann var mjög indæll, spurði okkur t.d. um ísland.“ Ferðalög geta líka fylgt fyrir- sætustarfinu og Berglind var svo heppin að fara í myndatökur á ítal- íu þar sem hún dvaldi í tvær vik- ur. „Þaö er óskað eftir okkur í mis- munandi myndatökur og alls ekki bara í fataauglýsingum. Ég get ‘ nefnt sem dæmi auglýsingamyndir fyrir leikfóng, hljómtæki, tölvur, hamborgara, bíla og fleira. Iöulega eru þetta myndatökur fyrir bækl- inga og blöð sem oft eru sendir til vestrænna landa,“ segir Hendrikka Waage. -ELA Berglind Jónsdóttir hefur einnig starfað sem fyrirsæta í Japan und- anfarna mánuði og er enn. Berg- lind hefur meðal annars ferðast til Ítalíu frá Japan i starfi sinu. önsku fram en erfiðara að lesa og læra táknin. Fáir í Tokýo tala

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.