Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1990, Blaðsíða 34
^6
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990.
Lífsstm
Siglt um Jökulsárlónið
á Breiðamerkursandi
„Þegar veriö var aö kvikmynda
■^James Bond myndina Víg í sjónmáli,
sumarið 1984, sáu menn fram á aö
þaö væri grundvöllur fyrir því að
bjóða upp á bátsferðir um Jökulsár-
lóniö. Allt sumariö var stöðugur
straumur af fólki sem vildi fá aö
komast í útsýnissiglingar á bátunum
sem notaðir voru viö töku myndar-
innar. Þaö má því segja að það sé
James Bond aö þakka aö þetta varö
að veruleika," segir Fjölnir Torfason,
á Hala í Suðursveit en hann og fjöl-
skylda hans bjóða upp á siglingar um
Jökulsárlóniö á Breiðamerkursandi.
„Ég tók viö fyrirtækinu árið 1987,
en starfsemin hófst 1985, og þetta
hefur gengið alveg þokkalega. Við
erum með einn hjólabát í siglingum
yi lóninu. Hann keyptum við úr
Þykkvabænum en Þykkbæingar
höfðu keypt hann frá bandarískri
hergagnaverksmiðju. Auk hjólabáts-
ins notum við svo tvo flugfiskbáta
og tvo slöngubáta í sighngarnar. Við
getum því verið með á milh 60-70
manns á siglingu á lóninu í einu.“
Byggð hefur verið bryggja austan-
megin við lónið og þaðan er haldið í
hann á bátunum út á lónið. Hver sigl-
ing tekur á milli 30 og 40 mínútur
og er hreint ævintýri út af fyrir sig.
Það er fyrst þegar komið er út á
lónið að menn átta sig á hversu stórt
það er, auk þess sem allt önnur sýn
fæst á þetta stórkostlega náttúrufyr-
irbæri heldur en þegar staðið er á
bökkum þess og það virt fyrir sér frá
þeim sjónarhóli.
Veörið hefur ekki svo mikið að
segja þegar siglt er um lónið. Það er
jafn fallegt í rigningu og þoku og þaö
er i glaðasólskini. Mörgum finnst
raunar að lónið sé enn fallegra í
dimmviðri en sólskini því þá kemur
blái liturinn í ísnum beturí ljós og
hann virkar hreinni og tærari. í
slíkri veðráttu breytist lónið í sann-
kallað ævintýraland þar sem ljós og
skuggar virðast leika saman á yfir-
náttúrulegan hátt. Slík sjón lætur
engan ósnortinn.
Ungt náttúrufyrirbæri
Jökulsá á Breiöamerkursandi fell-
Veðrið í útlöndum
!aupmannahöfn 14
Berlín 1
Luxemborg 15
París 17
arcelona
Mallorca 26
Hei&skfrt
Montreal
Léttskýji
Chicago 14
os Angeles 14'
HITASTIG I GRÁÐUM
•10 oöa Isagra
Otíl-6 11II S 611110 11 tll 15 1611120 20 tll 25
Byggt á veOuriréttum Veðurstolu Islands kl. 12 á hádegl, föstudag
Þrándheimur 8/ \
Reykjavík 8° Cmn Vaasa 8°
<* -sT aJ
Þórshöfn 9° Berben r
rp Osló 14° ntelsinki 14°
3lasgow14“^ ^^Stokkhólmur 8°
mn New York 14°
Atlanta 18°
^ Orlando 22
u
DVJRJ
Rigning V Skúrir *,* Snjókoma pj Þrumuve&ur = Þoka
Það fæst allt önnur sýn á Jökulsárlónið á Breiðamerkursandi þegar siglt er
á bökkum þess.
um það heldur en þegar staðið er
DV-myndir J.Mar
ur undan Breiöamerkurjökh, því
næst á miðjum Breiðamerkursandi.
Áður féll áin beint undan jökli í sjó
fram en á seinni árum hefur orðið
mikil breyting á þessu landssvæði.
Stórt stöðuvatn myndaðist á milli
Breiðamerkurjökuls og jökulöldu og
gerðist það að mestu eftir 1950. Jök-
ulsárlónið er því ungt náttúrufyrir-
bæri.
Vatnið er hyldjúpt, víöa um 100 m
á dýpt. Stórir ísjakar, sem brotnaö
hafa úr jökhnum, fljóta um vatnið
enda er það ískalt. Að sumarlagi er
þaö um einnar gráðu heitt.
Hættulaus sigling
„Það er nánast hættulaust að sigla
um lónið ef varlega er farið. Þau
fimm ár sem boðið hefur verið upp
á útsýnissiglingar hafa engin óhöpp
átt sér stað.
Það er aldrei farið á einum bát út
á lónið heldur fylgja slöngubátarnir
ætíð með. Það hefur borið við aö
menn hafi stungið sér til sunds í lón-
inu en þeir hafa yfirleitt verið fljótir
að hafa sig á land aftur. Það er einn
og einn sem hefur getað synt ein-
hvern smáspöl og einungis þeir sem
eru vanir aö svamla um í köldu vatni.
Það voru um 11 þúsund manns sem
notfærðu sér þessa þjónustu síðast-
liðið sumar og við erum bjartsýnir á
að það verði enn fleiri sem koma hér
við í sumar.
Við byijum að sigla klukkan 9 á
morgnana og erum að fram á kvöld.
Siglingin kostar 800 krónur fyrir
fullorðna, 400 krónur greiðast fyrir
börn á aldrinum 7-14 ára en börn
undir 7 ára aldri sigla frítt,“ segir
Fjölnir.
-J.Mar
Með 12.000 ára klaka í fanginu. Sögusagnir herma aö það sé afar gaman að nota ís úr Jökulsárlóninu í áfenga
drykki því miklir smellir heyrast í ísnum þegar hann kemst í snertingu við vínanda.
Sumaráaetlun Flugleiða:
Skoðunarferðir innanlands
1 sumaráætlun Flugleiða sem
nýlega leit dagslns ljós er gert ráð
fyrir 160 þúsund sætum f áætlunar-
flugi til 12 staða innanlands og i
Færeyjum og á GrænlandL
Ferðum verður íjölgað til Vest-
mannaeyja, Egilsstaða, Húsavíkur,
Sauðárkróks og ísafjarðar. Hins
vegar veröa færri áætlunarferðir
til Akureyrar en í fyrra, en gert er
ráö fyrir að fleiri hópar fari í leigu-
flugi þangað. Heildarsætaframboð
verður því svipað og í fyrra.
Innanlandsflug Flugleiða leggur
nú meiri áherslu en áður á sölu
eins til tveggja daga skoöunarferða
út á land. Meöal þeirra eru ferðir
til Hafnar í Hornafiröi, þaðan sem
farið er á Vatnajökul og að Jökuls-
árlóni. Þá má nefha ferðir til Akur-
eyrar og þaöan til Grímseyjar og
Mývatns, ferðir til Vestmannaeyja,
Kúlúsúk á Grænlandi og fleiri
staða.
Þessar ferðir eru skipulagðar í
samvinnu við heimamenn á hverj-
um stað sem sjá um aht skipulag
skoöunarferða.
-J.Mar