Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 16. JCNÍ 1990. 7 Fréttir Vinnuaðstaða í málrn- og jámiðnaði: Erum langt á eftir öðrum á Norðurlöndum - segir Guðjón Jónsson hjá Vinnueftirlitinu „Ástandiö í hollustumálum á vinnustaö er mjög misjafnt á meöal íslenskra fyrirtækja. Sum eru í mjög slæmu ástandi þar sem vantar næga loftræstingu og þrif og hreinsun er í slæmu ástandi. Þó að vissulega hafi oröiö breytingar til batnaðar á und- anfornum árum erum viö enn langt á eftir öðrum á Noröurlöndum," sagöi Guöjón Jónsson, starfsmaöur Vinnueftirlits ríkisins, aöspuröur um ástand mála í hollustu á vinnu- stað og vinnuvernd. Guðjón var á árum áður starfsmað- ur og formaður Félags járniðnaðar- manna og Sambands málm- og skipa- smiða. Guðjón hefur lengi barist fyr- ir bættum aðbúnaði á vinnustað og felst starf hans hjá Vinnueftirlitinu í eftirhti með málm- og vélsmiðjum. Það hefur komið fram að ástandið í vinnueftirliti og vinnuvernd er fremur bágborið hér á landi miðað við nágrannalöndin. Hefur til dæmis verið áætlað að um 12.000 vinnuslys verði hér á landi á ári. Metur yfir- læknir Vinnueftirhtsins tjónið af þessum völdum upp á um 14 til 15 milljarða króna eða svipað og tjónið af umferðarslysum. Guðjón sagði að margt hefði horft fil batnaðar síðan ný lög voru sett 1. janúar 1981. Enn værum við íslendingar þó á eftir. „Þrátt fyrir að ástandið hafi batnað hafa engan veginn orðið þær breyt- ingar sem þurfa að verða. Við erum langt á eftir Norðurlandaþjóðunum en þar hefur verið lögð mikh áhersla á þessa þætti,“ sagði Guðjón. Hann sagði að fræðslustarf og áróður, sem ótvírætt skilaði árangri, væri mun markvissara erlendis. Guðjón sagði að málm- og vélaiðn- aður væri almennt tahnn óþrifalegur og því væri oft erfitt að bæta aðstöðu starfsmanna vegna fordóma. Væri ekki óalgengt aö sjá rusl og ónýta vélarhluti um allt á vinnustaö. Þá væri aöstaða starfsmanna oft mjög bágborin. Hann hefði séð kaffistofur svartar af óhreinindum, salernisað- stöðu til vansæmdar og að engin að- staða væri til fataskipta. „Hins vegar eru til vinnustaðir í Til eru vinnustaðir í málmiðnaði sem ekkert er hægt að setja út á. Ljósmál- aðir vinnustaðir, allt tandurhreint og snyrtiaðstaða hreinsuð reglulega. Þeir eru auðvitað sönnun þess að þetta sé mögulegt. Að sögn Guðjóns er Vélaverkstæði Bernharðs Hannessonar í Síðumúla dæmi um slíkt. málmiðnaði sem ekkert er hægt að setja út á. Ljósmálaðir vinnustaðir, allt tandurhreint og snyrtiaðstaða hreinsuð reglulega. Þeir eru auðvit- að sönnun þess að þetta sé mögu- legt,“ sagði Guðjón. Guðjón sagði einnig að oft vildi það brenna við að menn notuðu ekki nauðsynlegar hlífar og virtist sem svo að stundum þyrfti að skylda menn til þess. Það hefði einmitt verið gert í álverinu í Straumsvík með góðum árangri. -SMJ Þarna sérðu Magnús og Dóru á heimleið eftir 5'/2 árs útivist. Þau létu drauminn rætast án þess að ganga á eigur sínar. Þau hjónin komu að landi 2. júní sl. og höfðu þá siglt u.þ.b. 40.000 sjómílur. Fyrir nokkrum árum ákváðu þau að selja íbúðina og láta drauminn rætast, - að sigla á skútu til framandi slóða, laus við áhyggjur hins venjubundna lífs. Dóra og Magnús hafa nú verið á ferðinni í 5!ó ár. Spánn, Kanaríeyjar, Grænhöfðaeyjar, Suður-Ameríka, Panamaskurðurinn, Kyrrahafseyjar, Ástralía, Indlandshaf, Súesskurður og Miðjarðarhaf eru nokkur þeirra svæða sem þau nutu í félagi við hafið og skútuna Dóru. Allan tímann var andvirði íbúðarinnar í vörslu Verð- bréfamarkaðar Fjárfestingarfélagsins. Vextir umfram verðbætur sem þar fengust nægðu þeim til framfærslu í þessari frábæru ferð. Eftir ógleymanlega hnattferð standa þau Qárhagslega í sömu sporum og áður, því að uppreiknaður höfuðstóll stendur óhaggaður. Þau gætu þess vegna keypt sömu íbúð aftur. Velkomin heim Dóra og Magnús, - og til hamingju! VERÐBRÉFAMARKAÐU R FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYRI11100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.