Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Blaðsíða 10
10 „Þetta var mjög skondið hjá okkur á generalprufunni fyrir Aidu. Leikur Ítalíu og Austurríkis stóð þá yfir. Um sex hundruð manns voru á sviðinu þegar mest var, kór, söngvarar og hljómsveit, þar af um þrjú hundruð statistar. Mest af þessu er ungt fólk. Það var með lítil útvarps- og sjón- varpstæki með sér til að fylgjast með leiknum. Það skipti heldur engum togum - nokkrum sinnum á æfing- unni öskraði fólkið upp yfir sig út af leiknum þó svo aö söngvararnir og hljómsveitin væru á fullu í söngn- um og við hljóðfæraleik. Þetta var dálítið sniðug uppákoma en því mið- ur missti ég af leiknum í sjónvarp- inu. Að leiknum loknum, þegar ljóst var að Ítalía haföi sigrað, var mikið stuð á götum úti. Þá voru tugþúsundir manna í miðbænum, ökumenn lágu hreinlega á bílílautunum fram á nótt og allir fógnuðu úrslitunum. Þarna 1 íkti mikil gleði," sagði Kristján Jó- hannsson óperusöngvari í samtali við DV en hann syngur þessa dagana aðalhiutverk tenórs í óperunni Aidu í stóru og fornu útileikhúsi í Cagliari á Sardiníu. Frumsýningin var síðast- höið þriðjudagskvöld. Rólegirfót- boltaáhorfendur Kristján er staddur í miðri hring- iðu heimsmeistarakeppninnar í fót- bolta á Ítalíu. F-riðillinn, þar sem Englendingar, írar, Hollendingar og Egyptar keppa, fer einmitt að miklu leyti fram í Cagliari, höfuðstað Sardi- níu. Fyrir keppnina var ákveðið að leikir Englendinga skyldu fara fram á Sardiníu. Áhangendur þeirra eru þekktir fyrir óspektir. „Það hefur verið mikil stemning að fylgjast með öllum framkvæmd- um í kringum fótboltaleikina hér á Sardiníu," sagði Kristján er DV náði tali af honum í vikunni. „Hér eru miklar öryggisráðstafanir og mikil gæsla lögreglunnar enda eru Bret- amir heimsfrægir fyrir óspektir og fyllirí. Fyrir jafnteflisleik Englands og írlands í vikunni tilkynntu borg- aryfirvöld í staðarsjónvarpinu að engin vínsala yrði leyfð - hvorki í verslunum, börum né á veitingastöð- um. Ekki dropi af áfengi. Leikurinn og allt í kringum hann fór því vel fram. Það var eins og áhorfendur væru aö fara í messu. Maður sá ekki vín á nokkrum manni. Það var lítið um ólæti enda Ijóst að áfengiö hefur mikil áhrif á slíkt. Mér fundust þetta frábærar ráðstafanir af hálfu yfirvalda - þær báru alla- vega árangur," sagði Kristján. Skilaðu víninu, vinur! „Sama dag og leikurinn fór fram fórum við hjónakomin að kaupa í matinn í verslun. Ég var búinn að Kristján Jóhannsson óperusöngvari er nú í adalhlutverki i óperunni Aidu sem er flutt í stóru útileik- húsi i Cagliari. Flytjendur eru um 600 og hiö forna leikhús tekur um tólf þúsund manns í sæti. LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990. 34 ára gamall fótboltaáhugamaður, Tom Sheridan, frá Englandi gerir sig tilbúinn í slaginn fyrir leik Englands og írlands í Cagliari á Sardiniu. Kominn með réttan raddlitfyrir Aidu Sýning á Aidu fer fram í útileik- húsínu Ansi Tetro Romano og svipar því að nokkru leyti til hins foma Colosseum leikhúss í Róm. Á árum áður tók það 16 þúsund áhorfendur í sæti en vegna öryggisástæöna og slysahættu eru efstu áhorfendapall- arnir nú afgirtir. Kristján sagði aö á frumsýningarkvöldið hefði verið búist við 12 þúsund óperuunnendum í leikhúsið. Það er svipað Arena di Verona nema aö því leyti að þrepin í áhorfendapöllunum em höggvin beint í bergið - það er ekki hlaðið. „Það er mikil upplifun að vera í aðalhlutverki í þessari sýningu. Mér finnst ég vera hamingjusamasti mað- ur í veröldinni. Núna er komið að þeirri stund á mínum ferli að Aida fellur í hálsinn á mér eins og óperan sé skrifuð fyrir mig. Draumur flestra tenóra er einmitt aö komast á það stig að geta sungiö Aidu eða stóróper- ur eins og tónskáldið óskaði eftir því. Núna er ég kominn með tilfinn- inguna og réttan Ut í röddina. Ég ætla að gera „radamence historical“ - sögulegan flutning tenórs. Frum- sýningunni verður sjónvarpað og mikið veröur um að vera. Viö erum með toppsijörnur í þessu verki: Co- sotto messósópran, bassann Gaiotti og rússneska sópraninn Troisköju. Þetta eru heimsnöfn í óperubransan- um. Maestrini er leikstjóri, maður sem er búinn aö vera í aðalhlutverki í bransanum í fimmtíu ár,“ sagði Kristján. Kristján Jóhannsson óperusöngvari í hringiðu heimsmeistarakeppninnar: Varð að skila víninu í matvöruversliminni - Er í aðalhlutverki í 600 manna uppfærslu á Aidu í útileikhúsi á Sardiníu setja tvær flöskur af borðvíni í inn- kaupakörfuna - svona af gömlum vana. En þegar viö komum að af- greiöslukassanum var bara sagt: „Nei, því miður, vinur. Við megum ekki selja neitt vín í dag!“ Það var nú bara gaman að þessu," sagði Kristján sem kvaðst hafa oröið að skila víninu í þetta skiptiö vegna reglna sem giltu um vínsölubann vegna knattspymuleiksins um kvöldið. „Fólkið á Sardiníu er mjög svipað í háttum og ítalir á meginlandinu,“ sagðiKristján. „íbúamirhafaþó dálítiö annað yflrbragð. Þeir eru heldur dekkri yflrlitum og hafa greinilega blandast fólki frá Afríku. Mér finnst fólkið mjög myndarlegt. Hér er mikiö af fallegum konum. Háttemi innfæddra og menning sýn- ist mér þó vera svipuö þeirri sem ríkir á meginlandinu," sagði hann. í Cagliari, höfuðstað Sardiniu, búa um 220 þúsund manns. Þar er nú um 28 stiga hiti á daginn og mjög róman- tfskt andrúmsloft ó kvöldin að sögn Kristjáns Jóhannssonar. Rómantískt að syngja úti Aðspurður um hvort hann hefði sungið áöur fyrir svo mikinn fjölda áhorfenda áður sagði Kristján: „Nei, ég hef aldrei sungið fyrir svo marga. Aida er sýnd úti undir berum himni og það gerir andrúmsloftið mjög rómantískt. Hér er hitinn um 28 stig og himinninn heiðskír. Á kvöldin er svo tunglskin og stjörnu- bjart.“ Kristján sagöi að sýningarnar á Aidu yrðu fjórar. „Að þeim loknum ætlar fjölskyldan aö vera hér í sól- inni fram til 20. júní. Við höldumsvo heim til Desenzano viö Gardavatnið á Norður-Ítalíu. Ég mun þá hefja undirbúning fyrir sýningar á óper- unni II Trovatore sem veröur flutt í Parma á Ítalíu í september,“ sagði Kristján Jóhannsson óperusöngvari. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.