Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1990. Bob Dylan kemur í langþráða heimsókn til íslands: Sagnameistari fullorðinsrokksins Víst var Elvis kóngurinn og víst voru Bítlamir fab four, hinir íjórir frá- bæru. En Robert Zimmerman, sem hefur kallaö sig Bob Dylan undan- fama þijá áratugi, þarf ekki slíkan titil eöa sæmdarheiti - hann er sér á báti og siglir gegnum allar tísku- sveiflur eins og ósigrandi keisari. Þó lýsir hann sjálfum sér aöeins sem dans- og söngvamanni, song and dan- ce man. Menn virðast almennt sam- mála um aö líklega hafi enginn dæg- urtónlistarmaður í sögunni haft við- líka áhrif á aöra tónlistarmenn og meistari Dylan. Þeim kann hins veg- ar aö vefjast tunga um tönn þegar kemur að því að skilgreina áhrifm; var það röddin, var það sviðsfram- koman, var það tónlistin, var það textagerðin? Varla röddin. Hún telst varla upp á marga fiska, rám og hijúf, oft þan- in aðeins um of, langt í frá að vera skær tenór eða djúpmjúkur baríton. Sviðsframkoman? Varla. Þaö er ekki ljósagangurinn og svífandi geimskip í kringum meistarann á tónleikum og ekki hoppar hann um á sviðinu né segir brandara sem halda fólki í hláturskasti allaij tím- ann. Hann gengur einfaldlega fram á sviðið og spilar. Segir einstaka sinnum takk fyrir, ekki mikið meira. Það dugar áhorfendum hans prýði- lega, takk fyrir. Engum líkur Tónlistin? Já, þar hefur hann tví- mælalaust vinninginn. Og þó: Dylan fór yfir í rafmagn fyrir aldarfjórð- ungi fyrir áhrif frá breskum rokk- hljómsveitum á borð við Bítlana og Animals. Síðan hefur hann verið á undan flestum öðrum í þróuninni - en þó ávallt sjálfum sér líkur og sam- kvæmur. Hann þekkist úr á auga- bragði. Hann stæhr engan, enginn er honum Ukur. Textagerðin? Já, engin spuming. Textar Dylans eru jafnan sumpart nýir - um persónu- lega reynslu eða uppgötvun - og sumpart gamUr, þ.e. byggðir á gam- alU sagnahefð ameriskri. Oft eru það langir sagnabálkar eða ævintýri, stundum heldur drungaleg eins og Desolation Row er ágætt dæmi um. Skömmu eftir að hann varð vin- sæll um Bandaríkin þver og endilöng á miðjum sjöunda áratugnum var gerð skoðanakönnun meðal þar- lendra háskólanema um hvert þeir teldu vera mesta skáld samtímans. Meira en helmingur nefndi Dylan, næstur á eftir kom WUliam Faulkn- er. IntelUgensían vestra rak upp stór augu. Hvaða Bob? Sá Bob Jú, sagði unga kynslóðin þeirra daga, sá Bob sem samdi Blowin’ In the Wind, Masters of War, Don’t Think Twice, Like A RoUing Stone, Highway 61, A Hard Rain’s a-Gonna Fall og fleiri og fleiri. Maðurinn sem samdi John Birch Society Blues um samnefnda hreyfingu hvítra fasista og kynþáttahatara fékk ekki að syngja lagið í sjónvarpsþætti Ed SuUivan og gekk út við svo búiö. En ekki var þrautin öU unnin við það, plötufyrirtækið Columbia neitaði Uka að gefa út „John Birch“ þrátt fyrir langvarandi þref höfundarins. Það skipti ekki máU þegar fram í sótti, tónleikaupptaka af laginu komst vitaskuld á svokaUaða „sjó- ræningjaútgáfu" (bootleg) skömmu síðar og verður vafalítiö gefin út í upprunalegri útgáfu í fyUingu tímans svipað og gerðist með „kjall- araupptökumar" (Basement Tapes) sem Dylan geröi á heldur frumstæö- an hátt með hljómsveitinni Band og út komu 1975 eftir að hafa velkst um í sjóræningjaversjónum í nokkur ár. 30 ára sigurganga 1967 munaði minnstu að þessi per- visni sveitapUtur, sem var að leggja heiminn að fótum sér, týndi lífinu á sviplegan hátt og endaöi þar með fer- Uinn á sömu nótum og James Dean, Buddy HoUy og fleiri goð æsku- manna. Hann lenti í alvarlegu mótor- hjólaslysi skammt frá heimih sínu í uppsveitum New York, hálsbrotnaði og var vart hugað líf. Þegar hann komst aftur til heilsu mátti heyra merkjanlega breytingu á röddinni og efnistökum þegar út kom platan John Wesley Harding. í hópi gömlu þjóðlaga- og þjóðlagarokkbrýnanna eru ýmsir sem aldrei hafa tekið meistarann í sátt eftir þessa daga. Það er auðvitað allt of langt mál að telja upp allar plötumar sem Dyl- an hefur sent frá sér, þær eru nálægt fjörutíu orðnar, og þar fyrir utan hafa komið út íjölmargar sjóræn- ingjaútgáfur - misjafnar að gæðum. Besta plata meistarans í langan tíma er líklega sú nýjasta, Oh, Mercy, sem kom út seint á síðasta ári og meira að segja íslenskir plötugagnrýnend- ur töldu bestu plötu ársins. Það var ekki seinna vænna að Eyj- ólfur hresstist. Pílagrímsför Ferill Dylans spannar nú þrjá ára- tugi. Á þeim tíma hefur hann farið í ótölulegar hljómleikaferöir um heiminn - og nú kemur hann loks í fyrsta skipti til íslands. Einstaka maður hefur lagt á sig löng og ströng ferðalög til útlanda tfi að sjá meistar- ann á sviði, þeirra á meðal undirrit- aður sem skaust á tónleika Dylans í Gautaborg snemmsumars 1984. Það var góð síðdegisstund í sólskini og hita. Fyrstur byijaði sænskur rokkari sem stóð sig þokkalega, þá tók við ameríska sveitin Santana, sem var í fylgd með Dylan á hljóm- leikaferðalaginu - og loks kom meist- arinn sjálfur, að minnsta kosti jafn- pervisinn og hann hefur aUtaf sýnst með gráleita ásjónu undir barðastór- um hatti. Á þessum tíma hafði hann nýverið tekið kristna trú (er fæddur gyðingur eins og nafnið Zimmerman bendir til og hefur nú aftur játað trú forfeðra sinna) og sent frá sér plötuna Saved með ýmsum trúarlegum upplifunum og gerði misjafnlega mikla lukku meðal aðdáenda sinna. Hann byijaði á nokkrum lögum í þeim dúr, smám saman batnaði hljómburðurinn um UUevi-fótboltavölUnn og þegar hann var búinn að spila í 20-30 mínútur var sándið orðið eins og maður sæti heima í stofu með fínasta geislaspil- ara. Einn á sviðinu Svo var einfaldlega farið í gegnum ferihnn, hvert meistaralagið á fætur öðru tekiö með feikna þéttu og kraftmiklu bandi sem hvergi sló feil- nótu. Hvort það er sama bandið og kemur með til Reykjavíkur veit mað- ur ekkert um en það ætti að vera óhætt að treysta því að undirleikar- arnir fiórir verða engir aukvisar. Eða eins og amerískur gagnrýnandi sagði um Dylan eftir Bangla Desh-hljóm- leikana í New York 1970 þar sem áhorfendur reyndu að klappa hann upp í langan tíma: „Maður sem hefur Ringo Starr á tambúrínu í samsafns- hljómsveitinni sinni (in his pick-up band) lætur ekki klappa sig upp.“ Þar kom svo að hljómsveitin hvarf af sviðinu, eftir stóð Bob Dylan einn með kassagítarinn og munnhörpu. í góðan hálftíma fór hann í gegnum sín elstu lög, Blowin’ In the Wind, Don’t Think Twice og öll þau og nokkrir tugir þúsunda áheyrenda á Ullevi sungu með, kunnu hvert orð, hvert lag. Sólin skein í heiði og lífið var dásamlegt. Þaö var ekki Bangla Desh-gállinn á honum í það skiptið, hann lét klappa sig upp einum þrisvar sinn- um og flutti magnþrungin aukalög. Það síðasta var Like A Rolling Stone á þrumandi styrk og krafti, eins og hann hefði aldrei spilað það áður. Það er góð stund í vændum í Laug- ardalshöllinni 27. júní. Ómar Valdimarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.