Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1990, Side 14
14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RViK, SÍMI (91J27022 - FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1000 kr.
Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr.
Sjónh verfingamenn
Donald Trump er gott dæmi um, hversu langt er
unnt að komast á ímynd, sem byggð er upp, án þess að
innihald sé að baki. Hann hefur um nokkurra ára skeið
baðað sig í frægðarljóma auðsöfnunar og látið banka-
stjóra lána sér án trygginga. Nú er spilaborgin að hrynja.
Töluvert er til af hstamönnum af þessu tagi. Saksókn-
arinn í London heldur því fram, að íslenzkur maður,
Jósafat Arngrímsson, hafi náð rúmlega milljarði króna
út úr ekki minni stofnun en National Westminster Bank,
meira eða minna með ævintýralegum sjónhverfmgum.
Við höfum heyrt þjóðsögur um, að Einar Benedikts-
son skáld hafi vafið brezkum íjármálamönnum um fmg-
ur sér, meira eða minna með höfðinglegri framkomu
sinni. Þeir fengu honum stórfé í hugmyndir, sem voru
ef til vill góðar, en náðu ekki fram að ganga.
Ágætt dæmi um klókan sjónhverfmgamann er hinn
ítalski Giancarlo Paretti. Hann náði 40 milljarða ís-
lenzkra króna tryggingu út úr stærsta fjölmiðlafyrir-
tæki heims, Time Warner, svo að hann gæti keypt kvik-
myndaverin Metro Goldwyn Mayer og United Artists.
Paretti hefur notað hvert tækifæri til að auglýsa,
hversu ríkur hann sé og hversu góð sambönd hann
hafi. Hann taldi Steve Ross, forstjóra Time Warner, trú
um, að hann væri einkavinur Jóhannesar Páls páfa. í
Páfagarði hefur þessu verið harðlega mótmælt.
Komið hefur í ljós, að Paretti hefur fimm sinnum
verið dæmdur á Ítalíu fyrir útgáfu á gúmmítékkkum
og fólsun á bókhaldi og meðal annars til þriggja ára
fangavistar fyrir gjaldþrotasvik. Ennfremur hafa blaða-
menn rekið augun í tengsh hans við mafíumenn.
Þegar hitnaði undir Paretti á Ítalíu, fór hann til höfuð-
stöðva ímyndaframleiðslunnar, Hollywood. Þar sneri
hann Time Warner svo um fingur sér, að það stórfyrir-
tæki er nú komið á skrá yfir þau fyrirtæki, sem önnur
fyrirtæki beri að umgangast með fjárhagslegri varúð.
Donald Trump erfði einn og hálfan milljarð króna
eftir föður sinn og taldi umheiminum trú um, að hann
hefði breytt arfmum í sextíu mihjarða króna með ein-
stakri fjármálasnilh sinni. Nú er komið í ljós, að hann
taldi bara eignirnar, en ekki skuldirnar á móti.
Donald Trump skrifaði metsölubók, sem fjallaði um,
hversu ofsalega klár í fjármálum hann væri. Hann sagð-
ist ennfremur vera thvahð forsetaefni fyrir Bandaríkin.
„Enginn fertugur maður hefur afrekað annað eins og
ég,“ sagði hann. Fólk féll unnvörpum fyrir honum.
Sérgrein Donalds Trump hefur verið að ná lánsfé úr
bönkum gegn veði í of hátt metnum fasteignum. Fjár-
málaritið Forbes telur, að hann hafi tapað hálfum þriðja
milljarði á ári og að vafasamt sé, að hann eigi fyrir skuld-
um. ímyndin, sem hann byggði upp, er að hrynja.
Þegar menn geta komizt svona langt á ímyndinni í
New York, HoUywood og London, er engin furða, þótt
unnt sé að byggja upp smáveldi á íslandi, án þess að
nokkuð áþreifanlegt sé að baki. Sumir muna kannski
eftir Ávöxtun og Grundarkjöri, sem flugu hátt um tíma.
Hér var einu sinni stórfyrirtæki, sem talið var traust-
ara en ríkið sjálft. Nú hggur Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga í rúst. Aht í einu hafa menn áttað sig á, að
það á htið nema skuldir. Bláeygur Landsbanki og nokkr-
ir útlendir bankar sitja eftir með verðlausa pappíra.
Enn þann dag í dag er veröldin vettvangur sjón-
hverfmga í viðskiptum og stjórnmálum. Kraftaverka-
menn koma og fara og skilja eftir sig spennandi lesefni.
Jónas Kristjánsson
LAUGARDAGUR 16. JLTNÍ 1990.
Ummyndun
Mið- og Aust-
ur-Evrópuríkja
Til orðahnippinga kom milli undir-
ritaðs og stjómmálafræðinema í
Háskólanum á jólafostu síðastlið-
inni. Verið var að ræða aðdraganda
nýafstaðinna lýðræðisbyltinga í
löndum Mið- og Austur-Evrópu,
sem þá náðu til ailra Varsjárbanda-
lagsríkja vestan Sovétríkjanna
nema Rúmeníu. Umskiptin höfðu
átt sér stað án blóðsúthellinga,
meira að segja í löndum eins og
Austur-Þýskalandi og Tékkósló-
vakíu, þar sem eins flokks valda-
kerfið virtist fram á síðustu stundu
til alls víst.
Af því sem gerst hafði dró ég þá
ályktun að yfirgnæfandi líkur
væru á að um mitt sumar yrðu
komnar til valda á þessu svæði
gerbreyttar ríkisstjórnir frá því
sem áður var, sprottnar upp úr
frjálsum kosningum. Á þetta vildu
stjómmálafræðinemar sumir
hverjir ekki leggja minnsta trúnað,
heldur töldu að byltingarferili hlyti
að fara eftir fræðilegu líkani, þar
sem hófsemdarmenn fyrstu hylt-
ingarbylgjunnar yrðu að víkja fyrir
ofstopahópum.
Nú nálgast mitt sumar og niður-
stöður liggja fyrir. í Austur-Þýska-
landi, Tékkóslóvakíu og Ungverja-
landi em komnar til valda ríkis-
stjómir með öfluga þingmeirihluta
en misjafnlega staðsettar í htrófi
stjómmálanna. í Rúmeníu, þar
sem byltingin varð mannskæð og
hafði ekki átt sér stað þegar áður
rakin orðaskipti fóru fram, og
Búlgaríu hafa þau öfl úr gömlu
valdaflokkunum, sem heita umbót-
um og vestrænni lýðræöisjafnaðar-
stefnu, haldið velh.
Að sumu leyti má rekja þennan
mun til löngu hðins tíma, lýðræðis-
hefð er mun eldri og öflugri í lönd-
um Miö-Evrópu en með Balkan-
þjóðum. Meira ræður þó afstaða
fyrri valdhafa gagnvart erlendu
valdi. Nakið, sovéskt hervald var
undirstaða valdakerfanna í Aust-
ur-Berlín, Prag og Búdapest. Ára-
tugir eru síðan Sovéther hvarf frá
Rúmeníu og Búlgaría var aldrei
hersetin.
Lærdómsríkt er í þessu sambandi
að hta til Júgóslavíu, þar sem
kommúniskir valdhafar bratust
undan áhrifum veldis Stalíns fyrir
rúmum fjörutíu árum. í vesturlýð-
veldunum, sem teljast til miðevr-
ópska menningarsvæðisins, Sló-
veníu og Króatíu, hefur verið tekið
upp fjölflokkakerfi með svipuðum
niðurstöðum úr fyrstu kosningum
og í nágrannaríkjunum. í þeim lýð-
veldanna, sem tilheyra Balkan-
skaga, einkum Serbíu, ríkir eins
flokks kerfið óhaggað. Tugþúsund-
ir héldu þó uppi andófi gegn því á
götum Belgrad á miðvikudag, sama
dag og mótmælagöngur vora í
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
búlgörskum borgum gegn kosning-
aúrslitum og andófsmenn gegn
Rúmeníustjórn réðust á opinberar
byggingar í Búkarest.
Okyrrðin er því bundin við Balk-
anlöndin, en í Austur-Þýskalandi,
Tékkóslóvakíu og Ungverjalandi
má allt heita með kyrrum kjöram.
í Austur-Þýskalandi eru stjórnar-
taumar í höndum kristilegu flokk-
anna, sem leggja mest upp úr
skjótri sameiningu þýsku ríkjanna.
Þeir hafa fengið sósíaldemókrata í
samsteypustjórn með sér, til að
stjórnin hafi tvo þriðju þingsæta til
stjómlagabreytinga. Um næstu
mánaðamót sameinast efnahags-
kerfi þýsku ríkjanna undir ægis-
hjálmi vesturþýska marksins.
Vesturþýsk fyrirtæki auka jafnt og
þétt umsvif sín í Austur-Þýska-
landi. Ljóst er að leggja verður nið-
ur úrelt fyrirtæki, mörg þeirra stór,
sem aldrei geta borið sig. Svo vih
til að fyrirsjáanlegt er að atvinnu-
leysi og önnur röskun af þessum
sökum verður mest í suðurhérað-
unum, þar sem kristilegu flokkarn-
ir fengu mest fylgi í kosningunum.
Almannasamtökin, sem beittu
sér fyrst og skeleggast fyrir falh
fyrri valdhafa í Austur-Þýskalandi,
náðu htlum árangri við kjörborðið.
Öðru máli gegnir í Tékkóslóvakíu.
Þar vann Borgaralegur vettvangur,
frjálslynd hreyfing undir forustu
Vaclavs Havels forseta, stórsigur
og hreinan meirihluta á þingi.
Kommúnistar náðu öðra sæti und-
ir umbótamerki og íhcddssöm
hreyfing kristilegra flokka lenti í
því þriðja. Á henni bitnaði að for-
maður stærsta flokksins, Þjóðar-
flokksins, Josef Bartoncik að nafni,
reyndist hafa verið launaður
njósnari leynilögreglunnar í röð-
um andófsmanna frá því 1971 fram
á síðasta ár.
í Ungverjalandi var aðalkeppnin
í kosningunum milli þjóðernis-
sinnaðs íhaldsflokks, sem vih fara
hægt og varlega í breytingar á hag-
kerfmu, og frjálslynds fiokks, sem
setti á oddinn skjót umskipti til
hreinræktaðs markaðsbúskapar.
íhaldsmenn báru hærri hlut.
Vegna þess hve fyrri stjórn í Ung-
verjalandi var langt komin að opna
hagkerfið, eru horfur á að Ungverj-
ar verði í fararbroddi Austur-
Evrópuþjóða að laða th sín erlent
áhættufjármagn til atvinnufram-
kvæmda, sér í lagi japanskt og
bandarískt.
Póhand er svo sér á parti. Þar
varð th á útmánuðum í fyrra fyrir-
myndin að friðsamlegum umskipt-
um frá eins flokks valdakerfi með
hringborðsviðræðum umbóta-
sinna í valdaflokknum og stjórnar-
andstöðunnar. í hálffrjálsum kosn-
ingum, þar sem kvótar ghtu að
vissu marki, vann Samstaða fræg-
an sigur. Mynduð var ríkisstjórn
undir forustu Samstöðumanna,
sem hefur einbeitt sér að endur-
reisn hrunins hagkerfis.
Verðlag hefur verið gefið frjálst,
niðurgreiðslur hafa verið afnumd-
ar og launahækkunum sett ströng
mörk með skattheimt'u. Árangur-
inn er aö verðbólga minnkaði úr
76 af hundraði í janúar í 5% í apríl
og vænst er að talan verði 4% í
maí. Matvælaskortur, sem var
landlægur, má heita úr sögunni.
Um leið og einokun ríkisins á mat-
væladreifingu var afnumin,
sprattu upp markaðir bænda hvar-
vetna. Eftir 21 gengislækkun á síð-
asta ári hefur gengið, sem sett var
á zloty í janúar, haldist stöðugt.
Á móti kemur að framleiðsla í
ríkisfyrirtækjum hefur dregist
saman um þrjá tíundu, atvinnu-
leysi farið í þrjá af hundraði og
meðalrauntekjur rýrnað um 45%
milli ára. Höfundur hagkerfiskoh-
steypunnar, Leszek Balcerowicz
fjármálaráðherra, segir áríðandi að
nú geti hafist einkavæðing í fram-
leiðsluatvinnuvegum, sala ríkis-
fyrirtækja. Með því móti einu verði
rekstri þeirra og afkomu skákað
yfir á traustan grundvöh. En frum-
varp um þetta efni situr enn fast í
Sejm, pólska þinginu. Verkamenn
óttast um störf sín og þjóðernis-
sinnum er iha við eignarhald út-
lendinga á fyrirtækjum.
Járnbrautarverkamenn lögðu
niður vinnu um daginn til að mót-
mæla kaupmáttarskerðingunni, en
snera aftur til starfa fyrir fortölur
Lech Walesa. En foringi Samstöðu
hefur snúist gegn ýmsum af sínum
fyrri félögum, þar á meðal Mazowi-
ecki forsætisráðhera. Virðist hann
telja að sinna ráða sé htt leitað og
sér beri að taka við forsetaembætt-
inu af Jaruzelski 'hershöfðingja.
Magnús Torfi Ólafsson
■ Prag kunngerði á miðvikudaginn lokaúrslit í þingkosningunum. Símamynd Reuter