Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990. 5 dv__________________________________________________________________________________Fréttír Erlendir ferðamenn í snjó og kulda í Mývatnssveit: Þegar við vöknuðum vantaði bara jólatréð - sögðu hollenskir ferðalangar sem vildu þó ekki hafa misst af þessu ævintýri Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyri: „Þegar við vöknuðum og kíktum út brá okkur heldur betur, snjór yfir öllu og það vantaði ekkert nema jóla- tréð til aö fullkomna þetta,“ sögöu hollenskir ferðamenn sem DV hitti að máli á tjaldstæði í Mývatnssveit í gærmorgun. Hollensku ferðamennirnir voru himinlifandi yfir aö hafa lent í þessu ævintýri eins og þeir orðuðu þaö. „Það er ákaflega skemmtilegt að hafa upplifað þetta, það þykir örugglega merkilegt þegar við segjum frá þessu er við komum heim. Okkur var ekki svo mjög kalt í tjöldunum, enda vel búin og meö nóg af teppum og þesS háttar.“ Það var ekki annað að sjá en hol- lensku ferðalangarnir væru bara ánægðir með að hafa lent í snjókomu Þjóðverjinn Reinhard Muller við fararskjóta sinn á grárri jörðinni í Mývatns- sveit. í tjaldi á Mývatnsheiði í snjókomu og kulda: Gat bara sof ið í 3-4 klukkustundir Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: Hann var heldur þreytulegur og kaldur, þýski hjólreiðamaðurinn Reinhard Muller, þegar hann nálgað- ist Mývatn á fararskjóta sínum í gærmorgun. Reinhard hafði gist í tjaldi sínu á Mývatnsheiði um nótt- ina og átt erfitt með svefn sökum kulda, enda sujóaði á tjaldið og jörð var alhvít þegar hann fór á fætur. „Það var ansi kalt og ég gat ekki sofiö nema þijár eða fjórar klukku- stundir. Ég reiknaði alls ekki með að fá gott veður í þessari ferð en reiknaði þó aUs ekki með snjókomu. En svona er þetta og vissulega er þetta mikil upplifun. Er ekki annars alltaf betra veður hér á sumrin held- ur en í Reykjavík?" Reinhard sagðist hafa komið til Reykjavíkur 17. júní og hann var búinn að ferðast um á hjólinu sínu til Þingvalla sem hann rómaði mjog fyrir fegurð, til Gullfoss og Geysis og síðan til Þorlákshafnar þar sem hann fór um borð í Herjólf og sigldi til Eyja. Eftir þessa ferö hélt hann frá Reykjavík til Borgarness en hreppti þar hið versta veður og talaði um „veðravíti“ á þeirri leið. „Þá fékk ég nóg og fór með rútu til Akureyrar. Eg ætla að vera hér við Mývatn í vikutíma, fara í gönguferöir og skoða landið sem er mjög áhugavert og veðrið stöðvar mig ekki. Maður þarf bara að hugsa um að hafa nóg af þurrum fótum,“ sagði Reinhard Muller. " Hollendingarnir brugðu á leik við tjöld sin og gerðu sig líkiega til að grýta snjóboltunum sínum í Ijosmyndarann. DV-myndir gk Útlendingunum f innst þetta fyndið - segir Inga Ásgeirsdóttir tjaldvörður á íslandi um hásumar. Sömu sögu var að segja af öðrum ferðalöngum sem við hittum á ferð okkar. Reyndar sögðust þeir ekki hafa reiknað með að hreppa slíkt vetrarveður en held- ur ekki hafa átt von á góðu veðri. í gærmorgun var um 5 cm þykkt snjólag á tjaldsvæðinu í Mývatns- sveit. Snjóinn tók þó fljótt upp en fjöll í nágrenninu voru með kvíta kolla og grá niður í miðjar hlíðar. Sænskir göngugarpar: Kalt á nefinu - í tjördunum Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Okkur var ekki svo kalt í tjöldun- um þegar við vöknuðum, en reyndar var mér ansi kalt á nefinu,“ sagði einn þriggja sænskra göngugarpa sem við rákumst á í Mývatnssveit- inni í gærmorgun. Þeir Anders Fridsberg, Thomas Frisk og Thomas Strömberg voru vel klyfjaðir að leggja af stað í gönguferð umhverfis Mývatn eftir að hafa sofið á tjaldstæðinu í Reynihlíð um nótt- ina. „Það sem gildir er að hafa góða svefnpoka og vera vel búinn,“ sögðu þeir félagar. Þeir eru í sinni fyrstu íslandsferð en voru ekki endilega vissir um að hún yrði jafnframt sú síðasta. „Nú var það, töpuðu þeir öllum leikjunum?“ sögðu félagarnir þegar þeir spuröu um gengi landa þeirra á heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu á Ítalíu og var tjáð að Svíar hefðu tapað öllum leikjum sínum þar. „Unnu þeir ekki einu sinni Costa Rica? Jæja, það verður að hafa það,“ sögðu þeir félagar um leið og þeir gengu af staö. Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Hér var 5 cm snjór yfir öllu þegar fólk fór á fætur í morgun og ákaflega vetrarlegt," sagði Inga Ásgeirsdóttir, tjaldvörður á tjaldsvæðinu við Reynihlíð í Mývatnssveit, er DV kom þar við í gærmorgun. Inga sagði að þá um nóttina hefði verið 50 manns á tjaldsvæðinu í 24 tjöldum, nær allt útlendingar, og þeir kvörtuðu ekki. „Þeim finnst þetta bara vera fyndið og þegar ég var að skrifa veðurspána áðan sem við hengjum hér upp sögðu þeir mér bara að skrifa að þaö yrði tveggja metra þykkur snjór. Ég hef ekki orð- ið vör við neina reiði hjá fólkinu, það er vel búið og hlýtur að vera við ýmsu búið í ferðum sínum hingað.“ nas c ' • • • • • • • __ i 80 H ,U / I f !)vv • fo ••••*• #••••• 'H/s,, Híin/mf Síi 11 & 11 eð slmsvara Sjálfvirkt val — Innbyggður hljóðnemi og hátalari — 12 minni — 3 minni fyrir beint útval — Hvert móttekið skilaboð í allt að 150 sek. — Ljós í takkaborði — Tónval, púlsval — Veggfesting. &SS8& \ 1 1 Q O |pÉ 8 : © EB ö 1 rzá O' * . W I 3 Verð kr. 12.943 HEKIAHF Laugavegi 170-174 Sími 695500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.