Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990. )11 Sprengingin í London: írski lýðveldis- herinn ábyrgur Margareth Thatcher, forsætisráðherra Bretlartds, kom til London frá Dyfl- inni í gær til að líta á skemmdirnar sem urðu á Carlton-klúbbnum í fyrra- kvöld er sprengja sprakk þar. Það er lávarður Whitelaw, formaður Carlton- klúbbsins sem hér sést með forsætisráðherranum. Símamynd Reuter írski lýðveldisherinn (IRA) hefur játað að hafa sprengt upp Carlton- klúbbinn í London í fyrrakvöld. Eins og komið hefur fram er um að ræða einkaklúbb breskra íhaldsmanna. Bresk stjórnvöld og lögregla álíta að írski lýðveldisherinn hafi að und- aníomu breytt um áherslur og að- ferðir sem meðal annars felast í því að spjótunum er aftur beint að mönn- um í fremstu víghnu stjórnmálanna. Lögreglan óttast að leiðtogar írska lýðveldishersins muni halda áfram á þeirri braut og einkum verði frammámenn innan íhaldsflokksins í hættu. Fyrr í þessum mánuði var sveita- setur og fyrrum heimili háttsetts manns innan íhaldsflokksins skemmt illa með sprengingu og voru þar IRA-menn að verki. Innanríkisráðherra Bretlands, David Waddington, hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessa og ít- rekaði hversu erfitt væri að koma í veg fyrir aðgerðir írska lýðveldis- hersins þar sem aldrei væri að vita hvar hryðjuverkamennirnir tækju næst til hendinni. Fjórir slösusðust talsvert í spreng- ingunni á mánudagskvöld. Þar á meðal Lord Kaberry, 82ja ára, fyrr- um varaformaður íhaldsflokksins og aldraður dyravörður klúbbsins. Sprengingin á mánudag kemur í kjölfar nokkurra smærri sprenginga írska lýðveldishersins á undanförn- um mánuði. Margaret Thatcher, for- sætisráðherra Bretlands, var stödd í Dyflinni á írlandi, þegar sprengingin átti sér stað á mánudag, á leiðtoga- fundi Evrópubandalagsríkjanna. Hún kom til London í gær til að líta á skemmdir í Carlton-klúbbnum. Sagði forsætisráðherrann að spreng- ingin setti að vissu leyti skugga á leiðtogafundinn og fordæmdi hún þá semstóðuaðverknaðinum. Reuter Utgöngubann í Zambíu Fjórtán manns hafa látist í átökum í Afríkuríkinu Zambíu síðustu daga og hafa stjómvöld þar í landi nú sett á útgöngubann á kvöldin og nótt- unni. Talsmenn sjúkrahúsa í Lusaka segja að um eitt hundrað manns hafi þurft að leita sér lækninga síðan á mánudag og æ fleiri leitað á náðir sjúkrahúsa, flestir vegna skotsára. Heyra mátti skotbardaga í Lusaka, höfuðborg landsins, í gærkvöldi en þúsundir lögreglumanna og her- manna vakta nú götur borgarinnar. Óttast er að átökin, sem hafa hing- að til að mestu verið einskorðuð við höfuðborgina, breiðist út til norður- hluta landsins. í norðri létust fimm- tán manns árið 1986 þegar svipuð mótmælaalda gekk yfir landið. Kveikjan að róstunum var mikil veröhækkun á matvöru en maís, sem er helsta undirstöðufæða íbúa lands- ins, tvöfaldaðist í verði. Aldrei áður hafa svo alvarlegar róstur átt sér stað í Zambíu. „Þetta er alvöru stríð. Lög- regla skýtur af handahófi,“ sagði einn íbúi Matero en þar hafa hörð- ustu átökin átt sér stað. íbúar höfuðborgarinnar fylktu Uði á götum Lusaka í gær í kjölfar mót- mæla námsmanna gegn eins flokks stjórn Kaundas forseta og segja stjórnarerindrekar að aldrei áður hafi námsmenn og almenningur sameinast í mótmælum á við þau sem nú standa yfir í höfuðborginni. Reuter Mandela fagnað á Bandaríkjaþingi Suður-afríski blökkumannaleið- toginn Nelson Mandela fékk í gær stuðning beggja flokka við þann vilja sinn að Bandaríkin muni ekki láta af viðskiptaþvingunum við Suður- Afríku. Mandela hélt langa og sögulega ræðu í bandaríska þinginu í gær og var honum ákaft fagnað. Hann lagði áherslu á að bægja frá ranghug- myndum um að Afríska þjóðarráðið (ANC) aðhylltist alræðishugmyndir í stjómmála- og efnahagsstefnu og ítrekaði vonir sínar um að banda- ríska þingið myndi styðja hugmyndir hans og stuðla að afnámi aðskilnað- arstefnunnar. Mandela lagði í ræðu sinni áherslu á lýðræðisvonir sínar með því að vitna í bandaríska stjórnmálaleið- toga, eins og George Washington, Abraham Lincoln og fleiri. Þegar Mandela hvatti til þess að viðskipta- þvingunum við Suður-Afríku yrði haldi áfram stóð þingsalur upp og fagnaði honum. Öldungardeildarþingmaðurinn Edward Kennedy sagði að Mandela Öldungadeildarþingmaðurinn Edward Kennedy færir Nelson Mandela, suð- ur-afríska blökkumannaleiðtoganum, gjöf, höggmynd af John F. Kennedy, fyrrum forseta Bandaríkjanna. Símamynd Reuter hefði sannarlega fengið stuðning þingmanna beggja flokkanna og eftir ræðu hans væri enn ólíklegra en áður að einhverra tilslakana myndi gæta í viðskiptum Bandaríkjanna við Suður-Afríku. Reuter Útlönd Vaxandi spenna í Líberíu Þúsundir íbúa Afríkuríkisins Lí- beriu. sem sumir hvcrjir kröföust afsagnar Samuol Doe forscta, gengu fylktu liði um höfuðborgina Monróvíu í gær. Þetta var í fyrsta sinn sem íbúar þessa stríðshrjáða lands kreíjast þess aö forsetinn láti af völdum. Skammt undan kröfu- göngunni voru skæruliðar, reiðu- búnir til aö ráðast á borgina. Tilraunir til að koma á riðræðum milli stríðandi fylkínga i Líberíu, þar sem borgarastvrjöld hefur staðið í sex mánuði, hafa ekki borið árangur sem erfiði. Skæruliðar hafa neitaö aö setjast að samninga- borðinu með fúlltrúum stjórnvalda og segja sumir heimildarmenn að svo virðist sem Doe, sem rændi völdum áríð 1980, hafi ekki gert sér fulla grein fyrir hversu alvariegt ástandið í landinu er. Stjórnarerindrekar áætla að nokkur þúsund manns hafi látist í átökum i Liberíu. Borgarastyrjöld hefur geisað i Lí- beríu i sex mánuði og hefur hún komið við líf allra í landinu. Stmamynd Reuter Geimfarar í Hættu staddir? Embættisraenn sovésku geimferðastofnunarinnar hafa visað á bug fregnum um að líf tveggja sovéskra geimfara um borð í geimstöðinni Mír sé í hættu og að þeir þurfi að fara út úr geimstöðinni til að gera við geimfar sitt eigi þeir að eiga afturkvæmt til jarðar. Yfirmaður geimáætlunarinnar, Vladimir Solovyov, sagöi i viðtali við sovéska sjónvarpið að ástandið um borö í stöðinni væri eðlilegt. Hann sagði að geimfaramir myndu kanna skemmdirnar á geimfarinu en að ekki væri hætta á ferö. Samkvæmt fregnum bilaði einangrun í geim- farinu, Soyuz TM-9, við flugtak í febrúar síðastliðnum en geimfararnir lentu heilu og höldnu í geimstöðinni. Bandaríska tímaritið Aviation Week and Space Technology skýrði frá því að án viðgerða gæti geirafarið ekki þolað ferð til jarðar. Enga bera upphandleggi Múhamedstrú kveður á um að konur skuli hylja mestan hluta líkama sins. Flestar iranskar konur klæðast hejab, skósiðri, svartri skikkju. írönsk yfirvöld hafa hafið nýja herferð til að tryggja að þegnar landsins klæði sig í samræmi viö trúarreglur múhameöstrúar. Þau senda nú lög- gæsluhð út á götur borga landsins til að tryggja að reglunum sé fram- fylgt út í ystu æsar. Samkvæmt trúarreglunum er konum skylt að klæð- ast hinum hefðbundna „hejab“, síðri, svartri skikkju sem hylur líkamann frá hvirfii til ilja. Aðeins lítill hluti andhtsins og hendurnar mega sjást. Og í samræmi við hina nýju herferö íranskra ráðamamia hefur klæða- burður karlmanna breyst. Þeim er nú ekki heimilað að sýna upphand- leggi sína en hingað til hefur ekkert verið kveðið á um upphandleggi í trúarreglunum. í sumum opinberum byggingum í íran má nú sjá tilkynn- ingar þess efnis að karimönnum með bera upphandleggi sé bannaður aðgangur. Reglur um klæðaburð eru viö lýði í flestum ríkjum múhameðs- trúarmanna, mismunandi strangar þó. í Saudi-Arabíu eru reglurnar mjög strangar og þai er og löggæsluliö sem sér urn að þeim sé framfylgt. Hvítir öfgamenn krefjast kosninga F.W. de Klerk, forseti Suður- Afríku, hefur átt í viðræðum við fuhtrúa hvítra öfgasinna sem og verkalýðsfélaga blökkumanna til að reyna að draga úr vaxandi pólit- ískri spennu í landinu. Eftir viö- ræöur við verkalýðsfélögin í gær féllust blökkumenn á að efna ekki til allsherjarverkfalls eins og fyrir- hugað var. Þá ræddi forselinn viö forystu- menn hvítra öfgasinna sem hafa farið fram á að gengið vcrði til kosninga liið fyrsta. Margir þeirra vilja aö kosningar verði haldnar svo fljótt sem auðið er til að hvítir fai aö segja sitt álit á umbótum for- setans í kynþáttamálum stjórn- valda. Leiðtogi eins hvíts öfgahóps sagði forsetann aldrei hafa fengið heimhd hvíta minnihlutans til að binda enda á fangavist Nelsons Mand- ela, leiðtoga Afríska þjóðarráðsins, né annaiTa þeirra umbóta sem hann innleiddifyrráárinu. Reuter F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku. Toikning Lurie

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.