Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 27. JUNI 1990. 49r- DV Ólyginn sagði... Julian Lennon fær sér líklega fjögurra hjóla far- artæki eftir aö hafa veriö hætt kominn á mótorhjóli nýlega. Jul- ian varö fyrir því að keyrt var á hann og sjónarvottar héldu að þaö yröi hans síðasta. Hann rann til á hjóhnu og það lenti ofan á honum. Juhan lá í blóði sínu og neitaði að fá sjúkrabíl. Viöstaddir hjálpuðust að við aö ná hjólinu ofan af hinum slasaða og standa upp. Er unnusta hans, Olivia D’abo, kom á staðinn stuttu seinna fór hún með Julian th læknis. Kom þá í ljós að hann var handleggsbrotinn og mátti teljast heppinn að ekki fór verr. Díana prinsessa hefur sett strangar reglur um málfar þjónustufólksins. Hver sá sem blótar verður umsvifalaust rekinn. Díana tók þessa ákvörð- un eftir að hafa heyrt Harry son sinn blóta. Harry hefur jafnvel látið út úr sér óvönduð orð í við- urvist Ehsabetar drottningar. Diana sá að shkt gekk ekki leng- ur. Skýrði hún út fyrir syni sín- um eins og góð og gegn móðir að skrattinn nærðist á blóti. Harry er ekki nema funm ára gamah og segir eins og önnur böm það sem honum býr í brjósti. Nú þarf þjónustufólkið að passa sig því Díana hefur fengið spæjara á sitt band. Hver sá sem ekki vandar mál sitt fær að fjúka. Barbra Streisand er hætt við að fjárfesta í veitinga- staö Roberts DeNiro í New York. Ástæðan er sú að lög New York fylkis kveða svo á um að fingraför séu tekin af þeim sem standa í veitingarekstri. Barbara hefur alfarið neitað að láta taka af sér fmgrafor. Hún varð af feitum bita því staðurinn hefur gengið mjög vel og Robert áformar að opna nýjan stað í Róm bráðlega. Sviðsljós Emilía Sigursteinsdóttir (t.v.) talar við hundinn Tess á meðan Sonja Felton, eigandi Tess, fylgist með Evu Mjelde (t.h.) klippa. Tess er af springer-kyni og kom sem gestur. DV-mynd RS Hundurinn Væk stóð stilltur á meðan Eva sýndi hvernig klippa á retriever-hunda. Hundaeigendur fylgdust áhugas- amir með. DV-mynd RS Um síðustu helgi stóð Hundarækt- arfélag íslands ásamt Retriever- deildinni fyrir svoköhuðum hunda- ræktardómi. Hundar af golden retriever-kyni voru skoðaðir og ein- kunn gefm fyrir hvern og einn hund. Hingað th lands kom Eva Mjelde frá Noregi til að dæma hundana. Hún er virt fyrir störf sín við hundarækt og hefur ræktað retriever-hunda í yfir tuttugu ár. Retriever-deildin stefnir að því að vera með hundaræktardóm reglu- lega. Tilgangurinn er að fylgjast sem«r best með ræktun retriever-hunda hér á landi. Gefin eru út ræktunar- markmið fyrir hverja hundategund og reynt að fylgja þeim. Nú um helgina voru um eitt hundr- að hundar skoðaðir og dæmdir. Skoðunin fór fram í Kópavogi og á Bala á Álftanesi. Eva sýndi einnig hvernig klippa á retriever-hunda en fyrir sýningar þarf að khppa hunda með góðum fyrirvara. Karl Lagerfeld er stórhrifinn af Karólínu prinsessu í hlutverki fyrirsætu þó að flestir aðrir þekki hana betur í öðru hlutverki. / Lagerfeld um Karólínu prinsessu: Fullkomin Uppáhaldsfyrirsæta tískukóngsins Karls Lagerfelds er Karóhna Móna- kóprinsessa. „Hún er svo eðlileg og er ekki að leika eitthvað annað en hún er í raun. Það er gaman að sjá Karólínu í fótunum sem ég hef hann- að. Hún er góður fulltrúi ungu kon- unnar í dag og auk þess er hún stórglæsileg hefðarkona," segir Karl. Karl Lagerfeld er best þekktur fyr- ir að vera maðurinn á bak við Chan- el-tískuhúsið. Hann segist hafa unun af að hanna fót á Karóhnu og mynda hana í þeim. Náttúruleg fegurð henn- ar sé svo mikil að hún beri af öðrum konum. „Hún er ekki aöeins fullkom- in fyrirsæta heldur er hún líka góður vinur. Margir hafa beðið mig að mynda aðrar prinsessur en engin er henni hk. Ég hef bæði gaman af að mynda Karólínu sem prinsessu og sem konu dagsins í dag. Það er gam- an að mynda hana í iötunum sem ég hef skapað. Hún nær alltaf sínum eigin stíl í því sem hún klæðist." ** Karl segir gott að vinna með Karó- línu því hún er umburöarlynd og skapgóö. Og ekki skemmir úthtið fyrir. Dýrir skartgripir Paul Hogan, sem ílestir þekkja sem krókódíla Dundee, gaf Lindu, konu sinni, skartgripi að jafnvirði 21 mihj- ónar íslenskra króna er þau giftu sig. Linda fékk hring hlaðinn demöntum sem kostaði litlar 18 milljónir auk hálsfestar og armbands. Linda var yfir sig hrifm af gjöfinni. Margur hefur glaðst yfir minni gjöf. Paul skhdi við fyrri konu sína, Nolene, eftir 30 ára hjónaband ttl að giftast hinni 31 árs gömlu leikkonu Lindu Kozlowski. Noelene hfir enn í voninni um að Paul snúist hugur. Þau hafa einu sinni áður skihð en tóku saman aftur eftir átta mánaða aðskilnað. Lengi vel var htið á hjóna- band þeirra sem fyrirmynd annarra hjónabanda vegna þess hve lengi þau höfðu veriö gift. Það umtal var enn í gangi er Paul tók saman við Lindu. Paul og Linda kynntust er þau léku saman í kvikmyndunum um krókó- díla Dundee. Linda og Paul eru ástfangin upp fyrir haus. Þau búa á búgarði Paul í Astralíu á mhli þess sem þau eru á flakki viö kvikmyndaleik. Brúð- kaupið átti að fara fram með leynd í Ástrahu en fréttist fljótt. Paul fórn- aöi meira að segja piparsveinapartíi sem hafði spurst út. Ætlaði hann að viha um fyrir ljósmyndurum og blaðamönnum og hætti því við partí- ið. En allt kom fyrir ekki og ljós- myndarar mættu við brúðkaupið og festu allt á filmu. Linda var í glæsi- legum brúðarkjól með löngu slöri og Paul í sínu finasta pússi. Það leynist engum að Paul og Linda eru ástfangin. -4®

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.