Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1990, Page 26
50
Afmæli
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1990.
DV
Gestur Þorgrímsson
Gestur Þorgrímsson myndlistar-
maður, Austurgötu 17, Hafnarfirði,
er sjötugur í dag. Gestur er fæddur
í Laugarnesi við Reykjavík og var í
námi í Verslunarskólanum 1936-
1938. Hann var í námi í Handíða- og
myndlistaskólanum 1944-1946 og í
Kunstakademiet í Kaupmannahöfn
1946-1947. Gestur stofnaði og starf-
rækti leirbrennsluna Laugamesleir
í Rvík 1947-1952 og lauk teiknikenn-
araprófi í handíðaskólanum 1953.
Hann var teiknikennari í bama-
skóla Hafnarfjarðar 1953-1954 og
var myndlistarkennari í Flensborg-
arskólanum 1954-1956. Gestur vann
að gamanleik og skemmtisöng
1953- 1959 og að gerð útvarpsþátta
1954- 1960. Hann var starfsmaður
Fræðslumyndasafns ríkisins 1956-
1963 og stundakennari í Kennara-
skóla Islands 1957-1963 og kennari
í KÍ1963-1977. Gestur vann með
öðrum aö kvikmyndagerð 1963-1970
og vann að undirbúningi til breyt-
inga í hægri umferð 1967-1968. Hann
hóf aftur vinnu við ieirmunagerð
1969, og hefur haldið ásamt konu
sinni, Sigrúnu Guðjónsdóttur, níu
einkasýningar, þar af þijár erlendis,
og tekið þátt í samsýningum. Hann
var gistiprófessor í listum í háskól-
anum í Saskatoon í Saskatchewan í
Kanada sumarið 1972 og setti upp
leirmunaverkstæði við Kleppsspít-
alann og leiöbéindi sjúkhngum þar
1972-1976. Gestur var lektor í Kenn-
araháskóla íslands 1977-1985 og
veitti forstöðu gagnasmiðju KHÍ
1979-1985. Hann hefur samið bókina
Maður lifandi, endurminningar í
söguformi, 1960. Meöal opinberra
verka Gests em höggmynd fyrir
utan KHÍ, Hamar við lækinn í Hafn-
arfirði, utanhússskreytingá
íþróttaleikvanginum í Laugardal og
með Sigrúnu Guðjónsdóttur skreyt-
ing á íþróttahúsinu í Breiðholti, ut-
anhússskreyting á Fiskmarkaðin-
um í Hafnarfirði og íþróttahúsi í
Ólafsvík og innanhússskreyting í
Hasselbyhöll í Svíþjóð. Gestur
kvæntist 22. júií 1946 Sigrúnu Guð-
jónsdóttur, f. 15. nóvember 1926.
Foreldrar Sigrúnar vom Guðjón
Guðjónsson, skólastjóri í Hafnar-
firöi, og kona hans, Ragnheiður
Jónsdóttir rithöfundur. Börn Gests
og Sigrúnar eru: Þorgrímur, f. 14.
júní 1947, fréttamaöur í Hafnarfirði,
kvæntur Guðbjörgu Ámadóttur
flugfreyju; Ragnheiður, f. 1. maí
1953, kennari í Hafnarflrði, gift Birni
Sigurbjörnssyni lækni; Guðjón Ingi,
f. 31. mars 1957, kerfisfræðingur í
Hafnarfirði, kvæntur Auði Vatnsdal
Óskarsdóttur, og Ingibjörg Þóra, f.
30. desember 1965, fatahönnuður í
Hafnarfirði, í sambýli með Gylfa
Hvannberg matreiðslumanni.
Systkini Gests em: Kristján, f. 13.
september 1899, er látinn, fram-
kvæmdastjóri Austurbæjarbíós,
kvæntur Árbjörgu Árnadóttur; Ól-
afur, f. 18. október 1902, d. 26. apríl
1989, hrl., kvæntur Ásdísi Péturs-
dóttur; Pétur, f. 21. febrúar 1906, d.
1933, forstjóri Strætisvagna Reykja-
víkur, kvæntur ísafold Björnsdótt-
ur; Ragnar, f. 3. desember 1908,
starfsmaður SVR, kvæntur Mar-
gréti Helgadóttur; Guörún Sigríður,
f. 28. febrúar 1911, látin, fyrr gift
Eiríki Magnússyni kennara, seinni
maður hennar er Valdimar Þórðar-
son verkstjóri og Þorbjörg, f. 10.
mars 1915, látin, gift Stefáni Björns-
syniprentara.
Foreldrar Gests voru Þorgrímur
Jónsson, söðlasmiður og veggfóör-
ari og síðar b. í Laugarnesi, og kona
hans, Ingibjörg Þóra Kristjánsdótt-
ir. Þorgrímur var sonur Jóns, b. í
Skipholti í Hrunamannahreppi,
Ingimundarsonar. Móðir Jóns var
Guðflnna Halldórsdóttir, b. í Jötu,
Jónssonar, ættfóður Jötuættarinn-
ar. Móðir Þorgríms var Þorbjörg
Jónsdóttir, b. í Skipholti, Grímsson-
ar, stúdents í Skipholti, Jónssonar,
b. oghreppstjóra í Skipholti, Jóns-
sonar, bróður Fjalla-Eyvindar.
Ingibjörg var dóttir Kristjáns, sjó-
manns í Rvík, Þorsteinssonar Kúid,
kaupmanns í Rvík, Jónssonar, próf-
asts á Auðkúlu, Jónssonar, biskups
á Hólum, Teitssonar. Móðir Jóns á
Auökúlu var Margrét Finnsdóttir,
biskups í Skálholti, Jónssonar. Móð-
ir Kristjáns var Vigdís Steindórs-
dóttir Waage, skipstjóra í Hafnar-
firði. Móðir Steindórs var Rannveig
Filippusdóttir, síðar kona Bjarna
Sívertsens riddara. Móðir Vigdísar
var Anna Kristjánsdóttir Welding,
verslunarmanns í Hafnarfirði, ætt-
fóður Weldingættarinnar. Móðir
Ingibjargar var Guðrún Vigfúsdótt-
ir Thorarensen, sýslumanns á Borð-
eyri, SigurðssonarThorarensen,
prests í Hraungerði, Gíslasonar,
prófasts í Odda, Þórarinssonar,
sýslumanns á Grund í Eyjaflrði,
Jónssonar, ættfóður Thoraren-
senættarinnar. Móöir Gísla var Sig-
ríður Stefánsdóttir, systir Ólafs
stiftamtmanns í Viðey, ættföður
Stephensenættarinnar. Móðir Vig-
fúsar var Guðrún Vigfúsdóttir,
sýslumanns á Hlíðarenda, Þórarins-
sonar, bróður Gísla í Odda. Móðir
Guðrúnar var Steinunn Bjarnadótt-
Gestur Þorgrímsson.
ir landlæknis Páissonar og konu
hans, Rannveigar Skúladóttur land-
fógeta Magnússonar. Móðir Guö-
rúnar Vigfúsdóttur Thorarensen á
Borðeyri var Ragnheiður Pálsdóttir
Melsteð, amtmanns í Stykkishólmi,
ættföður Melsteðættarinnar, og
konu hans, Önnu Stefánsdóttur,
amtmanns á Möðruvöllum, Þórar-
inssonar, bróður Gísla í Odda. Móð-
ir Önnu var Ragnheiður Vigfús-
dóttir Scheving, sýslumanns á Víði-
völlum, og konu hans, Önnu Stef-
ánsdóttur, systur Sigríðar á Grund.
Gestur dvelst nú erlendis.
85 ára
Kári Gíslason,
Skipasundi 70, Reykjavík
Guðrún Einarsdóttir,
Torfnesi, Hlif, ísafirði
75 ára
Haraldur Guðbrandsson,
Háaleitisbraut 117, Reykjarík
Aðalheiður Halldórsdóttir,
Engtþjalla 1, Kópavogi
Guðmundur Hallgrímsson,
Grafargíli, Suðureyrarhreppi
70 ára
Priðgeir Jóhannsson,
Mímisvegi 15, Dalvik
Reynir Zoega,
ÞilíuvöUum 14, Neskaupstað
Frank C. Mooney,
Borgarholtsbraut 20, Kópavogi
60 ára
Kristján Ragnarsson,
Langanesvegi 14, Þórshöfn
Guðrún Jónsdóttir,
Harunbæ 86, Reykjavík
Aðalsteinn Jósepsson,
fyrrv. bóksali, Suöurbyggð 29, Akur-
eyri. Hann og kona hans, Sigríður
Þorbergsdóttir, taka á móti gestum á
heimili sínu á afmælsdagínn eftir kl.
17.
Hrafnhildur Tómasdóttir,
Kríuhólum 4, Reykjavík
Dýrunn Jósepsdóttir,
Byggðavegi 141, Akureyri
50 ára
Svava Friðþjófsdóttir,
Ólafsvegi 22, Ólafsfirði
Sigvarður Halldórsson,
Sólvallagötu 42C, Keflavik
Sigrún Kristjánsdótír,
Mávabraut 11C, Keflavík
Ástheiður Guðmundsdóttir,
Hraungerði, Garðabæ
40 ára
Soffia Sœvarsdóttir,
Heiðarlundi 2C, Akureyri
Kristin Jónsdóttir,
Garðabraut 45, Akranesi
HaUfríður Kristinsdóttlr,
Hálsaseli 34, ReyKjavík
Guðiaug Þórs Ingvadóttir,
Skólatröð 11, Kópavqgi
Eygló L. Egilsdóttir,
Súlukletti 3, Borgarnesi
Kristrún Þórhalisdóttir,
Ysta-Gerði, Saurbæjarhreppi
Ásthildur Jónasdóttir,
Nesvegi 2, Súðavík
Kristín Aðalsteinsdóttir,
Helgalandi 7, Mosfellsbæ
Sigurður A. Magnússon,
Álftahólum 4, Reykjavík
Tryggvi Þór Aðalsteinsson, Lyriks-
gatan 4A S-70372, Örebro, Svíþjóð
er fertugur í dag. Tryggvi er fæddur
í Keflavík og ólst þar upp, í Keldu-
hverfl og í Reykjavík. Hann varð
gagnfræðingur í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar 1967 og vann verka-
mannastörf 1966-1968. Tryggvi var
í námi í húsgagnasmíði hjá Axel
Eyjólfsssyni 1968-1972 og lauk
sveinspróíi í Iðnskólanum í Reykja-
vík 1973. Hann var fræðslufulltrúi
Menningar- og fræðslusambands
alþýðu 1974-1980 og framkvæmda-
stjóri MFA1981-1990. Tryggvi var í
lýðháskólakennaranámi í háskó-
lanum í Linköping í Svíþjóð 1987 og
hefur verið fræðslufulltrúi (studie-
sekretare) hjá Arbetarnas Bildn-
ingsförbund í Örebroléni í Svíþjóð
frá 1. febrúar 1990. Tryggvi var for-
maður nema í húsgagnaiðn 1970-
1972, í stjóm Iðnemasambands ís-
lands 1970-1972, formaður 1972 og
ritstjóri Iðnemans 1973. Hann var í
miðstjórn Fylkingarinnar, baráttu-
samtaka sósíalista 1970-1972 og í
stjóm Alþýðubandalagsins í Rvlk
1973- 1974. Tryggvi var í stjórn
Sveinafélags húsgagnasmiöa í Rvík
1974- 1979, formaður 1977-1979 og í
framkvæmdastjóm Sambands
byggingarmanna í nokkur ár. Hann
var í miðstjórn Alþýöubandalagsins
1976-1977 og gjaldkeri Alþýðu-
bandalagsins 1977-1983. Tryggvi var
í íþróttaráði Reykjavikur 1982-1986
og í Útvarpsráði um skeið. Hann var
varaborgarfulltrúi fyrir Alþýðu-
bandalagið 1986-1990 og var í stjóm
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar 1986-1990. Tryggvi var í
íþrótta-og tómstundaráði Reykja-
víkur 1986-1990 og hefur gegnt ýms-
um trúnaðarstörfum tengdum MFA
og ASÍ, eins og nefndarstörfum og
setu í ráðum og stjórnum. Sonur
Tryggva og Þórhildar Blöndal er
Sölvi Blöndal, f. 18. september 1971,
búsettur í Uppsölum í Svíþjóö.
Tryggvi kvæntist 13. desember 1975
Svanhvíti Gróu Ingólfsdóttur, f. 27.
maí 1949. Foreldrar Svanhvítar er.u:
Ingólfur Böövarsson, skrifstofu-
maður í Rvik, og kona hans, Sigríð-
ur V. Ottósdóttir iðnverkakona.
Börn Tryggva og Svanhvítar eru:
Unnur, f. 17. október 1973; Ingólfur,
f. 19. maí 1978 og Ásgeir, f. 8. apríl
1983. Systkini Tryggva eru: Kristín,
f. 1946, kennari á Akureyri, gift Hall-
grími Indriöasyni skógræktarfræö-
ingi og eiga þau þrjú börn; Vilborg,
f. 1954, kennari á Akureyri, gift
Áskeli Þórissyni, starfsmanni KEA,
og eiga þau tvö böm og Ásrún Björk
Gísladóttir, f. 1963, verslunarmaður
í Kópavogi og á hún tvö börn.
Foreldrar Tryggva em: Aöal-
steinn Gíslason, f. 1913, kennari í
Kópavogi, og kona hans, Áslaug
Jónsdóttir, f. 1927, starfsmaður
Sundlaugar Vesturbæjar. Aöal-
steinn er m.a. bróöir Málfríðar,
móður Gísla lektors og Jóhannesar,
formanns Neytendasamtakanna,
Gunnarssona. Aðalsteinn er sonur
Gísla, kennara í Krossgerði á Bem-
íjarðarströnd, bróöur Ama, langafa
Hannesar Hlífars Stefánssonar
skákmeistara. Gísli var sonur Sig-
urðar, b. í Krossgerði, Þorvarðsson-
ar, b. á Núpi, Þórðarsonar. Móðir
Þorvarðar var Sigríður Bjarnadótt-
ir. Móðir Sigríðar var Guðný Gunn-
laugsdóttir, b. á Þorgrímsstöðum,
Ögmundssonar og konu hans,
Oddnýjar Erlendsdóttur, b. á
Ásunnarstöðum, Bjarnasonar, ætt-
föður Ásunnarstaðaættarinnar.
Móðir Gísla var Málfríður, systir
Sigríðar, móður Jóns prentsmiðju-
stjóra og Gísla kaupmanns Helga-
sona, föður Vals, leikara sem er fað-
ir Vals, bankastjóra. Gísli var einnig
faðir Garðars, föður Guðmundar
alþingismanns. Málmfríður var
dóttir Gísla, b. í Krossgerði Hall-
dórssonar, b. í Krossgerði, Gíslason-
ar, bróður Brynjólfs, langafa Gísla,
langafa Ólafs Davíðssonar hagfræð-
ings. Móðir Málmfríðar var Vilborg
Einarsdóttir, b. á Hamri í Hamars-
firði, Magnússonar og konu hans,
Guðflnnu Jóhannsdóttur Malm-
quist, sjómanns á Djúpavogi, bróður
Jóhönnu, langömmu Jóhanns
Malmquists, afa Guðmundar Malm-
quist, framkvæmdastjóra Byggöa-
stofnunar.
Áslaug er dóttir Jóns, b. í Þórunn-
arseli í Kelduhverfi, Pálssonar, b. á
Grásíöu, Jónssonar, b. á Lóni í
Kelduhverfi, Halldórssonar, b. á
Fjöllum, Ásmundssonar. Móðir
Jóns í Þórunnarseli var Þorbjörg
Hallgrímsdóttir, b. í Austurgörðum,
Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
Hólmkelssonar, b. á Hóli í Keldu-
hverfi, Jósefssonar, b. á íshóli í
Bárðardal, Jónssonar, bróður Þór-
arins, langafa Kristínar, móður Ind-
riða Indriðasonar ættfræðings.
Móðir Áslaugar er Kristín Sigvalda-
dóttir, b. á Geirastöðum, Sigurgeirs-
sonar og konu hans, Sigurlaugar
Jósefsdóttur, b. í Krossavíkurseli,
Benjamínssonar. Móöir Sigurlaugar
var Guðrún Jónsdóttir, b. á Fjölium,
Gottskálkssonar, b. á Fjöllum, Páls-
sonar, ættföður Gottskálksættar-
innar. Móðir Guðrúnar var Ólöf
Hrólfsdóttir, b. á Hafralæk, Pálsson-
ar, b. í Keldunesi, Pálssonar, b. á
Víkingavatni, Amgrímssonar,
sýslumanns á Laugum, Hrólfsson-
ar.
SMÁAUGLÝSINGAR
Þvorholti 11
s: 27022