Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1990, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990. 27 LífsstíU Verðsamanburður á ávaxtasafa / 1 lítri 250 ml 200 ml Meðalverð á 1 lítra ÍÍSSÍÍ Verðkönnun Verðlagsstofnunar á ávaxtasafa og hrísgrjónum: 133% verðmunur á appelsínusafa í nýlegri könnun Verðlagsstofnun- arinnar kemur í ljós að það munar 133% á meðalverði á sambærilegum tegundum af ávaxtasafa. Verðlagsstofnun athugaði verð á tólf tegundum af hreinum ávaxta- safa; appelsínu- og eplasafa frá Sól, Sunnan, appelsínu-, epla- og anan- assafa frá Mjólkursamsölunni, app- elsínusafa frá Blöndu og appelsínu-, epla- og eplasafa frá Trópí. Verð ávaxtasafans var umreiknað miðað við einn lítra þar sem pakkningar eru misstórar. Ódýrastfrá Sól Lægsta meðalverðið er á appels- ínusafa og eplasafa frá Sól í eins lítra umbúðum. Meðalverö þessara ávaxtasafa er 101 króna hver lítri. Einn lítri af appelsínu-, epla-, anan- assafa og Sunnan frá frá Mjólkur- samsölunni í 200 ml umbúðum kost- ar hins vegar að meðaltah 133% meira eða 235 krónur. Á eftir ávaxtasafa frá Sól er anan- assafi frá Trópí í lítraumbúðum ódýrastur og kostar 149 krónur. Þar á eftir kemur appelsínusafi frá Trópí í lítraumbúðum sem kostar 160 krón- ur og appelsínusafi frá Blöndu sem kostar 190 krónur htrinn. Á hinn bóginn er svo eplasafi frá Trópí í 'A htra umbúðum næstdýrastur á krón- ur 229 krónur htrinn á eftir ávaxta- safa frá Mjólkursamsölunni sem er dýrastur. Hagstæðast að kaupa mikið í einu Að jafnaði er mun ódýrara að kaupa ávaxtasafa í stórum pakkn- ingum. Það er tíl dæmis miklu hag- stæðara að kaupa einn htra af anan- assafa frá Trópí í eins lítra umbúðum á meðalverði 149 krónur á htrann en fjórar litlar fernur því að þá er með- alverðið komið upp í 224 krónur á htrann. Þarna munar 50% og felst sá munur eingöngu í verði umbúð- anna. Af ávaxtasafa í litlum umbúðum er appelsínusafi frá Blöndu í 200 ml ódýrastur en meðalverðið er 190 krónur á htrann. Þó nokkur munur er á hæsta og lægsta verði á sama ávaxtasafa á milli verslana. Þannig kostar ávaxta- safi frá Sól í eins htra umbúöum mest 129 krónur en minnst 89 krón- ur. Þama munar 44,9% á milli versl- ana. Ávaxtasafi frá Mjólkursamsöl- unni kostar mest 260 krónur en minnst 185 krónur. Munurinn þama á milli er 40,5%. 200% verðmunur á hrísgrjónum Á sama tíma gerði Verðlagsstofnun verðkönnun á hrísgijónum. Hrís- grjónin sem athuguð vora em mjög mismunandi að gerð og í afar óhkum umbúðum en verðið var umreiknað miðað við meðalverð á 100 grömm- um. Verð á hrísgijónum frá fjóram aðil- um var kannað; River Rice hvít og brún, Uncle Ben’s hvít, brún og skyndihrísgrjón, soðin Success Rice og Lassie Rice sem eru soðin í pokan- um. Mismunur á hæsta og lægsta verði á hrísgrjónum er 200%jDV-mynd JAK Uncle Ben’s og River Rice ódýrust Mismunurinn á hæsta og lægsta verði er 200%. Lægst er verðið á hrís- gijónunum, 16 krónur hver 100 grömm. Nokkrar tegundir voru lægstar; vepjuleg River Rice hrísgijón í 1,36 kg poka og venjuleg Uncle Ben’s í 500 g og 907 g poka og brún Uncle Ben’s í 545 g poka. Næstlægst er verðið á venjulegum River Rice hrísgrjónum í 454 g og 907 g pökkum eða 17 krón- ur á hver 100 g. Hæst er verðið hins vegar á soðn- um Success Rice hrísgrjónum í 198 g pakkningum eða 48 krónur á 100 g og soðnum Success Rice í 397 g pakkningum eða 45 krónur á 100 g. 53% munur á milli verslana Nokkur verðmunur er á sömu teg- und hrísgijóna á milh verslana. Þannig kosta skyndihrísgijón frá Uncle Ben’s mest 49 krónur hver 100 g en minnst 32 krónur. Munurinn þama á mihi er 53,1%. Soðin Success ^ Rice í 198 g pokum kosta mest 53 krónur en minnst 36 krónur. Þama munar 47,2% á milli verslana. -BÓl Neytendur Starfsfólkið í Goðaverksmiðjunum bauð næstu nágrönnum sínum, starfsfólkinu í Sambandshúsinu, til grillveislu á dögunum. Þar voru nýju grillpylsurnar á boðstólum og líkaði vel. DV-mynd Hanna Nýjar grillpylsur frá Goða Goði hefur hafið framleiðslu á nýj- sem henta vel á grillið. ar kosta hins vegar það sama og aðr- um grihpylsum. Þessar pylsur kalla Bratwurstpylsurnar eru styttri og ar pylsur eða 714 krónur kg. Hægt þeir Bratwurst að þýskri fyrirmynd. þykkari og innihalda meira kjöt- er að kaupa 6 eða 10 pylsur saman í Þetta eru bragðmiklar kryddpylsur magn en venjulegar pylsur. Pylsum- pakka. Sparnaður og um hverfisvemd - óbleiktur endurunninn pappír á markaðinn Gagnrýni Neytendasamtakanna hefur margoft beinst að innflytjend- um og framleiðendum fyrir þá sök að þeir hafi ekki .staðið nógu vel að því að bjóða neytendum vörur sem eru skaðlausar umhverfinu. Þykja það þvi ánægjulegar fregnir að nú er kominn á markaðinn óbleiktur salemispappír sem er úr endurunnum pappír. Er um að ræða innlenda framleiðslu og er hann ódýrari en sambærilegur óbleiktur pappír sem þegar er í boði. Geta neyt- endur því slegið tvær flugur í einu höggi, sparað aurana og tekið þátt í umhverfisvemd um leið. Er það ósk samtakanna að vörur sem þessar eigi vaxandi hlutdeild á markaðnum. -tlt SMÁAUGLÝSINGAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.