Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1990.
5
Veggskreytingar skemmdar:
Sumt fólk virðir
ekki vinnu annarra
Fréttir
„Það er til fólk sem virðir ekki
vinnu annarra. Þessi verk fengu að
vera í friði í viku en að þeim tíma
liðnum höfðu einhveijir skemmdar-
vargar eyðilagt þau,“ sagði meðhm-
ur hóps sem kallar sig „Perace
Krassað og úðað hefur verið yfir
verk fólks sem skreytt hefur undir-
göngin á mótum Miklubrautar og
Lönguhlíðar með úðabrúsum.
Force“ við DV.
Fólk úr þessum hópi hóf að eigin
frumkvæði að skreyta veggina í und-
irgöngunum á mótum Miklubrautar
og Lönguhlíðar með málningu af
úðabrúsum. Eftir dágóðan tíma,
mikla vinnu og ótalda úðabrúsa, sem
borgaðir voru úr eigin vasa, gat að
líta ný og breytt undirgöng þar sem
ímyndunarafl úðabrúsamálaranna
hafði fengið að leika lausum hala.
Menn kunna að deila um ágætí verk-
anna sem slíkra en víst var að undir-
göngin höfðu öðlast ákveðið líf með
þessari hstsköpun.
Það leið hins vegar ekki á löngu
áður en ókunnir gjömingsmenn
höfðu krassað og úðað yfir verkin
og skemmt þau. Ekkert fær að vera
í friði fyrir skemmdarvörgum.
Sú var einnig niðurstaðan í
göngum við biðskýli strætisvagna í
Kópavogi og sama var upp á teningn-
um undir Miklubrautínni þar sem
ekið er að Kringlunni. Þar höfðu
gangstétt og akbraut verið aðskihn
að hluta með firnasterkri glerkubba-
hleðslu. Glerkubbar þessir eiga að
þola nánast hvað sem er en skemmd-
arvargar láta slíkt ekki stoppa sig.
Eftir um það bil tvö ár hafði nær
hver einasti glerkubbur í þessum
veggjum verið brotinn. í staðinn hef-
ur verið sett upp girðing sem kannski
fær aö vera í friði. -hlh
Þar sem einu sinni var „skotheld" glerkubbahleðsla undir Miklubrautinni við Kringluna er nú venjuleg girðing -
og veggjakrotið.
DV-myndir Brynjar Gauti