Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Síða 24
Möppuhillur — Bókahillur
fyrir skrifstofur og heimtll.
Eik, teak. hevki. maltogni, fura
og hvitar meö heykiktintum.
Möppuhlllur, bókahillur fyrir skrifstofu
og heimili: eik, tekk, beyki, mahóní
fura og hvítar með beykiköntum.
3K húsgögn og innréttingar við Hall-
armúla, næst fyrir ofan Pennann, sími
91-686900.
YFIRLEITT VEGNA 0F MIKILS HRAÐA!
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1990.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Menning
Úti á vegum
verða flest slys
í lausamöl í
beygjum
^ við ræsi
og brýr
^við blindhæðir
■ Verslun
TELEFAX
OP7ÍMA
ÁRMÚLA 8 - SIMI 67 90 00
Hagstætt verð, tullkomin tæki. Hafðu
samband eða Httu inn.
Optima, Ármúla 8.
Ódýrar jeppa- og fólksbilakerrur. Allar
gerðir af kerrum, vögnum og dráttar-
beislum. (Greiðslukjör). Opið alla
laugardaga. Veljum íslenskt. Víkur-
vagnar, Dalbrekku, símar 91-43911 og
45270.
■ Húsgögn
■ Varahluíir
ILYIS
DEMPARAR
I
I
MAZDA
TOYOTA
NISSAN
DAIHATSU
Ásamt úrvali I aðrar gerðir. Gæði og
verð í sérflokki. Sendum í póstkröfu.
• Almenna varahlutasalan hf., Faxa-
feni 10, 108 Rwk (húsi Framtíðar),
símar 83240 og 83241.
Bðtamódel.Fjarstýrð bátamódel í úr-
vali, fjarstýringar og allt efoi til mód-
elsmíða. Póstsendum. Tómstundahús-
ið, Laugavegi 164, s. 21901.
■ Bílar til sölu
Eitt kraftmesta mótorhjól landsins er til
sölu, Suzuki GSXR 750 R 1989, ekið
3.600 km, verð ath., ýmis skipti koma
til greina. Uppl. Bílasalan Stórholt,
Akureyri, sími 96-23300, 96-22213 eða
96-22920, Haukur.
Toyota Celica GT 2000 ’87 til sölu, raf-
magn í rúðum, samlæsingar, digital-
mælaborð, álfelgur, skipti á ódýrari
koma til greina. Uppl. í síma 92-11108.
Úrval
- verðíð hefur
lækkað
Sjáseskús hjónin ásamt Carter Bandaríkjaforseta, sem var einn margra þjóðhöfðingja, sem sá ekki í gegnum
lygavefinn.
Lygilegur
sannleikur
Blóðugur blekldngarleikur eftir rúmenska leyni-
þjónustumanninn Ian Mihai Pacepa er einhver mesti
reyfari, sem ég hef lesið. Sú gamla tugga úr auglýsing-
um útgefenda, að menn geti ekki lagt bókina frá sér,
fyrr en þeir hafi lokið við hana, á svo sannarlega við
um þetta verk. En munurinn á því og spennusögum
Alistairs MacLeans og starfsbræðra hans er, að hér
segir frá raunverulegum atburðum. Pacepa var lengi
yfirmaður rúmensku leyniþjónustunnar og trúnaðar-
vinur Sjáseskú-hjónanna, en flúði til Bandaríkjanna
1978. Fáir þekktu betur til í ríki Sjáseskú-hjónanna.
Elcki kemur mér þó á óvart, að fáir lesendur trúðu
Pacepa í fyrstu. Þeir eru eltki margir, sem hafa haft
fullan skilning á eðli og athöfnum sameignarmanna
tuttugustu aldar. Sameignarstefnan var auðvitað ekk-
ert annað en tilraun til að snúa aftur til fortíðar. Raun-
ar minnir lýsing Pacepa á lífinu við hhð Sjáseskús
aðallega á gamlar frásagnir af hirð Miklagarðskeisara,
þar sem gerspilltir og grimmir stjómarherrar beittu
öllum tiltækum ráðum til að afla sér valda og halda
þeim. Rúmenía var ekkert annað en miðaldaríki vopn-
að nútímatækjum.
Ráðabrugg með Tító og Arafat
Margt er ákaflega fróðlegt í hók Pacepas. Má þar
nefna frásögn af opinberri heimsókn Sjáseskú-hjón-
anna til Bandaríkjanna, þar sem hinn brosmildi og
bamalegi Carter tók á móti þeim. Einnig kemur fram
í bóldnni, að Tító og Sjáseskú skiptust stundum á greið-
um. Lið Sjáseskús lokkaði landflótta andstæðinga Tít-
ós til Rúmeníu og afhenti þá síðan mönnum Títós gegn
því, að Júgóslavar gerðu slíkt hið sama fyrir Rúmena.
Þá segir Pacepa frá því, að leyniþjónusta Sjáseskús
hafi stundað víðtækar iðnaöamjósnir á Vesturlöndum.
Enn fremur var Sjáseskú mikill vinur hryðjuverka-
leiðtogans Arafats. Vinátta þeirra tveggja kom þó ekki
í veg fyrir það, að herbergi Árafats væri hlerað í leyni-
legum heimsóknum hans til Rúmeníu. Að sögn Pacep-
as iðkaði Arafat þá ástaleild með lífverði sínum,
öskraði eins og tígrisdýr, á meðan leikfélaginn veinaði
eins og hýena! Þá er augljóst, að Sjáseskú hafði miklar
áhyggjur af útvarpsstöðvum þeim, sem Bandaríkja-
stjóm styrkti og útvörpuðu til Austur-Evrópu og Ráð-
stjómarríkjanna, til dæmis Radio Free Europe. Enn
fremur skipaði hann undirmönnum sínum, þar á með-
al Pacepa, að elta uppi alla rúmenska andófsmenn
erlendis og þagga niður í þeim, annaðhvort beija þá
sundur og saman eða ráða þá af dögum.
Var Sjáseskú bijálaður? Við þeirri spurningu er að-
eins unnt að veita hið sígilda svar: Það fer eftir því,
hvernig við skilgreinum bijálsemi. Sjáseskú sveifst
greinilega einskis. Hann þekkti engin siðgæðismörk
og hafði fráleitar hugmyndir um sig og konu sína.
Eins og dr. Þór Whitehead prófessor segir í umsögn á
bókarkápu, var hann dæmi þess, að allt vald spilhr
og gerræðisvald gerspillir. Hann liföi í allt öðrum veru-
leika en annað fólk. En Sjáseskú var þrátt fyrir allt
slóttugur rúmenskur bóndasonur, ef marka má þessa
bók. Hann var maður varfærinn. Ef honum var mætt
af fullri festu, þá lét hann sér jafnan segjast. Hann
virti eitt og aðeins eitt, og það var blábert stáhð. í
þeim skilningi var þessi austræni harðstjóri, þessi
arftaki keisaranna í Miklagarði, hkur Stahn forðum
og Saddam Hussein nú. Gallinn við „friöarömmurn-
ar“ íslensku og allt þeirra fólk er einmitt, að þær gera
ekki ráð fyrir shkum mönnum. Á meðan þeir eru til
og ráða yfir öflugum vopnum, geta vestrænar þjóðir
ekki kastað frá sér vopnum sínum. Úr því að minnst
er á friðarömmurnar íslensku, má nefna, að Elena,
kona Sjáseskús, virðist hafa verið enn verri en maður
hennar, heimsk og illgjörn.
íslenskir vinir Sjáseskús
Ég skal fúslega játa, að ég á erfitt með að skilja Pac-
epa. Hvernig gat hann svo lengi verið yfirmaður leyni-
þjónustu Rúmena og átt fulla aðild að voðaverkum
Bókmenntir
Hannes H. Gissurarson
Sjáseskús? Hvers vegna ákvað hann að lokum að flýja?
Við þessum spurningum geymir bókin engin svör. En
Pacepa segist einkum hafa sett hana saman til þess
að vara Vesturlandamenn við hinum stórfelldu blekk-
ingum, sem Sjáseskú og aðrir honum líkir reyni að
beita. Hann segir margar sögur af því, hversu miklu
Sjáseskú og menn hans hafi jafnan verið tilbúnir að
kosta til í því skyni. Nú gat Sjáseskú að vísu ekki
blekkt alla, til dæmis ekki þá okkar, sem höfum stund-
um verið kallaðir riddarar kalda stríðsins. En honum
tókst svo sannarlega að blekkja suma, þar á meðal
nokkra íslendinga. Svavar Gestsson, núverandi
menntamálaráðherra, var til dæmis formaður sendi-
nefndar Alþýðubandalagsins til Rúmeníu í september
1970. Eftir heimkomuna skrifaði hann fiálglega í Þjóð-
viljann (14. nóvember 1970) um Sjáseskú, gamla smal-
ann úr fiöhunum í Vallasíu, eins og það var orðað.
Lét Svavar í ljós von um, að honum tækist að sætta
andstæðar fylkingar sósíalista í heiminum.
Þetta er ekki allt. Guðrún Helgadóttir, núverandi
forseti Sameinaðs Alþingis, fór á æskulýðsmót í Rúme-
níu voriö 1971 og skrifaði síðan í Þjóðviljann (21. mars
1971), að ungt fólk í Rúmeníu væri frjálslegt og ánægt
og Sjáseskú væri einstaklega gæfulegur af þjóðarleið-
toga að vera! Næsta árið kom ein helsta söguhetjan í
bók Pacepas í sendinefnd rúmenska Kommúnista-
flokksins til Alþýðubandalagsins. Var hann Vasilý
nokkur Pungan, sem Pacepa segir hafa verið ástmann
Elenu Sjáseskús og einn helsta flugumann Sjáseskú-
hjónanna um heim allan. Þá má geta þess, að Menning-
arsjóður gaf árið 1977 út bók um Ungverjaland og
Rúmeníu í flokknum Löndum og lýðum. Höfundur
hennar var Þórunn Magnúsdóttir. Á 291. bls. segir
svo: „Rúmenía nýtur virðingar á alþjóðaveítvangi sem
menningarríki með víðsýna stjórnarhætti og friðsama
og farsæla stefnu í samskiptum þjóða á mhh.“ Vekja
verður athygh á því, að Menningarsjóður er opinbert
fyrirtæki, rekið fyrir almannafé. En gaman væri að
vita í ljósi þessarar bókar Pacepas, hvaða greiða Þó-
runn Magnúsdóttir og aðrir gestir Sjáseskús voru að
endurgjalda með skrifum sínum.
lan Mihai Pacepa
Blóðugur blekkingarleikur
Almenna bókafélagið, Reykjavík 1990.
GMC S-15 Ciera Classic, árg. '88, til
sölu, 4x4, 4,31 vél, cruisecontol, raf-
magn í læsingum og rúðum, velti-
stýri, extra cab, ekinn aðeins 21 þús.
mílur. Uppl. í síma 985-20066 og
92-46644 e.kl. 19.
Subaru Legacy 1800 st. '90, útvarp/seg-
ulband, rafinagn í rúðum. Til sölu á
Bílasölunni Blik, sími 91-686477.
Skipti koma ekki til greina.
■ Ýmislegt
Jeppaklúbbur Rvíkur. Almennur fé-
lagsfundur verður haldinn þriðjud.
28/8 í félagsheimili klúbbsins kl. 20.
Fundarefni: keppni helgarinnar.
Keppendur hvattir til að mæta.