Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚSÍ 1990.
25
Ólyginn
sagði...
Marianna Borg
hefur eignast son sem nú er orð-
inn fimm mánaða gamall. Hún
var eins og kunnugt er gift tenn-
isstjömunni Birni Borg. Marí-
önnu, sem er rúmensk, tókst að
halda þungun sinni leyndri fyrir
blaðamönnum og sýndi bamið
ekki opinberlega fyrr en það var
orðið fjögurra mánaða. „Þar með
ættu sögusagnir að verða kveðn-
ar niður um að Bjöm hafi yfirgef-
ið mig vegna þess að ég gæti ekki
eignast böm,“ sagði Maríanna.
Hún lifir nú hamingjusömu lifi í
Mónakó með kappaksturskapp-
anum Jean-Louis Schlesser í
Mónakó.
Prince
- söngvarinn dökki - er sagður
hafa það mjög einmanalegt á
toppnum. Að minnsta kosti sýnir
hann litla tilburði til mann-
blendni. Þegar hann heimsótti
Café de Paris í London á dögun-
um sat hann einsamall við borð
sitt og talaði ekki við nokkurn
mann. Hann hefur ráðið til sín
átta lífverði sem gæta hans hvert
fótmál. Þeim er hins vegar fyrir-
skipað að tala ekki við stórstjörn-
una og yrtu því ekki á „prins-
inn“ í Café de Paris. Það sem tek-
ur þó út yfir allan þjófabálk er
að söngvaranum er svo annt um
varir sínar og andlit að hann not-
ar sogrör til svolgra í sig kaffi.
Sviðsljós
Leynismennirnir sem voru heiðraðir, frá vinstri: Reynir Þorsteinsson, Alfreð Viktorsson, Hannes Þorsteinsson, Elín Hannesdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson
og Óöinn Geirdal. DV-mynd Sigurður Sverrisson
Golfklúbburinn Leynir á Akranesi 25 ára:
Frumkvöðlar í golfi heiðraðir
Sex kylfingar úr Golfklúbbnum Tilslíkraheiðursnafnbótahefurekki „faðir golfsins á Akranesi". Hannes steins og móðir Hannesar, var sæmd
Leyni voru heiðraðir sérstaklega í komið áður hjá Leyni. Þorsteinsson, sonur hans, fékk einn- silfurmerki ásamt þeim Reyni Þor-
25 ára afmæhshófi sem haldið var Vel þótti við hæfi að sæma Þorstein ig gullmerki sem og Óðinn Geirdal, steinssyni og Alfreð Viktorssyni.
nýlega. Þrír fengu gullmerki félags- Þorvaldsson fyrsta gullmerki félags- einn af frumkvöðlum félagsins.
ins og þrír til viðbótar silfurmerki. ins en hann hefur verið nefndur Elín Hannesdóttir, eiginkona Þor-
Ævintýraland er eitt besta leiksvæði landsins
Kristján Einaisson, DV, Selfossi:
Suðurland hefur mörgum góðum
tjaldstæðum á að skipa fyrir ferða-
fólk til dvalar í lengri eða skemmri
tíma.
Eitt af skemmtilegustu tjaldstæð-
um Suðurlands, sem bamafólk heim-
sækir, er Galtalækur. Þangað hafa
fiölskyldur haldið í stórum stíl og
notið þess sem þar er í boði - fagurt
landslag, skógur, margar góðar gras-
flatir til að tjalda á, góð hreinlætisað-
staða og síðast en ekki síst er stórt
og mikið leiksvæði fyrir bömin -
Ævintýrland. Þetta leiksvæði er
sennilega eitt stærsta og best búna
leiksvæði landsins. Kjamaskógur
við Akureyri stenst þó samanburð.
Mjög vinsælt hefur verið í sumar
að fara í Galtalækjarskóg til að halda
þar hin vinsælu ættarmót. Ræður þá
Ævintýraland án efa staðarváli.
Börn að leik i góða veðrinu í Ævintýralandi í sumar.
DV-mynd Kristján
Don Johnson
var nýlega í sumarfríi í Suður-
Frakklandi. Þar leigði hann sér
stóra lúxussnekkju til að hafa þaö
náðugt með sínum nánustu.
Skútan hefur eflaust kostað
skildingin. En Johnson rasar þó
ekki um ráð fram í neinu. Tíð-
indamaður rakst á hann og konu
hans í fríhöfninni í Nice. Þar
spurði konan afgreiðslustúlku
hve mikið ákveðið ilmvatn kost-
aði. „300 dollara," sagði af-
greiðslustúlkan. Don var fljótur
til og sagði: „Þú getur fengið þetta
á miklu lægra verði í Bandaríkj-
unum, elskan". Eiginkonan Mel-
anie Grifiith fór að ráðum bónda
síns og sleppti ilmvatninu.
Blúskvöld var haldið á veitingahúsinu Tveir vinir og annar í frii á laugardagskvöldið. Blúsmenn Andreu voru í aðalhlutverki og lék hljómsveitin ýmis
blúslög fyrir gesti sem gerðu góðan róm að leik hennar. Á myndinni þenur Andrea Gy Ifadóttir raddböndin af mikilli innlifun. DV-mynd RaSi