Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1990, Side 32
Frjálst,óháð dagblað
Flateyri:
Dansaðí
frystihúsi
Á laugardagskvöld ætlaöi hljóm-
sveitín Grétar á gröfunni að halda
kveðjudansleik í samkomuhúsinu á
Flateyri. Lögreglan á ísafirði hafnaði
leyfisumsókninni og því var gripið
til þess ráðs að stofna aðdáendaklúbb
Grétars á gröfunni. Aðdáendaklúbb-
urinn hélt síðan einkasamkvæmi í
kassageymslu frystíhússins Hjálms á
staðnum. Þar spilaði hljómsveitín og
félagar klúbbsins, sem urðu á annað
hundrað, dönsuðu inni eða sátu útí
við borð sem þar voru.
Lögreglan á ísafirði kom á staðinn
og ætlaði að stöðva fundinn en hætt
var við það. Lögreglan segir þó að
þetta hafi verið ólöglegt skemmtana-
hald og verði meðhöndlað sem slíkt.
______________________títj
Ríkissjóður:
3,5 milljarða
halli árið 1991
Ólafur Ragnar Grímsson fiármála-
ráðherra lagði plagg um megin-
markmið ríkisfiármála og hagstjórn-
ar á næsta ári fyrir stjórnarflokkana
í gær. í því plaggi er fiallað almenn-
um orðum um þetta tvennt. Þar kem-
ur meðal annars fram að stefnt er
aö að hallinn á ríkisbúskapnum
veröi 1 prósent af landsframleiðslu á
næsta ári eða um 3,5 milljarðar. Hall-
inn í ár veröur um 3,3 milljarðar
samkvæmt áætlun. Ef af verður mun
árið 1991 verða sjöunda árið í röð sem
ríkissjóður verður rekinn með halla.
Uppsafnaður halh þessara ára er
kominn í um 35 milljarða á núvirði.
-gse
Schipholflugvöllur við Amsterdam:
Drukknir Islendingar
stöðugt til vandraeða
Kristján Beniburg, DV, Belgíu;
Starfsmenn Schipholflugvallar við
Amsterdam segja að Islendingar
verði alltaf meira og meira til vand-
ræða vegna drykkjuskapar á flug-
vellinum. Oft á tíðum verður lög-
reglan að gripa í taumanna og visa
drukknum farþegum frá þar sem
þeir geta valdið sér og öðrum tjóni.
í síðustu viku urðu tíl dæmis
mikil slagsmál á flugvellinum á
milli íslendinga og flugvallarlög-
reglu Schiphol. Þá varð lögreglan
að fiarlægja ofúrölvi íslending á
sunnudagskvöldiö en hann var
búinn að angra starfsfólk og far-
þega í nokkurn tíma. Varð fréttarit-
ari DV sjálfur vitni að þvi.
Þessi maður fékk ekki að fara
með i vélinni heim til íslands þar
sem hann vai- talinn stofna sér og
öðrum farþegum í hættu. í stað
þess fékk hann að gista fanga-
geymslur Schipholflugvallar um
nóttina.
í samtali við DV sagði öryggis-
vörður á flugvellinum að það væri
prðið mun algengara en áður að
íslendingar kæmu ofurölvi á flug-
völlinn fyrir brottfór.
„Þetta er alltaf að versna og virð-
ist þetta fólk ekki bera neina virð-
ingu fyrir sjálfu sér og umhverfi
sínu,“ sagði öryggisvöröurinn.
Hann taldi þetta orðið ákaflega
hvimleitt og sagði hann að þetta
hlytí að vera einhver versta auglýs-
ing sem íslendingar gætu hugsað
sér.
Sagði hann að starfsfólk flugvall-
arins væri ósjálfrátt farið að líta á
íslendinganna sem annars flokks
farþega.
Piltar í æfmgabúðum á Flúðum:
Fóru um ölvaðir
og brutu rúður
kemur á morgun
Mitterrand, forseti Frakklands,
kemur í opinbera heimsókn tíl ís-
lands í fyrramálið. Um morguninn
mun hann leggja blómsveig á leiöi
franskra sjómanna í gamla kirkju-
garðinum og síðan mun hann ræða
við ráöamenn en opinberri heimsókn
hans lýkur þá um kvöldið. Á fimmtu-
dag verður hann hér í einkaheim-
sókn. Þá mun hann skoöa Ámastofn-
un, Gullfoss, Geysi, Þingvelh og
gróðursetja tré í Vinaskógi. Hann fer
síðan frá ReykjavíkurflugvelU
klukkan 15.30.
Jack Lang, menningarmálaráð-
herra Frakklands, kemur einnig á
morgun. Hann mun m.a. undirrita
ásamt Svavari Gestssyni samning
um samvinnu landanna á sviði kvik-
myndagerðar. Auk þess mun hann
ræða um menningarsamskiptí þjóð-
.jk anna og útgáfu fransk-íslenskrar
orðabókar. -pj
„Við vissum varla hvað yfir okkur
hafði dunið. PUtamir fóru ölvaðir
um í hóp og skelfdu staðarbúa,
hræddu Utíl böm og lömdu hús að
utan. Eftír að þeir höfðu brotíð rúður
í tveim bUum var eina ráðið að kalla
lögregluna tíl,“ sagði einn íbúa á
Flúðum í Hrunamannahreppi en fyr-
ir nokkru dvaldi 3. flokkur Fram í
knattspymu á Flúðum í æfingabúð-
um.
íbúar staðarins voru ekki hrifnir
af þeirri heimsókn en piltarnir brutu
rúður í tveim bílum auk þess sem
þeir dælduðu annan að utan. Þá voru
þeir með mikU ólætí á staðnum og
þurftí sundlaugarvörðurinn meðal
annars að kaUa til björgunarsveitina
á staðnum til að reka þá upp úr laug-
inni.
Lögreglan á Selfossi staðfesti að
hún hefði farið á staðinn og hefðu
verið teknar skýrslur af þremur pilt-
um, að öðra leyti hefði ekki þurft að
hafa afskipti af þeim.
Að sögn þjálfara pUtanna, Vil-
hjálms Sigurhjartarsonar, var einn
pUtur ábyrgur fyrir því tjóni sem
átti sér stað. Foreldrarnir hefðu sam-
ið við eigendur bílsins og því væri
lokið með sátt. VUhjálmur sagði að
þetta væri taUð mál foreldranna og
hefði Fram ekki gripiö til neinna ráð-
stafana. Þess má geta að helgina á
eftir varð Fram bikarmeistari 3.
flokks. -SMJ
TogarmnVenus:
Skipverji slas-
aðist við löndun
Það er rétt að skrá allt i ferðabókina: veðrið á íslandi, verðlagið, landslag-
ið, örfá tré, fullt af heitu vatni og íbúa sem spyrja sífellt: „Há dú jú læk
Æsland? Og ekki má gleyma að skrifa öll þessi skrýtnu orð - tjaldstæði,
salerni, bifreiðastöð og blindhæð. Myndin er tekin við aðstöðu fyrir ferða-
menn í Laugardal. DV-mynd JAK
Skipverji af togaranum Venusi
slasaðist alvarlega þegar lestarhleri
féll á hann um sexleytíð í morgun.
Verið var að hefia löndun úr togaran-
um í Hafnarfiarðarhöfn. Þegar einn
lestarhlerinn hafði verið hífður af
lestaropinu slitnaði vírinn sem til
þess var notaður. FéU hlerinn á
manninn úr töluverðri hæð. Var
maðurinn fluttur á slysadeUd en ekki
er vitað nánar hversu alvarleg
meiðslinem. -hlh
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1990.
LOKI
Þaö eru greinilega margs
konar æfingakerfi í gangi.
cöDiTesMAHe
10 DAGAR
Veörið á morgun:
Hlýjast
suðvestan-
lands
Á morgun verður austan og
norðaustan átt. Þurrt vestan-
lands en rigning eða skúrir í öðr-
um landshlutum. Hití 7-13 stig,
hlýjast suðvestanlands.
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá I síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022