Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Steingrímur lætur Þjóðhagsstofnun fara yfir orkusamninga við Atlantsál:
Verðum aðfá hærra
orkuverð en hjá ísal
- segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
„Mér sýnist ýmis rök hjá Atlant-
sálmönnum hallast að Keilisnesi
en þeir eru ekki búnir að taka end-
anlega ákvörðun um staöarval. Það
er ekki þeirra aö ákveða það end-
anlega en þeir hafa heldur ekki lagt
fram neina ósk um ákveðinn stað,“
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra þegar hann var
spurður að því hvort hann teldi aö
Atlantsálmenn væru búnir að gera
upp hug sinn varöandi staðsetn-
ingu nýs álvers. Ríkisstjómin hef-
ur fengið í hendumar skýrslu sér-
fræðinga Atlantsál og er það álit
sumra að þar hafi komið fram ein-
dregin meðmæli með Keilisnesi á
Suðumesjum.
- En væri ríkisstjómin tilbúin að
gera eitthvað til aö álver yrði ekki
á Keilisnesi?
„í þessu viðkvæma máli svara ég
ekki svona spumingum fyrirfram.
Það er útilokað. Ég get bara sagt
það að ríkisstjómin hefur ekkert
ákveðið um það.“
- Þú áttir hlut að máli þegar sam-
ið var um orkuverð vegna álvers-
ins í Straumsvik. Finnst þér stefna
í svipað horf eða sambærilegt?
„Þetta er eitt af þvi sem við emm
að skoða og ég er að biðja um óháða
athugun á því. Ég vil aö Þjóöhags-
stoftiun skoði það hvemig þetta
kemur út með tilliti til þeirra
reglna sem hér gilda um orkuverð.
Ég vil ekki svara þessari spumingu
fyrr en ég fæ þær í hendumar.
Þetta viröist þó vera heldur hag-
stæðara en hjá Isal en ég veit ekki
betur en að Landsvirkjun sé að
óska eftir því við ísal aö orkuverð
verði hækkað þannig að þeir em
ekki ánægðir með það.“
- Þú telur að það eigi að vera
hærra verö en til ísal?
„Já, annars finnst mér erfitt aö
svara svona spumingum, enda hef-
ur öll þessi opinbera umræða um
málið spillt mjög fyrir meðferð
þess. - Eins og þessar upphrópan-
ir: Verður staðsett hér eða verður
staðsett þar. Sveitafélög og þing-
menn eru aö fara í hár saman út
af þessu, sem er mjög slæmt.“
- En verða það þá ekki að teljast
mistök hjá ykkur í ríkisstjórninni
að láta málið fara í þennan farveg?
„Ég hef sagt það að ég held aö
þetta hafi verið mjög varhuga-
vert,“ sagði forsætisráðherra.
-SMJ
Nú er unniö af fullum krafti við fyrsta áfanga endurbyggingar Faxagarðs i Reykjavikurhöfn. Þessa dagana er verið
að reka niður steinsteypta stöpla sem í framtiðinni eiga að bera bryggjuna uppi og sfðar verður steypt þekja yfir.
Bryggjan er orðin mjög léleg og fúin, af þeim sökum verður að takmarka öxulþunga á henni við 7 tonn sem er
hvergi nærri nóg þegar verið er að lesta stóra togara. Á næsta ári fær Akraborgln svo aöstöðu við Faxagarð og
þar sem bflastæöið er fyrir Akraborgina nú verður reist fjögurra hæða bilageymsluhús. DV-mynd S
Fölsuð persónuskilríki gerð upptæk:
Sama hand-
bragð ein-
kennir mörg
ökuskírteinin
- 2.500 krónurteknarfyrirfölsunina
Rannsóknadeild lögreglimnar í
Reykjavík hefur fjölda falsaðra öku-
skhrteina undir höndum sem borist
hafa að undanfómu. Skírteinin hafa
verið gerð upptæk á skemmtistöðum
þar sem þau eru notuð af ungu fólki
sem ekki hefur náð aldurstakmarki
í þeim tiigangi að villa um fyrir dyra-
vörðum.
Að sögn Harðar Jóhannessonar hjá
lögreglunni hefiu- það tvisvar sinn-
um komið fram að ákveðinn aðili
hefur tekið verkið að sér gegn
greiðslu - 2.500 krónur voru teknar
fyrir verkið. Við fyrstu sýn virðast
skírteinin vera eðlileg. Þeir sem gerst
þekkja eiga þó nokkuð auðvelt með
að greina fölsunina. Hlífðarplastið
er oftast þynnra og leturgerðin
stundum frábrugðin því sem er í
ófölsuðum skírteinum. Svo virðist
þó sem auövelt sé að komast yfir
bleikan pappír, ljósrita letur og
stimpil, líma inn „viöeigandi mynd“
og setja plast utan um.
Elín Vigdís Hallvarðsdóttir deild-
arlögfræðingur segir að skírteinin
hafi oft á tíðum verið „hreinn upp-
spuni frá rótum" - hvorki nafn,
kennitala og stundum ekki heldur
heimilisfang sé rétt á fölsuðu skil-
ríkjunum - allt falsað.
„Þetta varðar við hegningarlög og
flokkast undir skjalafals. Samkvæmt
155. grein almennra hegningarlaga
getur slíkt varöað fangelsi í allt að
átta ár,“ sagði Elín Vigdís í samtali
við DV. „Ef ófalsað skírteini er hins
vegar notaö en önnur persóna en eig-
andinn ber að hann eigi það er það
brot á 157. grein - það varðar tölu-
vert háum sektum og fangelsi í allt
að sex mánuöi,“ sagði Elin Vigdís.
2-4 fölsuð ökuskírteini berast
rannsóknadeild lögreglunnar í
hverri viku. RLR hafa einnig borist
fölsuð persónuskilríki. Ómar Smári
Ármannsson í forvamadeild lögregl-
unnar telur að nauðsynlegt sé að
endurskoða gerð ökuskírteina til að
torvelda falsanir. Töluvert mörg mál
vegna falsaðra ökuskírteina eru nú
til rannsóknar hjá lögreglunni í
Reykjavík. .ÓTT
Skipun dómsmálaráðherra í embætti lögregluvarðstjóra á Selfossi:
Réð f lokksbróður sinn í stöðuna
- sýslumaður mælti með reyndari manni
Óánægja hefur komið fram
vegna ráðningar í varðstjórastöðu
hjá lögreglunni á Selfossi. Sjö lög-
regluþjónar sóttu um, þar af þrír
aðstoðarvarðstjórar. Dómsmála-
ráðherra skipaði hins vegar
óbreyttan lögregluþjón í stöðuna
og í blóra við meðmæli sýslu-
manns.
Hinn nýráðni varöstjóri, Heiöar
Jónsson, er flokksbróðir ráðherra.
Hann var þriðji maður á lista fram-
boðs óháðra í sveitarstjómarkosn-
ingunum í vor en það er armur
Borgaraflokksins á Selfossi.
Sýslumaöur hafði mælt með Guð-
jóni Axelssyni aðstoöarvarðstjóra
sem hefur starfað í lögreglunni í
16 ár - þar af sem aöstoðarvarð-
stjóri frá 1983. Hann hefur gegnt
varðstjórastöðu þegar aðrir forfafi-
ast eða era í fríi. Guðjón var annar
tveggja lögregluþjóna sem í starfi
sínu kærðu núverandi dómsmála-
ráðherra fyrir nokkmm árum
vegna gmns um ölvunarakstur á
Selfossi.
„Ég er mjög óhress með þetta og
ætla að leita til sýslumannsins og
Landsambands lögreglumanna og
athuga síðan hvemig ég á að snúa
mér í þessu máli,“ sagði Guðjón í
samtali við DV. „Mér skilst að
sýslumaður hafi mælt með mér í
stöðuna af þeim sjö sem sóttu um
varðstjórastöðuna. Ég er mjög
óhress enda var ég búinn að starfa
sem aðstoðarvarðstjóri í sjö ár.
Auk þess var gengið framhjá
tveimur öðrum sem einnig hafa
verið aðstoðarvarðstjórar hjá lög-
reglunni," sagði Guðjón.
„Ég lagði inn umsókn ásamt fleir-
um í ágúst," sagði Heiðar Jónsson
sem var skipaður í hina umdeildu
stöðu af ráðherra. „Fyrir síðustu
helgi fékk ég svo tilkynningu um
að ég heföi fengið þessa stöðu. Sum-
ir em óhressir með ráðninguna og
kalla þetta pólitískt og annað í þeim
dúr. Eg var í framboði fyrir óháða
í sveitastjórnarkosningunum í vor.
En ef ekki má gera neitt í dag þá
held ég að maður verði að skoða
sinn gang,“ sagði Heiðar. -ÓTT