Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990. Iþróttir • Hér sjást þeir kappar sem hlutu verðlaun DV og Hörpu fyrir góðan árangur í liðnum mánuði. Lengst til vinstri er Andrej Jerina, leikmaður ÍBV, en hann var kjörinn besti leikmað- ur ágústmánaðar. Þá kemur Guðmundur Stetán Mariasson, besti dómarinn í ágúst, og loks Jóhannes Atlason, þjálfari Stjörnunnar, besti þjálfarinn í ágúst að mati DV og Hörpu. Fulltrúi Hörpu við afhendingu verðlaunanna er lengst til hægri. DV-mynd Brynjar Gauti Útneftiingar DV og Hörpu: Jóhannes, Guðmundurog Jerína verðlaunaðir fyrir ágústmánuð - Jóhannes besti þjálfarinn, Jerina besti leikmaðurinn og Guðmundur besti dómarinn Andrej Jerina, júgóslav- neski leikmaðurinn í liði ÍBV, var útnefndur leik- maður ágústmánaöar hjá DV og Hörpu en þessir aðilar veittu slikar viðurkenningar í fjóröa skiptið á þessu keppnistíma- bili nú í vikunni. Harpa er sem kunnugt er stuðningsaðili 1. deild- ar keppninnar í ár eins og í fyrra. Andrej Jerina er 25 ára gamaU sóknarleikmaður sem hefur átt dijúgan þátt í óvæntri velgengni Eyjamanna í 1. deildinni í sumar. Hann var í miklum ham í þeim þremur leikjum sem ÍBV lék í ágúst- mánuði, 2-1 sigri gegn FH þar sem hann skoraði og fiskaði vitaspymu, 2-4 tapi gegn Val þar sem hann skor- aði og lagði upþ mark og 4-3 sigri á Akranesi þar sem hann skoraði sig- urmarkið á síðustu stundu. Jerina kom til ÍBV fyrir þetta tímabil frá júgóslavneska 2. deildar félaginu Slovan Ljubljana og að öllu óbreyttu fer hann aftin- þangað að loknu tímabilinu hér heima og leikur með því í vetur. Jóhannes Atlason þjálfari ágústmánaðar Jóhannes Atlason, þjálfari nýliða Stjömunnar úr Garðabæ, var út- nefndur þjálfari ágústmánaðar hjá DV og Hörpu. Undir hans sljóm hefur Stjaman komið geysilega á óvart í sumar, flestir spáðu hðinu faUi, enda er það skipað ungum leikmönnum og er að leika í deild- inni í íyrsta sinn. En Stjaman hef- ur sannað tilvemrétt sinn meðal þeirra bestu og gerði þaö sérstak- lega í ágústmánuði. Þá vann liðið alla þrjá leiki sína, sigraði toppliðið Val, 0-1, á Hiiðarenda, Skagamenn, 2-0, í Garðabæ og KA, 3-0, á Akur- eyri. Jóhannes tók við Stjömunni fyrir síðasta tímabil og leiddi hðið upp í 1. deild í fyrstu tilraun. Hann er með reyndustu þjálfurum hér á landi, hefur þjálfað ÍBA, KA og Þór á Akureyri, Fram og íslenska landsliðið. Jóhannes lék á sínum tíma sem bakvörður með Fram og landsliðinu. Guðmundur Stefán besti dómarinn Guðmundur Stefán Maríasson, sem dæmir fyrir Leikni, Reykjavík, var útnefndur dómari ágústmán- aðar. Guðmundur dæmdi tvo leiki í 1. deildinni og fórst það vel úr hendi í bæði skiptin en hann er samtals búinn að dæma átta leiki í deildinni á þessu tímabih sem er með því mesta sem gerist. Guð- mundur á skamman feril að baki sem A-dómari en hefur staðið sig vel og var á síðasta hausti valinn til línuvörslu á Evrópuleik Ballym- ena og Anderlecht og hefur fengið svipað verkefni nú í haust. -VS/GH/SK/JKS • Andrej Jerina, ÍBV. DV/Hörpulið ágúsf mánaðar • Jón Otti Jónsson Stjörnunni • Friðrik Sæbjörnss. ÍBV • Helgi Björgvinss. Vikingi • Magni Pétursson Val • Rúnar Kristinsson KR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.