Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 15
! FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990. Tekist á um dómsvald Edward Kennedy, öldungadeildarþingmaöur í bandaríska þinginu. Tuttugusta og annan janúar 1973 í máli Jane Roe (dulnefni) gegn Henry Wade (saksóknari í Texas) kvaö Hæstiréttur Bandaríkjanna upp úrskurð um að stjórnarskrá Bandaríkjanna verndaði rétt konu til að ákveða hvort hún endaði meðgöngu með fóstureyðingu. Rétturinn leit á þennan rétt konu sem „grundvallarrétt", sem hluta af rétti hverrar manneskju til einkalífs („right to privacy"), en þann rétt hafði dómurinn áður við- urkennt í ýmsum tilfellum. Hlutverk löggjafarvalds Síðustu áratugi hafa öndverðar stefnur tekist á um það í banda- rísku samfélagi hvemig túlka eigi stjómarskrána. Takast þar á ann- ars vegar þeir sem vilja lesa meira inn í mannréttindaákvæði hennar, en það sem bókstaflega stendur, og hins vegar þeir sem einkum og raunar eingöngu vilja horfa til þess sem upphaflega var sett á blað. Hinir fyrrnefndu telja það hlut- verk Hæstaréttar að túlka stjórnar- skrána vítt, aðlaga stjórnarskrána, í anda frumkvöðlanna, að breytt- um tímum. Þeir síðarnefndu telja hins vega ómögulegt að segja til um hvernig hinir fyrstu löggjafar hefðu litið á mál og telja það hlut- verk löggjafarvalds en ekki dóms- valds að móta viðbrögð við nýjum álitamálum. Dómurinn frá 1973 um „grund- vallarrétt" konu til að velja sér fóstureyðingu er gott dæmi um stefnu þeirra sem vilja lesa meira inn í stjómarskrána en bókstaflega stendur þar. Eðlilega er hvergi minnst á fóstureyðingu í hinum tvö hundruð ára gömlu mannrétt- Kjallarmn Sr. Baldur Kristjánsson indáakvæðum (BOl of Rights), og ekki heldur í síðari tíma viðbótar- greinum, en meirihluti dómara (sjö gegn tveimur) taldi það óleyfileg afskipti yfirvalds af einkamálum, ef ríkisstjórn setti önnur lög en þau varðandi fóstureyðingu á fyrsta þriðjungi meðgöngu en að löggild- ur læknir annaðist aðgerðina. Andmælendur dómsins töldu hann ekki hafa neina stoð í stjórn- arskrá. Útilokað væri að segja til um hvað þeir, sem sömdu og sam- þykktu mannréttindaákvæðin, hefðu hugsað í þessum efnum. Þar sem ekki sé fjallað um fóstureyð- ingar í stjómarskránni eða fylgi- greinum hennar eigi hvert ríki fyr- ir sig að hafa frelsi til að móta sína eigin löggjöf um fóstureyðingar. Afleit þróun Þegar Wilham Brennan dómari hættir 84 ára að aldri missa hinir „fijálslyndu“ í dómnum sinn snjallasta mann og jafnframt meirihluta sinn þar sem víst er tal- ið að arftaki hans, væntanlega David Souter, (verði hann sam- þykktur af öldungadeildinni) fylh flokk hinna „íhaldssömu." Það er þó ekki sjálfgefíð aö rétturinn breyti þeirri grundvallarafstöðu að kona eigi rétt á fóstureyðingu. Græni bletturinn við íhaldsmenn er að þeir eru hthr byltingarmenn, virða hefðina og Hæstiréttur hefur byggt á úrskurði sínum í máli Jane gegn Wade í tæpa tvo áratugi. En þó að hinn íhaldssami meirihluti breyti ekki beinhnis því sem Hæsti- réttur sagði 1973, getur hann með nýjum dómum aukið völd hinna einstöku ríkja að mun, hvað varðar útfærslu og takmarkanir á fóstur- eyðingum. Hefur þessa raunar gætt í dómum Hæstaréttar undanfarin ár. Forsetinn tilnefnir hæstaréttar- dómara en öldungadeildin stað- festir eða hafnar tilnefningum hans. Það þýðir í raun að fram- kvæmdavaldið og löggjafarvaldið takast á um dómsvaldið. Öldunga- deildin með Edward Kennedy í far- arbroddi hafnaði hinum íhalds- sama Robert Bork haustið 1988. Enginn efaðist um fæmi Borks og vit, en hreinskilni hans á löngum ritferh varð honum farartálmi. - Hans skoðun var og er sú að Hæsti- réttur hafi farið offari í að túlka stjómarskrána. Að dómi meirihluta öldunga- deildarinnar hefði hin þrönga túlk- ini Borks, ef hún hefði ráðið gegn- um árin, þýtt það að Bandaríkin væm miklu skemra á veg komin í mannréttindamálum. Síðan öld- ungadeildin hafnaði Bork, hafa for- setar hneigst tíl að tilnefna mann- eskjur sem htið hafa gert uppskátt um skoðanir sínar. Það er í raun afleit þróun því sjaldan er hún betri músin sem læðist. Sr. Baldur Kristjánsson „Forsetinn tilnefnir hæstaréttardóm- ara, en öldungadeildin staðfestir eða hafnar tilnefningum hans. Það þýðir í raun að framkvæmdavaldið og löggjaf- arvaldið takast á um dómsvaldið.“ Árlæsis!1990: Svona gerum við „Óhætt er að fullyrða að unglingar kunna vel að meta að lesið sé upp- hátt fyrir þá,“ segir greinarhöfundur m.a. Það hefur lengi tíðkast að lesa upphátt fyrir yngri böm í svoköll- uðum nestistímum í skólanum (og oftar) en hvenær hætta kennarar því? Hvað með unghngana? Ekki kannski í nestistimanum en í kennslustundum? Óhætt er að fuh- yrða að unghngar kunna vel að meta að lesið sé upphátt fyrir þá. Það er til dæmis kjörið að lesa Gísla sögu Súrssonar upphátt og aðrar íslendingasögur sem ætlast er til aö nemendur læri til prófs í efstu bekkjum grunnskólans. Sagan verður mun auðskildari fyrir bragðið fyrir ahan þorra nem- enda og persónur hreinlega lifna við líkt og Pappírs-Pési! Þá er hka mun hægara að komast að því hvort nemendur skilja efni sögunn- ar og átta sig á flóknum ættar- tengslum sem vhja vefjast fyrir mörgum og gerir nemendum oft erfitt fyrir í upphafi. Og hvað með að lesa upphátt nýútkomnar bæk- ur síðustu daga fyrir jól? Það kunna margir vel að meta. Kannske verður þá frekar beðið um bók í jólagjöf. Ennfremur mætti hugsa sér fyrstu dagana á haustin kjöma th lestrar í miklum mæli. í fyrra var haldin móðurmálsvika í skólum sem þótti takast vel og skha mikl- um og góðum árangri. Hvað með þrjá lestrardaga í upphafi skólaárs? Ema Árnadóttir Laugardagurinn 8. september er alþjóðlegur dagur læsis en Samein- uðu þjóðirnar hafa mælst til að árið 1990 verði helgað baráttunni gegn ólæsi. Ennfremur verði árið nýtt th þess að hvetja fólk th auk- ins lestrar af öhu tagi, eins og mönnum er sjálfsagt kunnugt af fréttum undanfarnar vikur. Það hefur löngum verið höfuð- verkur margra kennara - ekki síst þeirra sem fást við að kenna ungl- ingum - hvernig megi fá sem flesta th að lesa lengri texta af áhuga, ekki bara stutta búta. Svo virðist sem dragi úr lestri um 11-12 ára aldur - einkum meðal stráka - enda margt annað sem heillar, svo sem íþróttir, tölvur og margt fleira. Reyndar virðast stelpur lesa meira á öllum aldri, ef dæma má af rann- sóknum, en það er önnur saga. Að miðla töfrum En hvernig hvetjum við krakk- ana th að halda áfram að lesa svo að þeir hætti ekki lestri og lesi sér th gagns og gamans alla ævi? Og hvernig förum við að því að miðla th þeirra þeim töfrum og þeirri ánægju sem í lestri felst? Að ekki sé minnst á gagnsemina. Vitað er að böm, sem mikið er lesið fyrir, eiga auðveldara með að læra að lesa við upphaf skólagöngu og þau sem lesa mikið sjálf eiga auðveld- ara með annað nám, th dæmis staf- setningu, þannig að kannski er aukinn lestur ein notadrýgsta leið- in th að kenna stafsetningu. Margir telja að leggja beri aukna áherslu á lestur af öhu tagi í grunn- skólanum ef það mætti verða til þess að þeir sem annars missa áhuga á lestri haldi honum. Til þess þarf að hvetja þá til þess að lesa sem fjölbreyttasta texta, forna og nýja, auðmelta og tormelta - og umfram allt gefa þeim tíma th þess í kennslustundum. Kennarar eru oft ragir við að „fórna“ móður- málstímum í mikinn lestur og telja að þeir megi lítinn tíma missa, einkum ef um er að ræða annað en beint námsefni í móðurmáli. En þess ber þá að gæta að þeim tíma sem varið er til lestrar er síð- ur en svo illa varið því hann heldur að nemendum bókum og „tælir“ þá til að halda áfram að lesa sem ef til vih myndu annars hætta því. nokkur maður læs nema hann haldi áfram að lesa og geti miðlað öðrum af því sem hann les? Þarf ekki að halda þeirri kunnáttu við eins og hverri annarri íþrótt? Margt bendir th að svo sé, ekki síst nú þegar alls kyns upplýsingar skeha á okkur. Það skiptir kannske ekki öllu máh hvað lesið er því að með þessu móti er verið að ala upp lesendur sem síðar meir eru þá fremur tilbúnir til að lesa hvað sem er. Og þá ekki einungis fagurbók- menntir heldur efni af öhum toga. Þá á ég einkum við að nýta betur th dæmis barnabækur, ungl- ingabækur, reyfara, spennubók- menntir og ástarsögur. Með öðrum orðum: leyfa unglingum að velja sér lesefni út frá eigin áhugasviði eða hugarheimi og fjalla um það, spjalia um það í kennslustundum, skrifa ritdóma og margt fleira. Margar þær bækur sem ætlast er til að nemendur lesi á þessum árum eru of þungar fyrir þá sem lesa lítið, hafa kannske hætt að lesa þegar þeir voru taldir læsir, og þá eru barna- og unglingabækumar ágætisstökkpallur. Að lesa upphátt Þá er spurningin hvenær er mað- ur læs og hvað með hugtakið að vera búinn að læra að lesa? Er KjaHarinn Erna Árnadóttir námsstjóri „Er nokkur maður læs nema hann haldi áfram að lesa og geti miðlað öðr- um af því sem hann les? - Þarf ekki að halda þeirri kunnáttu við eins og hverri annarri íþrótt?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.