Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Qupperneq 5
5 FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990. dv Viðtalið Fréttir Skelveiðar hefjast á Húnaflóa - enn lítið vitað um ástand skelfiskstofnsins Slappaaf íeldhúsinu ^ Nafn: Gísli Jónsson Aldur: 45 ára Starf: Umdæmisstjóri Flug- leíða og forstjóri Ferða- skrifstofu Akureyrar Gísli Jónsson, forstjóri Feröa- skrifstofu Akureyrar, hefur tekið viö starfi utndæmisstjóra Flugleiða á Noröiirlandi og mun sinna báðum störfunum. Gísii er 45 ára Akureyringur og segir aö hann hafi starfað aö ferðamálum „nánast frá því ég fæddist“, eins og hann orðaði það. „Ég tók þó smáhliðarspor og vann um tíma í banka en sl. 15 ár hef ég starfað hjá Ferðaskrif- stofu Akureyrar.“ En hvað seg- ir hann um sitt nýja starf sem umdæmisstjóri Flugleiða? „Það leggst vel í mig. Þetta á að ganga upp þvi bæöi á ferða- skrifstoi'unni og hjá Flugleiðum er mjög hæft starfsfólk. Starfið hjá Flugleiðum er umfangsmik- ið en yfirmenn á Akureyrar- flugvelli fá nú aukin völd og ábyrgð. Mitt starf verður að halda utan um þetta og vinna að ýmsum öðrum verkefnum en þeim sem snerta beint dag- legan rekstur. Það er ýmislegt á döfinni hjá Flugleiöum sem gamán verður að fást viö en allt miðar þaö að þvi að auka og bæta þjónustuna við farþega okkar og ég hlakka til að takast á við þau verkefni. Áhugamálin mörg Áhugamál mín eru margvís- leg. Á sumrin spila ég golf með góðum félögum. Þetta er geysi- lega skemmtileg íþrótt og mér hefur farið fram aö undantornu og er nú kominn með 14 í for- gjöf. Það er einna verst við golf- ið hvað það er tímafrekt. Á veturna spila ég skallabolta sem er, að ég held, akureyrsk íþrótt. Þar hittast gamlar knatt- spyrnuhetjur og aðrir sem aldr- ei komust í lið og það er oft mikið hlegið. Ætli það megi ekki segja að ég sé hðtækur á þessum vettvangi. Það skemmtilegasta við íþróttimar er samt félagsskapurinn sem ég vildi ekki vera án. Gaman að elda Ég fer til rjúpna á haustin og svo verð ég vist að minnast á áhuga minn á eldamennsku og því að borða góöan mat. Það er gaman að elda mat og ég stappa mjög vel af i eldhúsinu og þríf meira að segja eftir mig. Þessari eldamennsku fylgir svo ánægj- an að borða góðan mat sem er að vissu leyti áhugamái." Gísli er giftur Þórunni Kol- beinsdóttur röngtenhjúkrunar- fræðingi og eiga þau þrjú börn, tvo syni og eina dóttur. -gk Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Þessa dagana eru skelveiðar á Húna- flóa að hefjast. Auk báta frá Hólma- vík munu tveir bátar frá Hvamms- tanga stunda veiðarnar. Líklega fer Blönduósbáturinn Ingimundur gamh á skehna en hann er nú í slipp á Skagaströnd. Að sögn Halldórs Jónssonar, ný- ráðins framkvæmdastjóra Meleyrar á Hvammstanga, var reiknað með að Bjarminn færi af stað með plóginn einhvern næstu daga. Á næstunni byrjar svo Siggi Sveins á skelinni. Halldór sagði að lítið væri vitað um ástand skelfiskstofnsins í Flóanum og enn lægi afurðaverð ekki fyrir. Óljóst er hversu mikla vinnu veið- arnar skapa. Ef viðunandi verð fæst má reikna með 10-20 manns við vinnu í skelinni í haust en vinnan verður mismikil eftir því hvort fiskurinn selst ferskur eða fer í frystingu. FAXAFENI 14, NÚTÍÐ, 108 REYKJAVÍK. SÍMAR 687480, 687580 OG 37878. Innrítun daglega frá kl. 10-20 Það sem víð kennum í vetur: JAZZLEIKSKOLINN Jazzleikskólinn er sérgrein okkar. Þar fær einstaklingur- inn, 3-6 ára börn, að njóta sín óþving- aður á dansgólfinu. Síðan við byrjuðum á Jazzleikskólanum fyrir 6 árum hefur það sýnt sig og sannaðað börnin'fá góða undirstöðu í tónlist og fyrir allan dans til áframhaldandi náms. Spennandi leikdansar sem börnin sýna I vor. Jazzleikskólinn er sérgrein okkar. Varist eftirlíkingar. EPP Stepp fyrir alla, sfráka og stelpur, unga og gamla. Madonna verður með í lagavalinu. Nýir dansar. Mik- ið fjör. BARNADANSAR, gamlir og nýir, er undirstaða fyrir allan samkvæmíisdans. Söngdansar pg leikir og splunkunýr barnadans, verðlaunadans frá Danmörku í sumar, barna-lambada, sem Henný hefur aðlagað íslenskum börnum. Gömlu dansarnir verða í vetur á föstudagskvöldum og fyrir utan gömlu, góðu dansana, eins og vínarkrus, polka, skottís, masúrka, ræl og m.fl., dönsum við þar „partí- dansa" og gamla enska og danska dansa sem við ein kennum. Suður- amerískir dansar og mambo, boogie, salsa eru uppáhaldsdansar margra og enn fáum við í vetur nýjan dans, soca, upprunninn frá eyjunum í Karíbahaf- inu, arftaka lambada. Sértímar fyrir 10-12 ára og 13-16 ára. Jazzdans- Discojazz- Freestyle fyrir alla sem vilja hreyfa sig eftir nýjustu lögunum „Vogue“ og „hip-hop“ og læra nýja dansa. Samkvæmisdansar þar sem grunnurinn er 10 dansarnir í heimskerfinu, fyrir börn, unglinga og fullorðna. Þarna geta pörin, hjónin og vin- irnir komið saman og átt skemmtilega kvöldstund í góðra vina hópi því mikið er lagt upp úr félags- lega þættinum um leið og við öðlumst öryggi á dansgólfinu og í umgengni við annað fólk. Skemmtilegir tímar. Allt það nýjasta fyrir keppnis- dansara. Frábærir gestakennarar væntanlegir í vetur. Eldri borgarar Rock’n’roII „Kaffikvörnin", þar sem kaffið er á könnunni og dansað á milli sop- anna og spjallsins, verður á föstu- dögum í vetur kl. 16. Dönsum létta og skemmtilega dansa og hittum góða félaga. er alltaf einn af tískudönsunum. Allir muna eftir lagi eins og Rock around the Clock. Viö erum með fjöldann allan af nýjum sporum og samsetningum, m.a. eftir gestakennara okkar, Per Henckell og konu hans, Kitty, í Danmörku en þar kynntum viö okkur allt það nýjasta í rokkdansinum. Yngsta rokkpar landsins kemur nýjum nemendum á sporið á kynningardeginum ( Faxafeni 14 kl. 16 á sunnudag. Faglærðir danskennarar Félagasamtök og starfsmannahópar verða að hafa samband við okkur sem fyrst. Einkatímar eftir samkomulagi. FORELDRAR: Gefið barninu ykkar bestu fáanlegu undirstöðu undir áframhaidandi nám í öllum dansi og fyrir tónlistarnám. í dansinum er lifsgieði og þar er holl og góð hreyfing. í danstímunum ert þú í góðum félagsskap. Hagkvæmt greiðslufyrirkomulag. Raðgreiðslur og annað. FAXAFENI 14, HÚSIÐ NÚTÍÐ Nýtt húsnæði sem liggur vel við ibúðarhverfúm borgarinnar. Tveir kennslusalir. Næg bilastæði. Grensásstöð SVR er stutt frá. DHR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.