Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Qupperneq 8
8
FOSTUDAGrUR 7. SEPTEMBER 1990.
FRIMERKJASAFNARAR
Lars-Tore Eriksson uppboðshaldari verður
staddur hér á landi 6.-9. sept.
Ef einhverjir hafa áhuga á að koma
frímerkjum í verð geta þeir haft samband
við hann á Hótel Esju, sími 82200, og mælt
sér mót við hann.
Styrkur til háskólanáms í Noregi
BRUNBORGAR-STYRKUR
Úr Minningarsjóði Olavs Brunborg verður veittur
styrkur að upphæð sjö þúsund norskar krónur á
næsta ári.
Tlgangur sjóðsins er að styrkja íslenska stúdenta og
kandídata til háskólanáms í Noregi. (Samkvæmt
skipulagsskrá sjóðsins er styrkurinn aðeins veittur
karlmönnum.)
Umsóknir um styrkinn, ásamt námsvottorðum og
öðrum upplýsingum um nám umsækjenda, sendist
skrifstofu Háskóla íslands fyrir 1. október 1990.
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum eignum
fer fram að Bjarnarbraut 2,
Borgarnesi, fimmtudaginn
13. september 1990 kl. 10.00:
Engjaás 1, Borgamesi, þingl. eigandi
Loftorka hf. Uppboðsbeiðandi Iðn-
lánasjóður.
Kolsstaðir, Hvítársíðuhreppi, þmgl.
eigandi Bjöm Emilsson o.fl. Uppboðs-
beiðandi er Innheimtumaður ríkis-
sjóðs.
Skallagrímsgata 7, Borgamesi, þmgl.
eigandi Pétur Júlíusson. Uppboðs-
beiðandi er Bjöm Ólafur Hallgríms-
son hdl.
Vatnsendahlíð 5, Skorradalshreppi,
þingl. eigandi Stefán Jónsson/Om
Stefánsson. Uppboðsbeiðandi er Lög-
mannsstofan Linnetsstíg 1.
Þórólfsgata 21, Borgamesi, þingl. eig-
andi Andrés Kristinsson. Uppboðs-
beiðandi er Landsbanki Islands.
SÝSLUMAÐUR MÝRA- 0G
BORGARFJARÐARSÝSLU
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum eignum fer
fram að Bjarnarbraut 2,
Borgamesi, fimmtudaginn
13. september 1990 kl. 10.00:
Borgarbraut 39, Borgamesi, talinn
eigandi Ólafur H. Jóhannesson. Upp-
boðsbeiðandi er Fjárheimtan hf.
Amarklettur 1, Borgamesi, þingl. eig-
andi Ólafur Þór Jónsson. Uppboðs-
beiðendur em Guðjón Ármann Jóns-
son hdl., Veðdeild Landsbanka ís-
lands, Innheimtumaður ríkissjóðs,
Lögmenn, Ásgeir Thoroddsen hdl.,
Eggert B. Ólafsson hdl., Guðmundur
Pétursson hdl., Guðmundur Markús-
son hrl. og Gunnar Sæmundsson hdl.
Björk, Reykholtshreppi, þingl. eigandi
Jón Pétursson/Þórvör E. Guðmunds-
dóttir. Uppboðsbeiðandi er Inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Böðvarsgata 2, efri hæð, Borgamesi,
þmgl. eigandi Byggingarfélag alþýðu/
Anna Jónsdóttir. Uppboðsbeiðandi er
Jón Ingólfsson hdl.
Höfh, Leirár- og Melahreppi, spilda,
þingl. eigandi Finnbogi Jónsson. Upp-
boðsbeiðendur em Sigurður I. Hall-
dórsson hdl. og Tryggvi Bjamason.
Kveldúlfsgata 26, 3. h. C, Borgamesi,
talinn eigandi Guðbjörg Erlendsdótt-
ir. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild
Landsbanka íslands, Gísh Kjartans-
son hdl. og Lögmannsstofan.
Lundur 2, Lundarreykjadalshreppi,
talinn eigandi Snorri Stefánsson.
Uppboðsbeiðendur em Veðdeild
Landsbanka íslands og Baldur Guð-
laugsson hrl.
Sumarb. nr. 22, Indriðast., Skorradal,
þingl. eigandi Þorgrímur Ólafsson.
Uppboðsbeiðandi er Landsbanki Is-
lands.
SÝSLUMAÐUR MÝRA- 0G
BORGARFJARÐARSÝSLU
Uflönd
James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Fahd, konungur Saudi-Arabiu, í Jeddah í gær. Baker tókst að
fá Saudi-Araba til að taka þátt í kostnaðinum af veru bandarísks herliðs i Saudi-Arabíu. Símamynd Reuter
Heruppbygging Bandaríkj amanna við Persaflóa:
Saudi-Arabar
lofa milljörðum
dollara
Yfirvöld í Saudi-Arabíu hafa lofað
ames Baker, utanríkisráðherra
Jandaríkjanna, milljarða dollara
framlagi til að standa straum af
kostnaðinum við veru bandarisks
herliðs í Saudi-Arabíu. Saudi-Arabar
hafa nú nær tvöfaldað olíuútflutning
sinn undanfarna daga og nemur
hann yfir sjö milljónum tunna á
dag.
Um hundrað þúsund bandarískir
hermenn em nú í Saudi-Arabíu og
njóta þeir stuðnings fimm hundruð
herflugvéla. Frakkar, sem sent hafa
fallhlífarhermenn, herskip og þyrlur
til Persaflóasvæðisins, hafa tilkynnt
að þeir muni ekki taka þátt ef Banda-
ríkjamenn gera árás á írak að fyrra
bragði. Ef írakar gera hins vegar
innrás í eitthvert ríkjanna við Persa-
flóa munu Frakkar grípa til hernaða-
raðgerða, að því er Francois Mitter-
rand Frakklandsforseti sagði í gær.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði í gær, er
breska þingið kom saman til að ræða
spennuna fyrir botni Persaflóa, að
hún vonaðist til að viðskiptabann
Sameinuðu þjóðanna bæri árangur.
Thatcher útilokaði ekki valdbeit-
ingu.
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur þegið boð íraka um að ávarpa
írösku þjóðina. Mun Bush nota tæki-
færið og útskýra sjónarmið Banda-
ríkjastjómar. Verður myndband
með ávarpinu sent til íraks einhvern
næstu daga og því sjónvarpað þar.
írakar kölluðu varalið til vopna í
gær. Allir 37 ára gamlir karlmenn
verða að hafa gefið sig fram við her-
flokka sína innan þriggja daga. Auk
þess var fjöldi annarra karla á fer-
tugsaldri kvaddur til vopna. Leið-
togar andspymuhreyfingarinnar í
Kúvæt segja menn sína vel vopnaða
og hafi þeir staðið fyrir nokkrum
árásum á íraska hermenn.
Fastafulltrúi Kúvæts hjá Samein-
uðu þjóðunum sagöi í gær að írakar
hefðu rænt búnaði sjúkrahúsa í Kú-
væt og hefðu margir sjúklingar dáið
af völdum þess, meðal annars ung-
börn sem voru í súrefniskössum.
írösk yfirvöld viðurkenndu í gær
að íraskir hermenn heíðu skotið á
Bandaríkjamann í Kúvæt en sögðu
að þaö hefði verið fyrir slysni. Mað-
urinn, sem særðist á handlegg, er á
sjúkrahúsi í Kúvæt og hafa starfs-
menn bandaríska sendiráðsins í
Bagdad fengið leyfi til að heimsækja
hann. Maðurinn er sagður hafa verið
aö flýja hermenn sem gerðu skyndi-
leit í fjölbýlishúsi.
Nokkrar meðal þeirra tvö hundmð
og fimmtíu breskra kvenna og barna,
sem flugu til London frá Jórdaníu í
nótt, sögðu að breskir karlmenn í
Kúvæt gengju í arabískum kuflum
til að sleppa undan íröskum her-
mönnum. Þannig klæddir flýöu Bret-
arnir frá húsi til húss. Að sögn nokk-
urra kvenna fela Bretarnir sig undir
rúmum og uppi á háaloftum til að
komast hjá því aö verða fluttir til
hernaðarlega mikilvægra staða.
Alls hafa nú yfir fimmtán hundruð
vestrænar konur og börn farið frá
írak og Kúvæt. Bandaríkjamenn
undirbúa nú flutning bandarískra
kvenna og bama frá Bagdad í dag.
Þaö kom á óvart að írakar leyfðu um
fjörutíu kanadískum karlmönnum
að yfirgefa írak með fjölskyldum sín-
um í gær.
Reuter
Kúvæt:
Svíar loka sendiráðinu
- Sovétmenn 1 leynilegum viðræðum
Sendiherra Svíþjóðar í Kúvæt mun
yfirgefa landið eins fljótt og hægt er.
Áfangastaðurinn verður líklega
Bagdad og mun sendiherrann verða
samferða stjórnarerindrekum ann-
arra landa. Sænska sendiráðið í Kú-
væt hefur gætt hagsmuna íslendinga
í landinu sem kosið hafa að vera þar
um kyrrt.
í morgun komu tíu Svíar til
Moskvu frá Bagdad með flugvél sov-
éska flugfélagsins Aeoroflot. Enn eru
um hundrað Svíar eftir og eru flestir
þeirra í írak. Engir sænskir karl-
menn fá að fara úr landi.
Eduard Sévardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, sagði í
morgun að Sovétmenn ættu í leyni-
legum viðræðum Viö írösk yfirvöld
um lausn gíslanna. Sévardnadze
sagði að um átta þúsund sovéskir
þegnar væru í írak. Flestir þeirra eru
verkamenn en meðal þeirra eru
einnig hundrað og áttatíu hernaðar-
ráðgjafar sem verið hafa í þjónustu
íraskra yfirvalda.
Utanríkisráðherra íraks, Tariq
Aziz, hefur tjáð sovéskum yfirvöld-
um að írakar þurfi ekki á ráðgjöfun-
um að halda og þess vegna muni ír-
aska stjórnin ekki koma í veg fyrir
brottfor þeirra.
Reuter og TT