Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Síða 11
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990. 11 Utlönd Blökkumaðurinn Powell stjórnar Bandaríkjaher - sér tll aðstoðar hefur hann þýska „bjöminn“ Norman Schwarzkopf Colin Powell kveður undirmenn sina áður en þeir halda til Saudi-Arabíu. Til þessa hafa hafa Bandaríkja- menn fylgt herstjórnarlist hans i Persaflóadeilunni. Björninn Norman Schwarzkopf á að stjórna Bandaríkjaher ef til átaka kemur við Persaflóa. Símamynd Reuter Hann er kallaður „svarti Eisen- hower“ og hefur yfir öllum herafla Bandaríkjamanna að segja meðan George Bush forseti sinnir skít- kasti við Saddam Hussein. Þeir eru reyndar tveir sem bera hitann og þungann af eyðimerkur- stríðinu þar sem engu skoti hefur enn verið hleypt af byssu. Þessi tveir þykja báðir sérstæðir menn og þó um leið ólíkir. Annar er blökkumaður af ættum innflytj- enda frá Jamaíka en hinn er ljós- hærður, af þýskum ættum, og er þekktastur undir nafninu Bjöm- inn. Hernaðaráætlun Powells Colin Luther Powell er æðsti yfir- maður Bandaríkjahers að forsetan- um frátöldum. Hann er forseti herráðsins og sem slíkur ber hann ábyrgð á gerðum hersins. Það er hann sem skipar liðinu niður í Saudi-Arabíu enda er sagt að Bush hafl tröllatrú á því herbragði Pow- ells að senda í skyndi svo mikið lið til að mæta Saddam að hann geti sig hvergi hrært. Margir efast að visu um að þetta ráð dugi. Árangurinn sé aðeins þreytandi biöstaða þar sem Banda- ríkjamenn verði á endanum aö sættast á málamiðlun og Saddam haldi velli. En það var að ráðum Powells að Bandaríkjamenn tóku ekki þann kost að láta orðin ein duga í deilunni um framtíð Kúvæt heldur að sýna styrk hersins eins og hann getur orðið mestur. Powell hefur sagt að ef til átaka komi við Persaflóa verði Banda- ríkjamenn að beita öllum herstyrk sínum og ná skjótum árangri. „Saddam þarf ekki að ímynda sér eitt augnablik að við höfum hvorki vilja né hæfni til að ná fram mark- miðum okkar viö Persaflóa," hefur Powell látið hafa eftir sér. Þetta er hemaðaráætlun Bandaríkja- manna í stuttu máh. Réð ferðinni í Panama Powell hefur líka látið þau orð falla að ef Bandaríkin vilji láta líta á sig sem heimsveldi þá verði þau að koma fram sem heimsveldi. Þessari stefnu hefur Powell reynt að fylgja það tæpa ár sem hann hefur verið forseti herráðsins. Umfangsmesta aðgerðin fram að Persaflóadeilunni var innrásin í Panama þegar Manuel Noriega var steypt að stóli. Powell á að hafa bent Bush á þaö áður en lagt var upp að litlar líkur væra á að Nori- ega yrði tekinn höndum. Powell hlaut reynslu sína í hern- aði í Víetnam og sagt er að æ síðan hafi hann takmarkaða trú á tækni- brellum og háþróuðum vopnum til að vinna sigur á vígvellinum. Ráð hans er að beita öllum tiltækum herstyrk með miklum mannafla og láta kné fylgja kviði. Því fer fjarri að Powell sé dæmi- geröur meöal bandarískra hers- höfðingja. Hann er fæddur og upp- alinn í Harlem, sonur innflytjenda frá Jamaíka. Móðir hans var saumakona og faðirinn vann í verksmiðju. Powell er maður sem hefur unnið sig upp til æðstu met- orða á sviði sem hingað til hefur ekki verið talið hæfa svörtum inn- flytjendum. Tossi ískóla Og það er ekki einu sinni svo að Powell hafi verið undrabarn í æsku. Honum gekk illa í skóla og var um tíma hafður í tossabekk. Samt var hann orðinn forseti her- ráðsins rétt rúmlega fertugur. Powell gekk í herinn um leið og skólagöngu lauk. Þar tók her- mennska í Víetman viö og mest- allan sjöunda áratuginn var hann á vígvöllunum austur þar. Fyrir framgöngu sína hlaut hann 11 heið- ursmerki og þar á meðal var purpurahjartað. Eftir þetta var frami Powells í hernum tryggður. Hann varð hers- höfðingi og í tíð Ronalds Reagan hlaut hann sæti í Þjóðaröryggis- ráðinu. Sagt var að hershöfðin- gjarnir í ráðinu hefðu ekki mikið álit á Reagan. Reagan mat þá lítils á móti alla nema einn sem hann skildi. Það var Powell sem talaöi sama tungumál og forsetinn og var laus við aUa sýndarmennsku. Hershöfðingjarnir htu reyndar svo á að Powell skorti aUa reynslu af herstjórn því hann hefði aðeins barist sem óbreytuur hermaður. Það er sagt aö ef nauðsynlega þurfi að gera' við bilaðan skriðdreka þá sé best að kalla á PoweU því til þeirra verka kunni hann. Powell hefur það líka fyrir tómstundagam- an aö gera við gamla Volvóa. Næsti varaforseti Frami Powells innan hersins eftir að hann kom frá Víetnam hefur byggst á þvi aö hann kann að nýta sér pólitísk sambönd og því er spáð að hann eigi eftir að láta tfl sín taka í stjórnmálum í framtíðinni. Það veltur að vísu mikið á því hvernig herförinni tU Persaflóa lýkur. Tak- ist hún vel er frami Powells tryggð- ur. í Washington ganga þær sögur að Bush ætli að fá Powell tU að vera varaforsetaefni sitt í kosning- unum 1992. Powell er óflokks- bundinn og segist engan áhuga hafa á stjórnmálum en hefur samt ekki útlokað aö reyna fyrir sér sem stjórnmálamaður. Og í samanburði við Dan Quayle þykir hann hafa yfirburði á öllum sviðum. Björninn á vígvellinum Nánasti samverkamaður PoweUs í aðgeröunum við Persaflóa er Nor- man Schwarzkopf hershöfðingi. Það er hann sem hefur fengið við- urnefnið „björninn“ vegna þess hve þéttur hann er á veUi. Það er Björninn sem á að stjóma á vígvell- inum ef til átaka kemur. Skipulag herflutninganna til Saudi-Arabíu hvíldi á honum og nú í síðustu viku kom hann í eigin persónu í eyði- mörkina til að taka við yfirstjórn- inni. Björninn er yfir öUum herafla Bandaríkjamanna á og við Persa- flóa. Koma hershöfðingjans þykir bera vott um að Bandaríkjamenn ætli sér ekki að sitja og bíða enda- laust eftir að einhvað gerist í deU- unni. Fram til þessa hefur Björninn setið á skrifstofu sinni í MacDUl herstöðinni í Flórída. Nú er hann kominn til að stjóna hernum á víg- velli. o Ballet Byrjendur (yngst 4ra ára) og framhaldsnemendur. Innritun í síma 72154 BALLETSKÓLI SIGRÍÐAR ÁRMANN SKÚLAGÖTU 32-34 HRINGDU OG FÁÐU SENT EINTAK. BÆJARHRAUN114, 220 HAFNARFJÖRÐUR PÖNTUNARLÍNA 91-653900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.