Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Síða 24
32
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990.
Afmæli
Sigfús Halldórsson
Sigfús Halldórsson, tónskáld og
listmálari, Víðihvammi 16, Kópa-
vogi, er sjötugur í dag.
Sigfús er fæddur í Reykjavík og
var í námi í Málaskóla Björns
Björnssonar og Marteins Guð-
mundssonar. Hann var í námi í leik-
tjaldahönnun og málaralist og tók
próf 1945 (í. verðlaun) frá Slade Fine
Art School, Lundúnaháskóla. Sigfús
var í námi og störfum í Stokkhólm-
sóperunni 1947-1948 og lauk prófi í
uppeldis- og kennslufræði. Hann
var í námi í Myndlista-og handíða-
skóla íslands 1968 og einnig í Tón-
hstarskóla Reykjavíkur.
Sigfús vann í Útvegsbanka íslands
1933-1944 og málarasal Þjóðleik-
hússins 1950-1952. Hann vann hjá
J. Þorláksson og Norðmann 1954-
1955 og í bókasafni Bandaríkjahers
1955-1956 og Skattstofu Reykjavíkur
1957-1968. Sigfús var teiknikennari
í Langholtsskólanum í Rvík 1968-
1981 og ferðaðist með leikflokkum
um landið 1939-1954 og 1955. Hann
var í fulltrúaráði Vals og í stjórn
Lionsklúbbsins Ægis.
Sigfús hefur haldið margar mál-
verkasýningar einn og með öðrum
hér á landi og erlendis, m.a. fyrstu
leiktjaldasýningu hér á landi í Rvík
1947, einkasýningar á Kjarvalsstöð-
um 1980 og 1985 og sýningu á 200
ára afmæh Reykjavíkur 1986. Hann
fór í söngferðalag með Guðmundi
Guðjónssyni um byggðir íslendinga
í Bandaríkjunum og Kanada á veg-
um Þjóðræknisfélagsins og ríkis-
stjómaríslands 1980.
Sigfús hefur sungið og spilað inn
á margar plötur og hefur margoft
komið fram í útvarpi og sjónvarpi
hér á landi en einnig sungið og spil-
að í útvarpi í London (BBC) og Hels-
inki í Finnlandi. Sigfús hefur samið
fjölda sönglaga og tónverka í hand-
riti og á prenti, m.a. Stjána bláa,
kórverk (við ljóð Sigurðar Einars-
sonar) og Þakkargjörð, hljómlistar-
verk, öll lögin tileinkuð íslenskum
sjómönnum; sönglög 1973; Við Aust-
urstræti (ljóð Tómasar Guðmunds-
sonar), frumflutt við opnun sýning-
arinnar Reykjavík ’86 á 200 ára af-
mæli Rvíkur.
Sigfús var sæmdur heiðursmerki
Sjómannadagsins úr gulli, Knatt-
spyrnuélagsins Vals og FH. Hann
varð heiðursfélagi The Icelandic
Canadian Club of British Columbia
1980 og var heiðurslistamaður
Kópavogs 1988.
Sigfús kvæntist 17. janúar 1953
Steinunni Jónsdóttur, f. 27. desemb-
er 1923. Foreldrar Steinunnar voru
Jón Arinbjörnsson, endurskoðandi
í Rvík, og kona hans, Hrefna Sigur-
geirsdóttir. Börn Sigfúsar og Stein-
unnar eru Gunnlaugur Yngvi, f. 12.
mars 1955, leiðbeinandi við Grunn-
skólans á Tálknaflrði, kvæntur Jó-
hönnu Grétu Möller, synir þeirra
eru Sigfús, f. 8. júní 1976, og Yngvi
Páll, f. 21. apríl 1978, og Hrefna, f.
7. apríl 1957, gift Ágústi Elíasi
Ágústssyni, kennara í Rvík, dóttir
þeirra er Helga, f. 12. júU 1978. Systk-
ini Sigfúsar eru Ingileif, f. 4. febrúar
1905, d. 28. ágúst 1987, gift Einari
O. Malmberg, kaupmanni í Rvík;
Guðlaug Margrét, f. 27. maí 1906, d.
11. desember 1939, gift Viggó Þor-
steinssyni, kaupmanni í Rvík; Björn
Magnús, f. 8. desember 1907, d. 24.
ágúst 1971, leturgrafari í Rvík,
kvæntur Guðflnnu Guðmundsdótt-
ur; Sigurður, f. 5. desmber 1909, d.
23. september 1965, skrifstofumaður
í Rvík, kvæntur Sigurrósu Jóns-
dóttur; Guðný, f. 6. mars 1912, d. 6.
maí 1913; Guðjón, f. 5. júní 1915,
bankafulltrúi í Rvík, kvæntur Hall-
björgu Elímundardóttur, og Nanna,
f. 22. júlí 1918, gift Runólfi Sæ-
mundssyni, verslunarmanni í Rvík.
Foreldrar Sigfúsar voru Halldór
Sigurðsson, f. 18. febrúar 1877, d. 5.
júlí 1966, úrsmiður í Rvík-, og kona
hans, Guðrún Eymundsdóttir, f. 20.
júní 1878, d. 13. júní 1938. Halldór
var sonur Sigurðar, b. og hrepp-
stjóra í SkarðshUð undir Eyjaíjöll-
um, bróður Ingunnar, langömmu
Jóns Thors, skrifstofustjóra í dóms-
málaráðuneytinu, og Þorsteins
Thorarensens rithöfundar. Sigurð-
ur var sonur HaUdórs, b. í Álfhólum
í Landeyjum, Þorvaldssonar, bróð-
ur Björns, fóður Þorvaldar ríka á
Þorvaldseyri.
Guðrún var dóttir Eymundar, b. á
Skjaldþingsstöðum, bróður Sigfúsar
bóksalaogSigríðar.langömmu ■
Gríms Helgasonar, forstöðumanns
handritadeildar Landsbókasafns,
fóður Vigdísar rithöfundar. Ey-
mundur var sonur Eymundar, b. á
Borgum í Vopnafirði, Jónssonar, b.
á Refstað, Péturssonar. Móðir Ey-
mundar Jónssonar var Guðrún Ey-
mundsdóttir, systir Arngríms á
Hauksstöðum, fóður Arnbjargar,
móður Guðmundar, föður Björgvins
tónskálds. Móðir Eymundar á
Skjaldþingsstöðum var Þórey Sig-
fúsdóttir, b. í Sunnudal í Vopna-
firði, Jónssonar, og konu hans, Sig-
ríðar Jónsdóttur, b. á Þverá í Öxar-
firði, Þorvaldssonar, b. á Vestur-
húsum, Einarssonar „galdrameist-
ara“, prests á Skinnastöðum, Niku-
Sigfús Halldórsson.
lássonar. Móðir Sigríðar var Sigríð-
ur Amgrímsdóttir, b. á Hrafna-
björgum, Runólfssonar, b. á Hrafna-
björgum, Einarssonar, bróður Þor-
valdar. Móðir Arngríms var Björg
Arngrímsdóttir, sýslumanns á
Laugum, Hrólfssonar, og konu
hans, Hólmfríðar Björnsdóttur,
sýslumanns á Espihóli, Pálssonar,
sýslumanns á Þingeyri, Guðbrands-
sonar, biskups á Hólum, Þorláks-
sonar. Móðir Guðrúnar Eymunds-
dóttur var Guðný Pálsdóttir, b. á
Hólsseli á Hólsíjöllum, Pálssonar,
b. á Hólsseli, Einarssonar. Móðir
Guðnýjar var Arndís Hildibrands-
dóttir, b. á Hofi í Fellum, Einarsson-
ar, og konu hans, Guðrúnar Einars-
dóttur, b. á Setbergi í Fellum, Krist-
jánssonar. Móðir Guðrúnar var
Margrét Pétursdóttir, b. í Bót, Pét-
urssonar, b. á Skjöldólfsstöðum,
Jónssonar, stúdents ogættfræðings
á Skjöldólfsstöðum, Gunnlaugsson-
ar, ættföður Skjöldólfsstaðaættar-
innar.
Benedikt Jónsson
Benedikt Jónsson, fyrrv. verk-
stjóri og verktaki, Auðbrekku 23,
Kópavogi, er áttræður í dag.
Benedikt fæddist að Ásgautsstöð-
um við Stokkseyri en flutti til
Reykjavíkur árið 1918 þar sem hann
lauk barnaskólanámi.
Benedikt varð verkstjóri ungur að
árum. Hann var verkstjóri við aðal-
leiöslu hitaveitunnar frá Reykjum
að Öskjuhlíð, við allar virkjanir í
Soginu, við Búrfellsvirkjun og viö
vatnsmiðlunina við Þórisós, auk
þess sem hann vann við hafnar-
framkvæmdir í Þorlákshöfn og
Keflavík. Benedikt var síðan í flögur
til fimm ár hjá Vita- og hafnamála-
stofnun við hafnarframkvæmdir á
Húsavík, Siglufirði, Bakkafirði og
víðar.
Er Benedikt vildi minnka við sig
vinnuálagið stofnaði hann ásamt
Eggert Sigurðssyni Waage fyrirtæk-
ið Almennir verktakar. Vinnuálagið
minnkaði hins vegar ekki hjá hon-
um við það enda sá fyrirtækið um
ýmsar stórframkvæmdir hjá
Reykjavíkurborg og víðar. Hann tók
því fegins hendi starfi sem honum
bauðst hjá Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins að Keldnaholti en
þar starfaði hann árum saman við
inni-ogútistörf.
Eftir að Benedikt hóf þar störf
vaknaði áhugi hans á trjárækt og
hefur hann komið upp myndarleg-
um trjágarði í landi Keldnaholts sem
hann annast á hverju vori enn í dag.
Kona Benedikts var Elín Þor-
steinsdóttir húsmóðir, f. 19.2.1912,-
d. 22.5.1984, en hún var dóttir Þor-
steins Ásbjörnssonar trésmíða-
meistara og Jónasínu Guðlaugs-
dótturhúsmóður.
Börn Benedikts: Björg, f. 10.7.1931,
sjúkraliði, gift Haraldi Skjóldal,
starfsmanni hjá KEA, og eiga þau
fimm börn; Jón, f. 7.4.1937, frétta-
maður hjá ríkissjónvarpinu, kvænt-
ur Jónínu Jónsdóttur og eiga þau
fimm börn; Áslaug, f. 16.10.1943,
starfsleiðbeinandi, gift Sæmundi
Bjarnasyni, starfsmanni hjá Stöð 2;
Þór, f. 2.1.1945, starfsmaður hjá
FÞF, kvæntur Sólrúnu Guðjóns-
dóttur og eiga þau tvö börn; Kristj-
ana, f. 9.2.1946, starfsmaður hjá
ÍTR, gift Garðari Ingólfssyni, starfs-
manni hjá SVR, og eiga þau þrjú
böm; Hafdís, f. 12.6.1949, húsmóðir
og nemi, gift Guðmundi Grettissyni
vélstjóra og eiga þau flögur börn,
og Ehn, f. 3.7.1951, húsmóöir, gift
Sævari Einarssyni vélstjóra og eiga
þautvö börn.
Systkini Benedikts: Anna, f. 22.4.
1906, d. 24.7.1977, og var fyrri maður
hennar Bergsteinn Kristjónsson,
kennari á Laugarvatni, en seinni
maður Bjarni Bjamason, d. 1970,
alþingismaður og skólastjóri á
Laugarvatni; Bjami, f. 30.11.1907,
d. 1942, bryti á.varðskipum ríkisins,
var kvæntur Margréti Þorleifsdótt-
ur, d. 1979; Sólveig, f. 4.2.1909, gift
Indriða Indriðasyni rithöfundi;
Borghildur, f. 3.4.1912, var gift Þóri
Baldvinssyni, húsameistara í
Reykjavík, sem lést 1986; Kristján
Ragnar, f. 4.4.1915, d. 15.5.1988, af-
greiðslumaður hjá Eimskip; Hulda,
f. 22.6.1917, var gift Birgi Einars-
syni, skrifstofumanni í Reykjavík,
sem lést 1971, og Sverrir, f. 17.1.1920,
d. 17.9.1965, prentari í Reykjavík,
var kvæntur Önnu Pálsdóttur.
Foreldrar Benedikts voru Jón
Jónatansson, alþingismaðúFDg bú-
fræðiráöunautur á Ásgautsstöðum
í Flóa, og kona hans, Kristjana
Benediktsdóttir rjómabússtýra.
Föðurbróðir Benedikts var Bjarni,
afi Einars Njálssonar, bankastjóra
Samvinnubankans á Húsavík. Jón
var sonur Jónatans, b. í Landakoti
í Staðarsveit, bróður Narfa, langafa
Ólafs, föður Gunnars Ragnars, for-
stjóra Útgerðarfélags Akureyringa.
Jónatan var sonur Þorleifs, b. í Dal,
Jónssonar.
Móðir Jóns alþingismanns var
Anna, systir Bjarna, föður Þorgeirs
á Hæringsstöðum, afa Magnúsar
Kristjánssonar, lektors í sálfræði.
Anna var dóttir Jóns, smiðs á Búð-
um, Þorgeirssonar. Móðir Jóns var
Guðrún, systir Guðmundar, langafa
Önnu, móður Sigfúsar Daðasonar
skálds. Guðrún var dóttir Vigfúsar,
b. á Bíldhóli, Einarssonar, b. á
Vörðufelli, Sæmundssonar, b. á
Kjarlaksstöðum, Þórðarsonar, pró-
fasts á Staðastað, Jónssonar, bisk-
ups á Hólum, Vigfússonar, langafa
Önnu, langömmu Jónasar Hall-
grímssonar. Anna var einnig lang-
amma Einars, afa Einars Benedikts-
Benedikt Jónsson.
sonar skálds. Jón biskup var einnig
langafi Sigríðar, ömmu Bjarna
Thorarensens skálds. Móðir Vigfús-
ar var Anna Pétursdóttir, b. í Ólafs-
vík, Jónssonar, bróður Ólafs, lang-
afa Eiríks, langafa Þorsteins frá
Hamri. Ólafur var einnig langafi
Steinunnar, ömmu Ólafs Thors og
lángömmu Thors Vilhjálmssonar.
Kristjana var dóttir Benedikts, b.
á Vöglum í Fnjóskadal, Bjarnason-
ar, b. á Vöglum, Jónssonar, prests
í Reykjahlíö, Þorsteinssonar, ætt-
föður Reykjahlíðarættarinnar.
Móðir Bjarna var Kristín Kristjáns-
dóttir, umboðsmanns á Illugastöð-
um, Jónssonar.
Móðir Kristjönu var Borghildur,
systir Kristjönu, móður Benedikts
Sveinssonar þingforseta, föður
Bjarna forsætisráðherra. Borghild-
ur var dóttir Sigurðar, b. á Hálsi í
Kinn, Kristjánssonar, bróður Krist-
ínar á Illugastöðum.
90 ára
Rannveig Vilhjálmsdóttir,
Stekkjargötu 31, ísafirði.
Guðmundur R. Magnússon,
Hrafnistu við Kleppsveg,
Reykjavík.
80 ára
Vigdís Pálsdóttir,
Kirkjuvegi 11, Keflavík.
Hulda Helgadóttir,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi.
Guðrún Finnbogadóttir,
Urðarvegi 31, ísafirði
Georg Helgason,
Kirkjuvegi 11, Keflavík.
70 ára
Guðrún Pétursdóttir,
Suðurgötu82, Akranesi.
Hún verður að heiman á af-
mælisdaginn.
60 ára
Steinar Þórólfsson,
Hríseyjargötu 11, Akureyri.
50ára
Hörður B. Hlöðvarsson,
Framnesvegi 13, Reykjavík.
Jón M. Egilsson,
Hólastíg 6, Bolungarvik.
Guðrún Jónsdóttir,
Drafnargötu 9, Flateyri.
40 ára
Rannveig Traustadóttir,
Selvogsgötu 9, Hafnarfirði.
Snæbjörn Tryggvi Össurarson,
Kjarrmóum 50, Garðabæ.
Aðalheiður Sigurðardóttir,
Vogi, Grímsey.
Agnar Már Sigurðsson,
Laufbrekku 12, Kópavogi.
Vilhjálmur Björnsson,
Strandgötu 1B, Eskifirði,
Svanlaug Eiríksdóttir,
Kirkjuvegi27, Selfossi.
Ingólfur Grétarsson,
Höfðavegi 43, Vestmannaeyjum.
Jósef Jóhann Rafnsson,
Svarfhóli,
Stafholtstungnahreppi.
Jens P. Högnason,
Grundargötu 45, Grundarfirði.
ER SMAAUGLYSINGA
BLAÐID
SÍMINN ER