Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990.
3
Fréttir
Atvinnuleysi 16 prósentum meira en í fyrra:
Mest atvinnuleysi á Akranesi
M0BLER
Skráðir atvinnuleysisdagar fyrstu
níu mánuði þessa árs voru 472 þús-
und talsins. Það jafngiidir því að 2400
manns hafi verið atvinnulausir að
meðaltali fyrstu níu mánuöi þessa
árs, eða sem nemur 1,9 prósentum
af mannafla. Á sama tímabili í fyrra
voru skráðir atvinnleysisdagar 407
þúsund og hefur þeim þannig fjölgað
um 16 prósent milli ára.
Þessar upplýsingar koma fram í
yfirhti um atvinnuástandiö frá
vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins. Þar eru teknar saman
atvinnuleysistölur á landinu fyrir
septembermánuð.
I septembermánuði voru skráöir
28 þúsund atvinnuleysisdagar á
landinu öllu sem jafngildir því að
1300 manns hafi verið skráðir at-
vinnulausir að meðaltah í mánuðin-
um. Það samsvarar einu prósenti af
Ég ætlaði mér ekki að
verða ellidauður hérna
„Það hafa orðið eigendaskipti á
fyrirtækinu og ég tel þess vegna að
þetta séu mjög heppileg tímamót fyr-
ir mig th að hætta hjá Miklagarði hf.
Ég ætlaði mér raunar ekki að verða
ellidauður hérna og tel að með þeim
skipulagsbreytingum, sem orðið hafa
að undanfórnu, sé mínu hlutverki
lokið,“ segir Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Miklagarðs hf. og áður
framkvæmdastjóri KRON.
Þröstur tilkynnti á stjórnarfundi
Miklagarðs hf. í fyrradag að hann
segði starfi sínu lausu. Við því tekur
Ólafur Friðriksson, framkvæmda-
stjóri verslunardeildar Sambands-
ins, en ákveðið hefur verið að versl-
unardehdin sameinist Miklagarði hf.
- Að hvaða verkefnum hyggstu snúa
þér núna?
„Ég vil ekki upplýsa það núna. Það
verður bara að koma í ljós þegar þar
að kemur.“
Á leið í pólitík?
- Ertu á leið í póhtík?
„Ég vil ekkert um það segja.“
- Ertuaðtakaviðstarfiíeinhverjum
af hinum nýju hlutafélögum hjá
Sambandinu?
„Nei.“
Þröstur var fyrsti stjórnarformað-
ur Miklagarðs sf. eða frá árinu 1981.
Hann varð síðan stjórnarformaður
KRON frá árinu 1984 og gegndi því
starfi um leið og hann vann hjá
verkalýðsfélaginu Dagsbrún. Árið
1988 varð hann starfandi stjórnar-
formaður KRON og í fyrra varð hann
framkvæmdastjóri.
Hættir þú eftir átök
og mikla valdabaráttu?
- Nú hefur það ekki farið fram hjá
neinum að erfiðir tímar hafa verið
hjá KRON að undanfömu og félaginu
gekk iha að safna hlutafé í hið nýja
fyrirtæki, Miklagarð hf. - Hættir þú
hjá Miklagarði hf. núna eftir mikh
átök og valdabaráttu við menn innan
Sambandsins?
„Nei, það er að vísu búið að takast
á við erfið mál og það hve iha gekk
að safna hlutafé í hið nýja fyrirtæki
olh mér vonbrigðum. Ég tel hins veg-
ar að núna sé mínu hlutverki lokið.
Eftir að ég kom inn í verslunar-
reksturinn setti ég mér að ná nokkr-
um aðalmarkmiðum. Fyrsta verk-
efnið var að bjarga gamla KRON frá
gjaldþroti. Það tókst.
Annað verkefnið var að tryggja á
nýjum grundvelh öflugan sam-
keppnisaðila við risann Hagkaup
undir merki samvinnuhreyfingar-
innar. Gamla KRON var með um 5
prósent af markaðnum áður en
Mikhgarður sf. kom th sögunnar.
Mikhgarður hf. hefur nú, tæpum tíu
árum síðar, um 17 th 18 prósent af
markaðnum og er helsti samkeppnis-
aðili Hagkaups. Þetta markmið náð-
ist því.
í þriðja lagi einsetti ég mér að koma
þessu nýja fyrirtæki, Miklagarði hf.,
í dreifða eignaraðild þannig að eig-
endur þess yrðu samvinnuverslunin,
einstaklingar, verkalýðsfélög og
fleiri. Þetta tókst mér ekki og það
olli mér vonbrigðum."
-JGH
- yílr 80 prósent atvinnlausra þar eru konur
áætluðum mannafla samkvæmt spá 125 atvinnulausum. konum. Af 46 atvinnulausum voru
Þjóðhagsstofnunar. Atvinnuleysi í Á Akranesi munar mjög um lokun 40 konur.
september er hið minnsta sem skráð
hefur verið í einum mánuði á þessu
ári og 14 þúsund dögum minna en í
september í fyrra. Þess er getið í yfir-
litinu að jafnan mæhst minnst at-
vinnuleysi í september.
Akranes og Seyðisfjörður
Ástandið er verst á Vesturlandi og
Austurlandi ef htið er th einstakra
landshluta. Munar þ r mest um
slæmt ástand á Akranr ú og á Seyðis-
firði.
Á Akranesi voru tkráðir 2216 at-
vinnuleysisdagar í september sem er
um 500 dögum minna en í ágúst.
Rúmlega 80 prósent atvinnuleysis-
daganna eru hjá konum. Af 102 at-
vinnulausum í september voru 83
konur. í ágúst voru konurnar 93 af
pijóna- og saumastofanna Akraprjón
og Henson. Þá fór fiskvinnslufyrir-
tækið Arctic á hausinn.
Á Seyðisfirði voru atvinnuleysis-
dagar í september 995 sem er nálægt
tvöfoldun frá því í ágúst. Tæp 90 pró-
sent atvinnuleysisdaganna voru hjá
Við gjaldþrot Fiskvinnslunnar á
Seyðisfirði í fyrra urðu um 120
manns atvinnulausir. Náði atvinnu-
leysið hámarki í maí í vor en þá kom
Seyðisfjarðarbær af stað atvinnu-
átaki og atvinnuleysi hvarf nánast í
sumar. Átakinu lauk í ágúst og því
varö þessi hækkun milli mánaða nú
svo mikh. Síld er farin að veiðast
þannig að söltun og frysting er hafin
hjá hinu nýja fyrirtæki, Dverga-
steini, og Strandarsíld. Síðustu daga
hefur því verið að reytast af atvinnu-
leysislistanum á Seyðisfirði.
-hlh
FAX 91-673511 SÍMI91-681199 BÍLDSHÖFÐI20 112 REYKJAVÍK
Atvinnuleysið í septembermánuði
I
2.3%
0,7%
□ Karlar
I Konur
DVJRJ
Víð fáum aðeíns 70 sett af nýju soft-look Dupont sófa-
settunum, teg. Chícago, og reiknum með að öll
sendíngín seljíst upp á næstu dögum.
HÖFUÐ-
BORGARSV.
REYKJANES
Soft-look áklæðín frá Dupont sam-
steypunum eru mýkstu og slítsterkustu
áklæðín og þau faílegustu á markaðnum.
Hornsófar frá aðeíns 83.860,-
Sófasett frá aðeíns 106.710,-
RAÐGREIÐSLUR 10 MANUÐIR
IEURC
KREPIT
mmm
VÍSA
REGENT MÖBEL Á ÍSLANDI