Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990. 35 Dreyer-dagar hjáKvikmynda- kiúbbnum Sjálfsagt eru flestir kvikmynda- fræöingar sammála um aö danski kvikmyndasnillingurinn Carl Th. Dreyer hafl skilið eftir sig djúp spor í kvikmyndasögunni. Hann lést 1968 og enn þann dag í dag gætir mikiila áhrifa frá hon- um í kvikmyndum sem koma á markaðinn. Þaö er þess vegna sem Kvik- myndaklúbbur íslands sýnir um þessar mundir Qórar af hans bestu kvikmyndum. í gær var sýnd Jóhanna aförk. sem Dreyer gerði í Frakklandí á tímum þöglu kvikmyndanna. K\dkmynd þessi er sú frægasta af nokkrum sem gerðar hafa verið um dýrlinginn og er myndin í hópi þeirra þöglu kvikmynda sem í dag teljast klassískar. í kvöld veröur svo sýnd Dagur reiðinnar sem gerð var 1944 eða 17 árum eftir Jóhönnu af Örk. Forvitnilegt er aö bera þessar myndir saman en hetjan í Degi reiðiimar, Amia, er eins og Jó- hanna sökuð um galdur. í næstu viku verða svo sýndar Vampíran og Orðið. Sýningar á vegum Kvikmyndaklúbbs íslands eru í Regnboganum. -HK Meiming Pétur Friðrik á yf ir- reið um Þýskaland - með viðkomu 1 Lúxemborg Jóharma S. Sigþórsdóttir, DV, Þýskalandi: Listmálarinn kunni, Pétur Friðrik, hefur verið á yfirreið með verk sín um Þýskaland að undanfórnu. Hafa sýningar hans vakið verðskuldaöa athygli og margir sýningargesta séð sér leik á borði með að eignast verk eftir listamanninn. Fyrsta sýningin á verkum Péturs Friðriks var raunar opnuð í Lúxem- borg um miðjan september. Það var Einar Benediktsson, sendiherra ís- lands í Lúxemborg og Belgíu, sem fylgdi henni úr hlaði með ávarpi. Hlaut sýningin góðar viðtökur og meðal annars sagði í dagblaðinu Tag- esblatt: „Hinn þekkti listmálari Pét- ur Friðrik sýnir 24 myndir sem eru frábærar að gæðum og túlkun." Næst sýndi listamaðurinn verk sín Pétur Friðrik og Einar Benediktsson sendiherra takast í hendur á sýningu þess fyrrnefnda í Lúxemborg. í Köln. Var sú sýning haldin í boði borgarinnar á ekki ómerkari stað en ráðhúsinu í Porz, sem er borgarhluti í Köln. Hún var opnuð 26. september og stóð til 10. október. Hjálmar W. Hannesson, sendiherra íslands í Þýskalandi, opnaði hana að við- stöddu fjölmenni. Vöktu verkin at- hygli sem fyrr og seldust allnokkur þegar við opnunina. Síðasta sýningin á verkum Péturs Friðriks í Þýskalandi er haldin í Stuttgart. Lýkur henni 27. október. Sýningin er í landsbókasafni í Stuttg- art. Þar fer einnig fram sýning á ís- lenskum nútímabókmenntum, svo og á verkum eftir fleiri listamenn, íslenska og erlenda. Skipulagning þessarar sýningar er í höndum ný- stofnaðs félags, Deutsch Islándisch Kulturforum. Leikfélag Mosfellssveitar: Bamaleikrit eftir Astrid Lindgren Leikfélag Mosfellssveitar frum- sýnir í kvöld barnaleikritið Elsku Míó minn eftir Astrid Lindgren. Sýn- ingar á leikritinu verða í Hlégarði í Mosfellssveit. Astrid Lindgren er óþarft að kynna fyrir krökkum sem famir eru að lesa. Hún er einhver þekktasti barnabókahöfundur í heiminum. Þekktust er hún sjálfsagt fyrir að hafa skapað Línu Langsokk og Emil í Kattholti. Einnig er hún höfundur hinnar vinsælu bókar Ronja ræningjadóttir. Sýningin í Mosfellsbæ er frum- flutningur á Elsku Míó minn á ís- landi. Jón Sævar Baldvinsson og Andrés Sigurvinsson unnu leikgerð, sérstaklega fyrir Leikfélag Mosfells- sveitar. Andrés Sigurvinsson er einnig leikstjóri. Hann hefur leikstýrt bæði fyrir atvinnuleikhús sem og hjá áhugaleikfélögum, má nefna Eyma- lang og annað fólk hjá Leikfélagi Akureyrar og Lítið fjölskyldufyrir- tæki hjá Þjóðleikhúsinu. Búninga- og leikmyndahönnuður er Rósberg G. Snædal. Atriði úr sýningu Leikfélags Mosfellssveitar á Elsku Míó minn. DV-mynd BG Þjoðleikhúsiö: Leiksýning ætluð grunnskólum Þjóöleikhúsið fer af staö í dag með I leiksýningu sem ætlunin er að sýna í grannskólum í vetur. Er sú sýning í samvinnu við menntamálaráðu- neytið og fræðsluyfirvöld. Markmið- ið er að kynna nemendum list leik- hússins og tengja starfsemi Þjóðleik- hússins skólakerfinu og er hér um framtíðarmarkmiö að ræða. Leikritið, sem Þjóðleikhúsið fer með í skólana að þessu sinni, er Næturgalinn og verður fmmsýnt í dag í Félagsheimili Seltjamamess og er sú sýning ætluð nemendum Mýr- arhúsaskóla. Hópur listamanna Þjóðleikhússins hefur samið leiksýn- inguna eftir hinu þekkta ævintýri H.C. Andersens. Næturgalinn fjallar meðal annars um fjölmarga þætti sem drepið er á í samfélagsfræði- kennslu, um einlægni, sýndar- mennsku, dramb, fegurð, list og umfram allt um framandi heim. Sýningin er 40 mínútur og þess er vænst að nemendur fái tækifæri til þess að ræöa við leikhópinn á eftir. Jón Símon Gunnarsson og Helga E. Jónsdóttir i hlutverkum sinum í Næturgalanum. DV-mynd BG Þátttakendur í sýningunni em leik- aramir Helga E. Jónsdóttir, Jón Sím- on Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld, Margrét Guðmundsdóttir og Þór- hallur Sigurðsson og flautuleikarinn Arna Kristín Einarsdóttir. Lárus Grímsson samdi tóniistina. DV-mynd BG Einn hinna þriggja balletta er Konsert fyrir sjö og er myndin úr honum. íslenski dansflokkurinn: Ballett fyrir fjölskylduna íslenski dansflokkurinn frum- sýnir í kvöld þrjá balletta sem sett- ir eru upp af Terence Etheridge, breskum danshöfundi og kennara sem starfað hefur með flokknum síðan í septemberbyrjun. Terence er íslendingum að góðu kunnur því hann samdi og æfði dansana fyrir Carmina Burana sem íslenska óp- eran setti upp síðastliðinn vetur. Hann samdi einnig tvo af þeim ball- ettum sem fluttir veröa, Konsert fyrir sjö og Pétur og úlfinn sem báðir em fluttir við tónlist eftir Sergei Prokofiev. Konsert fyrir sjö var uppruna- lega saminn fyrir ballettflokk í Jap- an en hefur nú verið endursaminn og aðhæfður íslenska dansflokkn- um. í þessu verki nýtir höfundur tækni hins hefðbundna balletts til hin ýtrasta. Hitt verkið, sem Terence Et- heridge samdi ballett við, er Pétur og úlfurinn og er það aðalverk sýn- ingarinnar. Þeir eru ófáir sem kannast við tónlistina sem hefur löngum heillað unga sem aldna. BaUettverkið fylgir söguþræðinum sem kemur fram í túlkun dansar- anna á sögupersónunum. Flosi Ól- afsson kemur til liðs við dansflokk- inn í þessu verki og túlkar hlutverk afans. Þriðja ballettverkið er Fjarlægðir sem er við tónlist frá Marokkó. Verkið er eftir hollenska dans- höfundinn Ed Wubbe og var sýnt hér fyrst 1986 undir stjórn höfund- ar. Verkið lýsir einsemd og óöryggi þeirra kvenna sem komið hafa til Hollands frá löndum eins og Tyrk- landi og Marokkó og tilheyra þeim hópi fólks sem nú vinnur bæði lægst launuðu og óþrifalegustu störfin í þjóðfélaginu Næsta verkefni islenska dans- flokksins er Jónsmessunætur- draumur sem er heils kvölds ball- ett. Fyrirhugað er að sýna ballett- inn seinni hluta janúarmánaðar. Danshöfundur er Grey Veredon og setur hann sýninguna upp. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.