Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990. Afmæli Valdimar Gíslason Valdimar Gíslason, Sviöholtsvör 9, Bessastaöahreppi, er fimmtugur í dag. Valdimar er fæddur á Kirkju- bæjarklaustri í Vestur-Skaftafells- sýslu og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Starfsferill Valdimar lauk gagnfræöaprófi í Héraðsskólanum á Laugarvatni 1959 og sveinsprófi í húsasmíðum 1964. Hann var b. á Felli og í Álfta- gróf í Mýrdal 1965-1987. Valdimar flutti þá í Bessastaðahrepp og hefur unnið hjá Rannsóknastofnun land- búnaðarins frá 1988. Fjölskylda Valdimar kvæntist 26. ágúst 1962 Sigríði Tómasdóttur, f. 2. janúar 1943. Foreldrar Sigríðar eru Tómas Lárusson, f. 20. júní 1904, b. í Álfta- gróf, og kona hans, Sigurbjörg Bjamadóttir, f. 18. mars 1903. Börn Valdimars og Sigríðar eru: Tómas, f. 17. febrúar 1963, kvæntur Sigríði Maríu Friðþjófsdóttur og eiga þau tvo syni; Ásta Þóra, f. 28. júní 1964, sambýlismaöur hennar er Jón Jó- hannsson og eiga þau eina dóttur; Gísli, f. 30. október 1967, sambýlis- konahans er Kristín Ástþórsdóttir og eiga þau eina dóttur. Bræður Valdimars era: Brynjólf- ur, f. 26. desember 1938, prestur í Stafholti í Mýrasýslu, kvæntur Ás- laugu Pálsdóttur og eiga þau þrjár dætur, og Sverrir, f. 14. nóvember 1949, rafvirki í Rvík, sambýliskona hans er Sigrún Guðmundsdóttir og eiga þau þrjú börn. Ætt Foreldrar Valdimars eru Gísli Brynjólfsson, f. 23. júní 1909, d. 4. maí 1987, prófastur á Kirkjubæjar- klaustri og síðar deildarstjóri í land- búnaðarráðuneytinu, og kona hans, Ásta Þóra Valdimarsdóttir, f. 11. október 1915, um skeið starfsstúlka á Kleppsspítalanum í Rvík. Gísli var sonur Brynjólfs, b. í Skildinganesi, Gíslasonar, prests á Reynivöllum, Jóhannessonar, b. í Hofsstaðaseb, bróður Guðmundar, langafa Matt- híasar Johannessen skálds. Jó- hannes var sonur Jóns, b. á Bjarna- stöðum í Kolbeinsdal, Jónssonar, læknis i Viðvík, Pétu.rssonar. Móðir Brynjólfs Gíslasonar var Guðlaug Eiríksdóttir, sýslumanns í Kollabæ í Fljótshlíð, Sverrissonar, bróður Þorsteins, afa Jóhannesar Kjarvals. Móðir Guðlaugar var Guðlaug Ei- ríksdóttir, b. í Bolholti, Jónssonar, ættfóður Bolholtsættarinnar. Móðir Gísla Brynjólfssonar var Guðný Jónsdóttir, prófasts á Auð- kúlu, Þórðarsonar, prests á Mosfelli í Mosfellssveit, bróöur Jóns þjóð- sagnasafnara og Ingibjargar, móður Ólafs Davíðssonar þjóðsagnasafn- ara og ömmu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Þórður var sonur Árna, prests á Hofi á Skagaströnd, Illugasonar, prests á Borg á Mýrum, Halldórssonar, bróður Bjama, lang- afa Ragnheiðar, ömmu Einars Bene- diktssonar skálds. Móðir Guðnýjar var Sigríður Eiríksdóttir, systir Guðlaugar í Kollabæ. Ásta er dóttir Valdimars, f. 7. maí 1888, d. 17. ágúst 1964, skipstjóra á Akranesi, Kristmundssonar, b. á Mosastöðum í Flóa, Jónssonar. Móðir Valdimars var Jóhanna Brandsdóttir, b. á Markhóli á Rang- árvöllum, Brandssonar, b. í Galtar- holti, Guðmundssonar, b. í Galtar- holti, Erlendssonar, b. á Sperðli í Landeyjum, bróður Andrésar, lang- afa Björns Halldórssonar í Laufási, fóður Þórhalls biskups. Erlendur var sonur Sigurðar, b. á Flankastöð- um á Miðnesi, Gíslasonar, prests á Krossi í Landeyjum, Eiríkssonar. Móðir Jóhönnu var Valgerður Sig- urðardóttir, b. á Brekkum í Hvol- hreppi, Magnússonar, b. á Núpi, Sig- urðssonar. Móðir Sigurðar var Valdimar Gislason. Anna Jónsdóttir, systir Eiríks í Bol- holti. Móðir Ástu var Guðný, f. 21. júlí 1894, d. 11. janúar 1977, Jónsdóttir, f. 15. nóvember 1867, d. 8. maí 1952, á Seyðisfirði, Eyjólfssonar og konu hans, Guðrúnar Bjargar Jónsdótt- ur, f. 14. janúar 1859, d. 13. janúar 1910. Guðný Þóra Ámadóttir Guðný Þóra Árnadóttir, Furugerði 1, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára 18. október. Starfsferi II Guðný er fædd í Reykjavík og ólst þar upp. Hún fór að vinna í fiski hjá Otri hf. í Reykjavík 1930-1933 og vann í Alþýðubrauðgerðinni 1933- 1941. Guðný var matráðskona á Suð- ureyri 1962-1968 og matráðskona í Bjarkalundi 1962-1978. Hún var í stjórn Kvenfélags Alþýðuflokksins, hefur veriö virkur félagi í Verka- kvennafélaginu Framsókn og Hvíta- bandinu. Fjölskylda Guðný giftist 1941 og á hún fjögur börn. Þau era: Guðmundur Arnar, f. 29. september 1935, skrifstofumaö- ur hjá Ispan í Kópavogi, kvæntur Guðrúnu Gísladóttur, skrifstofu- manni hjá Lyfjaverslun ríkisins; Árni Hafþór, f. 21. desember 1941, d. 1. júní 1942; Sigríður Gunnhildur, f. 8. október 1943, húsmóðir á Súða- vík, gift Hilmari Guðmundssyni sjó- manni og á hún sjö böm; Ámi Haf- þór, f. 3. september 1950, bifreiða- stjóri hjá Kristjáni Siggeirssyni hf., kvæntur Ástríði Haraldsdóttur, starfsmanni hjá G. Sandholt, og eiga þau tvö börn. Systir Guðnýjar, Sig- ríður Þóra, f. 1. september 1914, verslunarmaður í Rvík, giftist 13. október 1934 Einari Guðmundssyni bifreiðarstjóra. Ætt Foreldrar Guðnýjar voru Árni Þórðarson, f. 22. febrúar 1882, d. 21. mars 1942, steinsmiður í Reykjavík, og kona hans, Anna Þórðardóttir, f. 27. maí 1872, d. 10. september 1955. Ámi var sonur Þórðar, b. í Króki í Amarbælishverfi í Ölfusi, Jóns- sonar, b. á Sogni, Ásbjörnssonar, b. á Hvoli í Ölfusi, Snorrasonar. Móðir Þórðar var Sólveig, systir Jóns, langafa Halldórs Laxness. Sólveig var dóttir Þórðar „sterka“, b. og hreppstjóra í Bakkárholti, Jónsson- ar og konu hans, Ingveldar Guðna- dóttur, b. í Reykjakoti í Ölfusi, Jóns- sonar, ættfóður Reykjakotsættar- innar. Móðir Árna var Guðný Helgadóttir. Móðir Guðnýjar var Ólöf Siguröardóttir, b. á Hrauni í Ölfusi, Þorgrímssonar, b. í Rana- Guðný Þóra Árnadóttir. koti, Bergssonar, b. og hreppstjóra í Brattsholti, ættfóður Bergsættar- innar, Sturlaugssonar. Anna var dóttir Þórðar Einarsson- ar, b. í Helli og síðar í Götu í Ása- hreppi, og konu hans, Sigríðar Stef- ánsdóttur. Þau vora bæði ættuð af Rangárvöllum. Guðný tekur á móti gestum fóstu- daginn 19. október í matsalnum, Furugerði 1, kl. 20. Halldóra Petra Oddsdóttir Halldóra Petra Oddsdóttir hús- freyja, til heimilis við aðra götu 6 við Rauöavatn, er sextug í dag. Halldóra fæddist á Melum á Kjal- amesi en flutti þriggja ára með for- eldram sínum tíl Reykjavíkur þar sem hún ólst upp eftir það. Fyrir giftingu var Halldóra m.a. þerna á Súðinni og síðan kokkur á síldarbát- um. Halldóra giftíst 1947 Matthíasi Kristjánssyni, f. 21.1.1922, sjómanni frá ísafirði, en þau slitu samvistír. Seinni maður Halldóra er Magnús Þórðarson, f. 4.5.1922, jámsmíða- meistari, en hann er sonur Þórðar Eiríkssonar, b. á Úlfsstöðum í Valla- hreppi, og konu hans, Guðríðar Al- Svanhvít Smith Frú Svanhvít Smith, Eiríksgötu 11, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára ídag. Eiginmaður Svanhvítar var Axel Smith pípulagningameistari en hannlést 1974. Svanhvít ætlar að taka á mótí gest- um sunnudaginn 21.10. nk. í sal Meistarasambands bygginga- manna, Skipholtí 70, frá klukkan 17.00. bertsdóttur. Dóttir Halldóru og Magnúsar er Sigríður, f. 25.9.1958, húsmóðir í Kópavogi, gift Gretti Gíslasyni sölu- manni og eiga þau þrjú börn, Hall- dóru, Davíð og Elmu. Halldóra áþrjú systkini og auk þess einn uppeldisbróður. Systkini hennar: Sigurður, lengst verkamað- ur í Reykjavík, Hólmfríður, hús- móðir í Reykjavík, og Jón, lengst af verkamaður í Reykjavík. Foreldrar Halldóru voru Bryn- hildur Ingimundardóttir húsmóðir og Oddur Jónsson, bóndi og verka- maður. Halldóra verður ekki heima á af- mælisdaginn. Svanhvit Smith. Halldóra Petra Oddsdóttir. Leið- rétting Valur Gíslason í andlátsgrein um Val Gíslason leikara, sem birtíst í blaðinu siðast- liðinn þriðjudag, láðist aö geta um dóttur hans. Hún er Valgerður Vals- dóttir, f. 6. nóvember 1939, gift Ingi- mundi Sigfússyni, forstjóra í Heklu. Biðst blaöið afsökunar á þessum leiðu mistökum. Karolína Thorarensen og Guðbjörn Tómasson. Karolína Thorar- ensen og Guð- bjöm Tómasson Hjónin Karolína Thorarensen og Guðbjöm Tómasson eru bæði fimmtug um þessar mundir, Karo- lína í dag en Guöbjörn varð fimm- tugur á sunnudaginn var. Þau Karolína og Guðbjöm fædd- ust bæöi í Reykjavík og ólust þar upp. Karolína hefur unnið viö verslunarstörf í fjölda ára en Guð- björn er trésmiður að mennt og starfaði við smíðar í mörg ár en hefur síðustu árin starfað hjá Arn- arflugi. Þau hjónin giftu sig 27.5. 1961. Böm Karolínu og Guðbjöms eru Heimir Guðbjörnsson, f. 3.3. 1959, sjómaður í Reykjavík, kvæntur Þuríði B. Guðmundsdóttur, f. 3.8. 1961, húsmóður og eiga þau tvö börn, Fríðu Rut, f. 14.1.1978 og ívar, f. 2.8.1983; Rakel Guðbjörnsdóttír, f. 15.5.1962, húsmóðir í Reykjavík, gift Ólafi R. Guömundssyni, f. 7.6. 1959, vélstjóra og rafmagnstækni- fræðingi og eiga þau þrjú börn, Tathiönu Saavednu, f. 5.8. 1980, Ægi Bjöm, f. 17.7.1985 og Hlyn Má, f. 13.4. 1987; Elvar Guðbjörnsson, f. 20.9. 1964, kvæntur Cindiu Boll- era en þau era búsett í Valencia á Spáni. Foreldrar Karolínu: Guðmundur Thorarensen sem nú er látinn og Ástríður Eyjólfsdóttir, búsett í Reykjavífc Foreldrar Guðbjörns: Tómas Guðmundsson, sem er látínn, og Ólafia Guöbjörnsdóttir sem búsett er í Reykjavík. Karolína og Guðbjörn dvelja á Manor House Hotel á Englandi yfir afmælisdagana. Til hamingju með daginn 80 ára Guðjón G. Torfason, Vestri-Tungu, VesturiLandeyja- hreppi. 75 ára Lára Magnúsdóttir, Fjarðarstrætí 32, ísafirði. 60ára Svanhildur Jónsdóttir, Réttarholti 10, Selfossi. 50ára Þóróifur Valgeir Þorleifsson, Gautlandi 11, Reykjavík. Guðjón Ragnarsson, Hlíðarbraut 2, Blönduósí. Reynir Bj ömsson, Garðhúsum 49, Reykjavík. 40ára Viðar Aðalsteinsson, Egilsstöðum I, Egilsstöðum. Magnús Þorsteinsson, Markarflöt 19, Garðabæ. Gunnar Hallsson, Litluhlíð 4F, Akureyri. Björgólfur Lauritsson, Helgafelli 11, Eskifirði. Bjarni Gunnarsson, Álakvísl45, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.