Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990.
Utlönd
Vamarmálaráðherra Bandaríkjanna vlll raunhæfar tillögur frá Sovétmönnum:
Cheney ef ast um stef nu
Sovétmanna í hermálum
- hefur litla trú á framleiðslu heimilistækja í vopnaverksmiðjum
Bandaríkjamenn hafa litla trú á hug-
myndum Sovétmanna um að taka
upp framleiðslu á neysluvarningi í
gömlum vopnaverksmiðjum. Einn
aðstoðarmanna Dick Cheney, vam-
armálaráðherra Bandaríkjanna, lét
hafa þetta efdr sér í Moskvu þar sem
ráðherrann ér nú á ferð.
„Þaö er ekki hægt að taka upp
/i
Bætiefni
fyrir allar vélar.
Myndar húð sem endist
100 þús. km.
Verð kr. 1.980 pr. litra.
varahlutir
Hamarshöfða
við
>
©
68 60 1 0
mBÍLAKAUP
Borgartúm 1 - 105 Reyk)avík
ÖRUGG SaLm
Ath.-Ath.-Ath,
Vegna góðrar
sölu vantar
bíla á skrá og
á staðinn
framleiðslu á heimilistækjum í verk-
smiðjum þar sem eldflaugar voru
áður smíðaðar. Hugmyndin er ein-
faldlega ekki raunhæf," sagði emb-
ættismaðurinn eftir fund Cheneys
með Gorbatsjov, forseta Sovétríkj-
anna.
í viðræðum þeirra kom þó fram að
Bandaríkjamenn líta ekki lengur svo
á að utanríkisstefna Sovétstjómar-
innar sé ógnun við heimsfriðinn.
Gorbatsjov á að hafa fagnað orðum
Cheneys í þessa veru þrátt fyrir að
Cheney hafi haft í frammi efasemdir
um hugmyndir Sovétmanna í af-
vopnunarmálum.
Cheney sýndi sérstakan áhuga á
hugmyndum Sovétmanna um breyt-
ingar á gömlum vopnaverksmiðjum.
Hann lýsti þeirri skoðun sinni að
breytingar gætu vart borgað sig auk
þess sem auðvelt væri að taka upp
fyrri framleiðslu í verksmiðjunum.
Þegar Cheney kom til Moskvu virt-
ist sem Sovétmenn væm tilbúnir að
Dick Cheney lét ekkert hafa eftir sér þegar hann kom af fundi með Gorbatsjov en aðstoðarmenn hans létu orð falla
um að ráðherrann heföi ekki verið hrifinn af öllum hugmyndum Sovétmanna i afvopnunarmálum.
Símamynd Reuter
gera allt til að ná samkomulagi við hafa verið varkár í viðræðunum og í afvopnunarmálum. Þetta hefur sleg-
Bandaríkjamenn um samdrátt í víg- gefið til kynna að Bandarikjamenn ið nokkuð á bjartsýnina sem ríkti við
búnaði. Cheney virðist hins vegar vildu skoða nákvæmlega næstu skref komuCheneystilMoskvu. Reuter
George Bush verður að leggja sítt af mprKnm lil KssningabarítlH finKKa- FHlltrúar beggja flpKKa i öidHngadeiidinni eru tiibúnir að afyðja fjarlagafrum-
manna sinna þrátt fyrir stormaspm VÍðaKÍptÍ við þingið vegna fjarlagafrum- varp Bush en í fulltrúadeildinni vilja demókratar breyfa frumvarpÍPH i grunff-
varpsins. Hér heilsar hann upp á biskup grísku rátttrúnaðarKirKjunnar í vallaratriðum- Simsmyntl Regter
Chicago i roki og rigningu. Símamynd neuter
Öldungadolld Bandaríkjaþings boygir slg fyrir Bush:
Hugmyndum um skatta á
hátekjumenn vísað frá
- afgreiða verður nýtt árlagafrumvarp fyrir fóstudagskvöld
47.000, steingrár, (allegur bíll, v.
630.000.
Ford Econoline, árg. '86, sæti fyrir
12, 351 Windsor, ek. 92.000, v.
1.450.000
Peugeot 205 GTi 16, árg. '87, ek.
61.000, hvftur, v. 850.000.
Öldungadeild Bandaríkjaþings
hefur hafnaö hugmyndum demó-
krata í fulltrúadeildinni um að
hækka skatta á hátekjumenn. Þá
beijast repúblikanar í fulltrúadeild-
inni hart gegn öllum hugmyndum
um skattahækkanir og leggja
áherslu á niðurskurð til að eyöa hal-
lanum á fjárlögum landsins.
í öldungadeijdinni féllu atkvæöi
þannig að 67 reyndust vera á móti
tillögu demókrata um skattahækk-
anir en 32 voru fylgjandi henni. Hug-
myndin var að hækka tekjuskatt hjá
hátekjumönnum úr 28% í 33% og
leggja átti sérstakan skatt á milljóna-
mæringa.
Bæði demókratar og repúblikanar
í öldungadeildinni vöruðu við hug-
myndum um skattahækkanir og
leiðtogar þeirra í deUdinni sögðu að
skattafrumvarpiö gæti stefnt fyrri
áætlunum um niðurskurð á fjárlög-
unum í voða. TaUð var fuUvíst aö
George Bush forseti hefði komiö í veg
fyrir skattahækkanirnar með því að
þeita neitunarvaldi sínu.
í öldungadeildinni nýtur hugmynd
um 9,5% hækkun á bensíni og olíum
enn fylgis og þar er orkuskatturinn
taUnn vænlegasta leiöin til að eyða
fiárlagahaUanum. „Þótt við fáum
ekki lausn aUra okkar mála með
orkuskattinum þá er hann þó það
skásta sem við getum gert tU aö
vinna þug á fiárlagahaUanum,“ sagði
George MitcheU, leiðtogi demókrata
í öldungadeildinni.
„Þaö eina sem við getum gert af
viti er aö hækka skatta á bensíni,"
sagöi Robert Dole, talsmaður repú-
blUcana í deildinni. Þannig virðist
sem lítUl munur sé á stefnu flokk-
anna í öldungadeildinni þótt þeir nái
engan veginn saman í fuUtrúadeild-
inni.
Nú liggja fyrir öldungadeildinni 30
þreytingartUlögur við fjárlagafrum-
varp Bush forseta. Hann lýsti því
yfir þegar frumvarpið var lagt fram
aö engar veigamiklar breytingar
kæmu til greina. Bush hefur þó þegar
falhst á nýjar hugmyndir um niöur-
skurö en nú strandar aUt á deUum
um skattahækkanir.
Helst veröur aö afgreiöa íjáriaga-
frumvarpið fyrir fóstudagskvöld því
aö þá á miðnætti renna út aukafjár-
lög sem samþykkt voru í síöustu
viku. Náist ekki samkomulag fyrir
þann tíma er viðbúiö að Bush láti
loka ríkissjóði um helgina í annað
sinn í þessum mánuði.
Þingmenn í öldungadeUdinni Uta
svo á aö lokun rUússjóös í annað sinn
sé óviöunandi niðurstaða og hafa
heitiö því að leggja nótt viö dag tU
að leysa málið í tíma. Bush er þó vís
meö að beita neitunarvaldi sínu gegn
öllum tillögum sem ganga gegn
grundvallaratriöum í fjárlagafrum-
varpi hans og því eiga menn nú allt
eins von á aö fjáriögin hljóti ekki
afgreiöslu í þessari viku.
Reuter