Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Page 28
36
Menning
Góður gestur í
Bústaðakirkju
Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari lék í gærkvöldi
á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaöakirkju.
Á efnisskránni voru tvær einleikssvítur eftir J.S.Bach
og verkiö Dal regno del silenzio eftir Atla Heimi
Sveinsson.
Bústaðakirkja er ekki aöeins fógur og aðlaðandi
bygging heldur virðist hún einnig vera ein best nýtta
kirkja borgarinnar. Hefur hún orðið mjög eftirsótt
fyrir tónleika vegna góðs hljómburðar. Það var þó
ekki fyrr en í gærkvöldi sem lýðum varö ljóst að kirkj-
an nýtur einnig vinsælda hjá yngstu kynslóð tónhsta-
runnenda. í miðju hins viðkvæma verks Atla Heimis
tóku að berast kynjahljóð úr iðrum kirkjunnar. Reynd-
ust þau við nánari athugun vera dynjandi rokktónhst
úr kjahararum þar sem unghngadansleikur var kom-
inn í fuhan gang. Sem betur fer virtist einleikarinn
ekki verða þessa var og í hléinu var dansleikur stöðv-
aður þar til tónleikunum lauk. Varð af þessu nokkur
truflun.
Þetta var frumflutningur á verki Atla Heimis hér á
landi en nafn þess útleggst á íslensku í þagnarheimi.
Verkinu virtist skipt í fjóra þætti sem mörkuðust af
því hið ytra að fyrst var leikið með dempara síðan án
dempara, þá pizzicato og í lokin var þáttur þar sem
fyrir kom efni úr öhum fyrri þáttunum. Verkið bygg-
ist á hefðbundinni stefjaúrvinnslu í meginatriðum og
hljómaöi mjög lagrænt og rómantiskt í arida. Virtist
það faha áheyrendum prýðhega í geð.
Tóiúist
Finnur Torfi Stefánsson
Einleikssvítur Bachs í c moll og c dúr sem þarna
voru fluttar eru gott dæmi um fæmi tónskáldsins í
að láta svo hta út sem um margar sjálfstæðar raddir
sé að ræða, enda þótt leikið sé aðeins á eitt selló. Svít-
ur eru eins og kunnugt er að uppruna form danstón-
hstar en í höndum Bachs standa þær sem stjálfstætt
listform. Þetta er tónlist sem krefst mikhlar athygli
til þess að unnt sé að meta þá hugkvæmni sem tón-
skáldið sýnir í að fletta stöðugt upp nýjum hliðum á
efniviðum innan þeirra þröngu skorða sem settar eru.
En sú áreynsla er vel ómaksins virði.
Leikur Erhngs Blöndals var frábærlega góður. Fag-
urlega mótaðar hendingar voru leiknar með smekkleg-
um blæbrigðum og hljómmiklum tóni hins þroskaða
hstamanns. Enda þótt aldursmunur verka Bachs og
Atla Heimis sé hátt á þriðju öld og stílsmunur eftir
því lék hvort tveggja jafnvel í höndum einleikarans
og sannfæringin í túlkuninni var hin sama. Verður
gaman að heyra hvernig honum tekst upp með Sinfó-
níuhljómsveitinni í kvöld.
Andlát
Séra Bergur Bjömsson, fyrrverandi
prófastur í Stafholti, Borgarfirði, lést
16. október.
Lilja Sigfúsdóttir frá Kirkjubæ, Vest-
mannaeyjum, Eyjaholti 6, Garði, lést
á heimih sínu 15. október.
Jarðarfarir
Oddný Helgadóttir lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 7. október. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Anna K. Vilhjálmsdóttir, Hvassaleiti
58, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju fóstudaginn 19. októ-
ber kl. 13.30.
Haraldur Sæmundsson rafvirkja-
meistari, Karlagötu 1, Reykjavík,
sem lést laugardaginn 13. október,
verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni fóstudaginn 19. október ld.
10.30.
Sigvaldi Kristinsson, Eyjavöhum 1,
Keflavík, sem lést á Landspítalanum
9. okt. sl., verður jarðsettur frá Kefla-
vikurkirkju föstudaginn 19. október
kl. 14.
Ólafur Þórðarson tohvörður lést 10.
október. Hann fæddist á ísafirði 23.
maí 1932, sonur hjónanna Kristínar
Magnúsdóttur og Þórðar Jóhanns-
sonar. Ólafur nam bakaraiðn og
starfaði sem bakari á ísafirði um
skeið og síðar sem tohvörður vestrá.
Eftirlifandi eiginkona hans er Ragn-
hhdur Guðmundsdóttir. Þau hjönin
eignuðust fjóra syni. Útför Ólafs
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 15.
Bestu þakkir til vina og vandamanna sem
glöddu mig á 75 ára afmæli mínu og gerðu
mér daginn ógleymanlegan.
Lifiö heil.
JÓN GUÐMUNDSSON
t
Þökkum afalhug samúð og stuðning við fráfall og
útför sonar okkar, bróður og mágs
Jóns Trausta Aðalsteinssonar
Miðási 3, Raufarhöfn, sem lést afslysförum 29. sept.
síðastliðinn.
Aðalsteinn Sigvaldason Sigríður Hrólfsdóttir
Sigvaldi Ómar Aðalsteinsson Björg Sigríður Óskarsdóttir
>-
Hapstætt verð
Langholtsvegi 111
Sími 687090
RJUPNASK0TI
ÚRVAU
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990.
Unnur Þorbjörnsdóttir, Eyjaholti 6a,
Garði, verður jarðsungin frá Út-
skálakirkju laugardaginn 20. október
kl. 14.
Björn Scheving Arnfinnsson, Hraun-
bæ 160, Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Akraneskirkju föstudaginn
19. október kl. 11.
Karl Jakob Hinriksson, Mararbraut
21, Húsavík, verður jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju laugardaginn 20.
október kl. 14.
Hjörtur L. Jónsson Ásvallagötu 57,
Reykjavík, andaðist fóstudaginn 12.
október. Útförin fer fram frá Foss-
vogskapellu föstudaginn 19. október
kl. 15.
Elísabet Árnadóttir er látin. Hún var
fædd í Gerðakoti á Miðnesi 12. nóv-
ember 1896, dóttir Elínar Ólafsdóttur
og Áma Eiríkssonar. Hún giftist
Óskari J. Þorlákssyni, dómprófasti í
Reykjavík, en hann lést fyrir
skömmu. Þau eignuðust tvo drengi
og er annar þeirra á lífi. Útför Ehsa-
betar verður gerð frá Dómkirkjunni
í dag kl. 13.30.
Tilkynningar
ITC deildin Irpa
heldur afmælisfund í kvöld að Brautar-
holti 30 kl. 20.30. Allir velkomnir, sérstak-
lega stofnfélagar. Upplýsingar í s. 656373
hjá Ágústu og 656121 hjá Guðrúnu.
Aðalfundur sjálfboðaliða-
samtaka um náttúruvernd
Sjálfhoðaliðasamtök um náttúruvemd
minna félaga sína á aðalfundinn sem
verður haldinn í Flensborgarskóla í
Hafnarfirði laugardaginn 20. okt. kl. 14.
Ásamt venjulegum aðalfundarstörfum
verður sagt trá vinnuferðum sumarsins
í máli og myndum. Nýir félagar velkomn-
ir.
+ Brothers á Stöngin-lnn
+ Brothers sjá um fjörið á Stöngin-Inn í
Sportklúbbnum á smáaurakvöldinu í
kvöld. Allt á spottpris.
Félag eidri borgara
Margrét Thoroddsen frá Tryggingastofn-
un ríkisins verður til viðtals í dag að
Nóatúni 17 frá kl. 14. Opið hús í Goð-
heimum, Sigtúni 3, í dag fimmtudag, kl.
14 frjáls spilamennska, ki. 19.30 félags-
vist, kl. 21 dansað.
Happdrætti Hjartaverndar
Dregið var í happdrætti Hjartavemdar
12. október sl. hjá borgarfógeta. Vinning-
ar féllu þannig: 1. Til íbúðakaupa kr.
1.500.000 á miða nr. 93.233, 2. Bifreið,
Galant, hlaðbakur, sjálfs., 1990, á miða
nr. 57.779. 3.-5. Vinningar til íbúðakaupa
á kr. 500.000 hver, á miða nr. 49.328,59.901
og 90.116. 6.-15.10 Vinningar til bifreiða-
kaupa hver á kr. 450.000 á miða nr. 16.137,
23,356, 25.048, 25.448, 30.707, 31.500, 48.838,
59.579,84.292 og 94.720. Vinninga má vitja
á skrifstofu Hjartavemdar að Lágmúla
9,.3. hæð, sími 83755.
Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir,
heiðraði Hanne Juul
Vísnasöngkonan Hanne Juul tók á móti
norrænum styrk úr hendi forseta ís-
lands, Vigdísar Finnbogadóttur, við há-
tíðlega athöfn í menningarmiðstöðinni
„Blá stáilet" í Gautaborg í september.
Hanne Juul frá Vánersborg hlaut nor-
rænan styrk ársins 1990 að upphæð 10.000
sænskar krónur frá Föreningen Nordens
stiftelse Bohusgárden.
Ráðstefnur
Ráðstefna myndlista-
og handíðaskóla
á Norðurlöndunum
Dagana 19.-21. október stendur nem-
endafélag Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands fyrir ráðstefnu allra myndiista- og
handíðaskóla á Norðurlöndunum. Þetta
er þriðja ráðstefhan sem haldin er á veg-
um skólanna en skólamir hafa skipst á
að halda þær. Nú þegar hefur töluverður
fiöldi skráð sig til þátttöku á ráðstefnuna
frá Norðurlöndunum. Markmið ráð-
stefnu sem þessarar er að nemendur og
kennarar geti séð hvað aðrir skólar á
Norðurlöndum em að fást við, en mikil
áhersla er lögð á að skólamir kynni sína
starfsemi á ráðstefnunni. Einnig verður
fyrirlestur um íslenska torfhleðslu sem
Tryggvi Hansen mim flytja, svo og verður
gestunum boðið í skoðunarferð til þess
að kynnast íslenskri náttúm. Allt ráð-
stefnuhaldið fer fram í húsakynnum
Myndiista- og handíðaskólans og munu
erlendir gestir gista í heimahúsum hjá
nemendum skólans. Ráðstefnunni lýkur
formlega sunnudaginn 21. okt. kl. 15.
Tapað fundið
Gull múrsteinsarmband
tapaðist. Finnandi vinsamlegast hafi
samband í síma 39634.
Muddy Fox hjól tapaðist
Skærappelsínugult, 21 gira Muddy Fox
drengjareiðhjól var tekið úr porti fyrir
utan Njálsgötu 69 aðfaranótt miðviku-
dagsins sl. Ef einhver veit hvar hjóhð er
niðurkomið, þá vinsamlegast hafið sam-
band í síma 14724.
Fjölmiðlar
Klukkan sjö á hverjum morgm
glymur leiðinleg klukknahringing á
samtengdum rásum Ríkisútvarps-
ins. Undirritaöur þarf að hafa
áhyggjur af því á hverjum morgni
að þessi fáránlega klukknahringing
veki ekki þá á heimilinu sem eru í
fastasvefni klukkan sjö á morgnana.
Vegna þorsta í fréttir er undirrit-
aöur oftast búinn að kveikja á út-
varpi fyrir klukkan sjö. Ef ég er
ekki búinn að sinna nauösynlegum
morgunverkum nývaknaðs manns
og ekki staddur nærri útvarpinu
þegar klukkurnar byrja að slá er
eina leiöin að stökkva eins hratt og
hægt er að viðtækinu til að koma í
veg fyrir að annaö heimilisfólk
vakni upp viö hávaðann.
Þetta leiðinlega hljóö virkar mjög
hátt þegar fáir eru komnir á ról og
þegar blokkin er að mestu enn í
fastasvefni Það er ekki hægt að sjá
neína ástæðu fyrir klukknahring-
ingu á þessum tima dags. Sama má
segja um sömu klukku þegar hún
hringir klukkan tólf á hádegi.
Þeir sem eru sofandi klukkan sjö
og missa því af sjöfréttum útvarps-
ins og hlusta i þeirra stað á yfirlit
morgunfrétta klukkan hálfátta á
morgnana sleppa við ldukknahring-
ingu en fá í hennar staö ansty ggilegt
hanagal. Að mínu viti eru
klukknahringingarnar og hanagalið
það ömurlegasta sem er á dagskrám
allra útvarpstöðva landsins.
Reyndar hef ég oft spur t sj álfan
mig hvers vegna ég er að hafa s vo
mikið fyrir að hlusta á sjöfréttimar.
Það verður að segjast eins og er að
varla er hægt að hugsa sér lakari
fréttatíma. Það er að vísu misjafnt
eftir því hvaða fréttamaöur er á
vakt. Flestir láta sér nægja að þýða
erlend fréttaskey ti og lesa Moggann.
Það er, eins og áður sagði, vand-
fundinn lakari fréttatimi nema ef
vera skyldi ellefufréttir Sjónvarps-
insígærkvöldi.
Sigurjón M. Egilssori