Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1990, Qupperneq 24
■ ______________________
HAUSTTILBOÐ
A HUOMTÆKJUM
KENWOOD
Wharfedale
ÁRMÚLA 17 - SÍMI 685149 - 688840
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 1990.
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum
fer fram i dómsal embættisins
að Miðbraut 11, Búðardal,
á neðangreindum tíma:
Búðarbraut 3, Búðardal, þingl. eig.
Kristjana Guðmundsdóttir, miðviku-
daginn 24. okt. ’90, kl. 11.00. Uppboðs-
beiðendur eru Guðmundur Knstjáns-
son hdl. og Helgi Jóhannesson hdl.
Hóll, Hvammshreppi, þingl. eig. Ámi
Ingvarsson og Júhus Baldursson, mið-
vikudaginn 24. okt. ’90, kl. 10.00. Upp-
boðsbeiðendur eru Veðdeild Lands-
banka íslands, Tryggvi Bjamason
hdl.,. Búnaðarbanki Islands, veðdeild
og Ásgeir Thoroddsen hrl.
Skarðsá, Skarðshreppi, þingl. eig.
Unnsteinn B. Eggertsson, miðviku-
daginn 24. okt. ’90, kl. 14.00. Uppboðs-
beiðendur em Jón Finnsson hrl.,
Helgi V. Jónsson hrl., Eggert B. Ólafe-
son hrl., Innheimtustofnun sveitarfé-
laga og Innheimta ríkissjóðs í Dala-
sýslu.
Sýslumaður Dalasýslu
Ýmislegt
Nýjar perur, frábœrir Ijósabekklr, 10
tíma kort kr. 2.490.
■ Ferðalög
Smáauglýsingar - Sími 27022 Menning
Húsgögn
... og þá byrjar ballið
V-þýsku Bypack fataskáparnir nýkomn-
ir. Yfir 40 gerðir. Litir svart, hvítt og
eik, með eða án spegla. Hagstætt verð,
frá kr. 12.400. Nýborg, Skútuvogi 4,
sími 82470.
Varahlutir
DEMPARAR
V
I
MAZDA
TOYOTA
NISSAN
DAIHATSU
HONDA
Ásamt úrvall i aðrar gerðlr. Gæði og
verð í sérflokki. Sendum í póstkröfu.
• Almenna varahlutasalan hf., Faxa-
feni 10, 108 Rvík (húsi Framtíðar),
símar 83240 og 83241.
■ BQar til sölu
Ford Extra Cab XLT, árg. ’84, 4x4, dís-
il, 6,9 lítra, sjálfskiptur, ekinn 81.000
mílur, 6 manna, 4" trailmaster upp-
hækkun o.fl. o.fl. (Vsk-bifreið.) Til
sýnis og sölu á Bílasölunni Braut,
Borgartúni 26, símar 91-681502,
91-681510, hs. 91-30262.
Tll sölu LandCruiser, árg. '80,
8 cyl., 360 cub., 4 gíra, vökvastýri,
spil, loftlás að aftan, körfustólar, 200
lítra bensíntankur o.fl. Uppl. í síma
91 46091 e.kl. 18.
Til sölu er Ford E-350 cargo '85, extrs
langur, 6,9 1 dísill, sjálfsk., afistýri,
FM segulbt., Dana 60 að aftan. Bif-
reiðin er í toppstandi, vélin nýupptek-
in hér á landi. Skoðaður með dísil-
mæli. VSK endurgreiðanlegur til
rekstraraðila. Uppl. í Bílahöllinni,
Bíldshöfða 7, s. 674949 og 688810 á kv.
Chevrolet Belalr, árg. '57, 4ra dyra,
hardtop, 8 cyl. 283, powergliteskipt-
ing, fafiegur bíll. Uppl. í síma 91-
688177 og 91-622969 eftir kl. 18.
Chevy van, árg. '77, til sölu. í ágætu
lagi, (innréttingar vantar). Uppl. í
síma 667693 eftir kl. 19.
í gamla daga enduðu ævintýrin á því að haldið var
veglegt brúðkaup og ekkert skyggði á hamingju elsk-
endanna upp frá því. Nú á dögum giftast þau að vísu,
... en þá fyrst byijar ballið!
Og sýningin á leikritinu „Ég er hættur! Farinn!“
byijar í stíl við þessi ummæli (úr leikritinu) - á balli
þar sem sex pör á ýmsum aldri stíga fjörugan dans.
En ekki er allt sem sýnist og í framvindu verksins er
skyggnst inn í heim nútímamannsins og tæpt á tog-
streitunni og tvískinnungnum í lífi okkar, sem gerir
hamingjuleitina svo erfiða.
Firringu og sambandsleysi er stillt upp gegnt þeirri
frumþörf mannsins að hafa einhvem til að halla sér
að, einhvem til að hugga (konumar), einhvem til að
hugga sig (karlamir) og einhvem til að elska (bæði
karlar og konur).
Persónumar era leiksoppar örlaganna og þær eru
líka leikbrúöur höfunda sýningarinnar. Hver og ein
lifir í ákveðnu tómarúmi en leiðir þeirra skerast og
fléttast á ýmsa vegu líkt og í dansinum.
Guðrún Kristín Magnúsdóttir vann fyrstu verðlaun
fyrir leikritið „Ég er hættur! Farinn!“ í samkeppni
Leikfélags Reykjavíkur sem haldin var vegna vígslu
Borgarleikhússins.
Form v'erksins er opið og þó að það fjalli í höfuðdrátt-
um um hjónaskilnað þeirra Bergþóru og Ásláks, og
áhrif hans á fjölskyldu og nánasta umhverfi þeirra,
er viðfangsefnið ekkert síður mismunandi afstaða og
viðhorf kynjanna til lífs og tilvera í nútíma þjóðfélagi
með vissri tengingu til fortíðar.
Persónumar era hver fyrir sig fyrst og fremst hluti
af heild, konurnar mynda eina blokk og karlarnir
aðra. Og það verður að segjast að þrátt fyir efasemdir
og vangaveltur koma konumar mun sterkari og sjálf-
stæðari frá þessari meðhöndlun en karlamir.
Afstaða og viðhorf kvennanna era túlkuð af þeim
Bergþóra og Emblu, sem era málpípur höfundar, og
hins vegar Lillý og Dúddý, en þær fylla upp í myndina
með lífssögum úr annarri átt og ólíkum skoðunum.
Ungu stúlkurnar tvær, Siss og Karólína, era ómótaðri
persónur og í raun eftirsjá í því að þeirra raddir skuli
ekki heyrast mun skýrar í verkinu til mótvsaás.
Karlarrjr. fs niiSjSÍYlS utreio. Áslákur er fyrirferðar-
mestur og hann og herra Dúdd era kómískar persón-
ur. Hins vegar færa þeir Heiöbjartur og afi tregabland-
inn tón inn í verkið. Og svo era það fulltrúar ungu
kynslóðarinnar, Runki og Siggi era að sínu leyti
ákveðnari persónur en stöllur þeirra, Karólína og Siss.
Leikritið er byggt upp af laustengdum atriðum þar
sem bragðið er upp svipmyndum sem síðan raðast
saman. Þekkt aðferð og býður upp á ýmsa möguleika,
en gerir um leið miklar kröfur um vandaða.og meðvit-
aða úrvinnslu.
Það hefði ekki skaðað að leikritið hefði haft fastmót-
aðri grunn og skýrari stefnu, því að vægi atriðanna
verður óneitanlega nokkuð misjafnt. Sum þeirra era
hnitmiðuð og mörg smellin, lágværir ljóörænir kaflar
koma inn á milli atriða þar sem meira er að gerast,
en svo koma á milli atriði sem virka nánast eins og
uppfylling.
Við úrvinnsluna koma aðrir höfundar sýningarinnar
sterkt inn í myndina því að þeir Guðjón Pedersen leik-
stjóri, Hafliði Amgrímsson dramatúrg, Grétar Reynis-
son, höfundur leikmyndar, og Egill Árnason, sem
hannar lýsingu (með þeim Guðjóni og Grétari), kippa
þessu ferli út úr hefðbundnu umhverfi.
Þaö er varla ofmælt að segja að framlag þeirra, list-
ræn úrvinnsla og hnitmiðuð vinnubrögð, lyfti þessari
sýningu upp á hærra plan og geri hana að sannri upp-
lifun fyrir leikhúsglaða áhorfendur.
Þeir Guðjón og Hafliði hafa unnið náið saman um
alllangt skeið og þetta er þriðja verkið sem þeir setja
á svið með Grétari.
Vissulega má greina ákveöna þróun í þessum verk-
um og jafnvel beinan skyldleika við fyrri verkefni. En
hér takast þeir á við frumflutning á nýju verki við
fullkomnustu aðstæður og nýta það að sjálfsögðu.
Um leikmynd og lýsingu mætti skrifa langt mál, þó
að ekki sé rúm til þess hér. Þar er líka sjón sögu rík-
ari og margar lausnir snjallar, aðrar fallegar, og eins
og tilefnið er til, fleiri „glansnúmer" í úrlausnunum
en áður hafa sést í verkum Grétars Reynissonar.
í upphafi sýningarinnar koma leikendumir einn og
einn inn á sviðið og raða sér við eins konar glugga-
vegg, þar sem þeir horfa fram í salinn, svolítið hissa
á þessu öllu saman.
Hlutverkin eru óvenjulegajöfn, en alls era leikendur
Edda Heiðrún Backman i hlutverki sínu í Ég er hætt-
ur, farinn. DV-mynd BG
tólf. Hanna María Karlsdóttir leikur Bergþóra og skap-
ar bráðgóða og heilsteypta mynd af ósköp „venju-
legri“ konu. Leikurinn er afslappaður og trúverðugur
hvort sem hún er glöð eða döpur og þetta lykilhlut-
verk gæti ekki verið betur unnið. Sigurður Skúlason
leikur eiginmanninn Áslák sem hugsar sér gott til glóð-
arinnar í nýfengnu frelsi en er áður en hann veit af
lentur aftur á milli tveggja kvenna. Sigurður leikur
sér að því að ná öllum tilbrigöum út úr hlutverkinu
sem er eins og áður kom fram á léttum nótum.
Áslákur tekur saman við LOlý, þegar hann er laus
úr hnappheldunni, Hún er hin dæmigerða sjálfstæða
og frjálsa koná! Eða hvað? Edda Heiðrún Backman
leikur Liilý og túlkaði lágværari kaflana vel en var
dálítið yfirspennt á köflum. Sama var um Ragnheiði
Amardóttur, sem að öðru leyti fór vel með hlutverk
Dúddíar. Þröstur Guðbjartsson lék eiginmann hennar,
herra Dúdd, sem er búinn að sætta sig við það að ná
frama í gegnum eiginkonuna. Þröstur gerði sér góðan
mat úr hlutverkinu. Þau Guðrún Asmundsdóttir,
Embla, Karl Guðmundsson, afi, og Eggert Þorleifsson,
Heiðbjartur, léku á lágum nótum af innsæi og tilfinn-
ingu, hvert öðra betra.
I hlutverkum ungu kynslóðarinnar voru þau Helgi
Bjömsson, afbragð í hlutverki Runka, Harpa Arnar-
dóttir, Stefán Jónsson og Bára Lyngdal Magnúsdóttir,
sem öll gerðu vel.
Sýningin er krydduð með tónlist úr ýmsum áttum
og var flutningur lagsins „Alparós" orðinn fréttamatur
í gær. Hvernig sem það mál fer var tónlistin vel valin
og lífgaði upp á sýninguna.
Leikfélag Reykjavfkur sýnir á stóra sviðl Borgarleikhússins:
ÉG ER HÆTTURI FARINN! (Er ekkl með I svona asnalegu
lelkrltl.)
Höfundur: Guðrún Kristin Magnúsdóttir.
Leikstjórn: Guðjón P. Pedersen.
Dramatúrg: Hafliði Arngrímsson.
Leikmynd og búningar: Grétar Reynisson.
Aðstoð við búninga: Stefanía Adolfsdóttir.
Lýsing: Egill Árnason, Grétar Reynisson, Guðjón P. Pedersen.
-AE
Leiklist
Auður Eydal
Isienskt hótel f Lúx. Við erum í Mósel-
dalnum, mitt á milli Findelflugvallar
í Lúx. og Trier í Þýskalandi (20 km
frá flugvelli, 17 km frá Trier). Gestum
ekið til og frá flugv. endurgjaldslaust
ef óskað er. Útvegum rútur (litlar og
stórar), með bflstjóra, á mjög góðu
verði. Aðstoðum gesti okkar eftir
bestu getu. Hjá okkur eruð þið í
öruggum höndum. Hotel Le Roi Dago-
bert, 32 Rue de Treves, 6793 Greven-
macher, Luxemburg, sími (352) 75717
og 75718, telexnr. 60446 Dagob-Lu.
Þessl stórglæsllega Toyota Corolla
liftback GTI-16, árg. 1988, er til sölu.
Bíllinn er í sérfiokki og ekinn 29.000
km, með hörkumiklum hljómtækjum
o.fl. Uppl. í síma 91-686168 eða til
sýnis á Bflasölunni Blik.
r _
T7 T? Tfmsrlt lyrlr «n« Tl
Qlffwall
- verðíð heftir
lækkað