Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1990, Blaðsíða 26
34
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 1990.
Afmæli
Baldur G. Johnsen
Baldur Garðar Johnsen, læknir,
DPH og fyrrv. prófessor og forstöðu-
maður Heilbrigðiseftirlits ríkisins,
Skeljatanga 7, Reykjavík, er áttræð-
urídag.
Starfsferill
Baldur fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Vestmannaeyjum frá eins árs
aldri og til fermingar hjá móð-
urömmu sinni, Guðrúnu á Sveins-
stööum. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR1930 og embættisprófi í læknis- •
fræði við HÍ1936. Baldur stundaði
framhaldsnám í Danmörku 1936-38
og var þar kandidat á sjúkrahúsum,
stundaði framhaldsnám í heilbrigð-
isfræði í Lundúnum 1947^9,
diploma (DPH), en hann öðlaðist
sérfræðiviðurkenningu í hagnýtri
heilbrigðisfræði 1950, stundaði
framhaldsnám í Chicago 1965 á spít-
ala fyrir meðfædda hjartagalla og
öðlaðist sérfræðiviðurkenningu í
vefjameinafræði 1966.
Baldur var héraðs-, spítala-, og
starfandi læknir á Flateyri 1935, í
Ögri við Djúp 1938—42, á ísafirði
1942-50 og í Vestmannaeyjum
1951-60.
Hann stundaði kennslu: og vís-
indastörf við Háskóla íslands og
Hússtjómarkennaraskóla íslands
fráil961-80.
Árið 1970 var Baldur ráðinn til að
veita forstöðu og byggja upp nýja
stofnun, Heilbrigðiseftirlit (nú Holl-
ustuvemd) ríkisins. Því fylgdu
mörg nýmæh, svo sem starfsleyfi
fyrirtækja og að semja nýja heÚ-
brigðisreglugerð fyrir landið í heild
ífyrsta sinn.
Félagsmál
Baldur var formaður íþróttafélags
stúdenta 1932, einn frumkvöðla að
stofnun Félags læknanema við HÍ
og í stjórn þess um skeið, sat í stúd-
entaráði HÍ1932-34 og var formaður
þess 1933-34, sat í bæjarstjóm ísa-
fjarðar, lengst af sem varaforseti,
1946-50 er hann flutti til Vestmanna-
eyja, stofnaði Golfklúbb ísafjarðar
1943, Læknafélag Vestfjarða 1940 og
Skógræktarfélag ísafjarðar 1945,
stofnaði Rotary-klúbb Vestmanna-
eyja 1956, flutti eftir tuttugu og fimm
ára starf í héraðum til Reykjavíkur
þar sem hann réðst til Rannsóknar-
stofu HÍ og Landspítalans við Bar-
ónsstíg.
Baldur var ritstjóri Fréttabréfs
um heilbrigðismál 1961-64, sat í
Manneldisráði 1974-78, sat í nefnd
um matargjafir skólabama 1981-83,
situr í stjórnskipaöri nefnd um
kvartanir almennings við heilbrigð-
isþjónustu, var fuUtrúi Læknafélags
íslands á þingi The Health Com-
mission og Austrian U.N. Associati-
on 1954, auk þess sem hann hefur
verið fulltrúi íslands á fjölda al-
þjóðlegra ráðstefna um ferða-, heU-
brigðis- og mengunarmál.
Meðal rita Baldurs má nefna Obs-
ervations of the Vegetation og the
Westman Islands, rit Vísindafélags-
ins 1939; Heilbrigði úr hafdjúpinu,
útg. 1958; Eleven Centuries of Food
and Health in Iceland with Special
Reference to Caries Dentii, rit
manneldisráðs II, útg. 1978. Þáþýddi
hann m.a. ritið Vöxtur og þroski í
alfræðisafni AB, útg. 1967. Baldur
hefur skrifað fjölda greina og rit-
gerða um heilbrigðismál og önnur
málefni í íslensk og erlend tímarit
sbr skrá yfir rit háskólakennara.
Þá hefur hann haldið fjölda fyrir-
lestra í útvarp um rannsóknir sínar
á matarræði Islendinga að fomu og
nýju.
Fjölskylda
Baldur kvæntist 11.4.1936 Jó-
hönnu Jóhannsdóttur, f. 28.10.1908,
söngkonu og söngkennara. Faðir
Jóhönnu var Jóhann, b. á Möðru-
völlum iEyjafirði, sonur Jóhannes-
ar, b. á Granastöðum í Kinn, og Álf-
heiðar Bjömsdóttur, af Ulugastaða-
ætt. Móðir Jóhönnu var Guðrún
Skúladóttir frá Sigríðarstöðum.
Baldur og Jóhanna eiga fjögur
böm. Þau era Björn Baldurs, f. 24.9.
1936, hefisugæslulæknir í Hvera-
gerði, kvæntur Guðbjörgu Guð-
mundsdóttur meinatækni og eiga
þau þrjú börn; Sigfús Jóhann, f. 27.4.
1940, prófessor í jarðeðUsfræði við
HÍ, kvæntur PáUnu Kristinsdóttur
skrifstofumanni og eiga þau þijú
börn; SkúU Guðmundur, f. 30.9.1941,
borgarlæknir í Reykjavík, kvæntur
Stefaníu Stefánsdóttur kennara og
eiga þau þijú böm, og Anna, f. 13.1.
1946, kennari í Reykjavík, gift Vil-
hjálmi Þ. VUhjálmssyni, lögfræðingi
og borgarráðsmanni og eiga þau
þrjú börn.
Foreldrar Baldurs voru Sigfús
Maríus Jóhannsson Johnsen, f. 28.3.
1886, d. 9.1.1974, stjómarráðsfulltrúi
og síðar bæjarfógeti í Vestmanna-
eyjum, og Sigurveig Guðrún Sveins-
dóttir, f. 10.1.1887, d. 29.3.1972, hús-
móðir.
Ætt og frændgarður
Bróðir Sigfúsar var Guðni Hjört-
ur, faðir Friðþjófs, skattstjóra í Vest-
mannaeyjum. Annar bróðir Sigfús-
ar var Árni, afi þeirra Árna Sigfús-
sonar, borgarfuUtrúa og fram-
kvaemdastjóra Stjómunarfélagsins,
ogÁrna Johnsen, fyrrv. alþingis-
manns. Sigfús var sonur Jóhanns
Jörgen Johnsen, kaupmanns og út-
gerðarmanns í Vestmarinaeyjum,
Johanssonar, J. Johnsen, kaup-
manns í Flensborg í Hafnarfirði og
viö Papós. Móðir Jóhanns Jörgens
var Guðfinna Jónsdóttir, prests í
Vestmannaeyjum, Austmanns.
Móðir Jóns Austmanns var Guðný
Jónsdóttir, eldprests Steingríms-
sonar. Móðir Sigfúsar var Anna Sig-
ríður, dóttir Áma, b. frá Hofi í Öræf-
um og Steinunnar Oddsdóttur.
Sigurveig er systir Júhönu Ust-
málara, systurbam við Guðjón
Samúelsson húsameistara og móðir
Sveins Björnssonar Ustmálara.
Bróðir Sigurveigar var Sveinn,
framkvæmdastjóri Völundar, faðir
þeirra Völundarbræðra, Sveins for-
stjóra, Leifs lögfræðings og Harald-
ar, framkvæmdastjóra Árvakurs.
Sigurveig var dóttir Sveins, tré-
smíðameistara í Reykjavík, Jóns-
sonar, b. á Steinum undir Eyjaíjöll-
um, Helgasonar. Móðir Sveins Jóns-
Baidur Garðar Johnsen.
sonar var Guðrún, systir Ólafs guU-
smiðs, langafa Georgs verðlags-
stjóra. Guðrún var dóttir Sveins, b.
á Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum
ísleifssonar, b. þar, Jónssonar. Móð-
ir ísleifs var Vigdís, systir HUdar,
ömmu Þorsteins í Núpakoti, langafa
Eggerts Haukdal. Önnur systir Vig-
dísar var Þuríður, langamma Jens-
ínu, móður Ásgeirs Ásgeirssonar
forseta. Móðir Guðrúnar Sveins-
dóttur var Sigríður Nikulásdóttir.
Móðir Sigríðar var Elín Þórðardótt-
ir frá Hlíðarhúsum í Reykjavik.
Móðir Elínar var Ingiríður, lang-
amma Ingigerðar á Eyrarbakka,
langömmu Páls, fóður Þorsteins,
formanns Sjálfstæðisflokksins.
Ingiríður var dóttir Ólafs Thorlaci-
usar, prests í Stóradal undir Eyja-
fjöllum, Jónssonar, sýslumanns í
Suður-Múlasýslu, Jónssonar, sýslu-
manns þar, Þorlákssonar, biskups á
Hólum, Skúlasonar. Móðir Þorláks
biskups var Steinunn Guðbrands-
dóttir, biskups á Hólum, Þorláks-
sonar.
Baldur er að heiman á afmælis-.
daginn.
Einar Erlendsson
afmælið 22. október
Einar Erlendsson bifreiðarstjóri,
Naustahlein 17, Garðabæ.ersjötíu
og fimm ára í dag. Einar fæddist að
Giljum í Hvolhreppi og ólst upp í
Vestmannaeyjum. Hann vann við
verslunarstörf hjá Ræsi hf. 1942-
1962 og var leigubílstjóri hjá Bæjar-
leiðum 1955-1989.
Fjölskylda
Einar kvæntist 2. maí 1940 Ingi-
björgu Þorsteinsdóttur, f. 2. október
1925. Foreldrar Ingibjargar: Þor-
steinn Tyrfingsson, b. í Rifshalakoti
í Ásahreppi, og Guðbjörg Bjama-
dóttir. Börn Einars og Ingibjargar
eru Hinrik, f. 1945, húsasmíðameist-
ari, kvæntur Helgu H. Magnúsdótt-
ur, f. 1948, skrifstofumanni; ogeiga
þau þrjú börn: Heiðar, f. 1968, Hjört,
f. 1977 og Hafdísi Ingu, f. 1981; Grét-
ar, f. 1947, bifreiðarstjóri, kvæntur
Guðnýju Stefánsdóttur, f. 1956,
sjúkraliða, þau eiga þrjú böm: Eddu
Sóleyju, f. 1979, Áma, f. 1982 og
Hildi, f. 1988; Eygló, f. 1949, húsmóð-
ir, var gift Bjama Jóhannessyni, f.
1947, d. 1983, böm þeirra era Guð-
björg, f. 1971, Einar, f. 1974, Amar,
f. 1978 og Ingibjörg Bjarney, f. 1983.
SambýUsmaður Eyglóar er Haukur
Reynisson, f. 1953, málarameistari,
dóttir þeirra er Eva, f. 1989; Bára,
f. 1955, húsmóðir, gift Gunnari
Bjamasyni, f. 1954, rafeindavirkja,
þau eiga íjögur böm: Bjama, f. 1980,
Andra, f. 1984 og Ömu Björk, f. 1986;
Erlendur Steinar, f. 1961, afgreiðslu-
maður; Haraldur, f. 1965, smiður,
sambýliskona hans er Gerður
Kristjánsdóttir, f. 1962, bankastarfs-
maöur, sonur þeirra er Steinar, f.
1988, og Jóhanna, f. 1967, skrifstofu-
maður, sambýUsmaður hennar er
Ársæll Ársælsson, f. 1965, tollvörö-
ur, sonur þeirra er Ársæll Einar, f.
1989.
Systkini Einars: Ólafur, f. 1898,
látinn, sjómaður í Hafnarfirði; Guð-
rún, f. 1900, d. 1981, gift Jóni Guð-
mundssyni, b. á Norðurgarðií
Mýrdal; Erlendur, látinn, veitinga-
maður á RöðU, flutti til Ameríku;
Haraldur, sjómaður í Rvík; Jón,
veitingamaður í Rvík; Leifur, þjónn;
Þuríður, f. 8. febrúar 1914, d. 13. sept-
ember 1983, húsmóðir í Rvík, og
Erlendur, f. 1917, bifreiðarstjóri á
Hreyfli.
Ætt
Foreldrar Einars: Erlendur Jóns-
son, smiður á Giljum í Hvolhreppi,
og kona hans, Jóhanna Einarsdótt-
ir. Föðurbróður Einars var Kristján,
trésmiður í Vestmannaeyjum, faðir
Oddgeirs tónskálds, bróður Maríu,
móður Sigurðar Einarssonar, prests
og skálds í Holti. Móðursystir Mörtu
var Aðalheiður, amma Áka Gránz,
málara í Njarðvík. Erlendur var
sonur Jóns, b. og rokkasmiðs á Arn-
geirsstöðum í Fljótshlíð, Erlends-
sonar, b. á Heylæk í FljótshUð, Pét-
urssonar. Móðir Maríu var Margrét
Ámadóttir, systir Sveins, afa Sveins
Jónssonar, búreiðarstjóra á BSR, og
Gunnars Markússonar, skólastjóra
Einar Erlendsson.
í Þorlákshöfn og langafa Óskars Sig-
urjónssonar, forstjóra Austurleiðar.
Margrét var dóttir Árna, b. á Arn-
geirsstöðum, Jónssonar, b. á Syðra-
Gróf í ViUingaholtshreppi, Magnús-
sonar.
Móðurbróðir Einars var Guöjón í
Breiðholti í Vestmannaeyjum, faðir
Áma hrl. og Karls alþingismanns í
Vestmannaeyjum. Jóhanna var
dóttir Einars, b. í HaUgeirsey í Land-
eyjum, Sigurðssonar, b. í HaUgeirs-
ey, Einarssonar, b. í Hallgeirseyjar-
hjáleigu, Þorsteinssonar, b. í
Þykkvabæ í Landbroti, Ólafssonar,
b. í Þykkvabæ, Þorsteinssonar, b. í
Ytra-Hrauni, Ólafssonar, b. á Steins-
mýri, Jónssonar gamla, b. á Steins-
mýri, Eiríkssonar.
Guðmundur Jóhannesson,
Svínavatni, Svínavatnshreppi.
Sigríður Gísiadóttir,
Brekku Ht, Búlandshreppi.
Hansína Hannibalsdóttir,
Þinghólsbraut 28, Kópavogi.
Andrea Ingibjörg Sigurðardóttir,
Hátúni 10B, Reykjavík.
Kristín Ólafsdóttir,
Safamýri 42, Reykjavik.
Axel Siggeirsson,
Hverfisgötu 49, Reykjavík.
Hjaiti Svanlaugsson,
Ljósheimum 10, Reykjavík.
Kristján Margeir Jónsson,
Þórunnarstræti 134, Akureyri.
Ágúst Lýðsson,
Reykjarfirði, Árneshreppí.
Björg Anna Sigvaldadóttir,
Snæfellsási 5, HeUissandi,
Gerður Björnsdóttir,
Leifsgötu 16, Reykjavík.
Kristbjörg Gunnarsdóttir,
Hafnarbyggð 11, Vopnafirði.
Júliana Tyrfingsdóttir,
Litla-Fþóti, Biskupstungnahreppi.
Þorsteinn Pétursson,
Hömrum, Reykholtsdalshreppi.
Heigi Antonsson,
Hvanneyrarbraut49, Siglufiröi.
Hilda G. Guðmundsdóttir,
Hellulandi 6, Reykjavik.
BirgirBjörnsson,
Kirkjubraut 34, Höfn í Hornafirði.
Sveinn Haildórsson,
Skógarlundi 11, Garðabæ.
40ára
Gunnar Guðjónsson,
Rauöalæk 51, Reykjavík.
Margrét A. Frederiksen,
Meistaravöllum 35, Reykjavík.
Sturla Rafn Guðmundsson,
Reynihvammi 8, Kópavogi.
Haraidur Bjargmundsson,
Æsufelli2, Reykjavík.
Eiísabet Kristinsdóttir,
Breiðvangi 22, Hafriarfirði.
Alexander Chelbat,
Laugateigi 34, Reykjavik.
/ /
AD BYRJA BUSKAP ER SMAIIIIAL
VIDHONDINA! s 27022