Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1990, Blaðsíða 28
36
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 1990.
TjJkyimingar Fundir
Hrafnista fær sjúkraþjálfunar-
bekk og æfingatæki
Nýlega afhentu Styrktar- og sjúkrasjóðir
Vélstjórafélags íslands og Sjómannafé-
lags Reykjavíkur, Hrafnistu, Reykjavík,
fullkominn sjúkraþjálfunarbekk og æf-
ingatæki, til notkunar í sjúkraþjálfunar-
sal heimilisins. Á myndirmi, sem er tekin
við athendingu tækjanna, eru frá vinstri:
Rafn Sigurðsson, forstjóri Hrafnistu, og
sjúkraþjálfamir Þórunn Bjömsdóttir og
Svanhildur Elentínusdóttir, Hrafnistu,
Reykjavik, Guðmundur HaUvarðsson,
formaður Sjómannafélags Reykjavíkur,
og Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé-
lags íslands.
Skemmtilegur sunnudagur
Gamla gufan bauð upp á fjöl-
breytta og skemmtilega dagskrá eft-
ir hádegi í gær. Fyrir mestu tilviljun
var rýnir með stillt á þá stöð og lagði
eyrun fljótlega við þætti Signýjar
Páisdóttur sem sagði sögur af starfs-
stéttum. Að þessu sinni ræddi hún
viö sjómenn, nokkra komna vel við
aldur. Signý skilaði sinu hlutverki
með prýði og hafði lag á að láta sjó-
mennina segja þannig frá aö land-
krabbar voru með á nótunum. Frá-
sagnir almúgafólks, sem Iifaö hefur
tímana tvenna, er ailtaf gott efni í
útvarpi.
Rikisútvarpið minnist nú 60 ára
afmælis síns og að loknum þætti
Signýjar var þáttur sem lýsti fýrstu
sporum fréttaþjónustu í útvarpi.
Skemmtilegur og fræðandi þáttur
um frumherja á þessu sviði sem
bjuggu við aörar og ófuilkomnari
aðstæður til fréttaöflunar en nú ger-
ist. Mögnuð var upptakan af fyrstu
lýsingu í Ríkisútvarpinu af vett-
vangi þegar Jón Magnússon fylgdist
með uppgreftrinum í Skálholti og
hvíslaöi til hlustenda þegar haus-
kúpa Páls biskups kom í Ijós undir
kistulokinu.
Svavar Gests tók síðan viö að
rekja sögu dægurtóniistar f sextíu
ár og lék upptökur úr safni útvarps-
ins sem sjaldan eða aldrei heyrast.
Svavar er án efa einhver fróðasti
maður á þessu sviði og veit ýmislegt
um tilurð hinna ýmsu laga sem
ýmist náðu hylli eða féllu fljótlega
í gleymskunnar dá. Aöalviðfangs-
efhi þáttarins var danslagakeppnin
árið 1939 en þar sigraðieitt laga Sig-
fúsar Halldórssonar sem löngu er
orðiðsigilt.
Eftir kiukkan ijögur var ieikin
þessi fíni djass með heistu meistur-
unum. Þegar hér var komið sögu
var ég lika búin að strauja og haföi
í raun alveg gieymt því hvaö það er
innilega leiðinlegt verk.
Jóhanna Á.H. Jóhannsdóttir
hún var uppkomin og átti þar alla tíð
heimih hjá Ragnhildi systur sinni.
Útför Ólafar veröur gerð frá Foss-
vogskapellu í dag kl. 13.30.
Námskeið
Námskeið í skyndihjálp
Námskeið í skyndihjálp verður haldið á
vegum Reykjavikurdeildar RKÍ. Það
hefst fimmtudaginn 25. október kl. 17 að
Fákafeni 11,2. hæð. Kennsludagar 25. og
29. okt. og 1. og 5. nóv. Þetta námskeið
er 16 kennslustundir. Öllum 15 ára og
eldri er heimil þátttaka. Á þessu nám-
skeiði verður m.a. kennd endurlífgun,
meðferð sára, skyndihjálp við bruna og
beinbrotum áuk margs annars. Auk of-
angreinds námskeiðs verður haldið end-
urmenntunamámskeið í skyndihjálp fyr-
ir almenning dagana 31. okt. og 6. nóv.
Þetta námskeið er ætlað fólki sem hefur
sótt námskeiö í skyndihjálp einhvem
tíma á síðustu 4 árum. Sérstaklega er
þetta námskeið hugsað fyrir þá sem hafa
lært skyndihjálp samkvæmt því kerfi
sem var tekið upp fyrir tveimur árum
og viija halda þekkingunni við. Leið-
beinandi á báðum námskeiðunum verður
Guðlaugur Leósson. Skráning á nám-
skeiðin verður í síma 688188. Athygli skal
vakin á því að Reykjavíkurdeildin útveg-
ar leiðbeinendur til að halda námskeið
fyrir skóla, fyrirtæki og aðra sem þess
óska.
Tórúeikar
Ljóðatónleikar í Gerðubergi
Núna þriðja árið í röð er að hefjast þriðja
ljóðatónleikaröðin á vegum menningar-
miðstöðvarinnar Gerðubergs. Fyrstu
tónleikamir á þessum vetri verða í kvöld,
22. október, kl. 20.30, Á þessum tónleikum
syngur Marta Guörún Halldórsdóttir,
sópran, við undirleik Jónasar Ingimund-
arsonar lög eftir Bizet, Rachmaninoff, svo
og Poulenc, Barber og Juaquu Niu.
Fjölmiðlar
Andlát
Oddbjörg Guðjónsdóttir, Hátúni 10,
andaðist í Landspítalanum 18. októb-
er.
Jarðarfarir
Útför Alfreðs Gíslasonar læknis
verður gerð frá Fossvogskirkju
þriöjudaginn 23. október kl. 13.30.
Karl Jónsson, sem lést þriðjudaginn
16. október á Kristneshæli, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 23. október kl. 13.30.
Útför Jóns Georgs Jónassonar, íra-
bakka 6, veröur gerð frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 23. október kl.
15.
Guðni Ragnar Þórarinsson, Víðiteigi
30, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn
þriðjudaginn 23. október kl. 13.30 frá
kirkju Óháða safnaöarins.
Ólöf Jónsdóttir lést 13. október. Hún
var fædd að Drangshlíðardal í Aust-
ur-Eyjafjallahreppi, Rangárvalla-
sýslu. Foreldrar hennar voru hjónin
Elín Kjartansdóttir og Jón Bárðar-
son. Ólöf fluttist til Reykjavíkur er
VETUR NÁLGAST
____LODFÓDRAÐIR ___
Merming
Tónleikar Skagf irsku
söngsveitarinnar
Skagfirska söngsveitin er 20 ára um þessar mundir
og af því tilefni hélt hún tónleika í Langholtskirkju á
laugardag. Á efnisskránni voru verk eftir skagfirska
höfunda, Pétur Sigurðsson, Eyþór Stefánsson, Jón
Bjömsson og Geirmund Valtýsson. Þá var flutt í upp-
hafi tónleikanna lagið Skagafjöröur eftir Sigurð Helga-
son. Sfjómendur kórsins vom þau Björgvin Þ. Valdi-
marsson, sem einnig annaðist kynningar, og Snæbjörg
Snæbjamardóttir. Olafur Vignir Albertsson lék undir
á píanó.
Sum laganna á efnisskránni em þjóðkunn en önnur
minna þekkt. Þau voru einnig töluvert misjöfn að
gæðum sem ef til viil kom ekki að sök við þessar að-
stæður þar sem tilgangurinn virtist sá að gefa yfiriit
yfir tónlistarlíf Skagfirðinga. Myndarlegur hópur ein-
söngvara kom fram með kómum og vom alhr úr hópi
kórfélaga nema einn, Óskar Pétursson. Aðrir sem
sungu einsöng vom Fríður Sigurðardóttir, Halla S.
Jónasdóttir, María K. Einarsdóttir, Svanhildur Svein-
bjömsdóttir og Guðmundur Sigurðsson. Sungu þau
bæði einsöng og tvísöng og má segja um alla söngvar-
ana að frammistaða þeirra var með ágætum.
Það var þó ekki hvað síst kórinn sjálfur sem gaman
var að hlusta á. Hljómurinn var fallegur og hreinn.
Styrkbrigði og túlkun var oft mjög góð og greinilegt
að hér var allt vel undirbúið og æft. Kórstjórinn Björg-
vin Þ. Valdimarsson haföi gott vald á tónlistinni auk
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
þess sem hann hefur mjög aölaðandi framkomu. Það
var vel til fundið að fá fyrri kórstjóra, Snæbjörgu
Snæbjarnardóttur, til að stjóma líka enda gerði hún
það af miklum skömngsskap. Handahreyfingar henn-
ar em sérlega tjáningarríkar og lét hún sig ekki muna
um að steyta hnefana þegar mest lá við.
Söngfélagið Drangey, sem er skipað eldra söngfólki
úr Skagfirsku söngsveitinni, kom einnig fram á tón-
leikunum og söng nokkur lög. Var gerður mjög góður
rómur að flutningi þess. í lokin sungu báðir kórar
sameinaðir. Undirtektir áheyrenda á tónleikum þess-
um voru mjög góðar og kirkjan var því sem næst full
af fólki.
Þess er oft getið hve tónlistarlíf stendur með miklum
blóma víða úti á landsbyggðinni og vom þessir tónleik-
ar ánægjuleg staðfesting þess. Kórmenning íslendinga
er löngu rótföst. Það er styrkur þessarar dýrmætu
hefðar hversu alþýðleg hún er og hve mikil alúð og
metnaður er lögð í að bera hana uppi. Það er greini-
legt að þessi menning lifir góðu lífi í Skagafirði.
Félag eldri borgara
Skáldakynning hefst á ný á morgun,
þriöjudag kl. 15 aö Hverfisgctu 105. Þar
mun Gils Guðmundsson lesa úr verkum
eftir Benedikt Gröndal. Opnunarhátíö
vegna félagsheimilis F.E.B. verður laug-
ardaginn 27. október og hefst kl. 14 að
Hverfisgötu 105. Timapantanir í mat og
á dansleik í síma 28812.
Heimsmeistarakeppni
áhugadansara
10. nóvember 1990 munu íslenskir áhuga-
dansarar taka þátt í tveim heimsmeist-
arakeppnum áhugamanna sem fram fara
í Þýskalandi. Þetta er í fyrsta skipti sem
íslendingar taka þátt í heimsmeistara-
keppni í samkvæmisdönsum. Danspörin,
sem bæði eru nemendur Nýja Danskól-
ans, eru: Esther Inga Níelsdóttir og
Haukur Ragnarsson. Þau taka þátt í 10
dansa heimsmeistarakeppni. Keppnin fer
fram í Köln. Fjóla Rún Þorleifsdóttir og
Víðir Stefánsson taka þátt í heimsmeist-
aradanskeppni unglinga í suður-amer-
ískum dönsum. Keppnin fer fram í Kalv.
Bæði þessi danspör hafa náð frábærum
árangri í danskeppni áhugamanna hér
heima og erlendis og hafa unnið sér rétt
til þátttöku í áðumefndum heimsmeist-
arakeppmun.
Fundur um borgaralega ferm-
ingu1991
■Siðmennt - félag áhugafólks um borgara-
legar athafnir - mun standa að borgara-
legri fermingu vorið 1991. Undirbúnings-
námskeið hefst með skálaferð fyrstu
helgina í nóvember, en vikulegir fyrir-
lestrar og umræðutimar byija í janúar-
mánuði. Til þess að kynna starfið nánar
er boðað til opins fundar um borgaralega
fermingu þriðjudaginn 23. október. Fund-
urinn verður haldinn í húsakynnum Fé-
lags bókagerðarmanna að Hverfisgötu 21,
viö hliðina á Þjóðleikhúsinu, og hefst kl.
20. Þeim sem óska eftir frekari upplýsing-
mn er bent á að hafa samband við Hope
Knútsson í síma 73734 eða Sigríði Stefáns-
dóttur í síma 18841.
ITC deildin Kvistur
heldur fúnd í kvöld kl. 20 að Holiday Inn.
Allir velkomnir. Upplýsingar gefúr Olga
Hafherg í síma 35562.
ITC deildin Eik
heldur fund í kvöld kl. 20 að Hallveigar-
stöðum, Túngötu 14, Reykjavik. Fundar-
stef: Lærður veit mikið en reyndur meira.
Styrkur, samtök krabba-
meinssjúklinga
og aöstandenda þeirra, heldur fyrsta fund
sinn á vetrinum þriðjudaginn 23. október
kl. 20 í húsi Krabbameinsfélagsins, Skóg-
arhlíð 8. í tilefni 3 ára afmælis samtak-
anna verður spilakvöld með góðum verð-
launum. Kafíi og kökur.
Gísli er
kominn til
Bagdad
Gísli Sigurðsson læknir, sem
innlyksa varð í Kúvæt eftir innr-
ós íraka, kom til Bagdad í gær-
morgun. Sérstakur fulltrúi
sænska utanríkisráðuneytisins
er nýkominn þangað til að fá
brottfararleyfi fyrir Svia og mun
hann fara með mál Gísla aö
beiöni utanríkisráðuneytisíns
hér. -hlh