Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift * Dreifing: Stmi 27022
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 1990.
Deilt um dægurlag:
Viðhöfum
samið um sýn-
ingarréttinn
- segir þjóðleikhússtjóri
Upp er komið deilumál milli Leik-
félags Reykjavíkur og Þjóðleikhúss-
ins um hvort Leikfélaginu sé heimilt
að nota hið vinsæla lag Alparós, sem
upprunalega var samið fyrir söng-
leikinn Sound of Music, í leikritinu
Ég er hættur! Farinn! eftir Guðrúnu
Kristínu Magnúsdóttur sem frum-
sýnt var í gærkvöldi hjá Leikfélag-
inu. Gísh Alfreðsson þjóðleikhús-
stjóri hafði farið fram á það við
Hallmar Sigurðsson leikhússtjóra að
lagið yrði tekið út úr sýningunni:
„Við höfðum samið um sýningar-
rétt á söngleiknum Sound of Music.
Æíingar eru hafnar og ætlunin er að
hefja sýningar í Þjóðleikhúsinu eftir
að viðgerðum lýkur, nánar tiltekið í
mars. Á fóstudagskvöldiö fengum við
fréttir af því að þeir hjá Leikfélagi
Reykjavíkur væru með Alparósina,
sem er eitt þekktasta lagið úr söng-
leiknum, í sínu leikriti. Það er án
þess að hafa fengið til þess tilskilin
leyfi. Þessu vildum við mótmæla,"
sagði Gísli Alfreðsson þjóðleikhús-
stjóri í samtali við DV í gær.
Hallmar Sigurðsson segir í bréfi,
sem hann hefur sent frá sér um mál-
ið, að hér sé einungis um að ræða
brot tónlistar úr umræddum söng-
leik sem ekki tekur nema innan við
mínútu í flutningi og það hafi verið
sannfæring hans frá því hann vissi
um væntanlega uppfærslu Þjóðleik-
hússins að flutningur lagsins skaðaði
ekki á nokkum hátt hagsmuni Þjóð-
leikhússins og sjái hann enga ástæðu
til að fella lagið úr sýningunni.
-ÓTT/hk
Hafnarfjörður:
Skora á Jón Sig.
aðtakalsæti
Undirskriftahstar eru í gangi í
Hafnarfirði og víðar í Reykjaneskjör-
dæmi þar sem skorað er á Jón Sig-
urðsson ráðherra að gefa kost á sér
í fyrsta sæti framboöslista Alþýðu-
flokksins í kjördæminu.
„Upphafið að þessu er hér í Hafnar-
firði. Þetta er síður en svo vantraust
á Guðmund Árna Stefánsson. Við
viljum hafa hann óskiptan í því starfi
sem hann er nú. Við hófum þetta á
fóstudag og okkur hefur gengið vel.
Það er ætlun okkar aö ljúka þessu á
miövikudag,“ sagði Albert Magnús-
son, krati í Hafnarfirði.
„Jón vissi af þessu áður en við fór-
um af stað. Hann hvorki hvatti okkur
né latti. Hann bað okkur að forðast
~ leiðindi og skítkast," sagði Albert.
-sme
LOKI
Það ergreinilega
hægt að vona fram eftir
öllum aldri.
Níu sinnum var slökkviliðið í Klukkan 8.03 var tilkynnt um
Reykjavík kallað út um helgina mesta bmna helgarinnar, í kjallara
vegna elds. í öll skiptin reyndist í húsi Kvennaskólans við Frí-
vera um eld að ræða. Líkur hafa kirkjuveg. Nokkru síðar handtók
verið Ieiddar að því að um íkveikj- löp-egla mann en tilburðir hans
ur hafí veriö aö ræöa í flestum til- bentu til að hann heföí ætlaö áö
fellunum. í þrjú skipti var hætta á kveikja í rusli á Sóleyjargötu.
stórbruna - á Rauðarárstíg 13 í Klukkan 21.10 á laugardags-
gærkvöldi, í Austurstræti 8 í fyrri- kvöldið var tilkynnt um eld i rusli
nótt og að Fríkirkjuvegi 9 á laugar- við Álftamýrarskóla. Um nóftina
dagsmorgun en þar varð tjónið fór slökkviliðið að Austurstræti 8.
mest. Þar hafði kviknað í ruslageymslu
Rannsóknarlögregla ríkisins sem er innbyggö við bókabúö ísa-
óskar eftir því að vitni sem voru á foldar. Þar var aht orðiö fuht af
faranótt laugardagsins, gefi sig færi.
sem hugsanlega gátu átt hlut að Laufásvegiðlenþarerbamaheim-
íkveikjum. ilið Laufásborg. Þar hafði kviknað
Klukkan 4.10 aöfaranótt laugar- í rusli en eldurinn var fliótlega
dags kviknaði í ruslagámi við slökktur. slökkvihðið kom. „Þarna heföi get- stöðviðHamraborg.ísjöafþessum
Skólabrú og var slökkt í honum. Á tíunda tímanum í gærkvöldi að verið hætta fyrir fólk,“ sagði brunaútköhum var um lítils háttar
Fimmtán mínútum síðar kviknaði kviknaði í dekkjum í reiðþjóla- varðstjórinn við DV. Bakdyr vora bruna að ræða. Þrisvar var eldur
í rush viö Hahærisplan. Klukkan geymslu á neðstu hæð á Rauöarár- opnar út í garð við geymsluna þeg- og hiti kominn á það stig i viðkom-
4.40 logaði svo eldur í rusli við stíg 13. Málning í geymslunni hafði ar að var komið - giæiður aðgangur andi húsnæði að aðstæður voru
bensíndælu á bensínstöð við Haíh- flætt út um gólf. Að sögn varðstjóra fyrir utanaðkomandi. Á svipuðum orðnar stórhættulegar, að sögn
arstræti. Lögregla handtók tvo slökkvhiðs sáu menn ekki handa tíma náði lögreglan í Kópavogi í slökkviliðs.
pilta nokkra síðar grunaða um sinna skil fyrir svörtum reyk. íbú- unglinga sem höfðu borið eld aö -ÓTT
íkveikju. ar voru komnir út á götu þegar rusli við Snælandsskóla og bensín-
Það var Ijót aðkoman hjá Bjarna Guðlaugssyni, húsverði í Kvennaskólanum í Reykjavík, á laugardagsmorguninn.
Bjarni kom að þar sem kveikt haföi verið i eldhúsi í húsvarðaríbúð skólans. Eldur og reykur ollu töluverðum
skemmdum og heldur Bjarni þarna á ónýtum eldhúsglugganum. DV-mynd GVA
Veðriðámorgun:
Áfram
hlýttí
veðri
Á morgun verður suðaustlæg
átt, kaldi eða stinningskaldi suð-
vestanlands en heldur hvassara
í öðrum landhlutum. Súld viö
suðurströndina, skýjað vestan-
lands og austan en léttskýjað á
Norðurlandi.
Hith 6 til 11 stig.
Ókunnur
maður í rúmi
konu á ní-
ræðisaldri
- héltsigveraheima
Konu á níræðisaldri brá heldur
mikið þegar hún sá ókunnan mann
liggja upp í rúmi í íbúð hennar í Hhð-
unum aðfaranótt laugardagsins.
Konan hafði haft gesti hjá sér fyrr
um kvöldið og fór hún síðan að horfa
á sjónvarp. Við svo búið ætlaði hún
að leggjast til hvílu. Þegar hún
kveikti ljósið í svefnherberginu sá
hún höfuð á sofandi manni koma
undan sænginni. Konan hringdi
skelkuð á son sinn sem kom fljót-
lega. Ekki tókst að vekja hinn óvænta
gest. Var síðan hringt á lögreglu og
eftir langa mæðu tókst að vekja
manninn sem var drukkinn.
Miðað við viöbrögð mannsins taldi
hann sig vera kominn heim til sín
og varð hlessa á því að lögregla væri
að vekja sig. Þegar hann áttaði sig
baðst hann afsökunar og lögreglan
keyrði hann til síns heima. Gömlu
•konunni brá mjög í fyrstu en hún
jafnaðisigfljótlega. -ÓTT
g KONFEKT
— HeildsöludreifinK slmi: 91-41760
r
sa
R á.oJ’.'
Iifliyggiugar
lll
, ALÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFELAGIÐ HF.
LÁGMÚLI5 - RF.YKJ AVÍK
sími 681644