Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1990, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990.
13
Fréttir
Karpov og Kasparov - hafa unnið til skiptis i síðustu tveimur skákunum.
Símamynd Reuters.
Heimsmeistaraeinvígið 1 skák:
Karpov jafnaði metin
Áskorandinn Anatoly Karpov bar
sigurorð af heimsmeistaranum
Garry Kasparov í 17. einvígisskák-
inni sem tefld var í gær og jafnaði
þar með stöðuna í einvíginu. Það var
ekki að sjá á taflmennsku Karpovs
að hann væri þreyttur eftir hina
löngu og erfiðu 16. skák þar sem
hann varð að játa sig sigraðan eftir
102 leiki og 12 klst. taflmennsku.
Þvert á móti virtist þessi sigur
áreynslulítill og kom veik mótstaða
heimsmeistarans á óvart. Kasparov
beitti Griinfelds vörn með svörtu og
fékk heldur lakara tafl út úr byijun-
inni. í miðtaflinu urðu honum svo á
mistök sem gerðu Karpov kleift að
komast með hrók inn fyrir víglinuna
og í framhaldinu lét áskorandinn kné
fylgja kviöi og varö heimsmeistarinn
að leggja niður vopn í fertugasta leik.
Hvítt: A. Karpov
Svart. G. Kasparov
Griinfelds vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Be3 c5
8. Dd2 0-0 9. Rf3 Bg4
í 15. einvígisskákinni varð fram-
haldið 9,- Da5 10. Hcl e6 10. Bh6!?.
Kasparov náði að jafna taflið auð-
veldlega í þeirri skák en hann vill
ekki gefa Karpov færi á að endur-
bæta taflmennskuna.
Næsti leikur hvíts er nokkuð sér-
kennilegur en Karpov vill greinilega
ekki leyfa uppskipti á f3.
10. Rg5!? cxd4 11. cxd4 Rc6 12. h3
Bd7 13. Hbl Hc8
Kasparov hefur alltaf haft gaman
af gildrum og nú leggur hann eina
slíka fyrir Karpov, 14. Hxb7? Rxd4!
15. Bxd4 Bxd4 16. Dxd4? Hcl+ 17.
Kd2 Hdl +! 18. Kxdl Ba4 + og svartur
vinnur.
14. Rf3 Ra5 15. Bd3 Be6 16. 0-0 Bc4
17. Hf-dl b518. Bg5! a6 19. Hb-cl Bxd3
20. Hxc8 Dxc8 21. Dxd3 He8 22. Hcl
Db7 23. d5 Rc4?!
Betra var 23. - h6 24. Bf4 Hc8 með
aðeins betra tafli á hvítan.
24. Rd2 Rxd2 25. Bxd2 Hc8
26. Hc6! Be5
Ekki gekk 26. - Hxc6 27. dxc6 Dxc6
28. Dd8+ BI8 29. Bh6 og hvítur mát-
ar. Svarta staðan er nú oröin mjög
erfið og Karpov gefur engin grið í
framhaldinu.
27. Bc3 Bb8 28. Dd4 f6 29. Ba5! Bd6
30. Dc3 He8 31. a3 Kg7 32. g3 Be5 33.
Dc5 h5 34. Bc7 Bal (Örvænting í tap-
aðri stöðu) 35. Bf4 Dd7 36. Hc7 Dd8
37. d6 g5 38. d7 Hf8 39. Bd2 Be5 40. Hb7
Og svartur gafst upp. Framhaldið
gæti orðið 40. - Bd6 41. Da7 og við
hótuninni Dxa6 ásamt Ba5 er ekkert
svar.
„Sérfræðingarnir“ höfðu
rangtfyrir sér
Ótölulegur fjöldi skáksérfræðinga
fylgjast með einvíginu á skákstað í
Lyon og er gjarnan vitnað í þá í þeim
Skák
Elvar Guðmundsson
fréttaskeytum sem send eru frá ein-
víginu. Þegar 16. einvígisskákin fór
í bið í annað sinn eftir 88 leiki var
það samdóma álit „sérfræðinganna"
að skákin væri jafntefli. Það tók Ka-
sparov hins vegar aðeins 13 leiki að
knýja fram sigur.
89. Ha7 Bg4 90. Kd6 Bh3 91. Ha3 Bg4
92. He3 Bf5 93. Kc7 KÍ7 94. Kd8 Bg4
95. Bb2 Be6 96. Bc3 Bf5 97. He7+ Kf8
98. Be5 Bd3 99. Ha7 Be4 100. Hc7 Bbl
101. Bd6+ Kg8 102. Ke7
Og svartur gafst upp vegna fram-
haldsins 102. - BÍ5 103. Be5 Rg7 104.
Bxg7 og hvítur vinnur létt.
18. einvígisskákin verður tefld á
laugardaginn og þá hefur Kasparov
hvítt.
-eg
'IÐ BJOÐUM UPP Á ÞRJÁR GERÐIR
NÆRFATA ÚR NÁTTÚRUEFNUM Á
ALLA FJÖLSKYLDUNA. Á UNGBÖRN,
BÖRN, UNGLINGA, KONUR OG KARLA.
100% silkinærföt, mjög einangrandi, sem gæla við húðina. Finnsk gæðavara frá
Ruskovilla.
100% ullarnærföt af Merínófé - silkimjúk og hlý. Finnsk gæðavara frá Ruskoviila.
Nærföt úr blöndu af kanínuull og lambsull, styrkt með nælonþræði. Vestur-þýsk
gæðavara frá Medima.
Allar þessar þrjár gerðir eru til i barna- og fullorðinsstærðum.
(^)
f /% U £=/
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN, LAUGAVEGI 25, SÍMI 10263.
Póntunarsími (91) 25155
EugJjáf plagjirf
Sagan sem þú gefur
þegarþú viltgleðja
Ástin kemur segir frá lífi landnema íAmeríku á síðustu
öld, starfi þeirra,sorgum, ástoggleði.
Líkt og íslensku Vesturfararnir á sinni tíð, erþetta
fátækt fólk sem vinnur hörðum höndum við að sjá
sérogsínum farborða, en lífshamingja þess er
bundinöðrum gæðum en þeim sem við eigum að
venjast ídag.
Þetta er frábærlega falleg ástarsaga,
sem heldur athygli lesandans óskiptri frá
byrjun til enda.
Ástarsagan í ár!
_
jólagjöt
Spennusaga um baráttuna milli góðs og ills,
myrkurs og Ijóss. Þetta er sagan sem heldur þér
við efnið frá fyrstu til síðustublaðsfðu.
Baráttan við heimsdrottna myrkursins
fellur vel inn í þá umræðu um dulræn fyrirbæri,
andlega vakningu og nýja öld, sem hefur verið
svo áberandi á fslandi undanfarið.
Þessari bók sleppir þú ekki fyrr en þú
hefur lokið við að lesa hana.
Spennubókin íár!
GíeðiteS:
JOSMYNDAÞJONUSTAN HF
.augavegi 178-Sími 68-58-11 (næsta hús við Sjónvarpið)
m m m-m « ■ ■ m m w'w'w w"w"urw ■ ■ ■'■■wii m \
með þinni eigin mynd
Pantið tímanlega