Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1990, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1990, Blaðsíða 28
36 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990. SKO ÚTSALA SKÓ ÚTSALA Úrval af samkvæmisskóm jólaskóm kuldaskóm ungbarnaskóm Mikill afsláttur Opið 6.-15. des. Lipurtá, Borgartúni 23 VERÐBREYTINGAR- STLfÐULL FYRIRARIÐ 1990 Samkvœmt ákvœðum 26. gr. laga nr. 75 frá 14. september 1981 um tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað verðbreytingarstuðul fyrir árið 1990 og nemur hann 1,1916 miðað við 1,0000 áárinu 1989. Reykjavík 30. nóvember 1990 RSK RlKISSKATTSTJÓRI Andlát Jón Guðmundsson frá Stóra-Laug- ardal, Tálknafirði, andaðist á Hrafn- istu aöfaranótt 5. desember. Halldór Jóhannsson bifreiðarstjóri, Sólvallagötu 36, Keflavík, lést að- faranótt 5. desember. Jarðarfarir Úttor Guðnýjar Ingibjargar Björns- dóttur, Eskihlíð 12a, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju fóstudaginn 7. desember kl. 13.30. Steingrímur Jóhannesson bifreiða- stjóri, Hrafnhólum 6, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju fóstu- daginn 7. desember kl. 15. Rögnvaldur Sigurðsson trésmíða- meistari, Iðufelli 4, sem lést 28. nóv- ember, verður jarösunginn frá Foss- vogskapellu mánudaginn 10. des- ember kl. 13.30. Hjálmar Böðvarsson frá Bólstað, Bakkabraut 1, Vík í Mýrdal, sem lést á sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, þann 27. nóvember sl., verður jarð- sunginn frá Víkurkirkju laugardag- inn 8. desember kl. 14. Unnur Thoroddsen lyfjafræðingur lést 27. nóvember. Hún fæddist í Reykjavík 1. ■ febrúar 1922, dóttir hjónanna Reginu Benediktsdóttur Thoroddsen og Guðmundar Thor- oddsen. Unnur lauk námi í lyfjafræöi og starfaöi lengst af í Garðsapóteki. Hún var tvígift. Fyrri maður hennar var Karl Jóhannsson. Þau eignuðust tvö börn. Unnur og Karl slitu sam- vistum. Seinni maður Unnar var Aðalfundur Dagblaðsins h/f verður haldinn 12. des- ember 1990 kl. 20.30 að Háaleitisbraut 58-60. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Karl Jónsson en hann lést árið 1968. Útfór Unnar verður gerö frá Bú- staðakirkju í dag kl. 13.30. Tilkyimingar "f-9 ---------- KR konur Jólafundur verður föstudaginn 7. des- ember í félagsheimili KR. Gestur kvölds- ins verður Magdalena Schram. íþróttaféiag fatlaðra í Reykjavík hefur opnað jólamarkaö í íþróttahúsi fatlaðra, Hátúni 14. Opið alla daga frá kl. 13-18. Jólafló Félags einstæðra foreldra í SkeljahelU, Skeljanesi 6, laugardaginn 8. desember kl. 14-17. Jólaskreytingar og ýmsir skrautmunir. Húsgögn, bækur og búsáhöld, kjólar og fleira fínt. Kaffi á könnunni. Félag eldri borgara Opiö hús í Goöheimum, Sigtúni 3, í dag. Kl. 14 frjáls spilamennska, kl. 19.30 félags- vist, kl. 21 dansað. Útgáfutónleikar með Björk og tríói Guðmundar Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guð- mundar Ingólfssonar munu efna til út- gáfutónleika 6. desember nk. í íslensku óperunni. Tilefnið er útgáfan á plötunni GUng-gló. Lögin eru öU, hvert á sinn hátt, perlur úr safni íslenskrar dægurtónlistar fyrri ára, en hljóta í meðfórum fjórmenn- inganna nýtt Uf. Tónleikamir hefjast kl. 21. Digranesprestakall Jólafundur kirkjufélagsins verður í safn- aðarheimilinu við Bjarnhólastíg fimmtu- daginn 6. desember kl. 20.30. Séra Fjalar Sigurjónsson, fyrrv. prófastur, kemur á fundinn. Nemendur úr Söngskóla Reykjavíkur syngja, jólasaga, jólaljóð og veislukaffi. Að lokum helgistund. Fundir Digranesprestakall Jólafundur kirkjufélagsins verður í safn- aðarheimilinu við Bjarnhólastíg fimmtu- daginn 6. desember kl. 20.30. Séra Fjalar Sigurjónsson, fyrrv. prófastur, k'emúr á fundinn. Nemendur úr Söngskóla Reykjavíkur syngja. Jólasaga, jólaljóð. Veislukaffi og að lokum helgistund. Mótframboð Dagsbrúnar Mótframboð til stjórnar Dagsbrúnar hef- ur ákveðið að halda kynningar- og bar- áttufund á Hótel Borg sunnudaginn 9. desember kl. 15. Meðal efnis verður: Kynning á frambjóðendum, Pétur Pét- ursson útvarpsmaður flytur útdrátt úr sögu 1. maí, Baldvin Halldórsson leikari flytur ljóö, Bubbi og Megas flytja fundar- mönnum nokkur lög og svo verða fyrir- spurnir leyfðar. Fundarstjóri verður Oskar Dr. Olafsson. Mótframboðið hvet- ur alla félagsmenn til að mæta og kynna sér hinn valkostinn í Dagsbrún. Tónleikar Tónleikar á Púlsinum í kvöld, fimmtudagskvöld, heldur Friðrik Karlsson & hljómsveit ásamt Ellen Kristjánsdóttur tónleika á Púlsinum. Meðal efnis, sem flutt verður, er efni af nýrri sólóplötu Friðriks þar sem gítar- leikur hans þykir skipa honum á bekk með fremstu gítaristum í heimi. Tónleik- arnir hefjast kl. 21.30 og standa fram undir 1. Þetta verða jafnframt síðustu tónleikar Friðriks og hljómsveitar á Púls- inum árið 1990. Aðgangur kr. 500. Söngsveitin Fílaharmónía heldur aðventutónleika í Kristskirkju, Landakoti, fostudaginn 7. desember nk. og sunnudaginn 9. desember, kl. 21 bæði kvöldin. Auk Fílaharmoníu taka þátt í tónleikunum kammersveit og Inga Back- man óperusöngkona. Stjómandi er Úlrik Ólason. Á efnisskrá em bæði innlend og erlend verk tengd aðventunni. Fluttur verður orgelkonsert eftir Hándel, þá mun Inga Bjarnason syngja aríur úr verkum eftir Mozart og Hándel. Kórinn flytur ýmis jólalög ásamt kammersveit og ein- söngvara, þar á meðal atriði úr Messíasi eftir Hándel. Aðgöngumiöar fást við inn- ganginn klukkustund fyrir tónleika. Leiðrétting í grein á mánudaginn þar sem fjall- að var um söngleikinn Söngvaseið sem Þjóðleikhúsið mun frumsýna í lok mars var rángt farið með náfn leikstjórans. Leikstjóri sýningarinn- ar er Benedikt Árnason. Jólagetraun DV -1. hluti Finnum f imm vitleysur varð því að treysta á minnið þeg- ar hann kláraði myndina. Eins og sést er minni hans ekki alltof gott. Það eru fimm alvarlegar vit- leysur á þessari mynd, eitthvað sem ekki passar, og þær þarf að merkja með því að setja um þær hring. Þar er komið að ykkur, lesendur góðir. Finnið þessar flmm vitleysur, setjið um þær hring og geymið myndina. Mikil- vægt er aö safna öllum 10 hlutum getraunarinnar saman áður en þeir verða sendir okkur í umslagi merktu ,jólagetraun“. 10. hluta jólagetraunarinnar mun fylgja reitur fyrir nafn og heimilisfang þátttakenda. Skilafrestur verður tilkynntur síðar. Þá leggjum við upp með fyrsta hluta í jólagetraun DV. í kynn- ingu í blaðinu i gær var getraun- in kynnt en við komum til með aö fylgjast meö listsýningu úr hinu jólasveinalega galleríi þar sem hinir ýmsu leiðtogar heims- ins hafa verið málaðir af lista- snillingi jólasveinanna. Eitt og annað hefur hins vegar farið úr- skeiðis hjá listasnillingnum. Fyrsti leiðtoginn, sem listasnill- ingur jólasveinanna hefur málað, á heima í borg borganna, París. Menn eru sammála um að mynd- in sé nokkuö góð en fyrirsætan hafði mikið að gera og gat því ekki setið fyrir allan tímann. Listasnillingur jólasveinanna PIB copenhagen 1. verðlaun jólagetraunar DV er þessi fullkomna Panasonic mynd- bandstökuvél frá Japis að verðmæti 119.800 krónur. Það er til mik- ils að vinna. Verið með!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.