Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990.
Útlönd
Sovéska fulltrúaþingið samþykkti aukin völd Gorbatsjovs:
Hann er valda-
meiri en
sjálf ur Stalín
- segir Boris Jeltsin sem veitir honum strangt aðhald
„Einn maður hefur þegar fengið
nægileg völd, meira að segja of mikil
völd. Hann er valdameiri en nokkur
annar Sovétleiðtogi, valdameiri en
sjálfur Stalín," var haft eftir Boris
Jeltsin, forseta Rússlands, eftir að
sovéska fulltrúaþingið samþykkti
með miklum meirihluta um hátíðirn-
ar að auka völd Gorbatsjovs til
muna.
Samþykktir fulltrúaþingsins
hreyta stjómarskrá Sovétríkjanna
þannig að Gorbatsjov ræður nú yfir
öllum mikilvægustu þáttum stjóm-
mála og efnahagsmála í landinu. Það
voru einmitt þessi völd sem Gor-
batsjov óskaði eftir til þess, að eigin
sögn, að bjarga Sovétríkjunum frá
efnahagslegu hmni. En mikilvæg-
ustu breytingarnar eru taldar þær
að Gorbatsjov er settur yfir ríkis-
stjórn ráðherra. Þá mun hann einnig
verða í forsæti sambandsráðs, þar
sem meðal annars er að finna leið-
toga lýðveldanna 15, og öryggisráðs
sem sjá mun um öll öryggismál Sov-
étríkjanna.
Gorbatsjov er eftir sem áður yfir-
maður sovéska heraflans og getur
sett herlög á landsvæðum þar sem
ókyrrð ríkir. Þá getur hann nánast
takmarkalaust sett lög sem eiga að
auðvelda veikburða markaðskerfi
Sovétríkjanna að hlíta vestrænum
markaðslögmálum.
Þá útnefndi Gorbatsjov Gannady
Janajev sem varaforseta Sovétríkj-
anna. Janajev er 53 ára gamall fyrr-
um verkalýðsleiðtogi. Hann hefur
verið kenndur við íhaldsöfl innan
kommúnistaflokksins en fuUvissaði
fulltrúaþingið um að hann styddi
Gorbatsjov og umbætur hans heils-
hugar.
Mótlæti
Margir líta á sambandsráðið sem
lykilþátt í hinni nýju valdastöðu.
Þannig munu ákvarðanir, sem
studdar eru af tveimur þriðju hlutum
ráðsins, verða bindandi fyririr öll
Sovétlýðveldin. Hins vegar mun Gor-
batsjov mæta andstöðu Eystrasalts-
ríkjanna. Landsbergis, forseti Lithá-
ens, varaði Gorbatsjov við að nota
hin auknu völd sín í Eystrasaltsríkj-
unum og hvatti Litháa til að búa sig
undir andstöðu. Þá hefur Boris Jelt-
sin lýst því yfir að hann muni ekki
lúta skipunum Gorbatsjovs í einu og
öllu. Muni hver sú aðgerð, sem ógn-
aði sjálfsforræði Rússlands, mæta
kröftugriandstöðu. Reuter
Surinam:
Friðsamlegt valdarán
hersins á aðfangadag
Herinn tók völdin í Surinam í Suð-
ur-Ameríku á aðfangadagskvöld. í
yfirlýsingu frá Ivan Graanoogst lið-
þjálfa í sjónvarpinu sama kvöld til-
kynnti hann að herinn hefði tekið
völdin í landinu og að bráðabirgöa-'
ríkisstjóm myndi ráða ríkjum fyrst
um sinn og sjá um að kosningar færu
fram innan 100 daga.
Valdarán hersins er annað valda-
rán hans á tíu áram og gekk það
mjög friðsamlega fyrir sig. Ekki var
hleypt af einu einasta skoti og engirin
var handtekinn. Búist var við að
Shankar, forseti landsins, og ríkis-
stjórn hans segðu af sér í gær. Var
valdamönnum annars frjálst að fara
og koma að vild. Heimildir segja að
valdaránið hafi ekki truflað daglegt
líf Surinambúa hið minnsta - allt
væri með „felldu“.
Ríkisstjórn Hollands lokaði strax
fyrir efnahagsaðstoð sína til Suri-
nam. Bandaríkjamenn og Frakkar
fordæmdu valdaránið.
Ástæður valdaránsins eru óljósar
en haft er eftir embættismönnum
sendiráðs Surinam í Haag í Hollandi
að ríkisstjórnin hafi svikist um að
halda leynileg loforð sín gagnvart
hemum.
Reuter
Túnis:
Diplómat hlýtur dauðaref singu
Diplómat úr utanríkisráðuneyti
Túnis hefur verið dæmdur til
dauða af þarlendum dómstólum.
Diplómatinn, hinn 58 ára gamli
Lamiri Dali, var ákærður fyrir
njósnir í þágu erlends ríkis eftir að
hann var handtekinn í október síð-
astliðnum. Réttarhöldin yfir Dali
fóru fram fyrir luktum dyrum en
hann mun hafa neitað öllum sakar-
giftum. Ættingjar Dalis sögðu að
hann hefði játað undir pyntingum
strax eftir handtökuna og að refs-
ingin væri vegna gagnrýni Dalis á
Ben Ali, forseta landsins. Dali hafði
gagnrýnt Ben Ali fyrir að ráða of
marga úr hernum í utanríkisþjón-
ustu Túnis.
Dauðadómurinn yfir Dali hefur
komið mjög á óvart en síðast var
maður dæmdur til dauða í Túnis
fyrir þremur árum. Þá hafði maður
nokkur nauðgað 13 böraum og
drepið þau. Ekki er vitað fyrir
hvaða erlent ríki Dah var ákærður
fyrir að njósna.
Reuter
Lamiri Daii hlaut dauöarefsingu fyrir meintar njósnir í Túnis.
Gannady Janajev, hinn nýi varaforseti Sovétríkjanna,
Ryzhkov fékk hjartaáfall á jóladag:
Heilsu hans
fer hrakandi
Heilsu Nikolais Ryzhkov, forsæt- ákafastir að hann segði af sér emb-
isráðherra Sovétríkjanna, fer ætti forsætisráðherrra er Boris
hrakandieftir hjartaáfall sem hann Jeltsin, forseti Rússlands.
varð fyrir á jóladag. Útvarpið í Ryzhkov neitaði hins vegar þrá-
Moskvu sagði þessi tíðíndi í gær- faldlega að segja af sér og hélt fast
kvöldi og bætti við að ráðamenn við þá skoðun' sína að róttækar
hefðumiklaráhyggjurafheilsufari efnahagsumbætur myndu orsaka
hans. ringulreið 1 Sovétríkj unum. Aðlaga
Gorbatsjov tilkynnti um veikindi þyrfti sovéskt efnahagslíf nýjmn
Ryzhkovs á sovéska fulltrúaþing- hugmyndumogvarnaþvíaðþjóðin
inu í gær og fullvissaði þingheim yrði fyrir áfalli. Eftir aö efnahagur
um að hann væri ekki í lífshættu. Sovétríkjanna för að versna til
Þó að Ryzhkov lifl er hins vegar muna leitaöi Ryzlrkov stuðnings
almennt taliö að hjartaáfallið þýöi kommúniskra leiðtoga í iðnaðinum
endalok á pólitísku lífi hans. Radd- en umbótasinnar líta á hann sem
ir, er krefjast afsagnar hans, hafa . persónugerving ílialdssemi í efna-
gerst æ háværari síðustu vikurnar. hagsmálum. Reuter
Meðal þeirra er hafa verið hvað
Dagsetnlng víðræðna 1 Persaflóadeilunni:
Hnúturinn
enn óleystur
Bandarískir embættismenn
höfnuðu í gær með öllu fréttum
ísraelsks dagblaðs um að leynileg-
ar viðræður ættu sér stað milli ír-
aka og Bandaríkjamanna um að
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, héldi til fundar í
Bagdad 9. janúar. Haft er eftir emb-
ættismönnunum að daglegar við- •
ræður við íraka eigi sér stað í gegn-
um háttsetta bandaríska diplómata
í Bagdad en að hnúturinn varðandi
dagsetmngu fundar Bakers og
Saddams Hussein væri enn óleyst-
ur.
Hussein hefur boðið Baker að
koma til fundar um lausn Persa-
flóadeilunnar 12. janúar. Banda-
ríkjamönnum þykir sú dagsetning
of nærri 15. janúar en þá rennur
út frestur íraka til að yfirgefa Kú-
væt.
Reuter