Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990. Útlönd Rúmeníukonungur til Rúmeníu eftir 45 ára útlegð: Vísað úr landi innan sólarhrings Michael Rúmeníukonungur kom í einkaheimsókn til Rúmeníu eftir 45 ára útlegö og nákvæmlega ári eftir aö Nicolae Ceausescu var líflátirtn. Michael ætlaði sér ekki að vera leng- ur en einn sólarhring í Rúmeníu en yfirvöld vísuðu honum úr landi áður en sólarhringurinn var liðinn. Michael lenti ásamt foruneyti sínu, þar á meðal konu og dóttur, á flug- vellinum við Búkarest á jóladags- kvöld. Gekk hann rakleitt í gegnum tollinn án athugasemda. Hélt hann síðan með bílalest að klaustrinu Curtea de Arges þar sem Rúmeníu- konungar eru grafnir. Um sama leyti sendi innanríkis- ráðuneytið út fréttatilkynningu sem lesin var upp í sjónvarpi. Þar var lýst eftir konunginum og því lýst yfir að hann hefði fengið inngöngu í landið fyrir mistök og væri þar þvi ólöglegur. Um miðnætti var bílalest Michaels konungs stöðvuð við vega- tálma í útjaðri Búkarest og lauk þar með heimsókn hans til fóðurlands- ins. Var hann sendur úr landi snemma í gærmorgun. Konungssinnar voru óhressir með móttökurnar sem fyrrum konungur landsins fékk. Leiðtogi bændaflokks- ins, sem vill þjóðaratkvæðagreiðslu um konunginn, sagði að brottvísun Michaels væri brot á mannréttind- um. Þá kom fram að hann hefði haft vegabréfsáritun í danskt vegabréf sitt og komist þannig inn í landið. Ritzau Faðir Karíusar og Baktusar látinn Norski rithöfúndurinn og teiknar- inn, Thorbjörn Egner, lést í Ósló að- faranótt jóladags 78 ára að aldri. Egn- er var heimsþekktur fyrir bækur sín- ar og leikrit, sérstaklega fyrir börn. Á löngum rithöfundarferli sínum samdi hann meðal annars söguna um Karíus og Baktus, Dýrin í Hálsa- skógi, Kardemommubæinn og marg- ar fleiri. Kardemommubærinn kom út 17 sinnum í Noregi og seldist þar í 180 þúsund eintökum. Bækur Thor- björns Egner voru þýddar á 24 tungu- mál og gefnar út í 27 löndum. Ritzau Thorbjöm Egner lést í Ósló aðfara- nótt jóladags 78 ára að aldri. Kröftugur fellibylur, sem kallaður var Joy, eða Gleði, gekk yfir hluta Ástralíu um jólin og geröi töluverö- an usla. Á myndinni sést íbúi i þak- lausu húsi sínu eftir að Gleðin gékk yfir og víst er að ekki hefur mikil gleði verið ríkjandi í huga hans eftir ósköpin. Fellibylurinn hjaðnaði fljótt og breyttist í úrhellisrigningu. Símamynd Reuter Skip, sem ferjaði bandaríska sjóliða af flugmóðurskipinu Saratoga, sökk á Haifaflóa við ísrael á laugardag. 18 sjóliðar drukknuðu í slysinu og 4 meiddust alvarlega. Sjóliðarnir voru að koma úr landgönguleyfi þegar ferjuskip- ið sökk. Á myndinni sjást ísraelskir sjúkraliðar hlúa að einum bandarísku sjóliðanna eftir slysið. Símamynd Reuter Sérkennilegur siður nýríkra Japana: Kynsvall á jólanótt Ungir og þokkalega efnaðir Japan- ir hugsa ekki um hefðbundna jólasiði á jólanótt heldur er kynsvall og át- orgía á lúxushótelum og veitinga- stöðum þeim efst í huga. Þannig eru flest aðcdhótel Tokyoborgar fullbók- uö aðfaranótt jóladags og annars í jólum og ekki er óvanalegt að ungur Japani á uppleið eyði sem nemur mánaðarlaunum á jólanótt. Ekki er vitað um uppruna þessarar makalausu venju en þetta „æði“ mun hafa hafist fyrir fimm árum. Eru það aðallega Japanir á þrítugs- aldri sem eyða jólanóttunum á þenn- an hátt og mun meðalkostnaður hvers þeirra vera um 20 þúsund ís- lenskar krónur á nóttu. Sumir eyða mun meira. Þannig segist einn 21 árs háskólastúdent panta herbergi fyrir jólanótt í júlí og leggja um 40 þúsund íslenskar til hliðar svo ekkert vanti þegar að jólunum kemur. Auk gist- ingar á lúxushóteli, með kampavíni, verður herrann að bjóða dömunni sinni á dýran veitingastað fyrir æv- intýri næturinnar. Þeir sem vilja vera menn með mönnum kaupa auk þess skartgripi fyrir sínar heittelsk- uðu þannig að reikningurinn er orð- inn ansi hár eftir þessi sérjapönsku jól. Reuter Óveður á Bretlandi: Kaldur kalkúnn á borðum Mikið óveður gekk yfir Bretlands- eyjar og vesturhluta Frakklands yfir hátíöarnar. Bátar og smærri skip sukku, rafmagnslínur eyðilögðust og jólastemningin var í heild frekar löskuð á þessum slóðum. Þó eru eng- ar fregnir um alvarleg meiðsl eða mannslát. Á jóladag hrundi hluti kirkjuturns í Englandi meðan hátíðarmessa fór fram. Fór hluti turnsins í gegnum kirkjuþak í Whiltshire-sýslu og mun- aði minnstu að presturinn yrði undir þar sem hann prédikaði yfir söfnuð- inum. Þótti undrum sæta að enginn skyldi slasast í þessum ósköpum. Þar sem rafmagnslínur eyðilögðust var kalkúnninn enn kaldur á mörg- um breskum heimilum annan í jól- um. Fjöldi báta og skipa leituðu skjóls í breskum og frönskum höfnum og björgunarsveitir hjálpuöu fólki frá þremur skipum þar sem þau voru umkringd sex metra háum öldum á jóladag. Reuter Lögreglan í Buenos Aires í Arg- entinu handtók þrjá ókunna menn fyrir jólin þar sem þeir óku um borgina með um eitt hundrað kíló af kókaini í bíl sínum. Á myndinni sést óeinkennisklædd- ur lögreglumaður rannsaka kókainpakkana. Simamynd Reuter SanktiHelena: Tókufimm tonnaf kannabis Lögregla og tollverðir á eyjunni Sankti Helenu fundu um fimm tonn af kannabisefnum um borð í togara sem kom þar að landi rétt fyrir jól. Áhöfnin, Qórir Hol- lendingar og þrír Ganamenn, voru handteknir. Ekki fylgir sög- unni hvaðan skipið var að koma eða hvert það var að fara en yfir- völd á Sankti Helenu telja áhöfn togarans hafa lagt aö bryggju í tryggri von um að ekkert gæti gerst. Tollyfirvöldum barst hins vegar tilkynning frá bresku fíkni- efnalögreglunni um að ekki væri allt með felldu um borð í togaran- um og var því ráðist i leit. Sölu- verðmæti kannabisefnanna er talið nema hundruðum núlljóna króna. Sankri Helena er afskekkt eyja á Suður-Atlantshafi. Þar búa 5.500 manns og aðeins er fært þangaðmeðskipum. Reuter Þrir af hverjum fimm Finnum telja að Finnland eigi að sækja um fulla aöiíd að Evrópubanda- laginu. Aðeins tæpur þriðjungur telur óráðlegt að sækja um aðild. Þetta eru niðurstöður í skoðana- könnun sem GaUup hefur gert fyrir finnska dagblaðið Helsinki Sanomat. Unga fólkið vill helst aðOd að EB þar sem tjórir af hverjum fimm Finnum á aldrin- um 18-24 ára eru fylgjandi aðild. Ritzau Albanía: Kosningar ífebrúar Kommúnistaflokkur • Albaníu vék frá stalínisma á jóladag og boðaði samkeppni fleiri flokka í kosningum í febrúar á næsta ári. Búist er við að kosningamar fari fram 10. febrúar. Þetta veröa fyrstu íjölílokkakosningar í Al- baníu i fjóra áratugi. Ramiz Aha forseti sagði að flokkur hans véki ekki frá hug- myndafræði marx-lenínisma þó beygt yrði af braut StaUns. Boðun kosninga kemur í kjölfar mikUla breytingaí Albaníuásíðustuvik- • um en þær hafa opnað landið fyr- ir umheiminum eftir áratuga- innilokun og kúgun. Alia fagnaöi fjölflokkakosningum og sagðist ekki vera meö neina fordóma gagnvart öðrum flokkum en þeim sem hafa ráðið í Albaníu undan- fama áratugi. Hann notaði tæki- færið einnig tíl að verja fyrrver- andi leiðtoga landisns, Enver Hoxha, sem dó 1985. Hann sagöi öfgahópa vilja endurmeta stöðu Höxha í sögu Albaníu og eyði- leggjaþannignaihhans. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.