Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Page 17
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990.
17
Svidsljós
„Vinkonur mínar sögðu að karlmenn
jöfnuðust á við 10 ullarteppi. En ég
sagðist heldur frjósa en vera með
karlmanni," segir Barbora sem er
orðin 135 ára gömul.
Elsta kona í heimi:
Ég hef alltaf
hatað
karlmenn
„Ég hef aUtaf verið sanntrúuð
kona, lesið í Biblíunni minni á hveij-
um degi og hef verið reglusöm með
mataræði, en það sem ég þakka lang-
lífi mitt er að ég hef haldið mig í fjar-
lægð frá karlmönnum," segir Bar-
bora Yasaite, sem er án nokkurs vafa
elsta manneskjan í heiminum í dag.
Barbora er 135 ára og býr í litlu þorpi
í Litháen.
„Ég hef alltaf hatað karlmenn.
Samneyti ,við þessar skepnur er
hættulegt. Það eru karlmenn sem
lenda í pólitískum hneykslismálum
og það eru karlmenn sem heyja stríð
og styrjaldir. Þeirra vegna er sak-
laust fólk drepið svo milljónum
skiptir. Ég hef aldrei viljað hafa neitt
saman við karlmenn að sælda og tel
það mitt lífslán. Með karlmenn í
kringum mig hefði ég ekki getað lifað
svona lengi,“ segir þessi elsta rauð-
sokka í heimi.
Það var ekki fyrr en fyrir 10 árum,
þegar Barbora var 125 ára, að hún
þurfti til læknis í fyrsta skipti á
ævinni. Þá datt hún og fótbrotnaði
og neyddist til að leita sér aðstoðar.
„Ég var orðin 60 ára þegar ég sá ljósa-
peru í fyrsta skipti og ég var áttræð
þegar ég notaði fyrst síma. Þegar bíl-
ar komu fyrst á markaðinn fannst
mér þeir bara hávaðasamir og illa
lyktandi. Það sama gildir um flugvél-
ar, fólk hlýtur að vera klikkað að
ferðast með flugvélum," segir Bar-
bora.
Þessi dæmalausa kona fæddist 15.
júlí 1855 og hefur aldrei farið lengra
en 30 kílómetra frá heimili sínu.
Heimsmetabók Guinness hefur stað-
fest að hún sé elsta manneskjan í
heimi. Sovésk yfirvöld hafa einnig
staðfest þetta eftir að hafa rannsakað
fæðingarvottorð hennar og gamlar
kirkjubækur.
Sérfræðingar og læknar segja að
ástæðan fyrir langlífi Barboru sé
heilsusamlegt líferni; hún drekki
ekki áfengi, kaffi og te og lifi í ómeng-
uðu andrúmslofti í streitulausu um-
hverfi. En Barbora er aldeihs ekki á
því að þetta sé skýringin á langlífinu
og segir að ekkert mark sé takandi á
þessum bullustömpum. „Það er
vegna þess að ég hef haldið mig frá
karlmönnum og einungis þess vegna.
Ég væri löngu dauð ef ég hefði verið
návistum. við þá. Sérfræðingar geta
haldið það sem þeir vilja en ég veit
betur,“ segir sú gamla ákveðin.
„Ég man aö þegar ég var um tví-
tugt voru vinkonur mínar alltaf að
hvetja mig til að ná mér í karl. Þær
sögðu að það væri besta ráðið til að
halda á sér hita á nætumar og að
þeir jöfnuðust á við 10 ullarteppi.
Þær stríddu mér stundum þar til ég
fór að gráta undan þeim, en ég vissi
að ég var að gera rétt. Heldur frysi
ég en að vera með karlmanni.
Allar þessar vinkonur mínar eru
dauðar fyrir hálfri öld og enn lengra
er síðan karlamir þeirra hrukku upp
af. Ég lifi enn og þakka guði fyrir að
hafa verið laus við karlmenn í lífi
mínu,“segirBarboraYasaite H.Guð.
SallyBurton:
Vil ekld eyða ævinni
sem syrgjandi ekkja
Sally Burton, síðasta kona Ric-
hards Burton, er nú að reyna að
koma undir sig fótunum á nýjan leik
eftir fráfall manns síns. Hún hefur
flutt úr húsinu sem þau áttu í Sviss
og segist vilja byija að lifa fyrir sjálfa
sig.
„Þegar Richard dó varð ég að engu.
Hann var allt í einu horfmn og ekk-
ert var eftir. Fyrstu mánuðina eftir
dauða hans lokaöi ég mig inni í ein-
semd en nú hef ég ákveðið að þetta
gangi ekki lengur. Ég vil ekki eyða
ævinni sem syrgjandi ekkja,“ segir
Sally.
Frá því að Richard dó hafa ekki
verið neinir menn í lífi Sallyar. Þegar
hún var spurð að þvl hvort einhver
gæti komið í hans stað svaraði Sally:
„Að sjálfsögðu. Vandinn er bara að
finna heiðarlegan og góðan mann.
Þessi stutti tími með Richard er dýr-
mætari en heil mannsævi með ein-
hverjum öðrum. Ég kvíöi ekki fram-
tíðinni. Það versta sem gat gerst
geröist; ég missti Richard. Úr því að
ég gat komist yfir það þá held ég að
ekkert geti gerst sem ég komi ekki
til með að ráða við,“ sagði SaUy Bur-
ton.
Sally Burton er nú að reyna að koma
undir sig fótunum.
m m
SIEMENS
adidas
rau
FLUGLEIDIR
L
Landsbanki
íslands
Banki aNra landsmanna
SJÓVÁ-ALMENNAR
Brimborg hf.
slensku s
bestu menn?
Kristián Arason
þennan eina leik
LLIIMIMI!
AEG