Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Page 30
34
FIMMTUDAGÚR 27. DESEMBER 1990.
Afmæli
lilj a Hj artardóttir
Lilja Hjartardóttir Howser, fulltrúi
á skrifstofu Hollustuverndar ríkis-
ins, Stekkjarkinn 3, Hafnarfiröi, er
sextugídag.
Lilja er fædd í Reykjavík og ólst
upp frá tveggja ára aldri á Patreks-
firði. Hún var í námi í Kvennaskól-
anum í Reykjavík 1945-1948 ogLeik-
listarskóla Lárusar Pálssonar 1952-
1954. Lilja var í Leiklistarskóla Þjóö-
leikhússins 1954-1955 og íslenska
heilunarskólanum 1988-1989. Hún
var talsímakona á Patreksfirði á
sumrin 1944-1949 og var afgreiðslu-
maður í Þvottahúsinu Drífu í Rvík
1949-1955. Lilja var talsímakona á
Langlínumiðstöðinni í Reykjavík
1955-1958 og flskvinnslukona í Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar 1972-1978.
Hún var skrifstofumaður á Kefla-
víkurflugvelh 1978-1985 og hjá Holl-
ustuvernd ríkisins frá. 1985.
Fjölskylda
Lilja giftist 3. ágúst 1958 George
E. Howser, f. 25. júní 1924, skrif-
stofumanni hjá Birgðadeild hersins
á Keflavíkurflugvehi. Foreldrar Ge-
orgs eru: John Howser, Kingsport,
Tennessee í Bandaríkjunum, og
kona hans, Delia Howser. Börn Lilju
og Georgs eru: Laura Ann, f 1. jan-
úar 1959, kennari í Hafnarfirði, sam-
býlsimaður hennar er Gunnar
Leifsson, sonur þeirra er Leifur
George, f. 30. ágúst 1990; George
Hjörtur, f. 30. júní 1961, hljómlistar-
maður í Rvík; Delia Kristín, f. 18.
ágúst 1965, bankamaður, dóttir
hennar og Róberts Bjarnasonar lög-
regluþjóns er Lilja Guðrún, f. 13.
janúar 1985. Stjúpdóttir-Lilju er
Renee Howser Pohemus, f. 21. okt-
óber 1950, ráðgjafi á lögfræðiskrif-
stofu í Chesterfield í Virginíu í
Bandaríkjunum, gift Ronald James
Polhemus, sonur þeirra, Preston,
lést af slysfórum 15 ára 1986.
Systur Lilju eru: Anna, f. 1. apríl
1933, gift Hans Júlíussyni, dóttir
þeirra er Guðríður; Valgerður, f. 17.
apríl 1936, gift Kristjáni Sveinssyni,
dætur þeira eru: Sigríður, Þorbjörg,
Elín Hrund og Karítas, ög Margrét,
f. 26. desember 1942, ekkja eftir Finn
Steinþórsson, sonur þeirra er Stefán
Þór.
Ætt
Foreldrar Lilju voru Hjörtur
Kristjánsson, f. 1. júní 1905, d. 4.
mars 1979, vélstjórí í Rvík, og kona
hans, Sigríður G. Hjartardóttir, f. 26.
ágúst 1908, d. 3. júlí 1980, vann hjá
O. Johnson og Kaaber. Hjörtur var
sonur Kristjáns, b. á Efra-Vaðli,
Þórðarsonar, b. og hreppstjóra í
Haga á Barðaströnd, Jónssonar, b.
og hreppstjóra í Haga, Jónssonar,
b. í Bjarneyjum, Arngrímssonar, b.
í Álftagróf í Hörðudal, Jónssonar,
b. á Syðri-Brekku í Skagafirði, Tóm-
assonar, lögréttumanns á Syðri-
Brekku, Arngrímssonar, prests á
Ríp, Jónssonar. Móðir Kristjáns var
Ingibjörg Jónsdóttir, verslunar-
stjóra í Kúvíkum við Reykjarfjörð,
Salomonssonar og fyrri konu hans,
Ingibjargar Þorsteinsdóttur, prests
á Eyjadalsá, Jónssonar. Móðir
Hjartar var Sigríður Jónsdóttir, b. í
Neðri-Rauðsdal, Guðmundssonar,
b. og hreppstjóra í Litluhlíð, Guð-
mundssonar. Móöir Sigríðar var
Helga, systir Þórólfs, fóður Sigurö-
ar, skólastjóra á Hvítárbakka, föður
Önnu, forstöðumanns Kvennasögu-
safnsins.
Sigríður var dóttir Hjartar, verk-
Lilja Hjartardóttir.
stjóra í Rvík, Jónssonar, sjómanns
í Steinum í Rvík, Eyjólfssonar, sjó-
manns á Hvaleyri viö Hafnarfjörð,
Jónssonar.
Lilja verður að heiman á afmælis-
daginn.
Merming______________________________
Athafna- og
atorkumaður
Hinn kunni rithöfundur, Ásgeir Jakobsson, hefur nýlega sent frá
sér stórt og mikið ritverk um athafnamanninn Pétur J. Thorsteinsson sem
löngum er kenndur við Bíldudal. Nú er það svo að Péturs J. Thorsteinsson-
ar er víða getið í atvinnusögu fyrri tíðar en höfundur hefur unnið úr
þeim köflum og gert úr þeim heillega mynd.
Höfundur tekur fram í formála bókar sinnar að Pétur hafi ekkert látið
eftir sig finnanlegt um sjálfan sig og á það jafnt við um hugsanir bak við
athafnir hans, lífsskoðanir hans eða tilfinningalíf, vangaveltur um fram-
kvæmdir eða annað sem hann átti við að stríða eða góðu að mæta.
í fyrsta kafla bókarinnar fjallar höfundur um ætt og uppruna Péturs.
Hann var af merku dugnaðarfólki kominn og á sterkan frændgarð at-
hafna- og gáfumanna, bæði í forfeðrum og niðjum.
Þrátt fyrir það að Pétur væri ekki hjónabandsbarn og alinn upp með
móður sinni hleypir hann heimdraganum 17 ára gamall og ræðst til versl-
unarstarfa. Þar með er framtíðarbraut hans mörkuð. Ekki gefst hér tóm
til að rekja athafnasögu hans í mörgum orðum. Frá allsleysi vinnur hann
Bókmermtir
Albert Jóhannsson
sig upp, eins og það er kallað, og verður einn af mestu athafnamönnum
sinnar tíðar. Til aö gera langa sögu stutta nægir að benda á að þegar
hann sest að á Bíldudal og byijar að starfrækja þar verslun og útgerð
eru aðeins þrjú hús þar og nokkrir kofar en aðeins eitt húsanna metið
til verðs. Ungi maðurinn á engar eignir en nóg af kjarki, bjartsýni, þreki
og vilja. Þegar hann flytur brott frá Bíldudal um aldaríjórðungi síðar búa
um 300 manns og hann er einn af mestu athafnamönnum landsins.
Pétur flytur sig nú um set til Danmerkur, að því er talið er til þess að
geta betur stuðlað að menntun barna sinna. Þar gerist hann þátttakandi
í hinni miklu útgerðar- og verslunarsamsteypu sem manna á meðal kallað-
ist Miljónafélagið.
Sú saga er alkunn og verður ekki rakin hér en hefur víðtæk áhrif á
athafnalíf Péturs. Síðar kemur þar einnig til sögu útgerðarfélagið Hauk-
ur. Alls konar áföll, aflabrestur, heimsstyrjöld og markaðshrun leiddu
til þess að Pétur missir mest af eignum sínum. Þó á hann eftir að koma
við sögu í Hafnarfirði, Sandgerði, Vestmannaeyjum og víðar. Bók þessi
er rituö á ágætu máli. Stíll hennar einkennist hvorki af skrúðmælgi eða
fagurgala og leiðir því ekki lesandann frá efni bókarinnar, eins og stund-
um vill verða. Prýdd er hún nokkrum myndum af sögupersónum o.fl.
Við lestur hennar hvarflaði það að mér að þar mætti lesa milh línanna
hvað olli skilum milli auðshyggju og sósíahsma. Hún varpar einnig skæru
ljósi á atvinnuuppbyggingu Islendinga á þessu tímabih þegar þjóðin er
að byija að rétta úr kútnum. Þar áttu athafna- og atorkumenn eins og
Pétur J. Thorsteinsson stærstan hlut að.
Þaö hefur löngum verið íhugunarefni hvers vegna Pétur sleit sig frá
Bílduaal og flutti til Kaupmannahafnar. Ef til vih kemst Jónas frá Hriflu
næst hinu rétta, svo að vitnaö sé í bók hans, Aldamótamenn, og getið er
í rití þessu. Þar segir:
„Ásthildi þóttí það skorta á hamingju sína á Bíldudal að geta ekki veitt
sínum mörgu og mannvænlegu bömum það uppeldi sem hún óskaði að
veita þeim. Til að bæta úr þessu tók hún þá ákvörðun að fjölskyldan öh
skyldi flytja tíl Kaupmannahafnar og dvelja þar árum saman meðan böm
þeirra stunduðu flölbreytt nám til undirbúnings fuhorðinsáranna."
Og síðar: „Með þessum framkvæmdum var shtínn lífsþráöur Péturs
Thorsteinssonar. Hann hafði skapaö hinn nýja Bíldudal með miklum
glæsibrag og hvarf þaöan án réttmætra tílefna. Við flutninginn misstí
hann undirstöðu starfs síns.“
Þetta er vönduð bók og gagnleg framtíðinni.
Bildudalskóngurlnn
Höfundur: Ásgelr Jakobsson
Útg.: Skuggijó
Hafnarflröl 1990
Kristín Guðbjörg Jónsdóttir, Skóla-
braut 24, nú á Dvalarheimihnu
Höfða, er níræð í dag.
Kristín er fædd á Bæ á Bæjarnesi
og ólst upp á Barðaströnd og í Gufu-
dalssveit. Hún var barnfóstra og
vinnukona hjá móðurbróður sínum
Teití Guðmundssyni og Jóhönnu
Kristófersdóttur á ýmsum stöðum á
Barðaströnd frá tíu ára aldri til tutt-
ugu ára. Kristín kom þá tíl foreldra
sinna á Eyri í Gufudalssveit og var
þeirra stoð í ellinni, þar tíl faðir
hennar lést, en móðir hennar lést
hjá henni eftír að hún fer að búa á
Skálanesi.
Hún fluttist tíl Akraness 1938 og
vann um tíma í frystíhúsum. Kristín
fór að kenna þeim bömum lestur
sem aðrir höföu gefist upp á og fórst
það svo vel úr hendi að hún gat
ekki tekið öll þau börn sem hún var
beðin fyrir. Hún haföi svo lítið hús-
pláss að hún kenndi í eldhúsinu
heima hjá sér. Það er stór hlutí
Akumesinga sem lært hefur að lesa
hjá henni.
Fjölskylda
Kristín hóf 1928 búskap með Sig-
urði Jónssyni, f. 1. júní 1903, vega-
vinnuverkstjóra, síöar vörubíl-
stjóra. Foreldrar Sigurðar eru: Jón
Einarsson, b. á Skálanesi, og kona
hans, SigurlínaBjarnadóttir. Börn
Kristínar og Sigurðar eru: Guð-
munda Vigdís, f. 24. mars 1929, býr
í Kópavogi, gift Róbert John Jack,
sem er látínn, prófastí á Tjöm á
Vatnsnesi, og eiga þau sex börn;
Arnfinnur Ingvar, f. 28. september
1930, skrifstofumaður hjá Samband-
inu, kvæntur Þórönnu Jónsdóttur
enþaubúaíReykjavíkogeigaþrjú
börn; Kjartan Trausti, f. 23. sept-
ember 1939, fararstjóri hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn á Spáni og á
tvö börn, og Erlingur, f. 6. október
1942, d. 22. júní 1944.
Systkini Kristínar eru: Guðný, gift
Þórarni Einarssyni kennara, þau
eru bæði látin og áttu þau fjögur
böm; Amfinnur, lést átján ára;
Guðmunda, lést átján ára; Erna, lát-
in; Ingibjörg, gift Bertel Andréssyni
Kristín Guðbjörg Jónsdóttir.
skipstjóra, þau eru bæði látín og
áttu þau íjóra syni og Guðmundur,
léstíjögurraára.
Foreldrar Kristínar voru: Jón
Finnur Amfinnsson, b. á Eyri í
Gufudalssveit, og kona hans, Elín
Guðmundsdóttir. Jón var sonur
Amflnns Björnssonar. Elín var
dóttir Guðmundar Jónssonar Teits-
sonar.
95 ára
Stefán Jóhannesson,
Munkaþverárstræti 32, Akureyri.
90 ára
Kristín Jónsdóttir,
Dvalarheimilinu Höföa,
Akranesi.
85 ára
BjamiLoftsson,
Starrahólum 1, Reykjavík.
80ára
Svanlaug Pétursdóttir,
Dvalarheimilinu Höföa, Akranesi.
Svanhvít Jóhannesdóttir,
Lönguhlíö3, Reykjavík.
Böðvar Jónasson,
Hólsvegi 3, Eskifirði.
75 ára 40 ára
Helga Einarsdóttir, Grænuhlíð, Torfalækjarhreppi. Gísli Benediktsson, Brekku, Réy öaríj arðarhreppi. Margrét Guðmundsdóttir, Dynskógum 24, Hveragerði. Kristin Gísladóttir, Borgarhrauni 27, Hveragerði. Rúnar Pálmason, Tunguvegi 78, Reykjavík. Eirikur Páll Eiríksson, Sæbólsbraut 12, Kópavogi. Karen Eiríksdóttir, , Háteigsvegi 16, Reykjavík. Bergljót Bjarnadóttir, Hellisbraut 22, Reykhólahreppi.
70 ára
Elísabet O. Sigurðardóttir, Gautlandi 9, Reykjavík, Guðrún Sigurðardóttir, Sólbrekku 2, Húsavik. Finnbjörn Bjarnason, Litlu-Eyri, Bíldudalshreppi. Svanhildur Guðmundsdóttir, Álföheiði 2, Kópavogi. Steingrímur Gunnarsson, Héðinsbraut 1, Húsavík. Erla Guðmundsdóttir, Nóatúni 26, Reykjavík. Sveinn Hauksson, Klappastíg 12, Reykjavik. Magnús Pétur Magnússon,
60ára
Vilborg Brynjólfsdóttir, Tungubakka 22, Reykjavík.
50ára
Anna Magnúsdóttir, Hafnartúni24, Sigluflrði. Laugarholtí 7B, Húsavík. SnorriSnorrason, Fjarðargötu 5, Þingeyri.
Lone Jensen,
Eyrarvegi 33, Akureyri.
— tfiPúJ-----
HUGSUM FRAM A VEGINN
&
||ráðERÐAR